Morgunblaðið - 14.05.1989, Síða 5

Morgunblaðið - 14.05.1989, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989 C 5 4 Blökkumaðurinn með breiða nefið og stóru varirnar varð næstum að hvítum manni með fínlega andlitsdrætti sem minntu á konu. Stór dökk og opin augu, fínlegt uppbrett nef og litlar en munaðarfullar varir. ekki nógu hrár.“ Þær áttu við að hann væri lítið karlmannlegur. Úti í heimi falla þær þö grátandi í öng- vit á tónleikum hans, þannig að eitthvað mun hann þó hræra kven- legar tilfinningar. En allir geta horft á hann dansa og þá skiptir aldur og kyn engu máli. „Maður getur hreinlega ekki haft af honum augun,“ segir hin dáða leikkona Katharine Hep- burn,„það sem gerir hann að stjörnu er það, að hann getur allt. Hann er hinn fullkomni skemmtikraftur." Það eru ekki einungis sporin, tæknin og tilþrifin sem gera dans hans svo einstakan, heldur einnig lifandi túlkun hans. Eina stundina er hann blíður og einlægur og aðra stundina eggjandi og ögrandi, stundum eins og slæmur götustrák- ur. Og með þessu samspili góðs og ills virðist hann hafa hitt í mark, þar kemst hann næst mannlegum tilfinningum. Og hann er líka þessi sterki einfari sem á öllu sigrast og höfðar þar með óspart til einstakl- ingshyggju ungu kynslóðarinnar. Það er erfitt að útskýra hváð það er sem gerir einstakling að stjörnu og hetju, því hetja er hann í augum yngstu kynslóðarinnar. Eins og menn vita sem horfðu á Roy og Tarsan forðum daga þá er bráð- nauðsynlegt að eiga sér hetju sem leikur aðalhlutverkið í dagdraum- unum. Og ansi hefur það verið þunnur þrettándi hjá unga fólkinu í poppheiminum undanfarið, ekkert æði verið ríkjandi að ráði síðan Presley og Bítlarnir hurfu af svið- inu. En svo kemur hann þetta goð og sameinar hetjuna og söngvarann, og dansar svo eins og engill eða djöfull í þokkabót. Sennilega er engin djúp sálfræðileg skýring á Michael Jackson- æðinu, maðurinn er einfaldlega frá- bær skemmtikraftur, en þó eru athygliverð ummæli tíu ára drengs sem sagði ósköp lágt um leið og hann leit flóttalega í kringum sig. „Það er svo rosalega gaman að vera doldið vondur eins ogMichael." EINS OG MICHAEL voða líkur konu í framan, en það er allt í lagi.“ „Hann verður að sofa í súrefnis- geymi svo hann brotni ekki niður eftir allar þessar aðgerðir,“ segir Elsa Lind sem kemur aðvífandi, einnig að fara í dansinn. „Hann græðir 8 milljónir íslenskar á mínútu." — Trúið þið öllum sögunum um hann? Þau þurfa tíma til að átta sig á þessu skilningsleysi, segja svo: „Þetta er allt saman satt.“ Brátt fýllist anddyrið af ungum dönsurum með hvíta hanska, sem eru nauðsynlegir til að ná rétta andrúmsloftinu, og ég fæ að heyra allar sögurnar af Michael. Öll hafa þau séð myndbandið um feril hans og séð kvikmyndina „Moonwal- ker“. Plöturnar hans eiga þau flestöll og veggspjöld og boli. Og þegar þau byija að dansa með hvíta hanska og hatt eins og Michael þá breytist allt fasið, feimnin hverfur og þau verða óskapleg einbeitt og „töff‘ á svip- inn. Af þijátíu börnum rúmlega eru aðeins örfáar stelpur, og Morgunblaðið/Bjami Eiríksson sér í hvaða kvikindi sem er, kanínu, kappakstursbíl, vélmenni,- og bjargar tveimur drengjum og lítilli stúlku með ljósar fléttunfrá bófun- um. Þau eru öllu rólegri en foreldr- ar þeirra voru á þijú-sýningum hér áður fyrr og hafa auðvitað engin hasarblöð undir höndum til að býtta. En andvörpin eru þau sömu. Myndin er mjög ævintýraleg og einhvern veginn fær maður á til- finninguna að einmitt þannig vilji Michael hafa lífið. Þegar mynd- inni lýkur ganga þau ofboð rólega og með fullu kæruleysi út, en þeg- ar út á planið er komið hefjast heldur betur snúningarnir. Upp á tæmar, herða- og magahnykkir og svo eru hringirnir svo snöggir að þau ráða ekki við eigin hraða. Ég spyr nokkra drengi hvað hafi verið skemmtilegast við bíómynd- ina, og þeir segja að atriðið þar sem hann breyttist í vélmenni hafa verið best, „en svo var hann of- boðslega góður í dansinum." Lítil fimm ára hnáta hafði aðra skoðun: Það var skemmtilegast þegar hann bjargaði stelpunni. Hann er svo ofboðslega góður.“ glöggt má sjá að sumir úr fót- boltanum eiga enn í nokkmm vandræðum með hreyfmgarnar. Margir eru þó orðnir býsna færir og vanda sig alveg óskaplega, margskjóta hökunni fram, hlykkja herðarnar, henda sér í gólfið og verða ógurlega vond í framan svona eins og Michael þegar hann dansar við lagið „Bad“. Ein móðirin horfir á son sinn alveg dolfallin og segir mér að hann hafi aldrei nennt að hreyfa sig, hvorki í boltaíþróttum né öðm, hún viti bara ekki hvað sé að ger- ast með drenginn. En ömmumar sem em nýkomnar úr leikfiminni og em nú að fá sér hressingu þarna í anddyrinu, benda á snillinga á dansgólfinu og segja: „Nei almátt- ugur stelpur, sjáið þið strákana!" Og svo slá þær aðeins taktinn með tánum svo lítið beri á. Á þijú sýningu í Bíóhöllinni em krakkar á öllum aldri, nokkrir komnir yfir þrítugt, og þau horfa dolfallin á goðið í kvikmyndinni „Moonwalker" þegar hann breytir í anddyrinu sátu þrír snáðar með hvíta hanska og biðu eftir að danstíminn byijaði. Þeir voru mættir tímanlega til að missa ekki af neinu og alvaran og ákveðnin skein úr hverjum drætti. Þeir hafa numið dansa Michael Jackson’s í Dansstúdiói Sóleyjar í nokkrar vikur og eru nú orðnir all góðir í listinni. Hlynur, Hákon og Guðjón, allir tíu ára gamlir, sögðu að miklu skemmtilegra væri að dansa eins og Michael Jackson heldur en að vera í fótboltanum. Ég spurði þá hvað það væri nú eiginlega sem gerði þá svona hrifna af Michael, og eftir að hafa horft til vinstri, hægri og upp í loftið kom svarið: Bara, hann er svo góður söngvari, — og frábær dansari. — Hvað finnst ykkur um útlit hans? „Hann fær ekkert bólur eða hmkkur eftir að hann breytti sér svona. En okkur fannst hann fal- legri fyrir aðgerðirnar, eða hann var eiginlega fallegastur þegar hann söng „Thriller". Jú, hann er PUNKTAR Fullt nafn: Michael Joe Jack- son. Fæðingardagur: 29. ágúst 1958. Fæðingarstaður: Gary, Indi- ana. Hæð: 178 cm. Þyngd: 55 kg. Augnlitur: Dökkbrúnn. Uppáhaldsmatur: Græn- meti. Borðar ekki kjöt og fastar á sunnudögum. Uppáhaldsdrykkur: Ávaxtadrykkir. Uppáhaldshljómsveit: Bítlamir. Uppáhaldstónlist: Disco. Óttast mest: Að kvefast. Trúarbrögð: Vottur Jehóva. BREYTINGIN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.