Morgunblaðið - 14.05.1989, Síða 2
2 -C
MICHAEL
JACKSONS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989
Morgunblaðið/Ámi Sæ-
berg
Aðdáandi.
Elsa Hjördís
Gunnarsdóttir á
veggspjöld, plötur og
jafnvel sængurver
með goðinu.
þegar Michael var sex ára gamall,
og árið 1967 er svo söngsveitin The
Jackson 5 formlega stofnuð.
Bræðurnir fengu einkakennslu
og stóð Michael sig prýðilega í öllum
fögum, en sundið og körfuboltinn
voru þó í mestu uppáhaldi. Hann
fylgdist grannt með stjörnunum,
söng þeirra, hreyfíngum og sviðs-
framkomu og lærði mikið af Jackie
Wilson og James Brown, en sá
síðamefndi hefur oft verið nefndur
guðfaðir soul-tónlistarinnar. Dans-
ararnir gömlu og góðu Fred Astaire
og Gene Kelly höfðu ekki síður
áhrif á Michael og er sagt að hann
hafí lagt spor þeirra vel á minnið.
En Michael Jackson er ekki endur-
borinn Fred Astaire því eins og
Astaire sjálfur segir: Michael hefur
sinn eigin stíl. Og sjálfsagt varð
það þessi vitneskja um eigin stíl og
hæfileika sem varð til þess að Mich-
ael sleit um síðir samstarfi við
bræður sína.
Töfradansinn
Michael hafði gert myndbönd og
sungið inn á plötur án bræðra sinna
þótt samstarfi þeirra væri ekki l'ok-
ið, en á 25 ára afmælishátíð
Motown-hljómplötufyrirtækisins
árið 1983 má segja að örlög þeirra
sem stjörnur væru ráðin. Bræðurn-
ir höfðu verið á samningi hjá fyrr-
nefndu fyrirtæki en slitið samningi
við það 1976, allir nema Jermaine
sem er fjórum árum eldri en Mieh-
ael, og gert samning við Epic. Eft-
ir miklar fortölur féllst Michael á
að koma fram á afmælishátíð
Motowns með því skilyrði að Jack-
son 5 yrðu þar einnig.
Þetta varð sögulegt kvöld. Þegar
söngsveitin hafði lokið flutningi
sínum hurfu bræðurnir af sviðinu,
allir nema Michael, sem sagði eitt-
hvað á þá leið, að þetta hefðu verið
gömlu og góðu dagarnir, en nú
kæmi nýja tónlistin. Setti svo hatt-
inn fyrir andlitið, flestir aðdáendur
kannast við þá hreyfingu, og hóf
að syngja lagið „Billy Jean" af nýút-
Dansarinn.
Þegar Jackson
dansar hafa
menn á tilfínn-
ingunni að
líkami hans lúti
ekki lögmálum
eðlisfræðinnar.
Það er söngvarinn og
dansarinn Michael Jack-
son sem hefur hertekið
sálu og líkama íslenskra
bama og ekki em þau
einu bömin í heiminum
sem falla fyrir töfmm
hans, hann er nú vinsæl-
asta poppstjarna heims og enginn
hefur komist með tæmar þar sem
hann hefur hælana hvað varðar
sölu á hljómplötum. Blökkumaður-
inn, sem hefur breytt andliti sínu
margsinnis til að líkjast sem minnst
eigin kynþætti, sefur í súrefnis-
geymi að sögn aðdáenda og á apa
að einkavini, hefur valdið því að
einskonar æði hefur gripið um sig
meðal bama og unglinga og má ef
til vill helst líkja því við Presley-
og Bítlaæðið hér á ámm áður. En
hvorki Presley né Bítlamir gátu
dansað eins og Michael Jackson.
Og þegar hann darisar þá hækkar
meðalaldur aðdáenda hans vem-
lega.
Um það leyti sem hljómplata
Jacksons „Bad“ kom út í ágúst ’87
fór áhuginn fyrir söngvaranum að
aukast hér á landi. Að sumu leyti
var sá áhugi þó tengdur andlitsað-
gerðum hans, en smám saman fóm
þó böm jafnt sem fullorðnir að gefa
meiri gaum að tónlist hans og
dansi, og í janúar sl. þegar Bíóhöll-
in hóf sýningar á kvikmyndinni
„Moonwalker" þar sem goðið bæði
syngur og dansar og leikur ein-
hvers konar „He-man“ (Tarsan
nútímans), þá braust æðið út.
Dansstúdíó Sóleyjar auglýsti
kennslu í Michael Jackson-dansi og
fékk um leið á annað hundrað nem-
endur, hundrað drengi og tuttugu
stúlkur inn á dansgólf til sín. Nú
em nemendur orðnir 300. Skífan
gaf út myndband um ævi og feril
Jacksons og að sögn Péturs Krist-
jánssonar hjá þvi fyrirtæki, vom
víst margir sem fengu umrætt
myndband í stað eggsins hefð-
bundna um páskana. Salan á hljóm-
plötunni „Bad“ tók gríðarlegan kipp
að sögn Jónatans Garðarssonar hjá
Steinum hf., og hefur engin erlend
plata selst í jafn stóm upplagi síðan
1981 þegar Meatloaf lagði undir
sig markaðinn. Talsímakonumar
hjá Pósti og síma hafa ekki undan
við að svara spumingum Jacksons-
aðdáenda sem endilega vilja fá
símanúmerið hans í Bandaríkjun-
um, sem þær hafa ekki því miður,
og í dagblöðum má lesa ýmsar orð-
sendingar frá ungum söfnumm sem
em reiðubúnir að láta næstum allt
af hendi fyrir nokkur veggspjöld
af hetjunni.
Og hver er svo þessi maður sem
alla heillar? Hveijir em hæfileikar
hans og hvað er það í fasi hans sem
veldur þvi að þúsundir ungmenna
fara að góla við það eitt að sjá
hann og harðsvíruðustu fótbolta-
hetjur þyrpast í dansskóla til þess
að geta apað eftir hreyfíngar hans?
Lærði af stjörnunum
Fimm ára gamall söng Michael
Jackson fyrir fyrstu aðdáendur sína
sem vom ekki háir til hnésins frem-
ur en hann sjálfur. Það vom félag-
ar hans úr leikskólanum í Gary í
Indiana sem hlustuðu á hann syngja
lag úr kvikmyndinni Tónaflóði, sem
fjallaði um það að klífa hvem ein-
asta tind. Michael kleif hvern tind-
inn af öðmm og rúmlega þrítugur
er hann nú á hátindi frægðar
sinnar. Sumir segja að þetta Mich-
ael Jackson-æði sé nú brátt á enda,
en aðrir halda j)ví fram að það sé
rétt að byrja. Ymislegt eigi hann í
pokahominu sem aðdáendur hans
hafí ekki enn séð eða heyrt.
Hæfíleikar hans sem popsöngv-
ara og dansara em ótvíræðir en
kannski vita ekki allir að þegar
hann var tíu ára gamall söng hann
soul-lögin þannig að mönnum varð
ósjálfrátt hugsað til bestu manna á
því sviði.
Michael Joe Jackson fæddist í
Gaiy í Indiana þann 29. ágúst 1958,
næstyngstur níu systkina. Bræð-
umir vom fímm, sá elsti var sjö
ámm eldri en Michael og sá yngsti
þremur áram yngri þannig að senni-
lega hefur eitthvað verið tuskast á
því heimili. En sem betur fer fyrir
móðurina þá höfðu strákamir mik-
inn áhuga á tónlist eins og for-
eldrarnir, þau vom bæði hljóð-
færaleikarar að atvinnu og móðirin
hefði verið „sveitalagasöngkona" á
sínum tíma, og þegar faðirinn kom
auga á hæfileika drengja sinna tók
hann til við að æfa þá og þjálfa.
Þeir komu fyrst fram opinberlega