Morgunblaðið - 14.05.1989, Síða 14

Morgunblaðið - 14.05.1989, Síða 14
r 14 c MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989 ÞEGAR ÉG ER OROIN(N) STOR Helga Guðrún, lengst til hægri, ásamt samstarfsfólki á Stöð 2. Helga Guðrún Johnson fréttamaður Bjó til lyQaverslun úr gömlum snyrtivörum Eg var staðráðin í að verða lyfja- fræðingur og var alltaf að af- greiða í lyfjaverslun sem ég bjó til úr ýmsu tilfallandi, til dæmis göml- um snyrtivörum móður minnar," sagði Helga Guðrún Johnson frétta- maður á Stöð 2. „Lyfjafræðiáhug- inn hélst vakandi fram eftir menntaskólaárunum og í fjórða bekk valdi ég auðvitað stærðfræði- deild, með það fyrir augum að fara síðar í lyfjafræði. En mér leiddist svo hræðilega í stærðfræðideild- inni, bæði námið og fólkið, að ég skipti yfir í máladeild og þar með var draumurinn um lyfjafræðina búinn. Að loknu stúdentsprófí fór ég í fjölmiðlanám í Bandaríkjunum, byrjaði síðan í blaðamennsku á Morgunblaðinu og fór svo þaðan yfir á Stöð 2. í dag sé ég ekkert eftir því að hafa gefið lyfjafræðina upp á bátinn." Bjarki Elíasson skólastjóri Lögregluskólans Bemsku- / draumurinn hmndi í jarðskjálfta AÐ HVARFLAÐI aldrei að mér að verða lögregluþjónn," sagði Bjarki Elíasson, fyrrum yfír- lögregluþjónn í Reykjavík og núver- andi skólastjóri Lögregluskólans. „Minn bemskudraumur var að mennta mig, fara í menntaskóla og síðan í háskóla og verða læknir. Ég ólst upp á Dalvík og þegar jarð- skjálftamir urðu þar 1934 hmndi nýtt hús fjölskyldunnar og með því allir frekari draumar um langskóla- nám. Þá ákvað ég að verða skip- stjóri og sá draumur rættist. Ég fór í Stýrimannaskólann og lauk þaðan prófi 1948. Ég var á sjó frá því ég var 16 ára og þar til ég varð þrítug- ur, er ég flutti suður til Reykjavík- ur og gekk í lögregluna. Þegar ég var unglingur gerðist undarlegt at- Bjarki Elíasson, fyrmm yfirlög- regluþjónn í Reykjavík og núver- andi skólastjóri Lögregluskólans. vik sem vel má nefna í þessu sam- bandi. Þá kom til mín dmkkinn maður, leit á mig og sagði: „Þú verður annaðhvort skipstjóri eða yfírlögregluþjónn í Reykjavík." Hann reyndist sannspár nema'að í stað þess að verða annað hvort, varð ég hvort tveggja.“ (f) GARDENA Allt til garðvinnslu Og meira" // \\\\m\i\\m\iMm^m\u\i)iMiM\\))\ui\viv,\\iiM\\\iivmi\uiuiNiiw\mviivinvui\in\ii\iu(mMvatuiiuHiU( Umboðsmenn um land allt Skjótvirkur stíflueyóir Eyðir stíflum fljótt • Tuskur • Feitl • Lífræn efni • Hár • Dömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Shell- og Esso - -stöðvar Tilbúinn stíflu eyðli og helstu byggingavöru- verslanir. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16,108 Reykjavík - Sími 91-680 780 Dreifing: Hringás hf. s. 77878, 985-29797. Il() i/() ll() $ & líi M lr(i li5i liSi ||i IA li() li() lí) lí \k | Iji Ií() li() l/(i lí(i líl ÞJÓDA R SRMIG AUM SMJSIU SiMNGAR Pontumrsími29900. li() li() lí) li(i li() I) 1 !í() K> p k() & & líi li() j) liji % lá % 105 % !/() líj) ll() HÓTEL SÖGU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.