Morgunblaðið - 25.06.1989, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.06.1989, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1989 T TT \ C' er sunnudagTJr 25. júní. 5. sunnudagur eftir 1 UAljrTrínitatis. 176. dagur ársins 1989. Ardegisflóð í Reykjavík kl. 10.51 og síðdegisflóð kl. 23.16. Sólarupprás í Rvík kl. 2.56 og sólarlag kl. 24.04. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.30 og tunglið er í suðri kl. 6.31. (Almanak Háskóla íslands.) Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. (Sálm. 118,1.) ARNAÐ HEILLA Q A ára afinæli. Á morgun, ÖV/ mánudag, 26. júní, er áttræð frú Halldóra Sigfús- dóttir frá Hofströnd, Borg- arfirði eystra, Miðleiti 7 hér í Reykjavík. Eiginmaður hennar var Halldór Stefáns- son alþingismaður og forstjóri Brunabótafélags íslands. Hún ætlar að taka á móti gestum í Miðleiti 7, jarð- hæðinni, á afmælisdaginn eft- ir kl. 15. ö fl ^ra a&næ^< Á morgun, Ovl mánudag 26. júní, er áttræður Magnús Axel Júl- íusson, Klettagötu 10, Hafii- arfirði. Hann átti áður heima í Búðargerði 8, Reykjavík. Kona hans er Kristín Guð- mundsdóttir. Ætla þau að taka á móti gestum á heimili sínu í Klettagötu í dag, sunnudag. QA ára afinæli. Næstkom- OU andi þriðjudag er átt- ræð Sigríður Elín Þorkels- dóttir, áður Háteigsvegi 28 hér í bænum, nú á Drop- laugarstöðum. Hún ætlar að taka á móti gestum á heimili sonar síns og tengdadóttur í Holtsbúð 39 í Garðabæ á af- mælisdaginn milli kl. 16 og 19. ÁHEIT OG GJAFIR Áheit á Strandarkirkju afhent Morgunblaðinu. FK 5.000, R.M. 5.000, N.N. 4.000, I.M.S.B. 3.000, S.K. 2.400, N.N. 2.200, S.E. 2.000, K.Þ. 2.000, S.M.G. 2.000, N.N. 2.000. Benedikt Gröndal tekur tilboði utanríkisráðherra: FASTAFULLTRÚI HJÁ S.Þ. i&rAO^JSD SSV2- Svona hættu nú þessu væli, Benni minn. Ég skal lofa þér að naga blýantana þína í útlandinu ... FRÉTTIR/MANNAMÓT ÞENNAN dag árið 1244 var Flóabardagi háður. Og þennan dag árið 1809 tók Jörundur Hundadagakon- ungur völdin i stjómarbylt- ingu. Á morgun, mánudag, eru liðin 59 ár frá því að Alþingishátíðin var sett austur á Þingvöllum. DÓMTÚLKAR. í tilkynn- ingu frá dóms- og kirkjumála- ráðuneytinu í Lögbirtinga- blaðinu segir frá löggildingu sem ráðuneytið hefur veitt dóms- og skjalaþýðendum. Slíka löggildingu hafa hlotið nú í vor: Sverrir, H. Konr- áðsson, Jón Snorri Ásgeirs- son, Vilhelm Steinsen og Anna Keneva Kunz. Öll eru KROSSGATAN œ 9 zn 13 w H"~WZ _______ 122 23 24 LÁRÉTT: - 1 flysja, 5 sól, 8 þjálfun, 9 mikið, 11 espir, 14 þræta, 15 áform, 16 meðulin, 17 spil, 19 ójafna, 21 hlífi, 22 leifa, 25 lítill vínsopi, 26 aula, 27 kaðall. LOÐRÉTT: — 2 glöð, 3 þegar, 4 kvöld, 5 harðvítug sauðkind, 6 ótta, 7 ferski, 9 bjartast, 10 hranalegar, 12 heitir, 13 lengju, 18 land, 20 burt, 21 fomafn, 23 gelt, 24 frumefni. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: — 1 horfa, 5 taldi, 8 iðjan, 9 hismi, 11 karta, 14 lúi, 15 rakna, 16 sakka, 17 rót, 19 keik, 21 kaun, 22 nájæguL 25 róa, 26 æki, 27 aur. LOÐRÉTT: — 2 oki, 3 fim, 4 aðilar, 5 takist, 6 ana, 7 dót, 9 horskur, 10 sekkina, 12 rukkara, 13 apamir, 18 óræk, 20 ká, 21 ku, 23 læ, 24 GI. dómtúlkar og skjalaþýðendur á og úr ensku. Þá hefur Ka- rólína Geirsdóttir hlotið lög- gildingu sem skjalaþýðandi úr íslensku á hollensku. Petrína Rós Karlsdóttir er skjalaþýðandi úr frönsku á íslensku og Keld Gall Jörg- ensen hlotið löggildingu til að vera skjalaþýðandi úr íslensku á dönsku. FÉLAGSSTARF aldraðra í Reylqavík. Næstu hálfs-dags ferðir á vegum félagsstarfsins verða famar nk. þriðjudag í Heiðmörk og Árbæjarsafn. Nk. fímmtudag verður farið út í Viðey. í þessar ferðir er lagt af stað frá Hlemmtorgi kl. 13.30. Skráning þátttak- enda og nánari uppl. í símum 689671/689670 árdegis. FRAMFAR hf. er nýtt hluta- félag sem stofnað hefur verið hér í Reykjavík, segir í tilk. í Lögbirtingablaðinu. Þar seg- ir að tilgangurinn sé flug- rekstur m.m. Stofnendur þess em einstaklingar og er hluta- fé kr. 30.000. Stjómarfor- maður er Mekkinó Björns- son, Flyðrugranda 4, og Atli B. Unnsteinsson, Keilu- granda 10, er framkvæmda- stjóri. FERÐAKOSTNAÐARNE- FND hefur tilkynnt í Lög- birtingi greiðslu dagpeninga ríkisstarfsmanna á ferðalög- um erlendis. Tók þessi ákvörðun gildi hinn 1. júní og segir að greiðsla almennra dagpeninga skuli vera 180 SDR í New York-borg 190, í Noregi og Svíþjóð og annars staðar 155 SDR. Dagpening- ar sem greiða skal vegna þjálfunar, náms eða vegna eftirlitsstarfa skulu vera: 115 SDRíNewYork, en SDR 120 í Noregi og Svíþjóð og 100 SDR í öðmm löndum. FÉL. eldri borgara. í dag, sunnudag, er opið hús í Goð- heimum, Sigtúni 3, kl. 14. Frjálst spil og tafl. Dansað verður kl. 20. Nk. laugardag, 1. júlí, verður farin dagsferð og er ferðinni heitið asutur fyrir fjall um Hvolsvöll, Fljótshlíð og Þórsmörk, Hellu og Selfoss. Nánari uppl. gefur skrifstofa fél. í s. 28812. HÚSMÆÐRAORLOF Sel- tjamarnesbæjar verður austur á Laugarvatni dagana 10,—17. júlí nk. Frú Ingveld- ur Viggósdóttir í s. 619003 gefur upplýsingar um það. SKÓGRÆKTARFÉL. Garðabæjar fer á morgun, mánudag 26. júní, í gróður- setningarferð í Smalaholt, kl. 20. Félagsmenn þurfa að taka með sér skóflur og fötur plús kaffi. BRÚÐUBÍLLINN verður á morgun, mánudag, á leikvell- inum við Einarsnes í Skeija- firði kl. 14. ANANDA Marga-samtökin hér í Reykjavík halda kynn- ingarnámskeið í jóga- og hug- leiðsluaðferðum í leikskólan- um Sælukoti, Þorragötu 1 í Skeijafirði, þriðjudagskvöldið 4. júlí nk. Nánari uppl. veita þær Ása í s. 615336 og Supría, s. 27050. BAHÁÍAR hér í Reykjavík hafa opið hús öll mánudags- kvöld í Álfabakka 12 í Breið- holtshverfi eftir kl. 20.30. SKIPIN ~ RE YKJ A VÍKURHÖFN: Á morgun, mánudag, kemur togarinn Snorri Sturluson inn til löndunar og Irafoss leggur af stað tl útlanda. í dag, sunnudag, verður hér frá morgni til kvölds skemmti- ferðaskipið Vasco da Gama frá Panama og þá er væntan- legt amerískt hafrannsóknar- skip, Endavor. H AFN ARF J ARÐ ARHÖFN: í dag, sunnudag, fara á ströndina Haukur og Isberg. ÞETTA GERÐIST 25. júní. ERLENDIS: 1658: Ensk-franskur her sigrar Spánveija við Dunkirk. 1862: Sjö daga orrustan. 1870: ísabella Spánardrottn- ing leggur niður völd. 1876: Orrustan um Little Big Hom: Sioux-indíánar strá- fella riddaralið George Cust- ers hershöfðingja (Custers Last Stand). 1879: Soldáninn steypir Ismael Khedci í Egyptalandi og Tewfik tekur við. 1880: Þingið í Höfðanýlend- unni hafnar áætlun um sam- bandsríki Suður-Afríku. 1918: Bandarískt herlið hrek- ur Þjóðveija úr Belleau-skógi. 1920: Haag valinn aðseturs- staður Alþjóðadómstólsins. 1925: Pangalos verður for- sætisráðherra Grikkja eftir byltingu. 1942: Áttundi her Breta í N-Afríku hörfar til Mersa Matrun-línunnar. 1950: Kóreustríðið hefst. 1961: Kassem lýsir yfir yfir- ráðum íraks yfir Kuwait. 1963: Moise Tshombe neydd- ur til að segja af sér sem for- sætisráðherra í Katanga. 1967: Glassboro-fundur Johnsons Bandaríkjaforseta og Kosygins Sovétleiðtoga. 1972: Fjöldamorð framin í Burgundi. 1974: Fyrsta manntjón gæslusveita SÞ í Golanhæð- um. 1975: Mosambík fær sjálf- stæði. HÉRLENDIS: 1244: Flóabardagi. Mesta sjó- prrusta hér við land háð af íslendingum. 1548: Skálholtsför Jóns bisk- ups Arasonar. 1782: Bannfæring numin úr lögum. 1809: Stjórnarbylting Jör- undar Hundadagakonungs. 1875: W.L. Watts leggur upp frá Núpsstað í ferð þvert yfir Vatnajökul. 1893: Hjalti Jónsson, Eldeyj- ar-Hjalti, klífur Háadrang undir Dyrhólaey. 1902: Kosningasigur heima- stjórnarmanna. 1978: Kosningasigur Alþýðu- flokksins. ORÐABOKIN Hvað á að leigja? Stundum má lesa í aug- lýsingum eftirfarandi: Vil leigja tveggja herbergja íbúð. Enda þótt venjulegast megi sjá af samhenginu, við hvað sé átt með þessu orða- lagi, geturþað engu að síður valdið misskilningi. Er hér verið að bjóða íbúð til leigu eða óska eftir íbúð? En þetta má orða á ótvíræðari hátt. Á bak við þetta óljósa orða- lag er danska sagnorðið at leje, sem merkir ýmist að leigja e-m e-ð eða að taka á leigu. Síðari merkingin er sú, sem oftast mun átt við í íslenzku. Hún er og ekki ný í málinu. Guðbrandur biskup segir í biblíu sinni í lok 16. aldar: Þeir leigðu steinhöggvara og trésmiði til að bæta guðs hús. Er þetta orðalag nær óbreytt í nýjustu biblíu okkar. Sjálf- sagt er að greina þessar merkingar i sundur. Þegar auglýst er á þann hátt, sem að framan segir, er yfirleitt átt við, að óskað sé eftir íbúð. Þá fer auðvitað betur að segja: Vil taka & leigu íbúð, enda getur enginn misskilið það. — Þá er talað um að leigja íbúð a/ e-m, og það veldur ekki heldur misskilningi. Þetta sagnorð er tekið sem dæmi um það, að sneiða ber hjá einstökum orðum eða orðalagi, sem getur misskilizt. - JAJ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.