Morgunblaðið - 14.05.1989, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 14.05.1989, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MAI1989 nc 13 HVAÐ JETLARÐU AÐ VERÐA ÞEGAR ÞÚ ERT ORDIN(N) STÖR? Guðlaugur Helgason flugstjóri Bernskudraum- urinn rættist ÆT \ EG HEF líklega ekki verið nema sex eða sjö ára gamall þegar ég heillaðist af fluginu og ákvað með sjálfum mér að leggja það fyr- ir mig,“ sagði Guðlaugur Helgason yfirflugstjóri hjá Flugleiðum. „Ég þurfti ekki annað en að sjá gömlu sjóflugvélarnar koma inn yfir Akur- eyri tii að heillast af þessu ævin- týri. Um tíma leit þó út fyrir að þessi draumur yrði að ,engu vegna peningaskorts því flugnámið var og er dýrt. I millitíðinni fór ég í há- skólanám, en síðan rættist úr pen- ingamálunum og flugbakterían náði þá aftur yfirhöndinni. Ég sé alls ekki eftir þvi að hafa drifið mig í flugnámið og látið þar með bernskudrauminn rætast.“ Bernskudraumurinn orðinn að veruleika. Guðlaugur Helga- son við upphaf flugmannsferilsins hjá Loftleiðum. Guðmundur I. Guðmundsson verkalýðsleiðtogi Bílstjórar nutu virðingar EG MAN nú ekki eftir neinu sérstöku draumastarfi úr mínum uppvexti, nema að bílstjórar nutu talsverðrar virðingar og sjálf- sagt hefur það einhvern tíma hvarflað að mér eins og öðrum að leggja bifreiðaakstur fyrir mig,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson verkalýðsleiðtogi og formaður Dagsbrúnar. „Sjómennskan var líka ofarlega í hugum margra stráka á þessum árum en foreldrar mínir lögðu ákaflega mikið kapp á að stugga okkur bræðrunum frá sjón- um. Karl faðir minn var sjómaður Davíð Oddsson borgarstjóri í ræðustól Borgarstjómar Reykjavíkur. Davíð Oddsson borgarstjóri Fyrst læknir og síðan leikari ÞAÐ HVARFLAÐI aldrei að mér að verða borgarstjóri,“ sagði Davíð Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík. „Ég ætlaði fyrst að verða læknir og síðan leikari. Það var ekki fyrr en seint í mennta- skóla og á fyrstu árunum í háskó- lanum að stjórnmál fóm að ein- hverju marki að vekja áhuga minn. En jafnvel þá hafði ég ekki afráðið að gera þau að ævistarfi. Þetta hefur komið svona hægt og sígandi og verið dálítið tilviljunarkennt hvemig það atvikaðist. Ég stefndi alls ekki að því að verða borgar- stjóri eða stjórnmálamaður og mér er það engin heilög þörf. Ég gæti þess vegna vel hugsað mér að gera eitthvað annað.“ Séra Solveig Lára Guð- mundsdóttir sóknarprestur á Seltjamamesi. Séra Solvecg Lára Guðmundsdóttir Var allan daginn að pakka inn og afgreiða EG ÆTLAÐI að verða búðar- kona og var allan daginn að pakka inn og afgreiða vinkonum- ar,“ sagði séra Solveig Lára Guð- mundsdóttir, sóknarprestur á Selt- jamarnesi. „Mér datt auðvitað ekki í hug að það ætti eftir að liggja fyrir mér að verða prestur. Þegar ég var að alast upp var prestsstarf- ið eitt af hinum hefðbundnu karla- störfum og sjálf tók ég ekki ákvörð- un um að verða prestur fyrr en ég var komin langt í nám í guðfræði- deildinni. Ég veit að enn í dag þyk- ir sumum skrýtið að konur skuli gegna þessu starfi þótt viðhorfín séu að breytast hvað það varðar. Ég held til dæmis að börnunum í minni sókn þyki ekkert athugavert við það að presturinn er kona.“ Ragnhildur Hannesdóttir hjúkrunarkona Langaði til að ferðast ÞEGAR ÉG var lítil datt mér líklega aldrei í hug að ég ætti eftir að verða hjúkrunarkona því ég er alin upp í sveit og vissi þá ekki að þetta starf væri til,“ sagði Ragnhildur Hannesdóttir hjúkmn- arkona. „Sjálfsagt hef ég gert ráð fyrir að verða bóndakona, en þó er ég ekki viss um það. Ég man að mig langaði til að ferðast og sú ósk hefur ræst að vissu leyti þvi ég starfaði erlendis í mörg ár. Líklega hef ég tekið þá ákvörðun að verða hjúkrunarkona upp úr veikindum þegar ég var unglingur, en ég var 22 ára þegar ég byijaði að læra hjúkmn á Landspítalanum. Síðan hef ég starfað við hjúkmn, bæði hér heima og erlendis, og sé ekki eftir að hafa lagt þetta starf fyrir mig.“ Guðmundur J. Guðmunds- son, þáverandi alþingismaður, hlustar á umræður á Alþingi. og hefur líklega verið lengst allra manna á togara, í ein 55 ár. Sessu- nautur minn í skóla var alla tíð harður á því að verða sjómaður. Hann var hins vegar settur til náms í Verslunarskólanum og ég hló mik- ið þegar ég frétti það. Ég vissi nákvæmlega hvemig það myndi fara enda kom á daginn að strax að loknu verslunarprófinu var hann kominn á sjóinn og var þar þangað til í fyrra. En hvað sjálfan mig varðar var þetta allt hálf þokukennt og ekkert brennandi markmið svo ég muni. Hugurinn hneigðist hins vegar snemma að þessum félags- legu og pólitísku málum. Ég bjó í verkamannabústöðunum og dáði Héðin Valdimarsson þannig að verkalýðsmálin urðu mér snemma hugleikin.“ Ragnhildur Hannesdóttir hjúkrunarkona við störf á Slysavarðstof- unni fýrir nokkrum árum. Þórir 4 ára: Lögga. Morgunblaðið/Sverrir Þór 5 ára: Lögga. margrei ð ara: Hjúkrunarkona. Guðrún Erna 3 ára: Ég ætla að verða systir og fara í skóla þegar ég er orðin stór. Agústa 5 ára: Fóstra, þá get ég passað alla krakkana. Guðni Karl 6 ára: Ekki alveg viss, — en ég er að spá í að verða lögregla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.