Morgunblaðið - 14.05.1989, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR éuNNUDAGUR 14. MAÍ 1989
C 9
TÆKNI/Bem braut til betra mannlífsf
Afleiðingar
kjamasamruna
í SÍÐUSTU grein litum við lauslega á hvað kjarnasamruni væri, og
sögðum frá „Gullæðinu hinu nýja“, sem fer yfír löndin, og ekki
aðeins vísindaheiminn. Það má spyrja: Af hveiju allt þetta æði?
Hvað heftir gerst? Það vitum við ekki enn. Hafi eitthvað gerst, er
það svo undursamlegt, að það hefur með tímanum endaskipti á heim-
inum. Slíkt hlýtur að vera til bóta, út frá því sjónarmiði að flest sé
á hvolfi í honum sem stendur.
Sé gert ráð fyrir að kaldi kjarna-
samruninn sé staðreynd (sem
er engan veginn víst, sjá Morgun-
blaðið 30/4 ’89, grein um tækni),
er þó ekki öruggt að framundan sé
bein braut tii betra
mannlífs. Langan
tíma (áratugi)
hlýtur að taka að
útfæra tæknilegar
hliðar málsins. 0g
þó svo að við
gengjum út frá
því, að hin mjög
svo snöggfræga
tilraun Englendingsins Fleisch-
manns og Bandaríkjamaiinsins
Pons í Utah hafi tekist, er enn óger-
legt að segja hvort er hægt að fram-
kvæma hana í stórum stíl. En laus-
lega reiknað virðist aflið í tilraun
þeirra hafa numið nálægt tíu wött-
um. Ogerlegt er að segja til um
hvaða tækniörðugleikar kunna að
koma upp við stækkun þessa líkans.
Og hver verður t.d. þörfin fyrir
palladíum, sem var lykilefni téðrar
tilraunar. Getur annað efni, svo sem
títan, komið í staðinn? Fá einhver
lönd eða auðhringar aðstöðu til að
sprengja upp verðið á þessum efn-
um? Óllu þessu og meiru til er ósvar-
að. Annað er á hreinu: Hið raun-
verulega hráefni (tvívetni) er óþijót-
andi. Orlítill hluti vetnis sjávar er
tvívetni. Auðvelt er að sjá fram á
sumt í sambandi við umhverfislegar
afleiðingar: Þótt ekki sé enn ljóst
hvað gerist (né hvort það hafi gerst,
sem menn vita ekki hvað var!!!) má
telja líklegt að ekki komi annað frá
slíkum bruna en nifteindir, sem eru
tiltölulega meðfærilegar. Hin lang-
vinna geislavirkni frá kjarnaklofn-
unarverum væri úr sögunni.
Pólitísk valdahlutföll heimsins
myndu raskast verulega. Þau mál
mótast ekki síst af dreifingu hrá-
efna og orku í heiminum. Aðstaða
arabaríkjanna til að hlutast til um
heimsmál með því einu að skrúfa
fyrir olíuleiðslur væri úr sögunni,
og þar með einnig sú íhlutun stór-
veldanna sem fylgdi í kjölfarið.
Annað kæmi í staðinn. Við vitum
ekki hvað.
Hér kemur einnig til önnur hlið
umhverfismálanna en geislavirknin.
Það eru gróðurhúsaáhrifin. Sem
stendur er um þann kost einn að
velja hvað varðar orkuframleiðslu,
að auka við koltvísýringsmagn and-
rúmsloftsins, og hita þar með loft-
hjúp jarðar. Þetta stafar m.a. af
því að með núverandi aðferðum við
framleiðslu kjarnorku nægja úran-
birgðir heimsins skammt. Auka má
þá framleiðslu margfalt með að
taka upp áhættusamari framleiðslu-
aðferðir (eldiskljúfa, sem nýta þann
mesta part úranbirgðanna sem er
ónýttur til þessa). Ekki er hægt að
telja líklegt að sú leið verði farin.
Enn má nefna mikil áhrif á geim-
ferðir og geimkönnun þegar fram
í sækir. Með núverandi tækni (efna-
fræðilega knúnum eldflaugum) er
í aðalatriðum gerlegt að kanna okk-
ar eigin sólkerfi en tæplega miklu
meira. Ætlum við út fyrir það, rek-
umst við á þröskuld, hinar miklu
fjarlægðir til annarra sólkerfa.
Ætlum við þangað, þarf að ná miklu
meiri hraða en tekist hefur hingað
til. Slíkt er einungis hægt með
kjarnorku, þ.e. kjamasamruna.
Hér er einungis stiklað á stóru.
Ónefnd hafa verið áhrif þessa máls
á hertækni, og þannig mætti lengi
halda áfram.
eftir Egil
Egilsson
RISARNIR
UNDE OG LANSING
SAMEINAST
LINDE A.G. í Vestur-Þýskalandi og LANSING LTD. i Bretlandi hafa sam-
einast í eitt fyrirtæki, LINDE WGA Group, með aðsetur í Aschaffenburg í
V-Þýskalandi.
LINDE A.G.er nú lang stærsti framleiðandi á hvers konar vörulyfturum í
Vestur-Evrópu með verksmiðjur í Þýskalandi, Frakklandi og Bretlandi.
SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA hefur nú tekið að sér umboð
fyrir LINDE vörulyftara og býður fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrrá
rafmagns og dísel vöruiyfturum, með lyftigetu frá 0,5 til 42 tonna.
Kynnist úrvalinu hjá okkur.
Það er fjölþætt, verðið sanngjarnt og
gæðin ótvíræð.
UNDE-LANSING
UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI
BÚNADARDEILD
SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
SUMARDVÖL
í BORGARFIRÐI
í sumar verður starfrækt sumardvöl að Hvanneyri,
þar sem þroskaheftum er boðið til vikudvalar í senn,
þ.e. frá sunnudegi til föstudags.
Upplýsingar um nánari tilhögun veita:
Sólveig í síma 45856 e. kl. 16.30 og
Halldór í síma 674235 e. kl. 13.30.
Barnshafandi
konur
Barnsburðarbelti og bómullarnærbuxur
fyrirliggjandi í öllum stærðum.
Vinnurgegn bak-
þreytu.
Utsölustaðir:
Holtsapótek
Amaró, Akureyri
Lísa, Keflavík
Borgarapótek
Nesapótek
Lyfsala Eskifjarðar
Selfoss apótek
■ Ingólfs apótek
Léttir burðinn og
jafnarálag.
Árbæjarapótek
Breiðholtsapótek
Embla, Hafnarfirði
Apótek Garðabæjar
Apótek Vestmannaeyja
Lyfsala Fáskrúðsfjarðar
Perlan Akranesi
Póstverslun, upplýsingar sími 91-51957
Hagstætt verð
Hvíldarstóll m/skammeli, leðurá slitflötum.
Litur: Brúnt eða svart.
Verð aðeins kr. 25.000,- stgr. 27.700,- afb.
Kreditkortaþjónusta.
VALHÚSGÖGN
Armúla 8, sími 8227-5.