Morgunblaðið - 13.04.1989, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.04.1989, Blaðsíða 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTl/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989 Utanríkisviðskipti * Aformað að stórauka sam- skipti íslands og Ungveijalands Samningar í gangi um þátttöku íslendinga í hitaveitufram- kvæmdum og hótelbyggingum SAMNINGAR Virkis hf. um byggingu hitaveitu í 60 þúsund manna borg í Ungveijalandi munu vera langt á veg komnir en einnig hafa komið fram mjög ákveðnar hugmyndir um að íslenskir aðilar taki þátt í byggingu 2-3 hótela þar í landi. Þá hefiir þeirri hugmynd verið varp- að fram að stofinað verði sérstakt ungverskt-íslenskt verslunarráð sem yrði vettvangur fyrir frekari viðskipti milli landanna. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins hefiir verið lagt til formlega að afhumin verði gagnkvæm vegabréfsáritun milli íslands og Ungverjalands og jafii- framt hefiir borist boð tdl stjómvalda um að Island verði heiðursland á stórri alþjóðlegri vörusýningu í Búdapest á næsta ári. Áhugi íslendinga á verkefnum í Ungveijalandi beinist einkum að því að nýta sérfræðiþekkingu héðan og mun Búnaðarbankinn hafa haft milli- göngu um að koma henni á fram- færi í samráði við Norræna fjárfest- ingarbankann. Norræni bankinn hef- ur lýst yfir vilja að taka þátt í fjár- mögnun hótela með öðrum stórum erlendum banka. Af íslands hálfu verður lögð áhersla á að nýta sér- fræðiþekkingu héðan á sviði jarðhita. Nýlega var staddur hér á landi bankastjóri frá ungverskum banka sem hefur lýst yfir áhuga á að taka þátt í flármögnun að því er snýr að innlendum kostnaði við framkvæmd- imar í Ungveijalandi. Þá mun vera vitað um mikinn áhuga hjá þýskum aðila frá Bæheimi á þessum fyrirætl- unum og þýska Steigenbergerhótel- keðjan hefur lýst yfir áhuga á að vera stjórnunaraðili og afla viðskipta gegnum sitt sölukerfi. Hugmyndin felst í því að hótelin verði nýtt að hluta til sem heilsuhótel en straumur ferðamanna hefur aukist gífurlega til Ungveijalands. Á síðastliðnu ári komu 17 milljónir ferðamanna til landsins sem stafar einkum af því að vegabréfsáritun hefur verið af- numin gagnvart Austurríki og fleiri löndum og á lokastigi er að fella hana niður gagnvart Vestur-Þýska- landi. Þá mun einnig hafa verið ákveðin heimssýning í Búdapest og Vín sameiginlega árið 1995. Fyrir- sjáanlegur er því mikill skortur á hótelrými í Ungveijalandi á næstu árum. Útflutningurtil Ungverjalands 125,4 m.kr. Boð um að ísland verði heiðurs- land á stórri vöru- og viðskiptasýn- VILT ÞÚ LÁTA INNHEIMTUADGERÐIRNAR GANGA HRATT FYRIR SIG ? Innheimtur s/f leggja áherslu á faglega, hraöa og góða þjónustu. Ef þú leitar lögfræðilegra innheimtuaðgerða áttu rétt á að fá: HRAÐA ÞJÓNUSTU Hraðar innheimtuaðgerðir geta gert útslagið um hvort skuldin innheimtist og það að ná peningunum sem fyrst inn i veltuna getur verið áhrifavaldur á arösemi fyrirtækis þins. GREIÐAN AÐGANG AÐ UPPLÝSINGUM Þú verður að geta fengið upplýsingar um gang og stöðu mála á fyrirhafnarlausan hátt þegar þér hentar. GÓÐAR SKILAGREINAR Forsenda þess að þú getir haft nákvæmt eftirlit með útistandandi kröfum og uppgjöri þeirra eru góðar skilagreinar. REGLULEGT UPPGJÖR Þú átt rétt á að fá peningana þina tafarlaust eftir að greiðsla hefur farið fram. Láttu ekki innheimtuaðilann liggja á fjármununum í lengri eða skemmri tíma. Ef þu eða fyrirtæki þitt þarl á lögfræðilegum innheimtuað- gerðum að halda skaltu gera kröfur. Hafðu samband við Einar Gaut Steingrimsson hdl. á skrifstofu okkar og fáóu nánari upþlýsingar um þjónustuna. INNHEIMTUR SF Þingholtsstræti 24, sími 62-30-62 og 62-34-23 ingu í Búdapest á næsta ári er í tengslum við ungversku menningar- og viðskiptavikuna sem nú stendur yfir í Átthagasal Hótel Sögu. Við- skipti íslendinga og Ungveija hafa ekki verið mikil á undanfömum ámm. Þó urðu nokkur umskipti í því efni á síðastliðnu ári en þá jókst út- flutningur héðan til Ungverjálands verulega. Var verðmæti hans alls 125,4 milljónir króna og hafði aukist úr 13,9 milljónum frá árinu áður. Verðmæti innflutnings Ungverja hingað til lands var hins vegar að- eins 23,1 milljónir í fyrra en var árið áður 17,8 milljónir. íslendingar fluttu út á síðastliðnu ári .loðnumjöl til Ungveijalands að verðmæti um 108,9 milljónir króna og þorskmjöl fyrir um 13,5 milljónir króna. Þá var einnig fluttur út kísilgúr fyrir 2,4 milljónir. Engin ein vörutegund var ráðandi í innflutningi hingað frá Ungveijalandi á síðastliðnu ári. Þar var m.a. um að ræða fatnað af ýmsu tagi t.d. hanska og vettlinga fyrir 3,8 milljónir og kæliskápa fyrir tæp- lega 1 milljón. Tilgangur vöm- og viðskiptasýn- ingarinnar í Átthagasal er eins og komið hefur fram að auka áhuga íslendinga á gagnkvæmum viðskipt- um landanna. Þar em kynnt m.a. matvæli, fatnaður, vín, byggingavör- ur, snyrtivömr, efnavara o.fl. Ung- veijar framleiða mikið af tískufatn- aðir fyrir þekkt tískuhús í Vestur- Evrópu eins og til dæmis Boss. Ung- UNGVERJALAIVID — Við Dóná í miðri Budapest hefur verið byggt stórt og fallegt hótel, Duna-Intercontinental til að mæta kröfum alþjóðlegra ferðamanna. Nú er jafnvel rætt um að íslendingar taki þátt í byggingu hótela í Ungveijalandij samvinnu við Ungveija. veijar hafa á undanfömum ámm unnið skipulega að því að koma á fót mun nánari efnahags- og við- skiptasamböndum við Vesturlönd. Stjórnvöld í Búdapest hafa látið í ljós áhuga sinn á að ganga í EFTA og telja það ekki óraunhæft að í náinni framtíð fái landið aðild að EB. Janos Muller, viðskiptafulltrúi í sendiráðinu í Stokkhólmi segir að ungversk fyrirtæki vilji auka útflutn- ing sinn til Islands. Með sýningunni væri vonast til að vekja áhuga á ungverskum vömm hér á landi en einnig vekja athygli ferðamanna á Ungveijalandi. Islendingum gefst þannig um þessar mundir kostur á að kynnast ungverskri tónlist og matargerðarlist. KB Fiskeldi Verðhrun á eldislaxi í Hollandi og Belgíu Frá Egjjerti H. Kjartanssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Hollandi VERÐ á eldislaxi hefur lækkað verulega úpp á síðkastið í Hol- landi og Belgíu. Verð út úr búð Þróun nýrrar vöru og stjórnun gæða í sjávarútvegi Matvæla og næringarfræðingafélag íslands og Gæðastjórnunarfélag íslands gangast sameiginlega fyrir ráðstefnu um þróun nýrrar vöru og stjórnun gæða í sjávarútvegi. Ráðstefnan er fyrir stjórnendur í sjávarútvegi og aðra þá, er áhuga hafa á þessum málum. Ráðstefnan verður haldin laugardaginn 15. apríl nk. í ráðstefnusalnum á Hótel Sögu. Dagskrá: 09:15 Mæting/kaffi 09:30 Setning 09:35 Þróun fiskvinnslu Hjalti Einarsson, framkvæmdastjóri, Sölumiðstöð hraðfrysihúsanna. 10:05 Hver verður þróun markaða fyrir sjávarafurðir? Ingjaldur Hannibalsson, framkvæmdastjóri, Útflutningsráði íslands. 10:35 Vöruþróunarferli Sigurður Bogason, matvælafræðingur, Sölusambandi íslenskra fiskframleiðanda. 11:05 Nýjungar í fiskvinnslu Guðmundur Stefánsson, matvælafræðingur, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. 11:35 Sjávarréttadögurður, borinn fram að hætti Hótels Sögu. 12:05 Ný vara og gæðastjórnun GunnarH. Gunnarsson, rekstrarverkfræðingur, Ráðgarði hf. 12:35 Reynsla af gæðastjórnun í matvælaiðnaði Pétur (sleifsson, frystihússtjóri Tanga hf., Vopnafirði. 13:05 Gæðastjórnun sem þáttur í gæðaátaki í sjáv- arútvegi. Guðrún Hallgrímsdóttir, forstöðumaður þró- unarsviðs Ríkismats sjávarafurða. 13:25 Samantekt/slit Ráðstefnustjóri: Jónína Stefánsdóttir, matvælafræðingur. Ráðstefnugjald: 1.800 kr. Fyrir hvert erindi eru ætlaðar 20 mínútur, en 10 fyrir umræð- ur að því loknu. Gæðastjórnunarfélag íslands Matvæla- og nærlngarf ræðingafélag íslands er nú ekki nema um 800 krónur á hvert kíló eða aðeins um helm- ingur þess sem viðgengist hefúr undanfarin ár. Ástæða þessa lága verðs er sú umfangsmikla slátrun sem átt hefur sér stað í Noregi undanfar- ic. Markaðurinn er yfirfullur af laxi með þeim afleiðingum að hann er seldur undir framleiðslukostn- aði. Að sögn innflytjenda er fjöldi framleiðenda í Noregi í alvarlegum fjárhagserfiðleikum vegna þessa lága verðs, og nokkrir framleið- endur hafa þegar orðið að hærra starfsemi fyrir fullt og allt af þess- um ástæðum. Að sögn innflytjenda eru þó framleiðendur í Noregi að taka sig saman um að stjómá meira fram- boðinu á markaðina en nú er gert í von um að markaðs- og neyt- endaverð hækki. Verð á villtum laxi hefur haldið sér og er greini- legt að betri veitingahús og hótel- keðjur eru til í að greiða meir en helmingi hærra verð fyrir villtan lax en ræktaðan. Fundir Bankosijóri NIB ræðumaður hjá Iðnlánasjóði BANKASTJÓRI Norræna fiárfest- ingarbankans, NIB, Jannik Lind- bæk, verður ræðumaður á árs- fúndi Iðnlána- sjóðs 18. apríl næstkomandi. Jannik Lindbæk Jannik Lindbæk var um árabil . forstjóri Storebrand, sem íslendingar hafa átt mikil og góð viðskipti við, en Storebrand er eitt stærsta trygg- ingafélag á Norðurlöndum. Arið 1986 var Lindbæk ráðinn banka- stjóri NIB, sem hefur aðsetur í Hels- inki. Norðurlandaþjóðirnar stofnuðu bankann árið 1975 og er ísland því hluthafi í honum. Bankinn hefur í vaxandi mæli veitt lán til íslands og er í dag einn stærsti lánveitandi landsins í lánum til lengri tíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.