Morgunblaðið - 25.06.1989, Page 19

Morgunblaðið - 25.06.1989, Page 19
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1989 e86I ÍVIÚT. ?MC®J3U®ÚAÐffi '/t inflQM n— pltr0minWal>lí Arvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. MatthíasJohannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið. Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Hagrirki og inn- heimta söluskatts Herferð sú, sem fjármálaráðu- neytið hefur beitt sér fyrir að undanförnu til þess að inn- heimta ógreiddan en gjaldfallinn söluskatt, hefur vakið athygli. Enginn ágreiningur er um að ganga beri hart eftir því, að sölu- skattsskyldir aðilar skili innheimt- um skatti. Lokun Hagvirkis hf. sem er eitt stærsta verktakafyrirtæki lands- ins, virðist hins vegar vera annars eðlis. Þar er ekki um að ræða vanskil á innheimtum söluskatti. Þvert á móti: Hagvirki hefur aldr- ei innheimt þann söluskatt, sem fyrirtækið er krafið um. Jóhann Bergþórsson, forstjóri Hagvirkis hf., segir, að lögfræðingar og lög- giltir endurskoðendur fyrirtækis- ins hafi á árinu 1980 komizt að þeirri niðurstöðu með tilvísun til söluskattslaga frá 1960, að vega- framkvæmdir og virkjunarmann- virki væru undanþegin söluskatti. í lögum þessum séu ákvæði um að vinna við húsbyggingar og aðra mannvirkjagerð sé undan- þegin söluskatti, þó aðeins að sú vinna fari fram á virkjunarstað. Þegar Hagvirki hafi boðið í virkj- unar- og vegavinnu á árunum 1981-1985 hafi söluskattur ekki verið lagður á vélavinnu af þess- um sökum. Fyrirtækið hafi því ekki innheimt söluskatt af við- skiptavinum sínum þ. á m. Lands- virkjun og Vegagerðinni. Það er svo á árinu 1987, sem skattstjórinn á Suðurlandi áætlar söluskatt á fyrirtækið vegna þess- arar vinnu. Þessi álagning er kærð og fer síðan til meðferðar dómstóla. Niðurstaða liggur ekki fyrir. Sjónarmið íjármálaráðu- neytisins eru hins vegar þau, að söluskattslögin kveði skýrt á um það, að vanræki aðili að taka sölu- skatt af vöru eða þjónustu, sem sé skattskyld skv. lögum, beri honum eigi að síður að standa skil á skattinum og að áfrýjun eða deila leysi menn ekki undan þeirri skyldu. Vinni þeir málið sé skatt- urinn að sjálfsögðu endurgreidd- ur. Það er því ljóst, að báðir máls- aðilar vísa til sömu laga máli sínu til stuðnings. Af þeim sökum er hægagangur í kerfinu stórháska- legur og harla ámælisverður, hveiju, sem um er að kenna. Ekki verður annað séð en að um mál- efnalegan ágreining sé að ræða í þessu tilviki, sem ekkert eigi skylt við undanskot frá skatti, sölu- skattssvindl eða tilraun til að draga greiðslu, eins og við þekkj- um af öðrum vítaverðum dæmum. Það er hins vegar mál út af fyrir sig, hvort Hagvirki hefur með tilboðum fengið verk, sem aðrir hafa boðið í, vegna þess, að Hagvirki hafi ekki gert ráð fyrir söluskattsgreiðslu en aðrir tilboðs- gjafar reiknað með söluskatti. Ríkisvaldið verður að gæta þess, að þegnarnir njóti réttinda lögum skv. ekki síður en ríkið. Þegar um lögmætt ágreiningsefni er að ræða eins og í þessu tilfelli er engin sanngirni fólgin í því að kreíja fyrirtæki um tugi milljóna að ekki sé talað um á annað hundrað milljónir og sé ekki orðið við þeirri kröfu verði fyrirtækinu lokað þótt ágreiningsefnið sé til meðferðar hjá dómstólum og ríkis- skattanefnd! Enginn getur séð fyrir afleiðingar slíkra aðgerða, fremur en afleiðingar austan- Ijaldsaðgerða af því tagi að hvetja fólk til þess að benda á meinta skattsvikara. Hvað vita menn um skattaaðstæður náungans? Fjár- málaráðuneytið á að afþakka ógeðfelldar ábendingar af þessu tagi, því þær gætu leitt til útrásar fyrir ofsóknarhneigð, sem við kynnumst nú í Kína og breytir þjóðfélagi í harmsögu. 9Það voru ekki • lítil áhrif sem hin borgaralega frjáls- lyndisstefna Evrópu hafði hér á landi. Júlí- byltingin franska 1830 sem var eins- konar framhald af stjórnarbylting- unni miklu var einnig mikilvæg varða á hugmyndalegri ferð mót- andi hugsjónamanna einsog Jóns Sigurðssonar. Allt var í deiglunni. Þótt lénsveldið reyndi að snúa þró- uninni við varð ekki við það kom- andi. Menn kröfðust tjáningarfrels- is, viðskipta- og atvinnufrelsis, áhrifa í ríkisstjóm, nýrrar stjómar- skrár. Og í anda þessara krafna stefndi Jón forseti að sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar. Hann hafði óbilandi trú á framfömm hennar, einsog séra Eiríkur bendir á í rit- gerð sinni, og unni jafnframt ein- læglega öllum frelsishugmyndum samtímans sem mddu þeim til rúms eftir 1830. „Þaraf leiddi það, að þótt hann kynni flestum öðram fremur að meta það, sem einkenni- legt var við þjóðemi íslendinga, þá lét hann það þó eigi koma sjer til að halda fast við það, sem úrelt var orðið, eða aptra sjer frá, að fylgja fram þeim atriðum alheimsmennt- unarinnar, er á íslandi gátu komið til greina“. Hann bætir spreki á gamlar glæður og kyndir það frels- isbál sem um munaði. Jónas og Fjölnismenn sóttu önnur sprek í sinn eld; bæði í upplýsingastefnu Eggerts Ólafssonar og rómantík skálda einsog Heines. Enn vitjar Evrópa íslands. Og allir hafa þessir fullhugar þjóðlega menntastefnu og fornar bókmenntir í hávegum. Það mættum við ekki sízt hafa í huga nú á tímum, þegar Evrópubanda- lagið réttir að okkur epli í Eden allsnægtanna. Á 200 ára afmæli frönsku • stjómarbyltingarinnar er skemmtilegt að riija það upp að Jón forseti Sigurðsson var með hugann við Frakkiand og jafnréttisbaráitu borgaranna þar. Hann upplifir stórvið- burði aldar sinnar sem þátttakandi en ekki áhorfandi og skynjar mikilvægi þeirra enda býr hann í höfuðborg eins af konungseinveldunum og upptendrast af atburðum þar og annars staðar í álfunni. Þannig seg- ir hann í bréfi til Jens bróður síns 18. marz 1848: „Þú veizt, að marg- ir hafa fundið á sér árin fyrirfar- andi einsog veðurboða, en nú er það komið fram, því gamla Európa er nú þegar í loga ... Frakkar urðu bráðir og ætluðu að segja til sín, en þeir vissu ekki af sér sjálfir fyrr en öllu var kollsteypt óvart. Hvað var nú að gjöra? — Republik — og á einu augabragði þá er orgað upp „la republique Francaise — la li- berté — l’égalité, la fratemité“ — Eh bien, monsieur, það er komin republik á Frakklandi aftur, og Lamartine er utanríkisherra. Thiers er nú hreint apturúr, því hann er ekki nærri nógu fijálslyndur. Nú er kviknað í Þýzkalandi, og í flest- um stöðum láta sljómirnar und- an...“ Og svo veltir Jón fyrir sér við- brögðum heima. „Við emm nú að bíða póstskipsins, að heyra stjórnar- byltíng frá íslandi, en ef hún er ekki komin þá kemur hún þegar fregnirnar koma héðan, það veit ég.“ Það er ekki lítill hiti í orðum þessa upprennandi leiðtoga, þegar hann skrifar bróður sínum heim til íslands. Hann veit að nálægur veggur hitnar, þá er inn næsti brennur, svo að vitnað sé til Ama sögu byskups, en þessi fomu rit vom Jóni forseta í senn næringar- gott veganesti og einskonar leið- sögustef í langri baráttu. í Árna sögu er bæði talað um frelsi lands- ins og frelsi alþýðunnar og búkarla sem gera sig digra. Lífsviðhorf Jóns a'sér djúpar rætur í þjóðarsögunni. Mannréttindayfirlýsingin • franska sem þjóðarsam- kundan, eða byltingarráðið sam- þykkti 26. ágúst 1789 og skeytt var sem formála framan við nýja stjómarskrá 1791 sækir áhrif í ýmsar áttir. Sumir telja að áhrifin séu einna helzt frá sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna frá 4. júlí 1776 þar sem í upphafi er talað um að allir menn séu jafnir við fæðingu og sæki jafnan rétt í skapara sinn, lífið sjálft, frelsið og leitina að ham- ingju. Í gagnrýni á Bretakonung er tekið fram að hann hafi lagt á skatta án samþykkis bandarísku þjóðarinnar, en takmarkalítil skatt- heimta er talin siðleysi og mann- réttindabrot að dómi mikilsvirtra stjórnspekinga, konungur er sakað- ur um að hafa brotið þau fmmrétt- indi mannsins að allir skuli vera jafnir fyrir lögum; þ.e.a.s. hann hafi brotið lögin og gengið á rétt fólks og framkvæmt valdstjórn sína með þeim hætti að hann sé rétt- nefndur harðstjóri. Aðrir rekja áhrifin á frönsku mannréttindayfirlýsinguna til brezkra gmndvallarreglna um lýð- ræðisleg réttindi, enn aðrir til helztu hugsuða upplýsingastefnunnar — en þó einkum Rousseaus og rits hans, Social Contract. Franska mannréttindayfirlýsing- in hafði gífurleg áhrif á stjórn- málaþróun 19. aldar og réttindabar- áttu þeirra sem höfðu forystu um aukin mannréttindi á öldinni og allt fram á okkar daga. Helztu ákvæði yfirlýsingarinnar era frelsi til að kjósa fulltrúa á lög- gjafarþing; jafn réttur allra fyrir lögum; sanngjamir skattar, vernd gegn eignaupptöku stjórnvalda að geðþótta; trúfrelsi, málfrelsi og prentfrelsi; og vernd gegn hand- tökum og refsingum að geðþótta. Allt em þetta grandvallaratriði í stjómskipan lýðræðisríkja og sér þeirra ekki sízt stað í stjórnarskrá okkar íslendinga, þótt ekki sé ávallt eftir þeim farið. M. (meira næsta sunnudag) HELGI spjall REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 24. júní Reykjavíkurbréf, sem birtist hinn 11. júní sl., hefur orðið tilefni umræðna hér í Morgun- blaðinu, sem ástæða er til að víkja að nokkmm orðum. Erling Garðar Jónasson, rafveitustjóri á Austurlandi, rit- aði grein í Morgunblaðið sl. fimmtudag, þar sem hann ijallaði nokkuð um fyrrnefnt Reykjavíkurbréf og sagði m.a.: „Áthyglis- verðar ályktanir ritstjóranna undanfarið um fijálsa vöruflutninga til landsins, um fijálsar tryggingar og um innflutning land- búnaðarafurða, hafa skapað miklar um- ræður og jafnvel orðið til þess, að skoðana- bræður blaðsins hafa endurskoðað viðhorf sitt til þess. Þetta kallast kjarkur í minni sveit. Lykilþátturinn í ofangreindu Reykjavík- urbréfi er sú ályktun höfundar, sem hægt er að lesa beint úr texta, að skammtíma- sjónarmið ráði gangi atvinnumála á lands- byggðinni og að stuðningur við umbætur í sjávarútvegi muni fyrst og fremst koma frá kjósendum á höfuðborgarsvæðinu.... Sökudólgarnir era heimilisfastir á höf- uðborgarsvæðinu, þar geisaði íjárfesting- aræðið, þar búa höfundar fastgengisstefnu og fijálsra vaxta og þar búa þeir, sem vilja bara smyija eitt tannhjól í efnahags- vélinni, peningana. Mönnum um allt land er það ljóst, að allir þjóðfélagsþegnar verða nú að borga fjárfestingarfylliríið á höfuðborgarsvæðinu og sjálfsagt er útilokað að viðhalda já- kvæðum raunvöxtum vegna afleiðinga þeirra í rekstri stórfyrirtækja á Reykjavík- ursvæðinu.... Hér á Austurlandi fýsir okkur að vita, hvar offjárfesting hefur verið í fiskvinnslu- stöðvum eða útgerð undanfarin tíu ár eða svo. Við þekkjum það ekki hér og eram orðnir leiðir á þeim frasa frá höfuðborgar- svæðinu, að íjárfestingar á landsbyggðinni séu ástæða vandans í efnahagsmálum og spyijum: Hvort kom á undan, hænan eða eggið?“ I þeim kafla Reykjavíkurbréfs frá 11. júní sl., sem Erling Garðar vitnar til, sagði m.a.: „Hins vegar verða menn að horfast í augu við það, að umbótastefna í útgerðar- málum, sem miðar að fækkun fiskiskipa, mun rekast á gífurlega sterka hagsmuni og andstöðu. Þar munu byggðasjónarmiðin m.a. leika stórt hlutverk og um leið og þau koma til sögunnar birtast alþingis- menn, sem eiga þingsæti sín undir atkvæð- um kjósenda í þessum byggðarlögum. Hættan er sú, að þeir taki skammtíma- hagsmuni sína og kjósenda sinna fram yfir langtímahagsmuni þjóðarinnar. Þess vegna er mikið til í því, sem fyrmefndur forystumaður í útgerð sagði: „Stuðningur við umbætur í sjávarútvegi mun fyrst og fremst koma frá kjósendum á höfuðborg- arsvæðinu.““ m^mmmmmmm ekki verður ^iávanit- um það deilt’ að uJav 111 sjávarútvegurinn er vegnrinn er grandvöiiur at- crriinHvnll- vinnulífs og afkomu gi uiiuvuu okkar . þessu landi unnn Um það verða íbúar landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis áreið- anlega sammála og Erling Garðar og Morgunblaðið era áreiðanlega á einu máli um þá meginforsendu, sem menn verða að gefa sér í þessum umræðum. Um það verður heldur ekki deilt, að því meiri, sem hagnaðurinn verður af útgerð og fisk- vinnslu, þeim mun betri verður Iífsafkoma okkar íslendinga. Þess vegna er spurning- in þessi: Hvernig getum við náð meiri hagnaði út úr rekstri sjávarútvegsins? Það er heldur enginn ágreiningur um það nú orðið meðal landsmanna, eða milli byggðarlaga eða í hópi útgerðarmanna og sjómanna, að ef við miðum við nokkuð svipað aflamagn og við nú búum við — og það era tæplega rök fyrir því, að hægt verði að auka aflann verulega á næstu áram frá því, sem nú er — hlýtur vonin um aukinn hagnað af útgerðinni að liggja í því að ná í þennan afla með minni til- kostnaði. Það hefur verið sýnt fram á það með rökum, sem ekki er hægt að bera brigður á, að fiskiskipastóll okkar er of stór. Það þýðir, að við getum náð í sama aflamagn með færri skipum, minni olíu- eyðslu, minni veiðarfæranotkun. Sami afli með færri skipum hefur í för með sér aukinn hagnað og betri afkoma þjóðarinn- ar. Þetta er það, sem Morgunblaðið á við, þegar blaðið talar um offjárfestingu í út- gerð. Erling Garðar spyr: Hvar er þessi offjárfesting í útgerð á Áusturlandi? Svar- ið er: Þessi offjárfesting í útgerð er um allt land og ekki hægt að taka einn lands- hluta út úr í þeim efnum. Ágreiningurinn er ekki heldur um þetta grandvallaratriði, ágreiningurinn er um það, hvaða leiðir á að fara til þess að fækka fiskiskipum og hvar sú fækkun á að koma fram. Það er hér, sem ágreiningur um útgerð- arstefnuna snýst upp í stríð milli lands- hluta og þar er Reykjavíkursvæðið eða suðvesturhornið ekki undan skilið. Utgerð- armenn og sjómenn fyrir sunnan telja, að það sem þeir kalla smáfiskadráp fyrir vest- an, norðan og austan sé að leggja útgerð í Vestmannaeyjum og á Suðurnesjum í rúst. Þessi ágreiningur milli landshluta er líka byijaður að slqöta upp kollinum milli Vest- firðinga og Austfirðinga eða öllu heldur af hálfu Vestfirðinga í garð Austfirðinga. Morgunblaðið gaf út fjórblöðung sl. þriðju- dag með viðtölum við fólk í nokkram sjáv- arþorpum á Vestfjörðum, sem ramba á barmi gjaldþrots. Það má lesa út úr þess- um viðtölum, að Vestfirðingar telja, að Halldór Ásgrímsson hafí beitt aðstöðu sinni í sjávarútvegsráðuneytinu til þess að hygla Áustfírðingum í kvóta og byggja upp útgerð á Austurlandi á kostnað út- gerðar á Vestíjörðum. Þannig sagði hrepp- stjórinn í Bíldudal, Guðmundur Sævar Guðjónsson: „Við eram mjög ósáttir við Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð- herra, og hans vinnubrögð.“ Og Jakob Kristinsson, framkvæmdastjóri Fiskvinnsl- unnar á Bíldudal segir: „Það er einnig mikið vandamál, sem við búum við, sú staðreynd, að Halldór Ásgrímsson virðist ekki þola Vestfirði frekar en nokkra aðra staði á landinu." Þessi djúpstæði ágreiningur milli lands- hluta veldur því m.a., að Morgunblaðið hefur hamrað á því um nokkurt skeið, að samstaða um nýja fiskveiðistefnu væri forsenda fyrir efnahagslegum umbótum í landinu. í því sambandi var vitnað til ónafngreinds forystumanns í sjávarútvegi, sem taldi, að stuðningur við umbætur á þessu sviði myndi fyrst og fremst koma frá kjósendum á höfuðborgarsvæðinu. Nú má út af fyrir sig segja, að það sé ekki góður siður að vitna í ónafngreinda menn, en það var gert til þess að koma athyglis- verðu sjónarmiði á framfæri. Það væri misskilningur að ganga út frá því sem vísu, að þetta hafi verið sjónarmið útgerð- armanns á Reykjavíkursvæðinu. í þessari umsögn felst einfaldlega sú skoðun, sem vissulega er umræðu verð, að átökin milli landshlutanna, þar sem sjávarútvegurinn er burðarás alls atvinnulífs, verði svo djúp- stæður, að samstaða náist alls ekki og einhver verði að höggva á hnútinn og aðr- ir séu ekki líklegri til þess, en kjósendur á höfuðborgarsvæðinu. Vonandi er þetta of mikil svartsýni. Morgunblaðið vill ekki ýta undir ríg milli landshluta, enda hefur blaðið ítrekað og ævinlega lagt á það megináherzlu, að við íslendingar verðum að byggja landið allt. En það breytir ekki því, að ef við ætlum á annað borð að hafa kjark til þess að takast á við þau alvarlegu vandamál, sem að okkur steðja, verðum við að vera raun- sæir og það er ekkert annað en raunsæi að gera sér grein fyrir því, að við getum náð samstöðu um markmið í sjávarútvegs- málum, en það verður mun erfiðara að ná samkomulagi um þær leiðir, sem fara verður að því marki. Og ef ekki næst sam- staða um allt land má sá ágreiningur ekki verða til þess að lama allar framfarir í landinu. Fyrir Morgunblaðinu vakir sízt af öllu fjandskapur við landsbyggðina, heldur til- raun til þess að koma af stað alvarlegum umræðum um ákveðin vandamál okkar íslendinga og reyna að lyfta þeim umræð- um upp fyrir það þrasstig, sem einkennir nánast allar pólitískar umræður hér á landi. ÞAÐ ER RÉTT hjá Erling Garðari Jónassyni, að á höf- uðborgarsvæðinu hefur ríkt fjárfest- . ingaræði. Það kem- Vextír ur bezt fram í því mikla rými atvinnuhúsnæðis, sem nú stendur ónotað í Reykjavík og nágranna- byggðum. Hins vegar er það röng álykt- un, að þetta ijárfestingaræði valdi því, að ekki verði hægt að halda við raunvaxta- stefnu. Fjárfestingaræðið ætti einmitt að ýta undir hækkun vaxta fremur en lækkun eins og núverandi ríkisstjóm stefnir að vegna þess, að lækkandi vextir geta stuðl- að að því, að nýtt fjárfestingaræði hefjist en hinir háu vextir hafa þó orðið til þess að bremsa menn af í framkvæmdum, sem ekki vora fyrirsjáanlega arðbærar. Erling Garðar talar um, að á höfuð- borgarsvæðinu búi höfundar fastgengis- stefnu. Hér skal ekkert fullyrt um, hvar þeir búa, en meðan haldið var við þá stefnu var henni ekki andmælt svo nokkra nam. Hvers vegna ekki? Einfaldlega vegna þess, að fastgengisstefnan bjó til falskan kaup- mátt hjá launþegum um allt land — ekki bara á höfuðborgarsvæðinu — og á meðan sjávarútvegurinn gat staðið undir því vora menn sáttir við að eyða langt um efni fram. Það var ekki fyrr en verð fór að lækka á erlendum mörkuðum, að efasemdir fóru að koma fram um hina svonefndu fast- gengisstefnu. Skilja má hin tilvitnuðu ummæli Erlings Garðars hér að ofan á þann veg, að hann telji svonefnda fijálsa vexti ekki af hinu góða. Þetta sama sjónarmið kemur skýrt fram í viðtölum við Vestfirðinga, sem áður var vikið að. Magnús Guðjónsson, kaup- félagsstjóri á Þingeyri, sagði m.a.: „ .. . og það gengur ekki að greiða niður raun- ávöxtun fyrir sparifjáreigendur með því að ganga á spamað fyrirtækja." Þessari sömu hugsun hafa aðrir lýst á þann veg, að ef krafa um ávöxtun spari- fjár sé meiri en nemur arðinum af atvinnu- rekstrinum á hveijum tíma sé ekki hægt að greiða þessa ávöxtun nema með því að ganga á eigið fé fyrirtækjanna. En hafa menn gert sér grein fyrir því, að til era fyrirtæki á íslandi, sem staðið hafa í stórfelldum fjárfestingum á undan- förnum áram, hvort sem er húsbyggingum eða vélakaupum og ekki lent í nokkram vandræðum þrátt fyrir hina háu vexti? Ástæðan er sú, að þessi fyrirtæki hafa haft sterka eiginfjárstöðu og þau hafa getað lagt út í þessar fjárfestingar með nokkra eigin fé, þannig að rekstur þeirra byggist ekki nema að hluta til á lánum. Þessi fyrirtæki hafa borgað hina háu vexti án þess, að gengið væri á eigið fé þeirra. Sparifjáreigendur munu aldrei sætta sig við það, að neikvæðir vextir komi til sög- unnar á ný. Enda era engin rök fyrir því, að ætlast til þess, að fólk afhendi sparifé sitt fyrir minna en ekki neitt til þess að byggja upp atvinnurekstur í landinu. Raunar má segja, að sá atvinnurekstur sem getur ekki greitt eðlilega vexti eigi engan rétt á sér. Hann er þá ekkert annað en atvinnubótavinna, sem haldið er uppi með einum eða öðram hætti af sameigin- legum sjóðum. Lausnin er auðvitað sú, að auka eigið fé fyrirtækjanna. Þá má spyija: Hvaðan á það fjármagn að koma? Þegar við íslend- ingar lesum um hlutabréfamarkaði erlend- is og sviptingar á þeim, eram við gjaman í þeirri trú, að þeir sem festa fé í hlutabréf- um séu auðmenn og rík fyrirtæki. Þetta er misskilningur. Þeir era ekki nema lítill hluti þeirra, sem kaupa hlutabréf í fyrir- tækjum erlendis. Stærstu kaupendur hlutabréfa erlendis era ýmiss konar sjóðir, bæði lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og slíkir aðilar. Mesta fjármunamyndunin á Islandi Fjárfest- ingaræði og frjálsir 1979 og allar götur síðan undir kjörorð- inu: Valddreifing og Báknið burt, enda lofi hún um leið að bendla enga foringja Sjálfstæðisflokksins frá Jóni Þorlákssyni til þessa dags við ofsljórnar- og ofsköttun- arstefnu. Rétt er það hjá ykkur, að samningaþóf var langt sumarið 1987, en þið vitið allra manna bezt, að því lauk farsællega og ættuð kannski einhvern tíma að lýsa því og svikunum dagana 8. og 9. október það haust, þegar skattheimtubijálæði komst á áður óþekkt stig, þótt barnaleikur sé hjá því, sem síðar hefur gerzt. Annars get ég minnt ykkur á það. Þetta sumar pólitísks sólarleysis tókst þrátt fyrir allt að ná fullu samkomulagi þriggja stjómmálaflokka um þokkalegasta stjórnarsáttmála, þar sem rækilega var fram tekið, að sú skepna, sem nefnd er ríkissjóður, ætti ekki að sitja í fyrirrúmi fyrir fólkinu og atvinnuvegunum. Þetta sveik stjómin á fundi sínum 8. október án samráðs við þingflokka.“ Ef við skiljum Eyjólf Konráð Jónsson rétt, er hann með þessum orðum annars vegar að segja, að hann telji óþarft að leggja jafn mikla vinnu í gerð stefnuskrár nýrrar ríkisstjórnar eins og hér var sagt, að þyrfti að gera og hins vegar, að stjórn- arstefnan, sem mörkuð var sumarið 1987 hefði út af fyrir sig gengið, ef ekki hefðu komið til miklar viðbótarskattahækkanir um haustið. Hér verður ekki deilt við Eyjólf Konráð um skattahækkanir fyrri ríkisstjórnar haustið 1987- Þingmaðurinn hefur hvað eftir annað haldið því fram, að aukin skatt- heimta myndi leiða til vaxandi halla á ríkis- sjóði og hvort sem tengsl era þar á milli eða ekki, hefur skoðun Eyjólfs Konráðs á því reynzt rétt. Hitt er ótvírætt sjónarmið Morgunblaðsins, að nú dugi ekki stefnu- mörkun á einni dagstund til þess að ráða við þann vanda, sem að þjóðfélagi okkar steðjar. Þegar ráðherrar Sjálfstæðisflokks og samstarfsaðila ganga inn í ráðuneytin að lokinni næstu stjórnarmyndun verður stefnan að vera ljós og tillögurnar út- færðar og tilbúnar til framkvæmda. Þau vinnubrögð duga ekki nú, að marka stefn- una í stjórnarmyndunarviðræðum og fela embættismönnum að útfæra hana. Til þess að svo megi verða þarf mikil undirbúnings- vinna að fara fram og henni verður ekki lokið á dagstund. á undanförnum þremur áratugum hefur ekki orðið í fyrirtækjunum heldur í þessum sjóðum. Lífeyrissjóðimir hafa safnað sam- an gífurlegum fjarmunum. Þeir hafa lítið gert af því að festa fé í hlutabréfum, þó í einhveijum mæli. Er ekki kominn tími til að lífeyrissjóðirnir komi til sögunnar, sem aðilar að uppbyggingu atvinnulífs á íslandi? Sem ijárfestingaraðilar en ekki til þess að kaupa áhrif eða stjórnarsæti fyrir einstaka forystumenn sína. Þetta er til umhugsunar fyrir Erling Garðar Jónasson og aðra. í þessu sambandi má einnig minna á, að í Vestur-Þyzkalandi era bankar stór- ir hluthafar í fyrirtækjum. Hvers vegna ekki að reyna það hér nú þegar öflugur einkabanki er að koma til sögunnar og fleiri kunna að fylgja í kjölfarið? Hitt er svo annað mál, að ísland er lítið markaðssvæði og því meiri hætta en ella á hringamyndun og fámennisstjórnun í skjóli fjársterkra almannafyrirtækja og lífeyrissjóða. Því er nauðsynlegt að setja um þessi mál fijálsa en ákveðna löggjöf til að koma í veg fyrir valdabrask með almenningsfjármagn. Það er ekki endilega geðfelldara en þjóðnýtingarbrask stjórn- málamanna, enda era menn nú farnir að íhuga það. Athug’a- semdir Eyj- ólfs Konráðs EYJOLFUR KON- ráð Jónsson, al- þingismaður og fyrram ritstjóri Morgunblaðsins, hefur einnig gert athugasemdir við hið umrædda Reykjavík- urbréf, nánar tiltekið það, sem hann nefn- ir „veikleika bréfsins“, í grein í Morgun- blaðinu hinn 13. júní sl. I upphafi vitnar Eyjólfur Konráð til fyrrnefndra skrifa Morgunblaðsins þar sem sagði: „Stefnu- skrá nýrrar umbótasinnaðrar ríkisstjórnar verður ekki til á einni nóttu. Hún verður heldur ekki til í tveggja mánaða samninga- þófí um stjórnarmyndun að kosningum loknum." Síðan segir alþingismaðurinn: „Stefnu- skrá nýrrar umbótasinnaðrar ríkisstjórnar, meirihlutastjórnar Sjálfstæðisflokksins, verður ekki til á einni nóttu, rétt er það. En hún gæti fæðst á þeirri dagstund, þeg- ar forasta Sjálfstæðisflokksins, eins og Friðrik Sophusson" kallar sjálfan sig og Þorstein Pálsson eina manna, lýsti yfir gjaldþroti „Leiftursóknarstefnunnar“, sem lítill hópur gamalla ungmenna knúði fram Morgunblaðið/Einar Falur „En það breytir ekki því, að ef við ætlum á annað borð að hafa kjark til þess að takast á við þau alvarlegu vanda- mál, sem að okkur steðja, verðum við að vera raunsæir og það er ekkert annað en raunsæi að gera sér grein fyrirþví, að við getum náð sam- stöðu um mark- mið í sjávarút- vegsmálum, en það verður mun erfiðara að ná samkomulagi um þær leiðir, sem fara verður að því marki. Og ef ekki næst samstaða um allt land má sá ágreiningur ekki verða til þess að lama allar fram- fárir í landinu.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.