Morgunblaðið - 14.05.1989, Side 24
24-, C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989
TÆXKIAST /Hversu glöggt er
gests augabf
Norðurljós
íaugum
Tjallans
Þrjár ungar stúlkur frá hafii-
arborginni Hull ákveða að rífa
sig upp úr eymd atvinnuleysis,
misheppnaðra ástarsambanda
og stefhulauss lífs og freista
gæfunnar við störf í öðru landi.
Fyrir valinu verður frystihús á
Clslandi, þar sem unnið er 12-16
tíma á sólarhring, verksfjórinn
reynist illa innrættur og íbú-
arair Qandsamlegir. Þær gera
upp lif sitt, hver á sinn hátt,
og snúa aftur til Hull reynsl-
unni ríkari og þar hefúr auðvit-
að ekkert breyst í millitíðinni
— nema kannski þær sjálfar.
etta er í sem stystu máli efni
leikritsins Norðurljósa (Nort-
hem lights) sem eitt af athyglis-
verðari landsbyggðarleikfélögum
Bretlands, Hull Truck, frumsýndi
í byijun apríl og
lauk sýningum í
Hull um síðustu
helgi. Verkið
verður síðan í
leikför um Eng-
land fram í ágúst
eftir Hóvor Sigur- og lýkur sýning-
jónsson um á Edinborg-
arhátíðinni í
byijun september. Höfundur
þessa nýja leikrits heitir Frederick
Harrison og hefur getið sér gott
orð á undanfömum árum sem
höfundur útvarpsleikrita og
tveggja annarra sviðsleikrita sem
vakið hafa töluverða athygli í
Bretlandi. Harrison undirbjó þetta
verkefni vel með heimsókn til ís-
lands á síðasta ári og dvaldi á
Isafirði og kynnti sér aðstæður
ísland tekið með trompi. Tvær af Hullmeyjun-
um þremur birgja sig upp af nauðsynjum í frihöfn-
inni áður en haldið er í útlegðina í íslenska sjávarpláss-
inu.
hafa hitt í mark og er í samræmi
við listræna stefnu Hull Tmck að
flytja ný leikrit sem eiga erindi
við áhorfendur þeirra í Hull.
Hull Tmck-leikfélagið var
stofnað árið 1971 og dregur nafn
sitt af því að fyrstu árin hafði
félagið ekkert fast aðsetur heldur
ferðaðist um Hull og nágrenni í
flutningabíl og sýndi hvar sem
tækifæri gafst. Fast aðsetur í litlu
leikhúsi í Hull hefur félagið haft
um 6 ára skeið og hróður þess
hefur farið hraðvaxandi og verð-
laun og viðurkenningar hlaðist á
leikfélagið síðustu árin. Er nú svo
komið að Hull Tmck telst meðal
framsæknustu og öflugustu leik-
félaga í Bretlandi, jafnt innan
London sem utan, svo viðbúið er
að sýning þess á Norðurljósum
muni velg'a athygli vítt og breitt
um landið á næstu mánuðum. Og
eigi einhver erindum að gegna í
HuII er sjálfsagt að heimsækja
þetta forvitnilega leikhús sem að
stærð og umfangi hefur svipað
umleikis og Leikfélag Reykjavík-
ur. Leikhúsið þeirra heitir Spring
Street Theatre og er varla van<fy
fundið en reyndar er ein sýning
frá þeim einnig á fjölunum í Lon-
don er nefnist Teechers. Sú sýning
hefur gengið þar í ellefu mánuði
og gengur sjálfsagt áfram til
haustsins.
allar. Ekki hefur honum litist of
vel á sig því í leikritinu kemur
fram að vinna í frystihúsi sé svo
niðurlægjandi að enginn Islend-
ingur vilji inna slík störf af hendi;
til þeirra starfa séu fengnir „Bret-
ar og aðrir innfluttir þrælar."
Ekki nóg með það, heldur er
Hullmeyjunum þremur fagnað
með gijótkasti og uppnefnum af
kvensniftum og krakkalýð þessa
ónefnda íslenska þorps. Enda
halda Hullfraukumar hópinn og
verkstjórinn íslenski er eini full-
trúi ísíendinga sem kemur beinlín-
is við sögu í leikritinu og hann
lætur sig ekki muna um að kæra
eina þeirra fyrir fíkniefnalögregl-
unni þegar hún hæðir hann fyrir
slælega frammistöðu í rúminu.
Söguþráður verksins er því
vægast sagt harla ólíkur því sem
við íslendingar viljum gjaman
trúa um gestrisni okkar gagnvart
útlendingum en hvort leynist eitt-
hvert sannleikskom í þessari lýs-
ingu skal ósagt látið. Gestsaugað
er stundum glöggt en þess verður
að gæta að efni Ieiksins snýst í
raun minnst um samskipti stúlkn-
anna þriggja við íslendinga; það
era samskipti þeirra innbyrðis
sem era í brennidepli og eymdin
og vonleysið heimafyrir í Hull sem
reka þær af stað í leit að sjálfum
sér. A þeim punkti virðist leikritið
TILBOÐ OSKAST
í Chevrolet Blazer S-10 Tahoe 4x4, árgerð ’87 (ekinn 15 þús. mílur),
I.H.C. slökkvibifreið model R-1856 750 GPM, árgerð ’65,
I.H.C. vörubifreið Cargostar diesel CO1950, árgerð ’81,
ásamt öðrum bifreiðum er verða sýndar á Grensásvegi 9,
þriðjudaginn 16. maí kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Kannt þú nýja símanúmerið? ^3x67
Steindór Sendibílar
BÓKMENNTIRÆr Hús andanna
betri enAst ogskuggar eda öfugt?
Misbeiting valds
og andleg vakning
Það er alltaf verið að bera saman bækur. Um daginn heyrði ég á
tal tveggja einstaklinga, sem vora að þrátta um það hvor bókin
væri betri, „Hús andanna" eða „Ast og skuggar," báðar eftir Isabel
Allende. Þetta varð mér umhugsunaefiii, því persónulega fínnst mér
báðar bækuraar góðar.
Sumir halda því fram að „Ást og
skuggar“ sé einhvers konar
millibilsbók hjá Allende; Hús and-
anna hafi verið stórvirki og síðasta
bók hennar, Eva Luna, sé það einn-
ig. En eftir um-
ræðumar sem ég
varð vitni að, fór
ég að athuga þess-
ar tvær bækur Al-
lende sem hafa
verið þýddar og
komst að þeirri
niðurstöðu að mér
fínnst Ást og
skuggar betri.
Það er óhætt að segja að Hús
andanna sé æði skrautleg. Hún er
full af skrýtnum og skemmtilegum
persónum og uppákomum, lengst
framan af, því eins og Ást og
skuggar er hún hörð ádeilá á herfor-
ingjastjómarform. í Húsi andanna
er lesandinn þó í meiri fjarlægð frá
þeim hryllingi sem á sér stað í bók-
inni, aðallega vegna þess skraut-
lega mannlífs sem í henni er. En
hulunni er svipti af manni í síðustu
köflum bókarinnar og þar byijar í
rauninni næsta bók hennar, Ást og
skuggar. Þó Allende noti ekki sömu
persónur, era aðferðir og efnistök
svipuð, alvaran ræður ferðinni.
Átburðarás sögunnar er hrundið
af stað með stúlku einni sem Evang-
elína heitir. Evangelina tekur upp
á því að fá einhver dularfull
krampaköst, á hádegi hvem dag.
Móðir hennar leitar til lækna og
presta, ljósmæðra og vinkvenna
eftir hugsanlegum skýringum - og
þær standa ekki á sér. Ein skýring-
in er sú að hún sé haldin illum
öndum, önnur skýring er að einhver
sé að senda Evangelínu illar hugs-
anir, þriðja skýringin verður til þeg-
ar einn þorpsbúinn styður hendi á
rúm Evangelínu meðan hún er í
„kasti,“ og daginn eftir er varta
horfin af fíngri hans - ergó; konan
er heilög og fólk flykkist að hrör-
legu heimili
hennar til að
verða aðnjót-
andi krafta-
verka. Ljós-
móðirin lítur
hinsvegar eitt
augnablik á
Evangelínu og
kveður upp
sinn úrskurð;
það þarf að
leiðahana und-
ir karlmann!
Öll dulin rök
sögunnar
hníga að því að
ljósmóðirin
hafi rétt fyrir
sér, en auðvit-
að er það of
ógeðfelld skýr-
ing í siðsömu
samfélagi til að
tekið sé mark á
henni. Stúlkan
er jú alin upp í
réttri trú og
góðum siðum.
Þetta er
óþægileg skýr-
ing og þess-
vegna ekki tek-
in til greina.
Af enn meiri
ofsa reynir fólk
að finna skýr-
ingar í ein-
hveiju óútskýr-
anlegu.
En afhvetju?
í þessu hryllilega samfélagi her-
foringjastjómar er svo margt
óþægilegt, að ekki sé talað um óút-
skýranlegt. Sannleikurinn er ljótur
og það er lífshættulegt að leita
svara við öllum þeim óhugnanlegu
atburðum sem eiga sér stað dag
hvem Ástandið er svo slæmt að
einhvers konar flótti er óhjákvæmi-
legur Trúarflótti er tiltölulega auð-
veldasta leiðin, því stjómin á erfitt
með að hrófla við krikjunni. í Ást
og skuggum þrífast nálega öll trú-
arbrögð, þótt kaþólska trúin sé
sterkust. En mismunandi afstaða
til trúfélaga skiptir engu máli og
skapar engin vandræði, því fólkið
hefur nánast allt sömu trú; trú á
líf eftir dauðann, endurholdgun og
allt annað yfirskilvitlegt, sama
hvaða trúarbrögðum það tilheyrir.
Margir hafa haldið því fram að
svokallað auðvald noti kirkjuna og
andleg málefni til að láta fólk sætta
sig við það þjóðfélagsástand sem
það býr við - við niðurlægingu og
eymd, vegna þess að það eygi von
um_ betra líf eftir dauðann.
Ég leyfí mér að efast um þetta
samhengi hlutanna. Trúin á allt sem
ekki er áþreifanlegt í veröldinni og
birtist svo sterk í Ást og skuggum
er ekki von um betra líf eftir dauð-
ann, heldur von um að eitthvað -
bara eitthvað - gott sé til. Þótt fólk
eygi það hvergi í sínu umhverfi,
þýðir það ekki að ekkert gott sé
til. Þetta er spuming um von. Og
þessi von tengist ekki einhveiju
óskilgreindu auðvaldi - það er of
einföld skýring. Stjómarformið
skiptir ekki máli þegar fólk snýr
sér að andlegum málefnum og leit-
ar yfirskilvitlegra skýringa, jafnvel
í svo miklum mæli að einhverskonar
vakning fer af stað - heldur er
misbeiting valds, valdníðsla, getu-
og kunnáttuleysi stjómmálamanna
hvatinn. Þegar fólk veit ekki hvar
það stendur; hagsmunir ráða því
að það þegir og
leitar ekki
svara - enginn
er ábyrgur og
hver vísar á
annan, þá er
tilveran orðin
nokkuð óbæri-
leg. En auðvit-
að dettur eng-
um í hug að
segja - fínt,
þetta verður
öragglega
bétra þegar ég
dey - heldur
leitar fólk leiða
til að afbera
lífið allt til
dauða. Ef and-
leg vakning til-
heyrði ein-
göngu auð-
valdsskipulagi
- eða hersljórn-
arformi, væri
hún ekki til í
löndum sem
hreykja sér af
því að hafa
andstætt
stjómarform,
sem einkennist
af af mannúð
og heiðarleika.
En svo er þó
ekki og við
þurfum ekki að
leita langt eftir
staðfestingu á
því.
eftir Súsönnu
Svovarsdóttur