Morgunblaðið - 23.08.1989, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989
-T—---T—---—---II; j , ] (; K 1 . _ u , . | ) ! \ I
9
G-samtökin
- samtök gjaldþrota einstaklinga
Höfum opnað skrifstofu íBæjarhrauni
16, Hafnarfirði. Símatími og innritun nýrra
félaga er alla þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 11.00-14.00. _ .....
G-samtokm,
sími 91-652277.
HEFUR ÞÚ KYNNST „FLOSA"?
„Flosi“ er nýr ryksuguhaus, sem hreinsar ló, hár
og annað kusk, sem aðrir burstar ná ekki.
„Flosi“ passar á allar ryksugur.
(Ar$Í hf.
I Faxafeni 12,
Reykjavík, s. 673830.
UTSAIA - UTSAIA
Mikil verðlækkun
GIUGGINN,
Laugavegi 40
FLEX - O - LET
Tréklossar
Tréklossarnir með beygjanlegu sólunum
nú aftur fáanlegir.
GEíSiP
Pétur Sigurgeirsson biskup og Sólveig Ásgeirs-
dóttir biskupsfrú.
Eining kirkjunnar -
öflugri kristindómur
í tímaritinu Víðförla (3. tbl. 1989), sem
er málgagn Þjóðkirkjunnar, er viðtal við
Pétur Sigurgeirsson biskup, sem til
skamms tíma gegndi embætti biskups
íslands. Staksteinar staldra við fáein at-
riði viðtalsins, en fráfarinn biskup segir
m.a.: „Eg hef viljað efla einingu kirkjunn-
ar og kristni þjóðarinnar."
Hallgríms-
kirkja og
heimsókn páfa
Víðförli spyr Pétur
Sigurgeirsson biskup:
Hvað er þér eftjrminni-
iegast úr biskupsdómi
þinum?
„Það er margt. Emb-
ættið er krefjandi og gef-
andi í velgengni og erfið-
leikum. Efst í huga
mínum er blessunarrikt
samstarf við presta og
leikmenn kirkjunnar að
framgangi margvislegra
málefna fyrir kristni
þjóðarinnar. Ef ég ætti
að nefiia einstaka atburði
er það vígsla Hallgrims-
kirkju í Reykjavík, sem
mér finnst vera með
mestu musterum,
stílhrein og mikil í lát-
Leysi sínu. Mér verða
prestastefiiurnar ætíð
minnisstæðar. Þá nefiii
ég nýafstaðna heimsókn
páfa til íslands. Af er-
lendum vettvangi verður
það ekki sizt minnisstætt
er við hjónin tókum þátt
í þúsund ára afinæli
kristnitöku rússnesku
rétttrúnaðarkirlqunnar."
Tengsl ríkis
og kirkju
„Já, ég kem ekki auga
á betra form en þjóð-
kirkjuna. En gætum þess
að líta ekki á hana sem
ríkisstofnun. Hún er sjálf-
stæð. Rikið styður hana
og styrkir, en það er
gagnkvæmt. Kirkjan á
að vera grundvöllur þess
skipulags sem aUt annað
byggir á.“
Samkirkjuleg
hreyfing
„Samkirkjulega hreyf-
ingin er vaxandi. Við
krístnir menn þurfum að
læra að skUja og virða
hveijir aðra og verða
eitt, ekki sízt nú þegar
framandi trúarviðhorf
Hæða yfir þjóðimar.
Þetta hafa páfömir tveir,
sem ég hefi hitt, einnig
lagt áherzlu á. Á það
minnir gjöf Jóhannesar
Páls H til mín, sem er
eitt af handrítum Nýja
testamentisins, Ijósprent-
un af Vulgata. Hann
skrifar þar með eigin
hendi: „Allir eigum við
að vera eitt. Með þessum
orðum opnaði Kristur
hjarta sitt og lætur okkur
eftir að vinna að þessari
einingu til þess að heim-
urinn megi trúa.“
Norrænn
kirkjudagur
„Við kristnir menn
verðum að þekkja okkar
eigin trú, þar felst styrk-
ur okkar og samstaða.
Jalhframt finnst mér að
kirkjur Norðurlanda eigi
að efla sitt samstarf og
að þjóðimar deilist ekki
upp miUi stórveldanna
eða bandalaga alls konar.
Ég hefi lagt tíl að haldinn
verði sameiginlegur
norrænn kirkjudagur, og
það er til umfiöUunar þjá
Kirknasambandi Norður-
landa. Slikt sameinar og
bendir á það sem er mik-
Uvægt í lífinu."
Að vera prest-
inum prestur
„Stundum næðir um
mann, og ekki er aUt tek-
ið út með sældinni,“ segir
Pétur biskup, aðspurður
um, hvort það sé ekki á
stundum einmanalegt að
vera biskup. „Gagnvart
stórum verkefhum hefi
ég oft verið „titrandi með
tóma hönd“, líkt og
skáldið kvað; „tíl þin Guð
ég varpa önd“. En ég
hefi ekki verið einn. Sól-
veig hefúr verið mér
ómælanlegur styrkur í
starfi. Ég get ekki hugs-
að mér hvemig biskup
getur gegnt starfi sínu,
án þess að eiga skjól hjá
konu sinni og geta deilt
með henni þvi sem á
hvílir. Það vita margir
að prestskonan er oft
prestinum prestur. Sama
gUdir um biskup. Við
Sólveig höfúm unnið
saman öU okkar ár, það
er mikU blessun."
Friður í hvers-
dagsleikanum
„Fyrsta prestastefiian
mín var á Hólum ’82 í
giampandi sól. Þar vígði
ég sr. Sigurð Guðmunds-
son vígslubiskup. Síðasta
stefnan min, nú í
Garðabæ, líka í sólar-
birtu, og ég set eftirmann
minn, herra Ólaf, í emb-
ætti. Bæði skiptin var
fjallað um stórmál, nú um
safnaðaruppbyggingu,
þá um friðarmál. Ég vUdi
einmitt gjarnan í starfi
minu benda á kirkjuna
sem friðarhreyfingu, á
friðarhöfðingjann Krist.
Kirkjumar eiga að vera
í fararbroddi í starfi fyrir
friði, ekki aðeins varð-
andi heimsátök, heldur
að friði itieðal mamia i
hversdagslegum aðstæð-
um, og friði við sjáifan
sig. En mér þykir afar
vænt um að geta lokið
tima ininum i embætti og
fylgt því eftir í góðar
hendur eflirmanns míns,
Ólafs biskups. Þeim hjón-
um biðjum við blessunar
í lifi og starfi.“
Það var okkur mikil
gleði að liefja biskups-
starf. Það er líka gleði
að fá að ljúka því þegar
timinn er kominn og þá
er jafúframt þakkartíl-
finningin íUltumvefjandi,
— tíl ykkar allra og til
Hans sem allt hefúr gef-
ið.“
MED TÓMA BUDDU
Á EFTIRLÁ UNAARUNUM f
Þó að fólk láti af störfum og setjist í helgan stein
verður ekkert ódýrara að lifa. Eftir sem áður þarf
að kaupa mat, borga hita, rafmagn og síma, gefa
bamabömiuium gjafir - og njóta lífsins.
Æ fleiri gera sér því ljóst að það er ekki nóg að
greiða hluta launanna í Ufeyrissjóð og leggja fýrir
aukalega upp á eigin spýtur. Þá skiptir meginmáli
að spamaðurinn sé ömggur og ávaxtist vel.
Tökum dæmi af hjónum sem leggja fyrir auka-
lega 10.000 króniur á mánuði í 20 ár áður en þau
fara á eftirlaun. Þannig gætu safnast rnn 4 milljónir
og hjónin gætu því haft um 44 þúsund krónur á
mánuði í 10 ár í viðbótarlífeyri.
VTÐBÓTARLÍFEYRIR EFTIR 20 ÁRA
SPARNAÐ
Spamaður á mánuih: Eign eftir 20 ár: Viðbótar lífeyrir á mánuði:
5.000,- 2.029.000,- 21.900,-
10.000,- 4.058.000,- 43.800,-
Miðad er við að vextir haldist fastir 5 % yfir verðbólgu allan tímann og að gengið séjafnt og þétt á höfuðstólinn á 10 ámm. Allar Jjárhœdir em í kránum og á núgiUlaiuli verðlagi.
Aðalsmerid VIB er góð þjónusta og traust verðbréf
sem gefa góða ávöxtun. Komdu við í Armúla 7 og
kynntu þér leiðir til að safna góðum cftirlaunasjódi
á þægilegan og fyrirhafnarlítinn hátt. Þú getur Ííka
ylB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30