Morgunblaðið - 14.05.1989, Side 33

Morgunblaðið - 14.05.1989, Side 33
MORCUNBLAÐIÐ MINNINGAR iKR UlJ. 'SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989 C 33 Þormóður Guðlaugs- son - Minningarorð Maclntosh SE/30 er öflugasta einkatölvan í heiminum, miöaö viö stærö, en hún er jafn stór aö utanmáli og Plus og SE tölvumar. Hún er meö 2 eöa 4 Mb vinnsluminni, sem er stækkanlegt í 8 Mb, auk 40 Mb harödisks og getur lesiö gögn hvort sem er af 800 K, 1,4 Mb Macintosh diskum eöa MS DOS- og OS/2 diskum. Maclntosh IICX er aö utanmáli minnsta tölvan I Macintosh II fjölskyldunni, en hún býöur upp á mikla og hraöa reiknigetu. Hún er meö 2 eöa 4 Mb vinnsluminni, sem er stækkanlegt í 8 Mb og er aö auki meö 40 eöa 80 Mb harðdiski og getur lesið gögn hvort sem er af 800 K, 1,4 Mb Macintosh diskum eöa MS DOS- og OS/2 diskum. ...eru síðustu forvöð að panta Macintosh tölvur í 2. hluta ríkissamningsins! Fæddur 15. mars 1916 Dáinn 5. maí 1989 „Þú sækir illa að,“ sagði hún frænka mín, þegar ég heimsótti þau Þormóð á laugardaginn fyrir hálfum mánuði. Eg hafði lengi ætlað að lita inn með litlu nöfnuna hennar, en annríki okkar unga fólksins veldur því að slíkar heim- sóknir verða færri en skyldi. Það kom í ljós að þau biðu eftir sjú- krabílnum. Oft hef ég, síðan ég kynntist Þormóði, undrast yfir lífskrafti hans og dugnaði. Svo margt virtist þjá hann, en sjaldan kvartaði hann og sjaldan vildi hann njóta umönnunar á sjúkra- húsum. Hann gerði alltaf lítið úr veikindum sínum og mér er nær að halda að flestir aðrir hefðu ta- lið tilveruna óbærilega, hefðu þeir mátt þola heilsuleysið, sem Þor- móður hefur búið við síðustu ár. Lífsviðhorf Þormóðs einkenndist af sjálfstæði. Hann vildi sjá um allt sjálfur og leita sem minnst til annarra. Þetta viðhorf hans kom líka glöggt í ljós þennan laugar- dag. Honum fannst algjör óþarfi að láta koma með sjúkrabörurnar inn í hús. Hann gæti alveg gengið sjálfur út að bílnum. Og síðustu orð hans við mig, þegar við Ást- hildur litla Kristín gengum út að sjúkrabílnum til að óska honum góðs bata: „Þetta verður allt í lagi, þið verðið að koma fljótt aftur,“ lýsa líka vel hugarfari hans. Von- leysi og kveinstafir voru honum víðs fjarri. Þegar mér var sagt lát hans tæpri viku seinna þakkaði ég fyrir að hafa þennan dag stigið út úr annríkinu og heimsótt þenn- an vin minn. í minningunni verður sú heimsókn kveðjustund. Ég kynnist Þormóði þegar ég var á unglingsaldri og frá upphafi streymdi frá honum föðurleg um- hyggja og hlýja í minn garð. Umhyggju hans og ræktarsemi við ástkæra ömmu mína mun ég alltaf muna. Ég held að Þormóður hafi getað látið alla, sem honum þótti vænt um, finna það í samskiptum sínum við hann. Það var notalegt að hafa Þormóð nálægt sér. Þor- móður var líka skemmtilegur. Bæði var hann léttur í lund og fannst gaman að gera að gamni sínu og svo fékk hann margar skemmtilegar hygmyndir. Hug- myndir, sem hann framkvæmdi umsvifalaust og kom manni sífellt á óvart í þeim efnum. Ég hef ekki ósjaldan hugsað á leiðinni út í Bauganesið hvað Þormóður væri nú búinn að gera, en hann var óþreytandi að betrumbæta húsið og umhverfið, að ekki sé minnst á sumarbústaðinn. Þar höfðu þau Ásthildur frænka mín eignast sælureit en því miður fengu þau of stutt að njóta hans saman. Velferð Ásthildar setti Þormóður ofar öllu. Það skipti hann öllu máli að hún hefði það sem best. Ósk um að við styddum hana, ef hann félli frá, kom hann oft á framfæri. Að leiðarlokum þakka ég Þor- móði allt, alla umhyggjuna, alla hlýjuna og ástúðina. Eg bið Guð að styrkja Ásthildi frænku og að hjálpa okkur sem eftir lifum að annast hana á þann hátt sem Þor- móður hefði viljað. Ásta Gunnarsdóttir og dauða leiki enginn sér. Ég hef engan þekkt sem hefur getað leyft sér það, en hann Þormóður nálg- aðist það. Ólafur bróðir minn, sem hefur um árabil verið læknirinn hans og sá er best vissi um heilsu- farsástand Þormóðs, sagði fyrir mörgum árum, að Þormóður sæti á sprengju og væri búinn að gera það lengi. Reyndar var ég að fá kort frá Ólafi og Ingu, en þau voru stödd í Sviss, þar sem Ólafur segir sér ekki koma andlát Þor- móðs á óvart og þau biðja fyrir innilegar kveðjur til Öddu. En Þormóður kvartaði aldrei og áttu saman. Þau höfðu þekkst lengi, er þau tóku höndum saman og hann fluttist til hennar. Þau voru nágrannar í æsku og Þormóð- ur fór ekki dult með það að hún hafi verið draumadísin hans. Þau höfðu bæði átt stormasama ævi og fyrri hjónabönd þeirra að baki, er leiðir þeirra lágu saman. Og Þormóður var einstakur. Fáa hef ég þekkt, sem orðin, að vera vinur vina sinna, áttu betur við. Það var alveg sama hvað hann var beðinn að gera, hann gerði það strax, ef hann mögulega gat. Það leit jafnvel stundum þannig út, að það var eins og viðkomandi gerði honum sjálfum greiða með því að óska eftir liðveislu hans. Móður minni, Ástu í Brautarholti, reyndust þau einstök og þá sér- staklega eftir að hún varð ekkja. Það virtist ekki það til, sem þau ekki vildu gera fyrir hana. Fyrir það allt verður aldrei fullþakkað. Þormóður hafði mikinn áhuga á því sem var að gerast í þjóðlífinu hveiju sinni. Hann hafði víða kom- ið við á lífsleiðinni, stundað vinnu bæði á sjó og landi. Hann hafði ákveðnar skoðanir á hveiju máli, og fylgdi þeim fast eftir, lét ekki hlut sinn fyrir neinum. Vinir og venslamenn Þormóðs kveðja hann með trega og þakka honum liðnar, góðar stundir. En mestur og stærstur er söknuður Öddu og bama Þormóðs. Við vit- um að innilegasta ósk Þormóðs var að Öddu liði sem best og hann var vakinn og sofinn yfir velferð hennar. Góður drengur er genginn sinn veg. Blessun Guðs sé með honum. Hvíli hann i friði. Ingibjörg Ólafsdóttir 18. maí ég held að hann hafi verið þakklát- ur fyrir hvern dag er þau Adda Það hefur verið harður vetur og við höfum því undanfarið yljað okkur við þá hugsun, að senn væri vor í lofti og brátt komi betri tíð með blóm í haga. Á þessum mörkum vetrar og sumars hefur hann Þormóður kvatt okkur. Og eins og hún Ásta, dóttir mín, komst að orði: „Það var enginn eins og hann Þormóð- ur. Hann var alltaf eins og pabbi minn.“ Sagt er, að á landamærum lífs Nýr samningur á milli Radíóbú&arinar, Apple og Innkaupaslofnunar ríkisins, var undirrritaöur nú í vor um sérstakt afsláttarverð til hinna ýmsu aðiia, sem tengjast opinberum rekstrL Ilann gerir starfsmönnum rikisfyrinaekja, sveitarfélaga og slofnana, kennurum, stúdentum og fleirum, kleift að kaupa Macintosh tölvur og tölvuvörur með yfir 35% afsiætti. Ástæðan fyrir endumýjun þessa samnings, er einkum sú hversu vel tókst til á síðasta ári, en þá voru keyptar yfir 1.300 tölvur, auk jaðanækja og hugbúnaðar. Áætlaður sparnaður ríkisins og þeirra aðila sem höfðu aðild að samningnum er um 170 milljónir króna. Lokadagar næstu pantana er 15. september og 15. nóvembcr 1989. Pantanir berist til Kára Halldórssonar, hjá Innkaupastofnun rikisins, Borgartúni 7. Sími: 26844

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.