Morgunblaðið - 14.05.1989, Page 38
38 C
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFIMIÐ SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1989
ÆSKUMYNDIN...
ER AF GUÐNA GUÐMUNDSSYNIREKTOR
Lóðar-
prinsinn
Hann hló allra manna hæst og
það fór ekki fram hjá neinum,
hvar Nunni var á ferð. Hann
söng einnig mikið og þótti víst
bara efhilegur, var í Drengjakór
Reykjavíkur á sínum yngri árum.
Hann undi sér alls staðar vel,
jafht í sveit á sumrin í Dölunum,
sem heima á „Lóðinni", þar sem
hann er fæddur.
Guðni er fæddur þann 14. febrú-
ar 1925, sonur Guðmundar
Guðnasonar gullsmiðs og Nikolínu
'H. Sigurðardóttur, konu hans. Þijú
af fimm börnum þeirra hjóna eru
látin, Bjami, Gunnar og Kjartan.
Eldri systir Guðna er Sigríður.
Guðni er fæddur á „Lóðinni“ er
það var hvirfing þriggja húsa núm-
er átta við Óðinsgötu. Þegar Guðni
fæddist og æ síðan, var hann kallað-
ur „Lóðarprinsinn" enda fæddust
ekki fleiri börn í þessum samrýmdu
f|ölskyldum, sem þar réðu ríkjum í
þá daga. En nú er „Lóðin" löngu
fyrir bí.
Lífsþorsti og fjör
Guðni þótti tápmikill strákur,
hann hló allra manna hæst og söng
fullum hálsi. „Það var smitandi
hlátur og hljóðnæmi var honum í
blóð borið. Um Guðna get ég sagt
með sanni að hann var skemmtileg-
ur strákur, fullur af lífsþorsta og
ljöri og ég get trútt um talað, því
ég sá hann nýfæddan og fannst
hann fallegur á þeim degi og æ
síðan,“ segir vinur hans frá fyrstu
tíð, Atli Már Árnason.
Guðni gekk í ísaksskóla, sem þá
var í Grænuborg við Laufásveg.
Hann þótti bráðgáfaður og þurfti
ekki að eyða miklum tíma í lærdóm.
Hann var opinn og glaðvær og sagt
er að það hafi alltaf heyrst dálítið
í honum Nunna. Og svona táp-
mikill strákur þurfti líka að hreyfa
sig. Guðni fylgdi í fótspor bræðra
sinna og gekk í íþróttafélagið
Með stóra bróður
Nunni þriggja ára með Bjarna, elsta
bróðumum á ljósmyndastofu Kaldal.
Víking. En ólíkt þeim, lék hann
knattspyrnu og stóð í marki. Fer
fáum sögum af afrekum mark-
mannsins.
Kossinn í Fljótshlíð
Fljótur þótti Guðni að svara fyrir
sig. Hann var Fæpra sex ára þegar
hann kom eitt sinn á bæ í Fljótshlíð
með móður sinni. Húsfreyjan á
bænum, sem var nokkm yngri en
húsbóndinn, vildi gjarnan gera
þessum glaðværa gesti sínum gott
og bauð honum sælgætismola, sem
hann þáði með þökkum. Spurði
húsfreyja þá hvort hann ætlaði ekki
að kyssa sig fyrir molann. Guðni
leit í kringum sig og sá að auk
þeirra var eingungis eiginmaður
hennar inni og sagði: „Jú það er
allt lagi því það er hvort sem er
enginn inni nema kallinn og hann
hefur ekkert vit á því.“
ÚR MYNDAS AFNINU
ÓLAFUR K. MAGÚSSON
Úr heimi íþróttanna
Vaskir íþróttamenn hafa alltaf
verið eftirsóttar fýrirsætur hjá
blaðaljósmyndurum og í safni Ólafs
K. Magnússonar má
finna margar myndir
af íþróttahetjum fyrr og
nú. Þessar myndir eru
allar teknar um og eftir
1950 og má þar sjá
nokkra þekkta íþrótta-
menn við ýmis tæki-
færi.
Ein myndanna er tekinn í ráð-
herraboði og má þar sjá stjórn-
málaskörungana Ólaf Thors og
Hermann Jónasson í hópi þekktra
íþróttastjarna frá miðbiki aldarinn-
ar. Á annarri er fim-
leikalandslið íslands
ásamt þjálfara. Þá er
mynd af sundköppum í
Sundhöllinni í
Reykjavík og loks má
sjá knattspyrnukap-
pann Ríkharð Jónsson
heilsa stuðningsmanni
eftir harða viðureign, sem marka
má af fótleggjum kappans.
Forugir
fótleggir
eftir
snarpa
viður-
eign.
STARFIÐ
JÓN TRAUSTASON DÚKKULÆKNIR
BÓKIN
Á NÁTTBORÐINU
PLATAN
ÁFÓNINUM
MYNDIN
í TÆKINU
Jón Traustason
Mestaðgera
eftirjólin
Hver kannast ekki,við sorgina
sem grípur barnið þegar efltir-
lætis dúkkan skemmist eða bilar?
Engin önnur getur fyllt skarðið,
það verður að vera þessi dúkka
eða engin. Þá kemur til kasta
Jóns Traustasonar, sem kallaður
hefúr verið dúkkulæknir.
Jón byrjaði að gera við brúður
fyrir tveimur árum, þegar hann
komst á eftirlaun. Hann vill ekki
gera mikið úr þessu starfí sínu,
segir það vera dund gamals manns,
en víst er um það að mörg ungmeyj-
an á Jóni að þakka Iíf brúðunnar
sinnar.
Jón gerir við allar gerðir af brúð-
um og segir eina vandamálið vera
það hve erfitt er að nálgast vara-
hluti. Hann reyni þó af fremsta
megni að gera brúðumar nothæfar
á ný, en því miður takist það ekki
alltaf. Jón gerir einnig við annars
konar leikföng og segir mest að
gera hjá sér skömmu eftir jólin,
fólki virðist sárara um nýju leik-
föngin en þau sem eldri eru. Á öðr-
um árstímum sé minna að gera og
meðaltalið yfír árið sé um það bil
ein dúkka á þriggja vikna fresti.
ÞETTA SÖGDU
ÞAU ÞÁ . . .
LJUFA LIFS A|r||nesA,ri|b. an 1 Morgun- TABARJ^ blaí'nu 1 ma' i uusturströnd Miöjaröarhafsinsu . . ’ 1 •
ÉB
SSsT09
Leitið hins ljúfa lífs á Tabatja
Beach, á austurströnd Mið-
jarðarhafsins. Beirut, Líbanon.
Á hinni heimsþekktu Tab-
aija-strönd í unaðslegu um-
hverfi, heillandi og austulensku,
er lífinu tekið létt meðal fólks
af öllum þjóðemum ... Leitið
ítarlegri upplýsinga um þessa
sérstæðu ferðamannaparadís.
Kristbjörg
Kjeld
leikkona
Mér hefur ekki gefist neitt tóm
til lesturs undanfarið, en á
náttborðinu bíður spennusaga eftir
Agöthu Christie, sem ég man ekki
hvað heitir. Þegar einhvertími gefst
til, fínnst mér gott að slappa af
með spennusögur, ekki síst eftir
Christie.
Bergur Sig-
urbjörns-
son fyrrver-
andi alþingis-
maður
Yfirleitt er ég nú með nokkrar
bækur í takinu, en núna er ég
að lesa með bókina Býr íslendingur
hér eftir Leif Möller. Svo er ég líka
að líta í enska bók sem fjallar um
það hvernig lífið á jörðinni varð til
og hún er mjög athyglisverð og
skemmtileg. Helst vel ég mér til
lestrar góðar skáldsögur, en hef líka
gaman af að lesa bækur um nátt-
úrufræði og líffræði.
Dóttir mín fékk græjur í ferm-
ingargjöf, sem hafa verið stöð-
ugt í gangi síðan. Síðast hlustuðum
við á tónlistina úr kvikmyndinni
Betty Blue. Mér fannst hún reglu-
lega skemmtileg, eins og reyndar
flest það sem dóttirin hefur spilað
af poppinu. Sjálfur er ég þó meira
fyrir sveitatónlist.
Síðast hlustaði ég á Negotiations
and Love Songs með Paul Sim-
on. Ég hlusta ekki mikið á plötur,
nema þegar ég vil slappa vel af.
Þá er einmitt ágætt að hlusta á
Paul Simon. Ég er mest fyrir tón-
list með þjólagaívafi, bæði íslenska
og útlenska, til dæmis Þursaflokk-
inn.
Vilborg
Gísladóttir,
útivinnandi
húsmóðir,
Vestmannaeyj-
um
Síðast horfði ég á mynd sem mig
minnir að heiti Gaby, og er um
fatlaða stúlku. Mér fannst þetta
mjög góð mynd sem vekur mann
til umhugsunar. Ég leigi mér nokk-
uð oft myndir og þá oftast spennu-
myndir.
Anna Lea
BJörnsdótt-
ir, íþrótta-
kennari,
Keflavík.
Um daginn horfði ég á nokkuð
góða hasarmynd sem heitir On
The Line. Ég leigi núorðið mjög
sjaldan myndbönd, en nota tækið
meira til að taka efni upp úr sjón-
varpsdagskránni því vegna vinnu
minnar missi ég af því sem ég hef
áhuga á að horfa á. Einnig tek ég
efni upp úr sjónvarpinu fyrir börnin
— þau nota tækið líka meira en ég.