Morgunblaðið - 14.05.1989, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLAR
I#*
SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989
Lögreglumenn í ísrael
dulbúast sem blaðamenn
FOLK
í jjölmiðlum
SÍÐAN UPPREISN Palestínu-
manna á hernumdu svæðunum í
Israel hófst fyrir 16 mánuðum,
hafa erlendir blaðamenn í Israel
grunað ísraelska ðryggislög-
reglumenn um að hafa dulbúið
sig sem blaðamenn til komast inn
i palestínsk þorp og njósna. Isra-
elsstjóm neitaði alltafþessum
ásökunum, en fyrir nokkram vik-
um náðu breskir sjónvarpsmenn
myndum af því, þegar tveir ísra-
elskir leyniþjónustumenn, dul-
búnir sem blaðamenn, yfírbug-
uðu palestínska konu.
essi frétt vakti hörð viðbrögð
í ísrael og andúð í garð er-
lendra fréttamanna á hemumdu
svæðunum jókst til muna.
Stríðsfréttamenn hafa alltaf notið
friðhelgi, svipað og fulltrúar Sam-
einuðu þjóðanna og Rauða krossins.
Þeir hafa verið viðurkenndir sem
hlutlausir áhorfendur af stríðsaðil-
um, og því fengið að fara óáreittir
gegnum víglínur og um ófriðar-
svæði. En grundvöllur þessa er
auðvitað gagnkvæmt traust og það
traust er ekki lengur fyrir hendi í
ísrael.
Sumir erlendir blaðamenn gripu
til þess ráðs að fá blaðamannapassa
hjá Sambandi arabískra blaða-
manna í ísrael. Það vakti hins veg-
ar mikla reiði hjá ísraelskum yfir-
völdum, og lögreglustjóri landsins
er nú að rannsaka hvort arabíska
blaðamannasambandið megi gefa
út þessa passa. Og ísraelskir þing
FÓLK
i fjölmiðlum
■TIL stendur að fjölga frétt-
atímum á útvarpsstöðinni Bylgj’-
unni og Stjörnunni og auka
fréttatengt efni. Þá á einnig að
ijölga á fréttastofú stöðvarinnar,
að sögn Jóns Ásgeirssonar
fréttastjóra. Þar vinna nú fimm
fréttamenn auk hans.
Nú eru 11 stuttir fréttatímar á
dag, á dagskrá
Bylgjunnar og
Stjöraunnar.
Jón Ásgeirsson
sagði að frétta-
stefiia útvarps-
stöðvarinnar
væri í þróun.
Hann sagðist
leggja áherslu á, að fréttastofan
segði ferskar fréttir, kæmi sem
víðast við, og segði frá sem
flestu, en styttra og hnitmiðaðra
en t.d. Ríkisútvarpið.
„Við viljum gjaraan finna önnur
sjónarhora á málum, vera úti á
vettvangi þar sem eitthvað gerist
og tala við fólk. Þetta verður
þannig eins konar magasín, sem
hefúr létt yfirbragð, en ekki
neinar langlokur," sagði Jón.
Jón Ásgeirsson er ekki ókunnug-
ur útvarpsfréttamennsku, því
hann starfaði á fréttastofú
Ríkisútvarpsins um árabil, aðal-
lega sem iþróttafréttamaður.
Hann hefúr þó ekki unnið í
fréttamennsku í áratug, en starf-
að sem framkvæmdastjóri Rauða
krossins, og rekið fyrirtæki um
ráðstefiiuþjónustu.
„Fréttamaðurinn blundaði alltaf
í mér, en ég verð að viðurkenna
að ég átti ekki von á að fara í
svona starf. Eg stóðst samt ekki
freistinguna þegar það bauðst,"
sagði Jón, sem tók við starfi
fréttastjóra Bylgjunnar og
Stjörnunnar fyrir tæpum mán-
uði. „Mér finnst starfið mjög
skemmtilegt. Hér er ungt fólk
og duglegt, og því mikið um að
vera. Og útvarpsfréttamehnskan
hefur breytst mikið frá þvi ég
var á Ríkisútvarpinu. En helsti
munurinn er sá, að hér hef ég
frjálsari hendur, en um leið mun
meiri ábyrgð," sagði Jón Ás-
geirsson.
menn hafa krafist þess að ísrael-
skir blaðamenn, sem beri slíka
passa, verði sviptir starfsleyfi eða
jafnvel reknir úr landi. Þeirri skoð-
un hefur verið haldið á lofti, að að
útgáfa þessara passa sé aðeins ein
aðferð leiðtoga Palestínumanna til
að sýnast vera fullvalda ríki innan
Israel. Erlendir blaðamenn segja á
móti, að blaðamannapassar gefnir
út af ísraelsku ríkisstjóminni, séu
íkki lengur trúverðugir.
Sú staða gæti komið upp, að
Palestínumenn á hemumdu svæð-
unum viðurkenni ekki aðra blaða-
menn en þá sem bera passa útgefna
af arabíska blaðamannasamband-
inu. Þar með hefði það samband
fengið vald til að ákveða hvaða
blaðamenn mættu segja þaðan
fréttir og hveijir ekki, og þá er hlut-
leysinu hætt. Israelskir ríkisborgar-
ar, sem vinna fyrir erlendar frétta-
stofur, fengu raunar ekki þessa
passa fyrr en nú nýlega eftir að
starfsbræðu'r þeirra kvörtuðu.
■BLAÐAMANNAFÉLAG Ís-
lands fékk bréf frá kenýskum
diplómat, George Opiyo að nafiii,
þar sem hann óskaði eftir að
ganga í félagið. Opiyu gaf upp
þá ástæðu, að haann vantaði al-
þjóðlegt blaðamannaskírteini, en
blaðamannafélag Kenýa er ekki
í Alþjóðasamtökum blaðamanna
og getur ekki gefið út slíkt
skírteini. Blaðamannafélag ís-
C 23
lands hefúr aldrei fengið erindi
á borð við þetta áður.
Opiyo þessi vinnur sem blaða-
fúlltrúi sendiráðs Kenýa í
Svíþjóð. Hann segir í bréfinu að
hann hafi áður verið meðlimur í
samtökum sjónvarps- og útvarps-
fréttamanna í Þýskalandi. Þá
hafi hann fengið alþjóðlegt blaða-
mannaskirteini, en það sé rannið
út og nú vanti hann annað. Hann
hafi þá séð, sér til mikillar gleði,
að Blaðamannafélag íslands er
meðlimur í Alþjóðasambandi
blaðamanna, og því óski hann
eftir inngöngu þar.
Engar skýringar fylgja á því
hvers vegna Opiyo leitaði ekki
til sænska blaðamannafélagsins,
en líklegt er að honum hafi verið
hafiiað þar.
Þar sem gott verð, gæði, mikil afköst, góð þjónusta og hátt endursöiuverð
fara saman gerir þú bestu kaupin.
Ef til vill er þetta ástæðan fyrir því að
IBM var söluhæsta einmenninastölvan
í Evrópu f988 til íyrirtækja og
einstaklinga.*
‘ Könnun Intelligent Electronics Europe.
IBM PS/2 tölvan
afkastar mun meiru miöaö viö verö en
áöur hefur þekkst
hefur ótrúlega vaxtargetu
er meö nýja skjái, sem fara vel meö augun
og bjóöa upp á Ijósmyndagæði
er tæknilega fullkomin
IBM PS/2 GERÐ 30-H21/286 10 MHZ
(1 Mb minni, 20 Mb seguldiskur)
Listaverö kr. 276.000,-
s OKKAR SÉRVERÐ kr. 209.760,-
nytt
VRIR GAIWALT
jokum eldri IBM
folvur upp í nýjar
1 seguWiski)
M'smunur
-H21/286
IBM PS/2
TIL AÐ HALDA FORYSTUNNI!
GISLIJ. JOHNSEN SF.
0 0 0
I í SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
NÝBÝLAVEG116 KÓPAVOGUR SlMI 64 12 22
%
^ HVERFISGÖTU 33 SlMI 62 37 37