Morgunblaðið - 23.08.1989, Qupperneq 5
5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989
--------- ---:---------7-T—:— --ri—7—!—i
íslandssléttbakur með kálfi sínum
Hvalatalningarmenn í leið-
angri Hafrannsóknastofnunar
fyrir skömmu sáu svokallaðan
Islandssléttbak ásamt kálfí
sínum þann 5. ágúst sl. Síðast
sást til slíkrar hvalategundar
að sumri til fyrir tveimur
árum og þótti þá tíðindum
sæta þar sem ekki hafði bólað
á honum í um það bil tuttugu
undangengin ár.
íslandssléttbakar geta orðið
58 feta langir eða rúmir 17
metrar og vegið allt að eitt
hundrað tonn. Kálfar þeirra eru
fimm til sex metra langir í fæð-
ingu. Talið er að meðgangan sé
um tólf mánuðir og bera þeir að
vetri til þriðja hvert ár. Kálfurinn
er með móðurinni í eitt ár og eru
þá vandir undan, átta metra
langir, samkvæmt upplýsingum
Sverris Daníels Halldórssonar,
líffræðings hjá Hafrannsókna-
stofnun.
íslandssléttbakarnir synda
mjög hægt og geta kafað mest
í 20 mínútur. Blásturinn er mjög
auðþekktur, en hann er V-laga.
Skíði þeirra eru tveir til tveir og
hálfur metri á lengd. Myndirnar
af sléttbaknum og afkvæmi hans
tók Árni Alfreðsson, starfsmaður
Hafrannsóknastofnunar, um
borð í Barðanum GK.
Þarna sérðu Sigurbjörgu og Finn.
Þau eru ó sjötugsaldri og alltaf að skemmta sér.
Það er fátt sem aftrar þeim hjón-
um frá því að láta gamla drauma
rætast. Einn slíkur rættist um
daginn, þegar þau komu á
Péturstorgið í Róm.
Þau eru ákveðin í því að nota
tímann vel og kynnast helstu
stórborgum heimsins á næstu
árum, búa á bestu hótelunum og
njóta þess sem hugurinn gimist.
Samt em þau ekki hátekjufólk.
Þau em hins vegar í viðskiptum
við Fjárfestingarfélag íslands.
Pað gerir gæfumuninn.*
*Finnur erfði litla íbúð foreldra sinna fyrir
10 árum og treysti sér ekki til þess að halda
henni við og leigja hana út. Hann þóttist
hins vegar vita að fasteign væri það eina sem
héldi verðgildi sínu í þessu landi. Þess vegna
þorði hann ckki að selja. Ekki fyrr en hann
ákvað að leita ráða hjá sérfræðingunum hjá
Fjárfestingarfélaginu:
Finnur seldi íbúðina fyrir 20.000.000
krónur, eða 200.000 nýkrónur í júní 1979
og keypti spariskírteini ríkissjóðs.
Arið 1985 voru þau orðin 2.721.000 kr.
Fyrir þessa upphæð kaupir hann Kjarabréf
og þegar þetta er ritað em þau orðin
10.052.000 kr.
Sigurbjörg og Finnur fá nú u.þ.b. eina mill-
jón á ári í hreinar tekjur af Kjarabréfunum.
Höfuðstólinn snerta þau ekki ennþá. Hann
er varasjóðurinn þeirra.
Það má bæta því við að íbúð, svipuð og sú
sem Finnur seldi, er um þessar mundir met-
in á u.þ.b. 5.500.000 kr. en það er u.þ.b.
helmingur þess sem hann á nú með aðstoð
Fj árfestingarfélagsins.
Þessar tölur em raunvemlegar, en nöfnin
ekki.
Haföu samband, athugaðu hvort við getum
aðstoðað þig.
Ob
FJÁRFESTINGARFÉLAG
ÍSLANDS HF.
HAFNARSTRÆTt • KRINGLUNNI • AKUREYRI
28566 689700 25000