Morgunblaðið - 23.08.1989, Side 4
?*?t t-3'íoa f £ fitn/d'iyivn"1/ c:k
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23.
Ið89
Færa þarf saman veiðiheim-
ildir og leggja skip til hliðar
- segir Kristján Ragnarsson framkvæmdastjóri LIU
„ÞAÐ ÞARF að færa saman
veiðiheimildir sem felst í þvi að
leggja skip til hliðar,“ sagði
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
Heimsbikarmótið í skák:
Fyrsti sig'ur
Anderssons
Skelleftea í Svíþjóð. Reuter.
SÆNSKI skákmaðurinn Ulf And-
ersson vann sinn fyrsta sigur í
áttundu umferð Heimsbikar-
mótsins í skák á mánudagskvöld
er hann bar sigur úr býtum í
viðureign sinni við Bretann John
Nunn.
Andersson hafði áður gert sjö
jafntefli. Garríj Kasparov, Anatolíj
Karpov, Jaan Ehlvest, Valeríj Salov
(allir frá Sovétríkjunum) og Ung-
veijinn Lajos Portisch eru efstir og
jafnir með fimm vinninga.
VEÐUR
islenskra útvegsmanna, í samtali
við Morgunblaðið. „Það er aug-
ljóst að með öllum þeim takmörk-
unum sem við erum með, þurfum
við að auka virkni flotans með
því að gefa hverju skipi meiri
veiðiheimildir. Eins og ástandið
er gerist það ekki með því að
auka veiðiheimildirnar, heldur
færa þær saman."
Kristján Ragnarsson sagði að
mönnum hefði verið heimilað að
flytja saman veiðiheimildir gegn því
að endumýja ekki þau skip sem
veiðiheimildimar væm fluttar af.
„Dæmin í þessu em að komast á
þriðja tug,“ sagði Kristján. „Það
má segja að það sé verða viðtekin
venja ef skip ferst, eða strandar,
að það sé ekki endumýjað heldur
er veiðiréttur þess fluttur yfir á
annað skip og því ekki stofnað til
nýrra fjárfestinga. Þetta fínnst mér
vera mjög jákvætt," sagði Kristján.
Hann sagði að fella þyrfti niður
sóknarmarkið og rýmka um flutn-
ing á veiðiheimildum á milli skipa.
„Þegar binda þarf togara í landi í
125 daga á ári deila menn ekki um
hvort æskilegt sé að rýmka um not
á þessu skipi. Það gerist ekki nema
með því að fækka skipum. Það er
hins vegar viðkvæmt og erfitt að
minnka flotann." Kristján sagði að
mörg byggðarlög ættu allt undir
sjávarútvegi og þeir væm ófáir sem
segðu að leyfa þurfí þessum byggð-
arlögum að fá ný skip, þar sem þau
þurfí meiri afla fyrir sína físk-
vinnslu. Þessar raddir séu hins veg-
ar lágværari en þær vom áður.
„Við gerðum mjög miklar at-
hugasemdir við framsetningu á úr-
eldingarsjóði í upphafí en það náð-
ist að mestu sátt á milli Halldórs
Ásgrímssonar og okkar um þennan
sjóð. Það þarf að vera frjálst að
flytja veiðiheimildir á milli skipa
utan sjóðsins. í þessum úreldingar-
sjóðshugmyndum er gert ráð fyrir
að Qármagnið komi algerlega frá
útgerðinni en samt átti ekki að leyfa
henni að stjóma sjóðnum,“ sagði
Kristján Ragnarsson.
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Býggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 23. AGUST
YFIRLIT í GÆR: Yfir suð-austanverðu landinu er 985 mb lægð sem
þokast norðaustur. Veður fer heldur kólnandi, einkum norðanlands.
SPÁ: Norðan 3-5 vindstig víðast hvar á landinu. Skýjað og dálítil
rigning norðanlands en þurrt og víða léttskýjað syðra. Hiti 6-16 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Hæg norðlæg átt og fremur svalt. Skýj-
að og sums staðar dálítið súld við norðurströndina, en annars
þurrt og víða bjart veður.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg breytileg átt og áfram fremur svalt.
Víðast léttskýjað.
TAKN:
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
10° Hitastig:
10 'gráður á Celsius
stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. y Él
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
/ / / = Þokumóða
Hálfskýjað * / * ? 5 5 Suld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* * * -1* Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma híti veður Akureyri 10 skúr Reykjavík 12 léttskýjað
Bergen 13 rigning
Helsinki 19 léttskýjað
Kaupmannah. 21 léttskýjað
Narssarssuaq 5 skýjað
Nuuk 3 súld
Osló 19 skýjað
Stokkhólmur 18 skýjað
Þórshöfn 11 skúr
Algarve 29 mistur
Amsterdam 19 hálfskýjað
Barceiona 31 heiðskírt
Berlín 26 léttskýjað
Chicago 23 skúr
Feneyjar 29 heiskírt
Frankfurt 29 léttskýjað
Giasgow 17 hálfskýjað
Hamborg 23 skýjað
Las Palmas 26 alskýjað
London 21 skýjað
Los Angeles 16 léttskýjað
Lúxemborg 27 léttskýjað
Madrid 33 léttskýjað
Malaga 29 mistur
Mallorca 33 léttskýjað
Montreal vantar
New York 23 léttskýjað
Orlando 26 léttskýjað
Paris 25 léttskýjað
Róm 30 þokumóða
Vin 27 léttskýjað
Washington 24 mistur
Winnipeg vantar
Frá verðlaunaafhendingu á helgarskákmótinu á Flateyri. Talið frá
vinstri: Helgi Ólafsson, Björgvin Jónsson og Eiríkur Finnur Greips-
son sem afhenti verðlaunin.
Flateyri:
Helgi Olafsson vann
37. helgarskákmótið
Flateyri.
HELGI Ólafsson vann 37. helgarskákmótið sem haldið var hér á
Flateyri. Þetta er sterkasta helgarskákmót sem haldið hefiir verið
til þessa, að sögn Jóhanns Þóris Jónssonar ritstjóra tímaritsins Skák-
ar. Tímaritið stóð fyrir mótinu ásamt Flateyrarhreppi og taflfélagi
staðarins í samvinnu við Skáksamband Islands og Flugleiðir.
Helgi Ólafsson og Björgvin Jóns- ungarvík varð efstur í flokki 12 ára
son hlutu báðir sex vinninga á og yngri með 3,5 vinninga.
mótinu af sjö mögulegum. Helgi
fékk hins vegar 25 stig en Björgvin
24,5 stig. í 3. til 5. sæti með 5,5
vinninga voru Jón L. Ámason, Jó-
hann Hjartarson og Karl Þorsteins.
Jón L. fékk hins vegar 25,5 stig,
Jóhann 25 stig og Karl 24,5 stig.
Sigurvegari í flokki 20 ára og
yngri var Magnús Pálmi Ömólfsson
frá Bolungarvík en Hrannar Bald-
ursson frá Reykjavík sigraði í flokki
18 ára og yngri með 3,5 vinninga.
Guðmundur M. Daðason frá Bol-
Hlutskarpastur 70 ára og eldri
varð Sturla Pétursson með 3 vinn-
inga. Grétar Kristjánsson fékk
flesta vinninga heimamanna, eða
2,5 vinninga en bestum árangri
dreifbýlismanna náðu Guðmundur
Halldórsson og Guðmundur Stefán
Gíslason frá Isafírði, Ágúst Sindri
Karlsson frá Hafnarfírði og Halldór
Grétar Einarsson frá Bolungarvík.
Þeir fengu allir 4,5 vinninga.
Magnea.
Sumarslátrun hefst á
Hvammstanga í vikunhí
Hvammstanga.
í ÞESSARI viku verður slátrað um 150 dilkum hjá sláturhúsinu
Ferskar afurðir á Hvammstanga. Að sögn forstöðumanns, Sigfiísar
Jónssonar, Laugabakka, virðist framboð dilka og áhugi kaupmanna
haldast í heldur. Reiknað er með um 10% yfirverði á afurðunum og
verður kjöt og slátur selt ófryst. Gert er ráð fyrir vikulegri slátrun
fram að hefðbundinni sláturtíð.
Guðmundur Gíslason, slátur-
hússtjóri hjá Kaupfélagi V-Hún-
vetninga, segir að ekki sé ætlunin
að slátra sauðfé fyrr en undir 20.
september, slátrun geti varla hafist
fyrr en bændur hafí lokið göngum
og réttum. Hjá Kaupféiaginu er nú
slátrað fullorðnum hrossum og
verða afturhlutar skrokkanna send-
ir á Japansmarkað. Segir Guð-
mundur að framboð sé mikið á slát-
urhrossum fyrir þennan markað,
eða um 150 gripir. Framboðið er
mun meira en markaðurinn tekur
við, þannig er óvíst um, hve mörg-
um gripum verður slátrað hér.
Samningar hafa tekist milli
Ferskra afurða og Sparisjóðs Vest-
ur-Húnvetninga um kaup á slátur-
húsi því, sem Sparisjóðurinn keypti
á uppboði af þrotabúi Versl. Sig.
Pálmasonar hf. Ferskar afurðir
kaupa um % hluta hússins og munu
gera ýmsar breytingar á húsinu.
Hinn hluta hússins mun Meleyri hf.
kaupa og tengja það sinni starf-
semi. Þá keypti Meleýri hf. gamalt
pakkhús af Sparisjóðnum, en pakk-
húsið mun vera eitt elsta húsið á
Hvammstanga. - Karl
Dagsbrún:
Skorað á borgina að
semja ekki við Vara
Á FUNDI borgarráðs Reykjavíkur í gær var lagt fram bréf frá Verka-
mannafélaginu Dagsbrún þar sem lýst er þeirri von að borgin gangi
ekki til samninga við fyrirtækið Vara um öryggisgæslu og -eftirlit
við ýmsar stofhanir Reykjavíkurborgar en útboð af því tagi er nú
til afgreiðslu hjá Innkaupastofiiun Reykjavíkurborgar. í bréfinu seg-
ir að Dagsbrún hafi lýst yfir vinnustöðvun hjá Vara og muni á næst-
unni fylgja henni eftir að fullum krafti vegna vanefhda fyrirtækisins
á kjarasamningi.
I bréfinu, sem Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Dags-
brúnar, undirritar, segir að Dags-
brún hafi ekki afskipti af því hvaða
fyrirtæki fái einstök verk hjá borg-
inni, séu þau samningsaðilar Dags-
brúnar eða borgi ekki lægra en
samningar Dagsbrúnar kveði á um.
Hins vegar séu gerðar þungar at-
hugasemdir við Vara. Margsinnis
hafí árangurslaust verið reynt að
ná samkomulagi við fyrirætækið,
sem greiði engin tilskilin gjöld
vegna starfsmanna sinna, þar með
talin lífeyrissjóðsgjöld. Segir að
Dagsbrún væri óljuft að vinnustöðv-
un Dagsbrúnar hjá Vara yrði til
þess að stöðva öryggiseftirlit og
gæslu hjá einstökum stofnunum
borgarinnar, ekki síst þar sem sam-
skipti við Reykjavíkurborg hafí ver-
ið mjög góð og þar sem hér sé um
öryggisþjónustu að ræða.
Einnig segir í bréfínu að hitt
stóra örygisgæslufyrirtækið í borg-
inni, Securitas, sé samningsaðili við
Dagsbrún og greiði gjöld skilvís-
lega.
Þá segir að það sé von félagsins
að borgin hafi þessar staðreyndir í
huga og geri ekki samning við fyrir-
tæki þar sem verkfail sé yfírvofandi
vegna vanefnda á einföldustu kjara-
samningssamningsákvæðum.
Bréfinu var vísað til Innkaupa-
stofnunar Reykjavíkurborgar.