Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ VBKmPn/JOVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989
Tölvur
Nýjar vinnustöðvar og
einmenningstölvur frá DEC
HINN 10. janúar sl. kynnti Digital Equipment Corporation (DEC)
nýjar vinnustöðvar og bárust þegar 5 þúsund pantanir fyrsta
daginn í VAXstation 3100. Ennfremur hefur DEC kynnt nýjar
einmenningstölvur fyrir bandarískan markað. Þar að auki kynnti
fyrirtækið nýjan hugbúnað til notkunar á vinnustöðvum sem býð-
ur upp á áður óþekkta möguleika. Allar vinnustöðvamar bjóða
upp á DECwindows, sem er staðlað umhverfi bæði fyrir notend-
ur og forritara. Það er útfærsla Digitals á „X Windows". Notend-
ur sjá í DEC-windows einkum gluggakerfi, líkt og á Macintosh.
Þeir sem stunda hugbúnaðargerð fá með DECwindows staðlað
þróunarumhverfi þar sem engu máli skiptir hvaða stýrikerfi ligg-
ur að baki.
VINIMUSTOÐ — VAXstation 3100 frá Digital er fyrirferð-
arlítil borðtölva. Hún er samt allt að 4 sinnum hraðvirkari en minnsta
VAX-vinnustöðin til þessa, VAXstation 2000.
Tveimur vikum eftir tilkynningar
Digital um hinar nýju vinnustöðvar
setti Digital á markaðinn röð af
tölvum, VAX 6300. Þessar vélar
eru um 35% afkastameiri en fyrir-
rennarar her.nar, VAX 6200.
Hlutabréf Digital hækkuðu eftir
kynningarnar í janúar. Þau stóðu í
109 dollurum 5/8 hluturinn og þeg-
ar síðast fréttist 3. febrúar voru
þau komin í 121 doilar 5/8. Haft
var eftir verðbréfasölum að þessa
hækkun megi að hluta rekja til
ummæla ýmissa ráðgjafafyrirtækja
á sviði fjárfestinga.
Fyrsta DECwindows hjá
ísal
DECwindows verður í fyrstu fá-
anlegt undir ULTRIX og VMS, en
stutt er í MS-DOS útgáfu. Þá hefur
OSF (Open System Foundation)
ákveðið að nota DEC- windows frá
DEC og hluta frá Hewlett Pacard
og Microsoft í sín stöðluðu notenda-
skil. Fyrsta DECwindows kerfið á
íslandi verður sett upp á VAX
vinnustöð með ULTRIX hjá ís-
lenska álfélaginu í Straumsvík í
marsmánuði.
Þær vinnustöðvar sem DEC hef-
ur sett á markaðinn er í fyrsta lagi
VAXstation 3100 en stöðina má
nota hvort sem er með VMS eða
ULTRIX (DEC-útgáfan af UNIX).
Þar að auki geta VMS-notendur
keyrt PC-forrit sem gerð eru fyrir
MS-DOS. Tölvan er um þrisvar
sinnum hraðvirkari en VAXstation
2000 en á svipuðu verði. VAXstati-
on 3100 fæst með ýmsum disk-
stærðum og innra minni er 8-32
MB. Þessi vinnustöð er talin munu
vekja mesta athygli hér á landi af
hinum nýju vinnustöðvum frá DEC
sakir óvenjulega lágs verðs miðað
við afköst.
VAXstation 3520 og VAXstation
3540 eru fjölgjörvakerfi (multi
processor systems). Sú fyrrnefnda
með 2 örgjörvum og hin síðamefnda
með 4. Þessar stöðvar geta nýtt sér
bæði VMS og ULTRIX og em eink-
um hugsaðar fyrir mjög reikni-
freka, grafíska vinnslu.
Helsti munurinn á DECstation
3100 og VAXstation 3100 er sá að
sú fyrrnefnda keyrir einungis á
ULTRIX og er jafnframt hraðvirk-
asta borðvinnustöð í heimi. Þessi
stöð byggir á sérlegum RISC-
örgjörvum frá MIPS Computer Sys-
tems Inc. og telst vera 14 Dhrys-
tone MIPS (milljónir aðgerða á sek-
úntu).
Samhæft umhverfi fyrir
alla notendur
Með DECwindows leggur Digital
gmnninn að einu samhæfðu um-
hverfi fyrir alla notendur, óháð vél-
búnaði og stýrikerfi. Fyrstu forritin
sem vinna í þessu umhverfi vom
kynnt á sama tíma og DEC-
windows. VAXpc er forrit fyrir
vinnustöðvar sem hermir eftir MS-
DOS og leyfir þar með notendum
að keyra PC- forritin sín á öflugum
vinnustöðvum. Gluggakerfið gerir
mönnum kleift að keyra PC-forrit
í einum eða fleiri gluggum samtím-
is VMS-forritum í öðrum. Ef vinnu-
stöðin er tengd tölvuneti sem inni-
heldur ULTRIX-vélar er unnt að
vinna á þeim gegnum enn einn
gluggann.
DECwindows byggir á X Window
System VI1 sem þróað var við MIT
í Bandaríkjunum. Það er einnig í
samræmi við aðra staðla fyrir hluti
eins og tölvunet, gagnaskipti,
skjalaflutning' og borðútgáfustarf-
semi (desktop publishing).
VAX Decision Expert er kerfi
sem styðst við DECwindows og er
ætlað til að þróa kerfi fyrir sérfræð-
inga sem notfæra sér aðferðir og
tækni gerfigreindarinnar.
Með sumum vinnustöðvunum
sem kynntar voru 10. janúar, fylgir
stýrikerfið með í handhægum
pakka sem kallaður er Desktop-
VMS, og felur jafnframt í sér hluti
eins og DECwindows, DECnet,
VAXcluster s/w og VAXpc. Þetta
kerfi ásamt öllum handbókum er
komið fyrir á geisladiski. Sá hluti
af DECwindows sem kallast Book-
reader er notaður til að kalla fram
leiðbeiningar um Desktop- VMS.
Fyrir nokkrum mánuðum til-
kynnti Digital um áform sín að
koma á sérstakri tilhögun fyrir
samsett skjöl (compound document
architecture — CDA). Nú litu fyrstu
tólin sem lúta þessari högun dags-
ins ljós. Hér er um að ræða DEC-
write ritil (editor) fyrir samsett
Orkumál
Svipuð olíunotkun
árið 2010 og 1987
— samkvæmt spá Orkuspárnefndar
í ELDSNEYTISSPÁ Orkuspárnefhdar til ársins 2015 sem nýlega
birtist í samnefndri skýrslu er gert ráð fyrir að heildarnotkun á
olíu muni dragast nokkuð saman þegar liður fram á næstu öld
vegna samdráttar í fiugi. Reiknað er með að árið 2010 verði
heildarnotkun álíka mikil og hún var 1987 eða 759 þúsund tonn.
í lok spátímabilsins, 2015, er áætlað að heildarnotkunin verði
orðin 773 þúsund tonn eða tæplega 2% meiri en hún var árið 1987.
skjöl og DECdecision. Með samsett-
um skjölum er átt við skjöl sem eru
samansett af texta og myndum.
Með myndum er átt við hvers
kyns myndrænar upplýsingar, línu-
rit, teikningar, uppdrætti og ljós-
myndir. CDA nær reyndar einnig
yfir talað mál og seinna er að vænta
vél- og hugbúnaðar sem lejrfir með-
höndlun á talmáli samkvæmt
CDA-högun. DECdecision er safn
verkfæra fyrir sérfræðinga og
stjórnendur til þess að auðvelda og
flýta ýmsum útreikningum og birt-
ingu niðurstaðna. DECdecision
inniheldur m.a. töflureikni og við-
skiptagrafík og vinnur að sjálfsögðu
í nánum tengslum við DEC-
windows. Með DECwrite er unnt
að útbúa og vinna með skjöl sem
fá tilteknar upplýsingar og gögn
frá öðrum kerfum á sama tölvunet-
inu t.d. DECdecision. Þetta kallar
Digital Live Links eða „lifandj
tengsl" milli viðfangskerfa. í
tengslum við CDA hefur Digital
kynnt þrjú önnur tæki þ.e. VAX-
myndaskanna, tæki til að skanna
myndir; VAXimage Scanning
Application, forrit til að meðhöndla
myndræn gögn og VAXimage
Applfcation Services, hjálparforrit
til þess að skrifa myndræn við-
fangsforrit.
Digital tilkynnti um ætlun sína
að aðlaga ALL-IN-1 skrifstofukerfi
að DECwindows. Verður þess þá
ekki langt að bíða að notendur fái
aðgang að upplýsingakerfum með
mús.
Loks hefur Digital tilkynnt um
þá fyrirætlun sína að útbúa sérstök
notendaskil fyrir VMS sem eru í
fullu samræmi við POSIX (IEEE
1003.1). Þessi skil tryggja sameig-
inlegan grunn fyrir gerð viðfangs-
forrita og leyfa hnökralausan flutn-
ing milli VMS, ULTRIX og annarra
stýrikerfa, sem samræmast POS-
IX-staðlinum.
Ræða
merkingar
umbúða
ÍSLENSKA umboðssalan hefur
tekið við umboði fyrir John R.
Hanson á Islandi, en það fyrir-
tæki hefur sérhæft sig í ýmiss
konar merkingatækni. Aðstoð-
arframkvæmdastjóri og sölu-
stjóri John R. Hanson eru stadd-
ir hér á Iandi vikuna 5.—11.
febrúar og veita þeir upplýsing-
ar ásamt Gunnari Viðari
Bjarnasyni hjá íslensku um-
boðssölunni.
í frétt frá fyrirtækinu segir, að
John R. Hanson bjóði upp á breiða
línu merkingatækja, allt frá
stimplum upp í háþróaðar tölvu-
stýrðar bleksprautur. Nokkur tæki
séu komin í notkun hérlendis frá
fyrirtækinu og fyrirhugi Isl. um-
boðssalan að koma upp lager með
bleki, blekpúða, stafasetti og fleiru
sem þurfi til reksturs þessara
tækja.
I tilkynningu frá Orkuspámefnd
segir að ef eingöngu sé litið á
notkunina innanlands sé gert ráð
fyrir aukningu allt spátímabilið
um tæplega 4% eða úr 491 þúsund
tonnum 1987 í 509 þúsund tonn
2015. A.ukin notkun eldsneytis á
bifreiðar og tæki vegi þar þyngst
en gert sé ráð fyrir að hún aukist
um nálega 28%
I spá nefndarinnar kemur einnig
fram hvemig notkun olíu eftir teg-
undum muni þróast. Gert er ráð
fyrir að notkun bensíns muni auk-
ast um 21%, notkun gasolíu og
svartolíu verði nánast óbreytt allt
tímabilið og notkun flugvélaelds-
neytis dragist saman um 44% til
1995, en aukist síðan aftur og
verði árið 2015 12% minni en á
áripu 19-87.,
Spáin gerir ráð fyrir að litlar
breytingar verði á hráolíuverði
fram á miðjan næsta áratug. Verð-
ið muni síðan hækka úr 20 dollur-
um á tunnu 1995 í 25 dollara um
aldamót. í lok spátímabilsins, árið
2015, er reiknað með að verðið
verði komið í 40 dollara á tunnu'
reiknað á föstu verðlagi 1986 sem
er svipað verð og kringum 1980.
Reiknað er með að bifreiðaeign
landsmanna aukist úr 540 bifreið-
um á hveija þúsund íbúa í tæplega
670 í lok spátímabilsins sem ásamt
auknum fólksfiölda leiðir af sér
um 38% fjölgun bifreiða. Hins veg-
ar er gert ráð fyrir að akstur auk-
ist um 33% og jafnframt reiknað
með spameytnari bifreiðum. Áæti-
að er að olíunotkun tækja sem
-fyrst. og- fremst. eru- notuð við
ýmis konar mannvirkjagerð hafi
verið um 25 þúsund tonn 1987.
Samkvæmt spánni mun olíunotk-
un á bifreiðar og tæki aukast um
tæp 28% úr 177 þúsund tonnum
1987 í 226 þúsund tonn 2015.
Loks er gert ráð fyrir mun minni
notkuneldsneytis til flutninga með
flugi. Ástæður þess eru annars-
vegar sparneytnari flugvélar sem
Flugleiðir munu taka í notkun
1989—1990 og hins vegar er búist
við miklum samdrætti í flugi Flug-
leiða milli Evrópu og Banda-
- ríkjanna. •
Útflutningur
Isberg bætir við sig —
Ludwig Janssen geíur eftir
STÆRSTU umboðsfyrírtæki íslenskra ísfiskseljenda á Bretlandi,
ísberg og Fylkir, juku markaðshlutdeild sína í ísfisksölum frá íslandi
í fyrra. Ludwig Janssen, stærsti umboðsaðilinn í Þýskalandi, hefiir
hins vegar gefið nokkuð eftir af markaðshlutdeild sinni, og seldi i
fyrra um 51% íslenskra ísfiskafurða á Þýskalandsmarkaði, en hafði
1987 59% markaðshlutdeild. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Fiski-
frétta.
í frétt blaðsins kemur fram, að
ísfisksölur jukust í Bretlandi og
Þýskalandi árið 1988 miðað við
árið á undan. Árið 1987 voru
61.194 tonn af ísfiski seld á Bret-
landsmarkaði, og keypti ísberg um
42% af því. 1988 voru svo seld
66.598 tonn, og var hlutdeild ísberg
þá 46%. í Þýskalandi voru hins
vegar seld 17.623 tonn 1987, og
20.522 tonn 1988.