Morgunblaðið - 23.08.1989, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 198?
17
Hæstu skólagjöld bandarískra
háskóla um ein milljón króna
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunbladsins.
SKÓLAGJÖLD og dvalarkostn-
aður námsmanna í Bandaríkjun-
um hefur hækkað talsvert á und-
anfornum árum. Hefiir hækkun-
in verið meiri en verðbólgu nem-
ur.
Stórblaðið USA Today kannaði
nýlega skólagjöld í 800 banda-
rískum háskólum. í ljós kom að
23 háskólar krefjast yfir 18.000
dollara, eðajafngildi 1.080.000 ísl.
króna, í gjöld ásamt húsnæði og
fæði fyrir skólaárið sem er 8,5 til
9 mánuðir. Bókakaup, fargjöld og
annað geta hækkað þessa upphæð
í 20 þúsund dollara eða 1,2 milljón-
ir króna. Samkvæmt könnuninni
reyndist dýrasti háskólinn vera
Brandeis University í Massachu-
setts, þar sem skólagjöld, fæði og
húsnæði kosta 20.101 dollara eða
röskar 1,2 milljónir króna. Hefur
hann tekið við af Bennington Col-
lege í Vermont, sem lengi var dýr-
asti skóli landsins, en þar nema
gjöldin í vetur 19.975 dollurum.
Lægstu skólagjöldin er að finna í
Auburn í Alabama, 3.293 dollarar.
í vetur verður 26 milljörðum
dollara, eða 1.560 milljörðum ísl.
króna, varið til að aðstoða náms-
fólk eða hærri fjárhæð en nokkru
sinni áður. Þess vegna er fullyrt
að allir námsmenn, sem staðist
hafa próf til setu í háskólum, geti
stundað háskólanám.
Vaknað hafa grunsemdir vegna
þess hversu áþekk gjöld dýrustu
skólanna eru og hefur bandaríska
dómsmálaráðuneytið krafist þess
að fá bókhald nokkurra þeirra til
skoðunar vegna rannsóknar á því
hvort um óeðlilegt samráð eða
„hringamyndun“ hafi verið að
ræða.
Bandaríkin:
Náin skoðun
Dýratemjari að nafni Jean Ducuing virðist ekki í vafa um hvort
hann hafi náð flóðhestinum Comir á sitt vald. Alla vega hefur hann
hér stungið höfðinu upp í gin flóðhestsins og engu líkara en hann sé
að skoða ofan í háls dýrsins. Myndin var tekin í gær í dýragarðinum
í Pessac í Frakklandi.
NASA reyn-
ir að bjarga
gervihnetti
sem stefn-
ir til jarðar
Washington. New York. Daily Telegraph.
Reuter.
VÍSINDAMENN við bandarísku
geimferðastofnunina, NASA,
vinna nú í kapp við tímann við
að reyna að bjarga 11 tonna
gervihnetti, sem farið hefiir af
sporbaug og nálgast jörðu. Von-
ast er til að hægt verði að bjarga
honum um borð í geimferju í
haust því annars er óttast að
hann falli til jarðar snemma á
næsta ári.
Gervihnötturinn, sem gengur
undir nafninu LDEF, var sendur á
braut 1984. Hann er á stærð við
tveggja hæða strætisvagn. Um borð
var tækjabúnaður til þess að vinna
57 vísindaverkefni. Tilgangurinn
var m.a. að kanna áhrif sólgosa,
geimgeislunar og loftsteina á bygg-
ingarefni geimfara. Ætlunin var að
sækja hann ári síðar, eða síðla árs
1985. Var því slegið á frest um
nokkra mánuði vegna breytinga á
geimferðaáætluninni sumarið 1985
og síðan frestaðist það ótímabundið
vegna Challenger-slyssins í janúar
1986.
Frá því hnettinum var skotið á
loft hefur braut hans færst um 45
mílur nær jörðu og er hann nú í
um 265 mílna, eða 424 km fjarlægð
frá jörðu. Taldar eru um 60% líkur
á að hægt verði að bjarga hnettin-
um. Mikil sólgos í síðustu viku þykja
þó jafnvel enn hafa dregið úr líkum
á björgun. Þandist gufuhvolfið út í
gosunum og við það jókst viðnámið
sem hnötturinn verður fyrir á braut
sinni. Stefnt hefur verið að því að
senda geimfeijuna Kólumbíu á loft
í desember gagngert til þess að
reyna að bjarga hnettinum. Þó
reyna fulltrúar NASA nú að fá
varnarmálaráðuneytið til þess að
fallast á seinkun geimferðar, sem
fyrirhuguð var í haust, þannig að
hægt verði að senda geimfeijuna
eftir LDEF-hnettinum í nóvember.
Leggur NASA allt kapp á að ná
hnettinum og þar með niðurstöðum
úr þeim miklu rannsóknum sem
stundaðar hafa verið fyrir tilstilli
hans.
Takist ekki að bjarga hnettinum
er talið að hann brenni að mestu
upp áður en hann fellur til jarðar.
Talið er að brak úr honum kynni
að dreifast yfir suðurríki Banda-
ríkjanna, Suður-Ameríku, Afríku,
Indland, Suðaustur-Asíu, eða Ástr-
alíu.
í
I
Eigendum Renault 19 fjölgar stöðugt.
Árgerð 1989 er uppseld, en áigerð 1990 er til
afgreiðslu strax á sérstöku kynningarverði.
Árgerö 1990 er komin.
Viðtökurnar hafa verið framúrskar-
andi góðar og því full ástæða fyrir
þig að skoða bílinn nánar. Fyrsta
sendingin af bílnum er þegar upp-
seld en við afgreiðum nú bíla af ár-
gerð 1990 á sérlega hagstæðu
verði.
Leggðu dæmið fyrir þig, það er full
ástæða til þess.
Öryggiö umfram ailt.
Það er ekki nóg með að Renault 19
sé tæknilega fullkominn á margan
hátt, sé sportlegur í útliti, hafi spar-
neytna en kraftmikla vél, hafi
smekklega og þægilega innréttingu,
hafi meira rými fyrir farþega og far-
angur en aðrir bílar í þessum
stærðarflokki, sé framleiddur sam-
kvæmt ströngustu kröfum um
mengunarvarnir í Evrópu og
Bandaríkjunum, hafi lágmarks loft-
mótstöðu, og sé með sérstaklega
styrkt fjöðrunarkerfi, þá er Renault
19 einn sá öruggasti á markaðnum
fyrir farþega. Að framan og aftan
eru grindarhlutar sem ætlað er að
draga úr höggi við árekstur. Hliðar,
hurðir og toppur eru sérstaklega
styrkt til að þola árekstur og veltur.
Sigurður Hreiðar, DV 15. júlí 7 989;
,,Hann er stökk fram á við." „Hurð-
irnar lokast með þéttum dynk, en
ekki dósarhljóði eins og svo víða
vill be.ra við.“
Ste/an Ásgrímsson, Tíminn 29. júlí
1989; „Miklar og ferlegar holur tek-
ur hann sérstaklega vel og nánast
svífur yfir." „5 gíra skiptingin er það
þægileg að ég léti sjálfskiptinguna
alveg eiga sig."
Einfalt mál að semja.
Þú semur um þau kjör sem henta
þér best. Við tökum góða notaða
bíla sem greiðslu uþp T nýjan
Renault 19. Greiðslukjörin eru til
allt að 24 mánaða.
Til afgreiöslu strax.
Takmarkaður fjöldi bíla af árgerð
1990 er til afgreiðslu strax á mjög
hagstæðu kynningarverði. Renault
19 GTS kostar frá kr. 849.300-
Leggðu dæmið fyrir þig, það er
full ástæða til þess.
Bílaumboðið hf
KrókhSlsi 1, Reykjavík, sími 686633
Ótrúleg sparneytni f stórum bfl.
Vélin í Renault 19 GTS er tæplega
1400 cc, 4ra strokka og 80 hestöfl,
sem er yfirdrifið fyrir ekki þyngri bíl
en 940 kg. Bensíneyðslan er ekki
nema um 6,5 lítrar á hundrað kíló-
metra í blönduðum akstri.
Reynsluakstur er fyrsta skrefið.
Það hefur margt fallegt verið sagt
og skrifað um Renault 19, bæði hér
á íslandi og í Evrópu. Bíllinn hefur
margt að bjóða í samkeppni við
aðra bíla s.s. VW Golf, Toyota
Corolla, Opel Kadett, Fiat Tipo,
Ford Escort, IVlazda 323 og
Peugeot 309, sem eru allt bílar í
sama stærðarflokki.
Til að þú getir gert raunhæfan sam-
anburð, skaltu hiklaust reynsluaka
bílnum og fá allar nánari upplýsing-
ar áður en þú tekur ákvörðun.
Umsagnir þeirra skipta máli.
Leó M. Jónsson véltæknifræðingur,
Bíllinn 2. tbl. 1988; „Fjöðrunin skil-
ar sér í frábærum aksturseiginleik-
um og gírskiptingin er frábær."
„Það er þykkara stál í honum og
hann er skemmtilegri í akstri en
flestir japanskir bílar."
Jóhannes Tómasson, Morgunblaðið
I. júlí 1989; „Álitlegur kostur í
harðri samkeppni." „Hann er
spr^ekur og skemmtilegur í borgar-
umferöinni'
RENAULT19