Morgunblaðið - 14.05.1989, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 14.05.1989, Qupperneq 36
36 C MORGUNBLAÐIÐ VELVAKAIMDI SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989 mnmn „ komoLu keU')ngunni þmuí hétfan.jSrijól-f’ur þ>ú ert rek'mn." Ast er... ... að taka áhættu. TM Reg. U.S. Pa't Ott — all rights reserved © 1989 Los Angeles Times Syndicate Með morgimkaffinu Á FÖRNUM VEGI Mikil þörf fyrir nýjan Herjólf Góð vertíð, mikill afli og vinna, er ofarlega í hugum íbúa Vest- mannaeyja um þessar mundir. Menn bíða spenntir eftir að sjá hve miklum afla aflakóngurinn ætlar að ná fyrir lok og sjómenn bíða lokanna með óþreyju. En það er fleira ofarlega í hugum fólks. Yfirstandandi kjarabarátta og verkföll setja svip sinn á mannlífið. Fólki fínnst það undar- legt að sjá skólakrakka, sem á þessum árstima hafa vanalega legið yfir bókum sínum við próf- lestur, vera nú á kafi í vinnu. rátt fyrir þetta þá hefur umræðan um nýjan Heijólf, til siglinga milli lands og Eyja, ver- ið mest áberandi hjá Vestmanney- ingum síðustu mánuði. Fólk er sam- mála um að þörfin sé orðin mikil og eftir vélarbilun í skipinu í liðinni viku þá magnaðist þessi umræða. Ríkisvaldið hefur nú heimilað stjórn Heijólfs að gera forkönnun vegna smíði á nýju skipi en ætlar jafnframt að halda áfram leit að notuðu skipi. Morgunblaðið hitti fólk á förnum vegi í Eyjum og fékk álit þess á málefnum Heijólfs. „Síðustu aðgerðir eru yfirklór“ „Heijólfur er okkar þjóðvegur og við eigum heimtingu á því að hafa öruggt samgöngutæki hér á milli. Meðan að ríkið getur sett stóra fjár- muni í jarðgöng og aðrar því um líkar framkvæmdir þá þýðir ekki að bera það á borð fyrir mig að ekki séu til fjármunir í byggingu nýs skips,“ sagði Sigurður Guð- mundsson. Hann sagði að sér fynd- ist það út í hött að tala um að kaupa gamalt skip og var harður á að leyfi það sem ríkisvaldið hefði gefið til forkönnunar væri bara yfirklór af þess hálfu og gert til þess að teygja tímann og fá frið á meðan. „Mér finnst það vera aumingjadómur í stjórnmálamönnunum okkar að hafa ekki komið þessu í gegn, því miðað við tekjuframlag okkar til þjóðarbúsins þá eigum við kröfu um að fá almennilegt samgöngu- tæki,“ sagði Sigurður. „Allt of seinir í snúningi“ „Mér finnst ráðamenn nú hafa verið allt of seinir í snúningi við afgreiðslu Heijólfsmálsins. Reynd- ar virðast mér það yfirleitt vera þannig að stjómvöld hafi takmark- aðan skilning á þörfum landsbyggð- arinnar og því sem er að gerast þar,“ sagði Ingveldur Traustadóttir. Hún sagðist ekki telja það heppileg- an kost að fá gamallt skip og taldi að það hefði verið hægt að afgreiða þetta mál fyrir löngu ef vilji hefði verið til þess hjá stjórnvöldum. „Ríkið bruðlar það mikið með fé í tóma vitleysu að maður getur ekki sætt sig við að ekki séu til peningar til að leggja í þetta nauð- synjamál," sagði Ingveldur. Réttmætiskrafa Sveinbjörn Hjálmarsson sagðist vona að síðustu aðgerðir ríkisins yrðu til þess að hrinda smíði á nýju skipi af stað. Hann sagði að málið væri búið að veltast allt of lengi í kerfinu og nú yrðu menn að fara að taka ákvörðun. „Það er rétt- mætiskrafa og reyndar bráðnauð- synlegt að við fáum nýtt skip sem allra fyrst. ríkið á að leggja peninga til verksins strax og ég hlusta ekki á tal um að það sé bruðl að leggja peninga í þessa brú okkar,“ sagði Sveinbjörn. „Okkur beitt fyrir Þorlákshöfii“ - „Það er náttúrulega alltaf verið að deila um það í hvað á að setja peninga ríkisins, en ég held að menn geti verið sammála um að þörfin fyrir nýjan Heijólf er orðin mikil. Gamla skipið er orðið úrelt og bilanir sýna okkur að það er langt frá því að vera nógu öruggt til þessara flutninga,“ sagði Magn- ús Sveinsson. Hann var óánægður með hversu lengi stjórnvöld hafa þvælst með mál Heijólfs í kerfinu og sagðist telja að leit að gömlu skipi væri tímasóun. „Menn hafa verið að tala um að Þessi læknisskoðun verður dýrari í ár en í fyrra. Þú ert núna 17 kg þyngri. Víkverji Um fátt hefur verið talað meira undanfarnar vikur en verkfall háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna og þá dapurlegu stöðu sem þar er upp komin. „Eg er hættur að skilja þetta,“ segja menn í von- leysi. Og er von til þess að almenn- ingur skilji þegar þeir, sem í samn- ingaviðræðunum standa virðast ekki skilja hveijir aðra. Annað verð- ur að minnsta kosti ekki ráðið aí ummælum þeirra í fjölmiðlum. Þeg- ar annar talar í austur talar hinr í vestur. Augljóst er að á meðar svo er nást engir samningar. Frum- skilyrði er að talað sé sama tungu- mál beggja vegna borðsins. XXX Víkveiji hefur það fyrir satt að þegar reyndir samningamenn eiga í hlut geri þeir sér tiltölulega fljótt grein fyrir hvernig landið ligg- ur og hvar lendingin verður — og þokist þangað smátt og smátt. Þeir geta að sjálfsögðu deilt hart á þeirri Ieið, en nú í seinni tíð heyrir það til algerrar undantekningar, ef við- höfð eru- storkandi ummæli eða skrifar hroki, sem hleypt getur illu blóði í mótaðila. Slíkt er ekki til þess fallið að greiða fyrir samningum. Þá er og ótækt ef persónuleg óvild eða átök á öðrum vettvangi spila inn í og spilla fyrir samningum. Kjaradeilu þessari lýkurekki með „sigri“ annars hvors aðilans, heldur tjóni beggja — og ekki aðeins þeirra heldur kannski mestu tjóni þeirra, sem hvergi kom nærri og fá ekkert að gert. xxx Mest hefur borið á kennurum í þessum átökum og það kannski að vonum þar sem ekki hefur farið framhjá neinum hve hart. verkfall þeirra hefur þegar bitnað á nemendum í framhalds- skólum. Nemendurnir hafa verið illa leiknir, en ósagt skal látið hve var- anlegt tjón þeirra verður, vafalaust er það mjög mismunandi. En það eru fleiri í verkfalli en kennarar — og þar eru þolendur, sem fá ef til vill aidrei bætt þann skaða, sem rekja má til verkfalis- ins. Hvað t.d. um fólk, sem bíður eftir bæklunaraðgerðum, hvað um þá sem eiga við geðræn- eða félags- leg vandamál að stríða o.s.frv. Lengi mætti telja. Þá skal alveg sleppt að minnast á fjárhagslegt tjón. XXX að hafa mörg stór orð verið látin falla um þessa deilu manna á meðal — og sumt kannski ekki sanngjarnt. Hér verður ekki rætt um efnisatriði en hitt virðist nokkuð ljóst að ekki hefur gæfulega verið staðið að 'ausn hennar. Einn- ig skjóta ýmsar spurningar upp kollinum. Eru verkföll ekki orðin úrelt vopn í kjarabaráttu? Getur ein stétt valdið öðrum ómældu — kannski óbætanlegu — tjóni án þess að nokkuð verði að gert? Hvemig tryggir ríkið að í störf á þess vegum veljist hæft fólk? Er nægilegt að bara einhveijir skipi stöðurnar án tillits til getu? Þannig mætti lengi spyija. En krafa þjóðarinnar nú hlýtur að vera að deiluaðilar komist niður á sama astralplan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.