Morgunblaðið - 09.02.1989, Page 2
2 * B
MORGUNBLABIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1989
Iðnaður
Vel horfír í sölu-
málum Fínullar
FYRIRTÆKINU Fínull að Ala-
fossi hefur orðið vel ágengt í
sölumálum á angóraull bæði hér
á innanlandsmarkaði og erlendis
að undanförnu, að sögn fram-
Islensk
kanínuullí
sáraumbúðir?
Miami. Frá Atla Steinarssyni, fréttarit-
ara Morgnnbladsins.
KANÍNUULL frá Fínull í Mos-
fellsbæ verður á mikilli vöru-
sýningu, sem haldin verður í
Las Vegas í Bandaríkjunum
9-14. febrúar. Þarna verða
sýndar allskonar vörur til heil-
brigðisþjónustu til notkunar á
sjúkrahúsum og læknastofum.
Reynt verður að kynna
íslensku kanínuullina sem hita-
gefandi ull og finna viðbrögð
til hugsanlegra nota hennar
við umbúnað sára.
Fyrst og fremst er stefnt að
því að kynna gigtar- og bein-
brotalæknum notagildi ullarinnar
en við slíkar lækningar er hiti
æskilegur. Talið er líklegt að
nota megi kanínuull með góðum
árangri í slíkum tilfellum því að
sögn hefur hún ekki ertandi áhrif
þó hún sé undir sárabindi.
Til þessa hefur verið lítill
markaður fyrir íslensku kanínu-
ullina. Bás á slíkri sýningu eins
og haldin verður í Las Vegast
kostar ofQár og hefði verið Fínull
algjörlega ofviða. En Ámi Áma-
son, eigandi East Bank Trading
(Austurbakka) í San Francisco
og ráðgjafi Utflutningsráðs gat
útvegað rými fyrir íslensku
kanínuullina í bás stórfyrirtækis
sem hann á viðskipti við. Bíða
menn svo spenntir eftir viðbrögð-
um lækna varðandi íslensku
kanínuullina.
kvæmdastjórans, Kristjáns
Valdimarssonar. Um þessar
mundir er Finull þannig að
kynna framleiðslu sína á sýningu
í Bandaríkjunum og eru taldar
góðar horfur á að þar geti skap-
ast markaður fyrir þessa ull.
Heimsmarkaðsverð á angóraull
fer nú hækkandi en var tiltölu-
lega lágt lengst af á síðasta ári.
Kristján sagði í viðtali við Morg-
unblaðið að ekki væri hægt að
kvarta undan sölumálum fyrirtæk-
isins undanfarið, því ?.ð bæði hefði
verið mikil eftirspum hér innan-
lands allt síðasta ár og seinni hluta
þess árs hefði sömuleiðis lifnað tals-
vert yfír sölu fyrirtækisins á erlend-
um markaði. Þannig væri orðin til
góður markaður í Noregi fyrir
angóraull frá Fínull og Kristján
kvaðst sömuleiðis væntan mikils af
þeim samböndum sem tekist hefði
að ná í Bandaríkjunum í tengslum
við sýninguna þar. Þá sagði Kristj-
án að einnig væri komin á sambönd
við aðila í Danmörku, Hollandi og
Belgíu en eftir að sjá hvað út úr
því kæmi.
Kristján kvað Fínull geta unað
þokkalega við það verð sem fengist
nú fyrir framleiðsluna og verðið
erlendis færi enn hækkandi. í áætl-
unum Fínullar fyrir yfirstandandi
ár er gert ráð fyrir að heildarsalan
nemi um 75 milljónum krónum en
það svarar til sölu á um 12 tonnum
á fínull. Á síðasta ári nam sala
Fínullar á milli 40 og 50 milljónum
króna.
Kristján sagði á hinn bóginn að
þrátt fyrir bjartar horfur í sölumál-
um og hækkandi verðlag á fram-
leiðslunni, þá væri byijunarerfíð-
leikar Fínullar hvergi nærri að baki,
enda fyrirtækið undirfjármagnað í
byijun, eiginflárstaða þess afleit og
mikilvægir hluthafar og viðskipta-
aðilar, svo sem Álafoss, svo að-
krepptir sjálfír að þeir hefði aldrei
getað orðið fyrirtækinu sá bakhjarl
sem að var stefnt í upphafí.
SAMKEPPNIN —— Auglýsingar Ferðamiðstöðvarinnar Veraldar og Ferðaskrifstofunnar Otsýn
gefur nú að líta að Austurstræti 17. Bæði fyrirtækin hafa gengið í gegnum skipulagsbreytingar að undan-
fömu og nokkrir starfsmenn Útsýnar hófu störf hjá Ferðamiðstöðinni/Veröld um áramótin þar á meðal
fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Aðalskrifstofa Ferðamiðstöðvarinnar/Veraldar er nú í sama
húsnæði og Útsýn var áður en á jarðhæðinni er hinsvegar starfrækt söluskrifstofa Útsýnar.
Matvörumarkaðir
Skipta enn um eigendur
TALSVERÐAR hræringar eru enn á matvöruverslanmarkaðinum
á höfuðborgarsvæðinu. Þannig er nú þriðji eigandinn tekin við
Kostakaupum í Hafnarfirði frá gjaldþroti verslunarinnar í fyrra
og nýir eigendur eru einnig teknir við Versluninni Víði I Star-
mýri og Gæðakjöri í Breiðholti af eigendum þeim sem tóku við
þessum tveimur verslunum eftir gjaldþrot Víðisbræðra, sem áttu
báðar þessar verslanir. Gæðalyör hét þá reyndar Kjöt og fiskur.
Það er Þórður Þórðarson sem nú
hefur teldð við Kostakaupum af
Hreini Hjartarsyni sem á sínum
tíma keypti verslunina af Friðrik
Gíslason en hann eignaðist hana
eftir gjaldþrot Kostakaupa og seldi
síðan þegar hann keypti Kjötmið-
stöðina í Garðabæ eftir að sú versl-
un varð gjaldþrota. Þórður hefur
rekið Fitjanesti og sölutuma og
hann segir í viðtali við Fjarðarpóst-
inn, að hann muni kappkosta að
hafa vöruverð sem lægst en jafn-
framt mikið vöruúrval.
Þá hafa þeir Jón Hilmarsson og
Ingvar Halldórsson fest kaup á
Gæðakjöri við Seljabraut í Breið-
holti, en þeir keyptu saman verslun-
ina Víði í Starmýri í nóvember og
hafa rekið síðan. Jón heldur um
stjómvölinn í Starmýri en Ingvar
rekur verslunina í Breiðholti. Jón
sagði í samtali að hann væri fullur
bjartsýni á þennan rekstur, þrátt
fyrir að ýmsum þætti ekki blása
byrlega fyrír matvöruverslunina.
Margir hefðu verið með hrakspár
um verslunarreksturinn í Starmýr-
inni vegna nálægðarinnar við
Kringluna en Jón sagði að á þeim
þremur mánuðum sem þeir félagar
hefðu rekið verslunina í Starmýri
hefði þeim tekist að stórauka velt-
una frá því sem var, svo að óttinn
við Kringluna væri greinilega á
misskilningi byggður. Nú lægi fyrir
að hefja sömu viðreisn hjá Gæða-
kjöri í Breiðholti og hella sér út í
bullandi samkeppni við Kaupstað í
Mjóddinni.
I I I i
K / \ A
I X I X I
K ^ I I / N
I I I I
Jámhillur í ýmsum litum - upplagðar á vinnu-
staði, lagerinn, í geymslur, bflskúrinn o.fl.
Lundia furuhillur og húsgögn eru einföld f
uppsetningu, stflhrein og sterk.
Skjala- og geymsluskápar á sporbraut;
fádæma góð nýting á geymslurými.
TRAUSTAR HILLUR
LUNDIA-furuhillur eru frábær hagleikshönnun.
Möguleikar á samsetningu eru óendanlegir; þú
raðar saman hillum, skápum, borðum og skúff-
um á þann hátt sem þér hentar best.
LUNDIA-skápar, eða járnhillur á brautum, hafa
þann meginkost að með þeim má fullnýta
geymslurými. Hægt er að fá skápana með
keðjudrifi, handdrifi eða rafdrifi og þeir eru
afar einfaldir í uppsetningu. Hilluraðir má fá í
mörgum stærðum og í allt að 10 metra lengd.
Verðdæmi:
6 hillur 80x30 ásamt tveimur uppistöðum
200x30 = kr. 6.798,-
Lundía
SlÐUMÚLA 22 • SlMI 680922
Skrifstofutækninám
Tölvuskóli íslands
Símar: 67^14-66
67-14-82
TÖLVUNÁMSKEIÐ
Sækið námskeið hjá traustum.aðila
Haldin verða á næstunni eftirfarandi námskéið:
Námskeið Dagsetning
WordPerfect (Orðsnilld) - framhald.11.-12. febrúar
Multiplan - töflureiknir.....11 .-12. febrúar
Ópus - fjárhags- og viðskiptamannabókhald.18.-19. febrúar
dBase IV - gagnagrunnur.....25.-26. febrúar
Öll tölvunámskeiðin eru um helgar og byrja kl. 10.00 árdegis.
Ýmis stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku.
Skráning og frekari upplýsingar: Sími 91 <688400.
Verzlunarskóli íslands