Morgunblaðið - 14.05.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.05.1989, Blaðsíða 19
L __________________________C 19 C um partí. Þær hafa eitthvað heyrt af slíku, en ekkert ákveðið. Hins vegar ætla þær út í Smiðjukaffi og spyija hvort ég skelli mér ekki með. Ég segi jú og kveðst hitta þær fyrir utan staðinn eftir lokun. Einhvern veginn fer það svo að við hittumst ekki fyrir utan. Ég er líklega fullseinn fyrir og engan leigubíl að fá. Ég ákveð samt að norpa einhverja stund í von um að leigubíll renni fram hjá. Fyrir utan er slangur af liði, sem ekki hefur enn gert upp við sig hvert skal haldið eða hvernig. Ég spjalla með- al annars við stelpu sem þar er og spyr hvort eitthvert partí sé í sigti. Hún segist nú ekki hafa heyrt af slíku, en ég bið hana endilega láta mig vita heyri hún eitthvað. Aður en ég veit af stendur ná- ungi fyrir framan mig og réttir mér einn á lúðurinn þannig að ég stein- ligg og fæ blóðnasir. Arásarmaður- inn ætlar að halda iðju sinni áfram en stelpan flýgur á hann og stöðvar hann. Kemur þá í ljós að þar er kærasti stúlkunnar á ferð og telur hagsmunum sínum ógnað. Hún út- skýrir málið fyrir honum og hann róast nokkuð. Að er drifínn hópur fólks og einhveijir rétta mér hjálp- arhönd og reisa mig á fætur. Ég er ennþá vankaður og stend þarna nokkra stund en parið er gengið áleiðis og byijað að hnakkrífast. Skiptir engum togum að náunginn kýlir kærustuna næst. Einhveijir vinir hans ætla að sker- ast í leikinn en stelpan segir þeim að láta hann í friði, þetta sé þeirra mál. Hún er farin að gráta en hann heldur áfram og löðrungar hana. Ég ákveð að ég sé búinn að sjá nóg og geng út að lögreglustöð í von um að geta hringt þaðan á bíl. Það síðasta sem ég heyri og sé til pars- ins er að stúlkan segir milli ekka- soganna: „Elskan mín, ekki beija mig,“ o g hann hristir hana og svar- ar: „Það er þetta sém þú vilt.“ Þegar ég er á leiðinni inn á stöð kanna ég fjárhaginn og hann reyn- ist enginn vera. Peningamir á bak og burt. Ég leita í öllum vösum, en ég er gersamlega auralaus. Ekki veit ég hvort ég týndi silfrinu eða hvort einhver hirti það af mér eftir að ég snýtti rauðu fyrir utan Bra- bra. Ég fer aftur út á Brabra, en sé engan af þeim, sem höfðu sig mest í frammi þegar ég fékk vinkið. Ég fæ að hringja eitt samtal inni og geri ráðstafanir til þess að fá ein- hveija aura í vasann, en er jafn- leigubflslaus og fyrr. Eg fer þess vegna aftur út að lögreglustöð. Þar situr Berti Möller eins og kóngur í ríki sínu og tekur bón minni um símalán af alkunnri ljúfmennsku og fyrr en varir fæ ég leigubíl. Meðan ég bíð eftir bílnum koma tvær smápíur að máli við mig og spyija hvort ég viti um partí. Ég segi þeim að ég sé að fara suður , í Smiðjukaffí og þær spyija hvort þær megi fljóta með. Það er sjálf- sagt. Eftir að ég er búinn að ná í pen- inga er ekið suður í Smiðjukaffi. Þar er skrautlegt næturlíf. Gestirnir eiga það eitt sammerkt að vera á fylleríi, sem greinilega á ekki að taka enda alveg strax, enda þótt klukkan sé farin að ganga fimm um morgun. Ég týni smápíun- um strax en rekst hins vegar á gamlan skipsfélaga minn. Hann er ofurölvi og er með einni þeirri ógæfulegustu konu, sem éghef séð um dagana. „Sjúskuð" er að líkindum það lýsingarorð, sem á best við um hana. Hún er jafnvel enn drukknari en sjóarinn og er sífellt að reyna að kyssa hann blautum kossum, milli þess sem hún hneppir og af- hneppir efstu blússutölunni á víxl. Efsta blússutalan er skammt ofan við nafla og útsýnið er lítt lystvekj- andi. Ahugi sjóarans er híns vegar takmarkaður og hann reynir með litlum árangri að skipa henni að hætta þessari vitleysu þar til þau eru komin heim til hennar. Hann segir mér að hún sé konan sín en hún leiðréttir þann misskilning og segir mér að hún sé systir konunn- ar hans. Ég stilli mig ekki um að hlæja MQRGUNBLABIÐ SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989 reynist vera nýkominn út af Hraun- inu. Ég spyr fyrir hvað hann hafi setið inni. „Hitt og þetta,“ segir hann stuttur í spuna og ég átta mig á því að hann vill ekkert ræða sakaskrána. Síðar í umræðunni lætur hann reyndar uppi að téð sakaskrá sé nokkuð löng. „En ég hef aldrei gert neinum neitt, sem hann átti ekki skilið,“ bætir hann við. Ég sé fram á að haldi umræðan áfram á þessu stigi mun hann brátt fara að ræða hvað líkt sé með sér og Hróa hetti, svo ég býð honum í glas og ræði kvenkost staðarins. Hann segist nú ekki mikið hafa velt því fyrir sér, en tekur fram að hann vaði í kvenfólki og þess vegna þurfi hann nú ekki mikið að vera að spá í þetta. ;,Bara að smella fing- rum og þá koma þessar elskur,“ segir hann og smellir fingrum máli sínu til áréttingar. Við það gerist ekkert, en ég ákveð að hafa ekki orð á því. Við ákveðum samt sem áður að rölta aðeins um „að kíkja á dömurn- ar“. Við sjáum álitlegan hóp af stúlkum og fáum okkur sæti skammt frá. í miðjum kvennafans- inum er útlendingur nokkur, sem ég giska á að sé af arabískum upp- Smiðjukaffi. Þangað berst leikurinn gjaman seinni hluta nætur. inn. Hann pantar sér reglulega í glas en segir að öðru leyti ekki orð. Hann starir beint fram fyrir sig og tekur ekki eftir öðmm gest- um. Þegar líður á kvöldið kreppir hann öðm hveiju hnefana, en lætur þá liggja á barborðinu; drykkjan nægir. A vinstri hönd er fastagestastóð. Það lætur hátt í því og aðalumræðu- efnjð er neyðarlegar fylleríssögur um hina ogþessa. Söguhetjurnar virðast reyndar flestar vera við- staddar og láta sér vel líka að hlýða á upptalningu annarra á afrekun- um. Sá er mestur og bestur sem drakk mest og lengst, ók aldrei ódmkkinn, eyddi mánaðarkaupinu á einu kvöldi og með fastan við- talstíma hjá kynsjúkdómadeildinni. \ Ég fæ mér annað glas og bíð þess sem verða vill. Aður en langt um líður þykir mér einsýnt að eng- inn muni setjast að spjalli við mig að fyrra bragði. Ég fer niður stig- ann en í kjallaranum er diskóið í fullum gangi. Ég tek mér stöðu við barinn og er brátt kominn í hróka- samræður við næsta mann. Hann Úr greni þess handarlausa. Hér má sjá lítinn hluta rústanna. „Brabra“. Greinarhöfundi var sagt að þar fengist ekki kampavín, enda sjaldan ástæða til þess að fagna einhveiju. Pilturlnn var í verbúit á Flateyri og getli þau afdrifaríku mistök aö kasta af sér vatni í broggtooou Svia nokkuts, sem einnlg bjá bar f verbóðinni. eios og kaonski ei von, en skapvonskan var slík aö kaaa reyndí aö skera haosinn af okkar maooi. Annar keina stillir vininnm npg við vegg meö hví að ennið á honom og sjá til hess aö hann skeiist ekki í leikino á meöan hinn gengoi í skrokk á sölomanninom. Það fréttist síðast af sölnmanninnm aö hann var með hiotin gleiangn, stóreflis glóðaiauga, hólginn kjálka og skorð á vör. Aðm en ég veit af stendm náungi fyiir framan mig og léttli méi einn á Inðnrinn Þafi síðasta sem ég beyii og sé tli parsins ei að ekkasoganna; „Elskan mín, ekki herja mig,“ og hann hiistii hana og svaiai: „Það ei helta sem hú vilt." runa. Það verður Hraunsmanninum tilefni athugasemda um „útlend- ingapakk, óæðri kynstofna og mell- ur sem skríða alltaf fyrir útlending- um“, þó ekki svo hátt að arabinn eða stúlkurnar heyri. Skömmu síðar standa arabinn og tvær stúlknanna upp og þeysa á dansgólfið. Hrauns- maðurinn er ekki seinn á sér að mjaka sér í áttina að skvísunum, sem eftir sitja, og vill fara að ræða málin. Fyrri efasemdir mínar um kvenhylli hans eru í öllu staðfestar. Hraunsmaðurinn gerir sér grein fyrir að við svo búið má ekki standa o g spyr hvort ég vilji í glas. Ég þigg það, en hann spyr hvort ég geti lánað sér, hann skuli fara á barinn að sækja. Ég rétti honum þúsundkall og sé hvorugan aftur — Hraunsmanninn eða þúsundkallinn. Það er farið að síga á seinni hluta kvöldsins. Ég hitti nokkrar af stelp- unum, sem ég hafði spjallað við fyrr í vikunni. Við setjumst að frek- ara teiti og ég spyr hvort þær viti Einn kailanna horfir á mig og segii síðan: „Við höfnm ekkeit að tala nm, en við veiðnm að tala. Við eium ó fyllenr Þegai ég kem ftam aftui standa hai tveir foiinoiar. háðii með og annat með talstöð, sem Fíkniefnalögieglan góðan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.