Morgunblaðið - 14.05.1989, Page 4
4 C
MICHAEL
JACKSONS
ÆÐI
kominni plötu sinni „Thriller“.
Áhorfendur voru bergnumdir.
Þarna sýndi hann hæfíleika sína
og snilld svo um munaði. Dansaði
aftur á bak og áfram um sviðið,
framkoman einstök, dansinn
stflhreinn, allt sýndist svo einfalt,
en þó höfðu menn á tilfinningunni
að Iíkami hans lyti ekki lögmálum
eðlisfræðinnar.
Með þessu atriði var Michael
Jackson í raun að sýna að nú væri
komið að þáttaskilum í lífí hans.
Ári síðar fór hann þó í söngferðalag
um heiminn ásamt bræðrum sínum,
en eftir það hafa þeir ekki komið
fram sem söngsveitin Jackson 5 eða
The Jacksons.
Michael hafði náð til nýrra áheyr-
enda og aðdáendum hans fjölgaði
mjög eins og best má sjá af sölu
plötunnar „Thriller". Sala hennar
mun nú nema um 40 milljónum og
er hún mest selda hljómplata í
heimi, komin í heimsmetabók
Guinness. Fyrir hana hefur Michael
fengið 58 platínuplötur í 28 löndum
og 8 Grammy-verðlaun, fleiri verð-
laun en nokkur annar tónlistarmað-
ur. Segja menn að nú hafí hann
engan nema sjálfan sig við að
keppa, því með „Thriller" skaut
hann allri samkeppni aftur fyrir
sig. Hann var þó sjálfur ekkert of
ánægður með söluna á þeirri plötu
og því síður með söluna á plötunni
„Bad“ sem nú hefur selst í 16 millj-
ón eintökum. Segja kunnugir að
hann hafi einsett sér að selja 100
milljón eintök af þeirri síðamefndu.
Þegar „Thriller“ kom út í desem-
ber ’82 hafði Michael Jackson-æðið
ekki náð til íslands og því ekki
umtalsverð sala á þeirri plötu hér.
Aftur á móti hefur salan á plöt-
unni„Bad“ sem út kom í ágúst ’87
hér á landi aukist jafnt og þétt og
hefur nú náð 6 þúsund eintökum.
Engin erlend plata hefur selst jafn-
vel á íslandi síðan 1981 þegar plata
Meatloafs „Bat Out of Hell“ seldist
í 13 þúsund eintökum, að sögn Jón-
atans Garðarssonar hjá Steinum hf.
Myndbandið um ævi og feril
Michaels Jacksons hefur selst ótrú-
lega vel og sagði Pétur Kristjánsson
hjá Skífunni að nú væru tæp 2
þúsund eintök seld á tæpum fímm
vikum.
Og kvikmyndin „Moonwalker",
sem kveikti bálið í hinum ungu
hjörtum, er nú komin vel yfír meðal-
lag hvað aðsókn snertir. Um 20
þúsund manns hafa lagt leið sína í
Bíóborgina og Bíóhöllina þar sem
hún hefur verið sýnd síðan í jan-
úar. Og enn er aðsókn góð því sum-
um nægir nefnilega ekki að sjá
hana aðeins einu sinni.
Traustur
Michael á að vera óskaplega
einmana að sögn blaða og tímarita
en það gæti alveg eins verið auglýs-
ingabrella, því meðan meyjarhjört-
un álíta hann einmana þá líður þeim
betur. í viðtali nokkru sem birtist
í erlendu tímariti við Frank Dileo,
framkvæmdastjóra og vin Michaels,
kemur fram að stjarnan býr enn
með foreldrum sínum, Joe og Kath-
erine, og systur sinni LaToya í 22
herbergja villu í Tudor-stfl í út-
hverfí Los Angeles. Vinnudagur
hans hefst klukkan 9.30 á morgn-
ana og í rúmið fer hann milli klukk-
an eitt og tvö á næturnar. Eftir
morgunverð les hann blöðin og
hringir nokkur símtöl, en síðan
hefst vinna við myndbandagerð og
æfingar fyrir þá tónleika sem fram-
undan eru.
Sér til afslöppunar horfir hann
gjarnan á kvikmyndir í einkasal
sínum sem er ekki af verri endan-
um, lætur einkaþjón sinn færa sér
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989
„heilsufrík" og álíti það gott fýrir
heilsu sína að anda að sér ómeng-
uðu lofti. Michael mun víst ekki
borða mat á sunnudögum, þá fær
hann sér einungis ávaxtasafa.
Lítið virðist fara fýrir kvenfólki
í lífi Michaels og ekki mun það
vera rétt að sögn Dileos að hann
eigi þá ósk heitasta að kvænast
Elisabeth Taylor, aftur á móti séu
þau góðir vinir og snæði oft saman.
En aðrir vinir Michaels eru vel
þekktir menn flestir, Gregory Peck,
Sophia Loren, Marlon Brando svo
einhveijir séu nefndir, að ógleymd-
um nágranna hans Johnathan sem
er 11 ára og syni Johns Lennons,
Sean.
Ekki mun Michael vera marg-
máll að eðlisfari og er haft eftir
kunningja hans að það geti tekið
hálftíma að toga upp úr honum eitt
orð. En allir sem eyða tíma sínum
með Michael lýsa honum á einn
veg: Hann er indæll. Má vera að
hann sé sérvitur, en hvorki eigin-
gjarn né hrokafullur. Og Frank
Dileo hefur þetta um persónu Mich-
aels að segja: Það hljómar kannski
hversdagslega en er þó engu síður
sannleikur, Michael er óvenju
traustur og hefur mikinn sjálfsaga.
Og hann gerir sér sjálfur grein fyr-
ir því að hann er góður maður.
Fullkominn
skemmtikraftur
Söng- og danshæfíleikar Mic-
haels Jacksons hafa gert hann að
milljónamæringi og að sjálfsögðu
hafa aðrir notið góðs af. „Látið
áhrifamesta nafn Bandaríkjanna
vinna fyrir ykkur,“ sagði slunginn
ijármálamaður, og það hafa menn
gert. Fyrir utan þá sem græða á
hljómplötum Michaels, myndbönd-
um og tónleikum, þá er þeir ófáir
sem græða á því að selja hluti með
nafni stjörnunnar og er þá sama
hvort um er að ræða bitabox eða
reiðhjól. Sjálfur hefur Michael verið
seigur við að halda nafni sínu á
lofti og komið af stað umtali um
hin ótrúlegustu uppátæki sín, sem
síðan má svo lesa um í slúðurdálk-
um dagblaða, og-jafnvel í forystu-
greinum virtra tímarita. Og eitt-
hvað er það við persónu Michaels
sem stöðugt vekur forvitni og
áhuga, á því er enginn vafi.
Margir drógu djúpt andann þegar
hann lét gjörbreyta andliti sínu og
kalla þeir nú ekki allt ömmu sína
í þeim efnum fyrir vestan. Blökku-
maðurinn með breiða nefið og stóru
varimar varð næstum að hvítum
manni með fínlega andlitsdrætti
sem minntu á konu. Stór dökk og
opin augu, fínlegt uppbrett nef og
litlar en munaðarfullar varir. Alls
hefur hann farið í átta skurðaðgerð-
ir. „Hver er þessi kona?“ spurðu
íslenskir unglingar þegar þeir sáu
nýtt veggspjald með honum í hljóm-
plötuverslunum í ágúst ’87. Einhver
hrollur mun víst hafa farið um þau,
en endalaust gátu þau horft á vegg-
spjaldið. Sumir segja að Michael sé
sambland af konu og karli, bami
og fullorðnum og það geri hann
dularfullan. „Hann er æðisleg
dúlla,“ sögðu ungar stúlkur sem
nýlega var rætt við, „en hann er
„Heilsufrík". Michael bregður sér stundum í súrefnishylki því hann álítur það gott fýrir heilsu sína að anda að
sér ómenguðu lofti.
grænmetissnarl og leikur sér síðan
við dýrin sín. Michael 'er kominn
með góðan vísi að dýragarði, en
eftirlætisdýrin hans em lamadýrið
Louie, gíraffinn Jabbar, arabíski
gæðingurinn Thriller, óskýrt ljón,
kyrkislanga og nokkrir páfagaukar.
En yndið hans og besti vinur er
sjimpansinn Bubbles sem er vel
þjálfaður og getur brosað, rennt sér
á hjólaskautum, riðið hesti og gert
eitt og annað sem mönnum er eigin-
legt.
Dileo segir það rétt vera að Mich-
ael bregði sér stundum inn í súrefn-
ishylki sem hann hafi hjá sér, en
telur þó fráleitt að hann sofí í því.
En Michael sé hið mesta
Heimilið.
Michael býr enn með
foreldmm sínum,
Joe og Katherine, í
22 herbergja
ævintýrahöll fyrir
utan Los Angeles.
Á Michael Jacksons tónleikum:
„Blés ekki úr nös"
í fyrrasumar hélt Michael
Jackson útitónleika í
Gautaborg í Svíþjóð og voru
þar nokkrir íslendingar
viðstaddir, þar á meðal Helgi
Rúnar Óskarsson sem starfar
hjá hyómplötufyrirtækinu
Steinum hf. Ekki hafði hann
verið neinn sérstakur aðdáandi
söngvarans áður, en þessir
tónleikar gjörbreyttu áliti hans
á sljörnunni.
UUm 50 þúsund manns vom
á tónleikunum að sögn
Helga, og kostaði miðinn um
1.500 krónur íslenskar. Það var
Kim Wilde sem hitaði upp en svo
steig goðið á sviðið með miklum
tilburðum. Fremst á sviðinu var
ljósaveggur og á honum birtust
fætur Jacksons í risastærð. Steig
hann fram í annan fótinn og síðan
hinn undir miklu undirspili og
dmnum, og loks féll veggurinn
og goðið stóð í eigin persónu fyr-
ir framan áhorfendur og byijaði
strax að syngja og dansa.
„Þetta var alveg meiriháttar,"
sagði Helgi, „ og eftir tónleikana
var ég alveg sannfærður um að
hann er sá allra besti. Þarna dans-
aði hann og söng stanslaust í tvo
tíma og blés ekki úr nös, var
hvorki hás né móður. Við horfðum
og hlustuðum með fullri gagnrýni
en fundum ekki nokkurn einasta
galla. Annan eins skemmtikraft
hef ég aldrei séð. Tæknibrellur
notar hann óspart og nýtur að-
stoðar fæmstu töframanna, til
dæniis hvarf hann í lok lags fyrir
framan áhorfendur en birtist
síðan skyndilega á öðmm stað og
þá kominn í önnur föt!
En það vom hæfíleikar hans
sjálfs sem vom mest áberandi. Á
risaskermi sáust öll dansspor hans
greinilega og svo söng hann t.a.m.
mörg soul-lög, sem sýnir einnig
hversu fjölhæfur hann er.“
Helgi sagðist hafa heyrt að
kappinn hefði komið með þyrlu á
sviðið sem síðan flutti hann í burtu
um leið og tónleikum lauk. Meðan
á dvöl hans í Gautaborg stóð gisti
hann í snekkju en meðspilarar
hans á hóteli.