Morgunblaðið - 25.06.1989, Side 17

Morgunblaðið - 25.06.1989, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JUNI 1989 Segja má að þjóðlíf í Grikklandi hafi að meira og minna leyti snúist um kosningamar síðustu vikumar. hlutverk föðurins er geysiöflugt í Grikklandi og er nærtækast að nefna að ennþá eru allir Grikkir kenndir opinberlega við fornafn föð- urins auk þess sem þeir burðast með fjölskyldunafn hans. Á kjör- seðlinum í kosningunum stóð því í línu forsætisráðherrans: Andreas Papandreou sonur Georges. Það er áhugavert að velta fyrir sér stöðu og þátttöku kvenna í stjórnmálalífi sem einkennist af ævafornum erkitýpum. Engum blöðum er um það að fletta að hlut- ur kvenna í grískum stjómmálum er ákaflega rýr. Á hægri væng er varla ein einasta kona sem náð hefur umtalsverðum frama. Á vinstri væng eru konur örlítið fram- sæknari, einkum lengst til vinstri. Þar finnst mjög öflugar og vel menntaðar konur í áhrifastöðum. í Pasok hafa konur átt fremur lítilli velgengni að fagna. Víst er að jafn- réttissinnar í flokknum hefðu óskað þess að konur tengdust kosninga- baráttunni á dögunum á annan hátt en Mimi gerði. Sú kona sem komist hefur til mestra áhrifa í flokknum er Melina Merkouri. Hún er mjög náinn vinur Papandreous forsætisráðherra og hún var eini ráðherrann sem haggaðist ekki í samtals 14 uppstokkunum í ráðu- neytum á síðasta kjörtímabili. Skýr- ingar á velgengni hennar eru að Hér eru sigurvegarar kosn- inganna, þeir Harilaos Flor- akis, leiðtogi bandalags kommúnista og vinstri manna, og Konstantine Mits- otakis, foringi Nýja lýðræð- isflokksins, en ekki er ólík- legt að þeir myndi bráða- birgðastjórn til að heQa op- inbera rannsókn á spillingu í stjórnartíð sósíalista, en efiii síðan til nýrra kosninga i haust. því að það mun styrkja þig. Eins og stundum vill verða í trúarbrögð- um þá gerast sumir óskeikulir og óhætt er að segja að sitthvað áþekkt því sé njörvað í gríska pólitík. Gagn- rýni samstarfsmanna á leiðtogann er fáheyrð og sjálfsgagnrýni þekk- ist ekki. En þar sem kjósendur gera ekki kröfur um slíkt þá breytir það litlu. Allir vita svo sem að leiðtoginn gerir mistök en þau fyrirgefa þegn- arnir eins og fjölskyldan axarsköft föðurins. Það má segja að leiðtoginn í grískum stjórnmálum sé dýrkaður og tilbeðinn eins og dýrlingur, — en sýni hann hins vegar mannleg- ar, breiskar ’nliðar þá nýtur hann umburðarlyndis og virðingar sem væri hann faðir. í grískum nútíma- stjórnmálum eru því elstu ímyndir valds ljóslifandi, — ímynd hins guð- lega og ímynd föðurins. ímynd og Papandreou og unnusta hans, Dimitra Liani, voru helsta kosningamálið í Grikklandi og á sjálfan kjördaginn birtu dagblöð myndir af henni hálfnaktri á forsíðunni. líkindum margvíslegar. Frægð hennar fýrir kvikmyndaleik, bæði vestan hafs og austan, hefur átt einn þátt í því hvernig henni hefur vegnað. Auk þess var barátta henn- ar gegn herforingjastjórninni vel metin af flokksbræðrum hennar. Merkouri er án efa stjarna og eftir- læti allra, hún hefur unnið vel í sínu ráðuneyti og enginn vogar sér að hallmæla henni. Ein hugsanleg skýring á frama hennar er sú að hún hefur aldrei ógnað veldi karl- anna. Hún hefur haft einn fastan samastað í menningarmálaráðu- neytinu og hefur aldrei sýnt merki þess að ágirnast völd félaganna. Að mörgu leyti hefur hlutverk henn- ar og staða innan ríkisstjórnarinnar verið áþekk stöðu kvenna í efnuðum grískum fjölskyldum. Hún hefur verið í hlutverki hinnar dekruðu einkadóttur í ríkisstjórnarfjölskyldu Papandreous. Opinber rannsókn á spillingunni Kosningarnar um síðustu helgi leiddu til þess að enginn flokkur fékk hreinan meirihluta. Enginn leiðtogi gekk fram sem ótvíræður sigurvegari, enginn settist í hásætið og hóf að deila og drottna. Banda- lag kommúnista og vinstri manna komst í oddaaðstöðu. Til eru þeir sem vonast til þess að í kjölfarið skapist hefð samsteypustjórna. Þeir telja að slíkt stjórnarform dragi úr völdum leiðtoganna. Hann þyrfti að leita samráðs. Þessir kenningar- smiðir hafa látið í veðri vaka að einungis með samstarfi flokka verði hægt að uppræta spillinguna í stjórnkerfmu. Þeir telja spillinguna afkvæmi velauglýstrar föðurímynd- ar leiðtogans og aðhaldslausra II stjórnarhátta sem er fylgifiskur hennar. Spillingin í Grikklandi er óhugnanlega raunveruleg. Jafn áreiðanlegir viðmælendur og Nikos Amanitis, ritstjóri erlendra frétta á vikuritinu Ema, og Konstantin Kall- igas, formaður Grikklandsdeildar Evrópusambands blaðamanna, töldu að spillingin næði upp í gegn- um öll lög Pasok-flokksins og þrif- ist á öllum þrepum stjórnkerfisins. Kalligas taldi spillinguna skipu- lagða og að hún birtist á margvís- legan hátt. Hann sagði að fólk væri ráðið til opinberra þjónustu- starfa eftir flokksskýrslunum. Nær- tækasta dæmið taldi hann vera lof- orð ríkisstjórnarinnar til um 40 þúsund manns rétt fyrir kosningar um vinnu hjá Pósti og síma, en aðal vandi þess fyrirtækis hefur að undanförnu verið sá að vantað hef- ur borð og stóla fyrir allt það nýja starfsfólk sem ráðið hefur verið á síðustu misserum. Kalligas sagði einnig að það væri orðin viðtékin venja að geti einstaklingurinn ekki nýtt sér flokkstengsl til þess að ná einhveiju út úr kerfinu verði hann að greiða starfsmönnum ráðuneyta, tollgæslu, rafveitu og o.fl. svo og svo mikið í þóknun sem hvergi komi fram. Báðir voru viðmælendumir þeirrar skoðunar að óvíða þrifist spillingin betur en í ríkisíjölmiðlun- um því þeim væri stjórnað beint frá bústað forsætisráðherra. Sú saga rifjast upp í þessu samhengi sem vikuritið Economist greindi einu sinni frá. Þannig var að þegar Mit- terrand Frakklandsforseti kom í opinbera heimsókn til Grikklands þá vom sjónvarpstökumennirnir það uppteknir við að þóknast Pap- andreou og sýna hann frá öllum sjónarhornum að varla nokkm sinni sást andlit gestsins og virtist ein- ungs hnakki Frakklandsforseta eiga erindi til grísku þjóðarinnar. Kalligas taldi þó alvarlegast það sem ætti sér stað hjá forystu Pas- ok-flokksins. Hann sagði að yfir flokkstoppana rigndi allskonar gjöf- um. Bílum, íbúðum og jafnvel villum með stórum sundiaugum rigndi yfir þá frá mönnum sem ættu hagsmuna að gæta í einhveiju máli. Hann fullyrti að landsfeðurnir sukkuðu óhóflega og héldu grimmt framhjá konum sínum. Hinar ýmsu íbúðir og villur sem þeim hefði áskotnast kæmu þá að góðum notum. Kalligas sagði að siðleysi væri það ríkjandi í kringum forsætisráðherrann að þar hefðu menn glatað þeim viðmið- unum sem almenningur hefði á því hvað væri rétt og hvað rangt. Báðir stjórnarandstöðuflokkarn- ir, Nýi lýðræðisflokkurinn og Bandalag kommúnista og vinstri manna, boðuðu „kaþarsis“ eða hreinsanir í kerfinu í kosningabar- áttunni. Af málflutningi þeirra mátti ljóst vera að kæmust þeir til valda þá færi af stað opinber rann- sókn á því misferli sem átt hefði sér stað í stjórnartíð Papandreous. Nú hafa þessir flokkar meirihluta á þingi en ekki er útséð um það hvort þeir hefji stjórnarsamstarf því þeir eru eins og aðrir hægri og vinstri flokkar, — með gjörólíka afstöðu til flestra mála. En mikill þrýstingur er á flokkana um ein- hverskonar samkomulag því sam- kvæmt stjórnarskránni verður rannsókn á opinberri stjómsýslu á síðasta kjörtímabili að fara fram á þessu ári, — annars fimast glæpirn- ir. Því er talið líklegt að mynduð verði bráðabrigðastjórn þessara flokka sem kalli saman þing, hefji rannsóknina og og boði síðan til nýrra kosninga í haust. En í grískum stjórnmálum getur allt gerst. Þó svo grískir gleðileikir séu full- ir af ýkjum þá virðast grísk stjóm- mál vera enn ótrúlegri. Sannast enn á ný hið margkveðna að vemleikinn er iðulega feti framan en ólíkleg- ustu hugarórar rithöfunda og heim- spekinga. Grikkinn Zorba segir á einum stað að sjaldan sé mikinn fróðleik að finna á afturenda frill- unnar. Margir eru þeirrar trúar að Papandreous hefði átt að halda sig við lestur hagfræðirita samhliða því að stjóma landinu. Hefði hann gert það væri öðruvísi um að litast í grískum stjórnmálaheimi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.