Morgunblaðið - 14.05.1989, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.05.1989, Qupperneq 26
26 C MORGUNBLAÐIÐ MEIMNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 14. MAI 1989 4 BLÚS /Hvad er „jassblús“? Akademískar æfingar Jassvakning blés til jassblúskvölds.á Hótel Borg fimmtudaginn 27.apríl í fjáröflunarskyni vegna skulda sem liggja eftir heim- sókn einnar bestu sveitar sem hingað hefúr komið, St. Louis Kings of Rhythm. Þetta heiti: jassblús, lofaði eig- inlega meiru en staðið var við, því þó jassinn hafi verið á sínum stað fór lítið fyrir bláum tónum og þeir sem bjuggust við mmm^^^mmm að fá að heyra mjúka blús- sveiflu að hætti Lonnies Jo- hnsons eða T- Bones Walkers, þar sem ljúfsár tregi er yfir og allt um kring, fengu lítið fyrir sinn snúð. Burðarásinn í þessu eftir Áma Matthíosson jassblúskvöldi vartríó Guðmundar Ingólfssonar sem átti snilldarleik á álíka kvöldi á Borginni á síðasta ári, þar sem Björk Guðmunds- dóttir sýndi einstæða hæfíleika í söngspuna. Björk var einmitt aug- lýst þetta kvöld og einnig Andrea Gylfadóttir, Helgi Guðmundsson, Stefán Stefánsson, Megas, Bobby Harrison og Bjöm Thoroddsen. Fyrsti gesturinn á svið var Bjöm Thoroddsen, sá framúrskar- andi gítarleikari. Hann átti ekki góðan leik þetta kvöld, var sem víðsfjarri og akademískar æfíngar hans á gítarinn sneyddar allri til- finningu og nánast öllum tilgangi. Næsti gestur var Helgi Guð- mundsson munnhörpuleikari; öllu betri og smekkvísari í sínum leik, en kannski full daufur. Undirleik- ur tríósins brást, hljóðblöndun var í litlu jafnvægi og innlegg Guð- mundar Ingólfssonar ómarkvisst og klúðurslegt á köflum. Helgi á betra skilið, því hann er skemmti- legur munnhörpuleikari með góð- an tón. Megas og Stefán Stefánsson komu nú á svið og léku og sungu með Helga. Megas var góður og enn Helgi, en þó Stefán hafí stað- ið sig með prýði, þá var hann lengi í gang. Megas lék m.a. Lóu Lóu í jassaðri útsetningu og brá fyrir Ljósmynd/Björg Sveindóttir Megas: Hæfilega blár jassblendingur. sig ný)um blús sem hann kallaði Keflavík- urkajablús; hæfilega blá- um jass- blendingi og þá fyrst var farið að krauma. Líklega hefði verið betra að hafa gestina heldur færri til að ná betra samhengi í sveifluna. Þegar Megas hvarf af sviði, eftir að hafa til- kynnt um að aldrei hefði staðið til að Björk kæmi fram þetta kvöld(!), var gert hlé á hljóðfæras- lætti. Lét ég þá það sem á undan var komið nægja. Elnita 140 Góð saumavél á frábæru verði Einföld, sterk og ótrúlega fjölhæf. - Saumar öll nauðsynlegu sporin. Saumavélin fyrir þá sem bæta og laga en eyða ekki öllum frítíma í saumaskap. Verö kr. 17985 Heimilistæki hf ' samunguní {§} GARDENA Allt sem þarf til garðvinnslu „Og meira (A Gunnar Asgeirsson hf. Suðurfandsbraut 16,108 Reykjavík - Sími 91-680780 NYTT 4 MANNA FJÖLSKYLDA SNÆÐIR FULLKOMNA MÁLTÍÐ FRÁ KR. 1810.- MEÐ GOSI POTTURINN OG PflNli V. NOATUN GAMALL OG RÓTGRÓINN STAÐUR Myndbanda- skáparnir vinsælu komnir. Fjórar gerðir. VALHÚSGÖGN Ármúla 8, simar 82275 KVIKMYNDIR//47/ níu it/ etttr daubann? Framhaldsmynda- sumarið mikla Asjö vikna tímabili frá maí til júlí í sumar verða frumsýndar í Bandaríkjunum fleiri framhalds- myndir metsölumynda en nokkurnt- ímann áður í sögu Hollywood. iHvergi í veröld- inni er trúin á framhaldslíf meiri en í kvikmynda- borg heimsins og reiknað er með að í sumar muni eftir Arnald myndirnar með Indriðason rómversku tölu- stöfunum hirða mestan gróðann. Það er enda við kunn vörumerki að eiga sem engar venjulegar fýrstu tilraunir þarf til að keppa við: Aftur til framtíðar II, Draugabanar II, Indiana Jones og síðasta krossferðin (III), „Star Trek V“, „Lethal Weapon II“, Kar- atestrákurinn III og nýjasta James Bond- myndin, „Licence to Kill“ (XVII). Sumarið er veiðitíminn í Holly- wood þegar flestum stórmyndunum er stillt upp í bíóhúsunum og bráð- in er í sumarfríi. í Hollywood er gert ráð fyrir að ekki færri en fjór- ar myndir nái gulina takmarkinu, 100 milljón dollurum í tekjur, og það er ekki ólíklegt að ætia að að. minnsta kosti ein eða tvær, jafnvel þijár af þeim verði framhaldsmynd- ir. Unga bíófólkið sækir gjarna í það sem það þekkir. Raunar er ekki talað um nema eina mynd, sem ekki er framhald, sem þykir eiga möguleika í kapp- hlaupinu um dollarana í sumar en það er Leðurblökumaðurinn — Bat- man — með Michael Keaton og Jack Nicholson í aðalhlutverkunum. Reiknað er með að Clint Eastwood fái sinn venjulega aðdáendahóp inná nýjustu myndina sína hvað sem öllum framhaldssögum líður en það er gamanmynd og heitir Bleikur kádiljákur; reynt verður að troða „The Renegades“, hasar-löggu- mynd með Kiefer Sutherland og Lou Diamond, á milli framhalds- risanna; tvær Disney-myndir, önnur með Robin Williams og hin með stuttri Kalla kanínu teiknimynd á Þriðja og síðasta ævintýrið; Ur myndinni Indiana Jones og síðasta krossferðin. undan, lenda í samkeppni við „Star Trek V“ en margir veðja á að nýj- asti James Cameron („The Termin- ator“) tryllirinn eigi eftir að gera það gott með Ed Harris í aðalhlut- verkinu. Myndin heitir „The Abyss“ eða Hyldýpið og gerist neðansjávar og íjallar um hóp kafara sem reyna að bjarga kjarnorkukafbáti sem sokkið hefur í Atlantshafi (eitthvað kunnuglegt við þetta!). Svo er það spurning hvort ómerkilegu framhaldslausu myndirnar fái yfír- leitt pláss í bíóunum því stóru fram- haldssögurnar verða frumsýndar hver um sig í ekki færri en 2.000 bíóum í eiíiu' um öll Bandaríkin. En hljóðið er gott í mönnum vestra. Þeir reikna með metsölusumri. Það þýðir að bíómiðar seljist fyrir meira en 102,5 milljón dollara yfir eina viku en það er nýjasta metið yfir vikusöluna, sett í fyrrasumar. Það er fímm og hálfur milljarður- á íslensku. Á einni viku. Fimm og hálfur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.