Morgunblaðið - 23.08.1989, Blaðsíða 21
M0R6UNBLAÐ1B MIÐVIKUDAGUR 23. AGUST 1989
21
íslenskir dagar:
Árangurinn framar
björtustu vonum
- segir Gísli Blöndal framkvæmda-
stjóri vörukynningarinnar
KYNNINGARDÖGUM fyrir íslenskar vörur, sem staðið hafa yfir
í samvinnu Félags íslenskra iðnrekenda og verslana Mikjagarðs,
Kaupstaðar og Miðvangs lýkur næstkomandi laugardag. A morg-
un, fímmtudag, mun forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
mun heimsækja verslun Miklagarðs við Sund í tilefni kynningarinn-
ar. Að sögn Gísla Blöndal, sem hefur umsjón með framkvæmd
vörukynningarinnar, hefúr árangur af henni farið fram úr vonum
bjartsýnustu manna.
„Sá árangur sem í ljós hefur
komið er hreint ótrúlegur. Sem
dæmi má nefna að sokkaverk-
smiðjan Trico hf. á Akranesi sem
kynnt hefur framleiðslu sína hefur
Snertilist
í Blindra-
bókasafhi
í Blindrabókasafiii íslands,
Hamrahlíð 17, eru til sýnis þessa
dagana nokkur myndverk eftir
Siguijón Olafsson.
Sýningin stendur til föstudags
og eru sjónskertir lánþegar hvattir
til að koma og sjá og þreifa á lista-
verkunum.
Leiðrétting'
RANGT var farið með nafn Þóris
Barðdal, listamanns, í frásögn
Morgunblaðsins í gær frá 50 ára
afmæli Blindrafélagsins. Þórir var
þar ranglega nefndur Þórður og er
hann beðinn velvirðingar á þessum
mistökum um leið og þau eru leið-
rétt.
náð yfir 100% söluaukningu, Bú-
bót, sem er fyrirtæki sem framleið-
ir sultur og sósur hefur þrefaldað
sultusöluna og fjórfaldað sölu á
sósum og Sanitas, sem lagt hefur
áherslu á kynningu á tómatsósu
og sinnepi, hefur þrefaldað söluna
á þessum vörum. Þetta eru aðeins
örfá dæmi, en allir framleiðendur
eni yfir sig ánægðir með móttökur
neytenda, og aðsóknin að þessum
sex verslunum Miklagarðs og
Kaupstaðar hefur í rauninni verið
miklu betri en við bjuggumst við
í upphafi. Við gerum ráð fyrir að
þegar þessu átaki lýkur á laugar-
daginn verðum við búnir að fá um
250 þúsund viðskiptavini í verslan-
irnar, en forsvarsmenn þeirra
áætla að það sé liðlega 30% aukn-
ing á aðsókn í verslanirnar, og
sýnir það enn frekar hvað rleytend-
ur hafa verið opnir og áhugasamir
um íslenskar vörur. Allar íslenskar
vörur í verslununum eru sérstak-
lega merktar og þeim er sérstak-
lega haldið fram. Þær vörur sem
verið er að kynna hveiju sinni eru
á tilboðsverðum, þó þar sé ekki
um verulega verðlækkun að ræða.
Vörukynningarnar hafa verið
óhemjuvel sóttar, og allt hefur
þetta hjálpast að með dugnaði
starfsfólksins í verslunum til að
ná þessum mikla árangri,“ sagði
Gísli.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Bókabúðin Huld rifín
Á laugardaginn var hafist handa við að rífa húsið númer 97 við
Hafharstræti og er reiknað með að búið verða að fjarlæga það
í dag. Á lóðinni ætlar Byggingarfélagið Lind hf. að reisa sex
hæða verslunar- og skrifstofúhúsnæði. Á tveimur neðstu hæðunum
verða verslanir og samkvæmt áætlunum Lindarmanna er ráðgert
að fyrstu verslanirnar verði opnaðar í júní á næsta ári. Þegar
lokið verður við að Qarlægja húsið verður byijað á grunni bygg-
ingarinnar, en að grunnfleti er fyrsta hæðin 650 fermetrar að
stærð.
Iðnþróunarfélag
Eyjagarðar:
Steinþór Ól-
afsson ráðinn
STEINÞÓR Ólafsson rekstrar-
tæknifræðingur hefiir verið ráð-
inn í starf tæknilegs ráðgjafa hjá
Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar frá
og með 1. nóvember næstkom-
andi, en alls bárust 19 umsóknir v
um starfið. Steinþór er 29 ára
gamall Akureyringur. Hann út-
skrifaðist frá Tækniháskólanum í
Odense 1987 og hefúr lengst af
eftir það starfað hjá Sæplasti hf.
Sigurður P. Sigmundsson fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélagsins
sagði að fyrirhugað væri að gera
átak á næstu mánuðum varðandi
nýjungar ýmiskonar í atvinnulífinu.
„Við ætlum kerfisbundið að leita
nýrra leiða í atvinnulífinu og hug-
myndin er sú að okkar tæknilegi
ráðgjafi verði mikið á ferðinni og
spjalli við menn í atvinnulífinu.
Þannig ætlum við að tengja okkur
betur atvinnulífinu í héraðinu," sagði
Sigurður.
Fyrstu loðnunni landað hjá
Kr ossanesverksmiðj unni
FYRSTU loðnunni á vertíðinni var landað hjá Krossanesverksmiðj-
unni síðastliðinn mánudag en þá lönduðu þar tvö færeysk loðnuskip,
Jupiter og Sjúrður Tollaksson, samtals 400 tonnum.
Ásbjörn Dagbjartsson hjá
Krossanesverksmiðjunni sagði að
það tæki verksmiðjuna um sólar-
hring að vinna þennan afla. Krossa-
nesverksmiðjan borgar 4.000 krón-
ur fyrir tonnið til 15. september
næstkomandi. Ásbjöm sagði að
verksmiðjan gæti borið þetta verð
til að byija með, því eftir væri að
uppfylla samninga. Hins vegar
bæri núverandi markaðsverð þetta
verð alls ekki.
Ásbjörn sagði að þau skip sem
verið hefðu í föstum viðskiptum við
Krossanes á undanförnum árum
væru ekki alvarlega farin að hugsa
sér til hreyfings, þannig að óvissa
ríkti varðandi frekari hráefnisöflun
til verksmiðjunnar.
Loðnan sem landað var á mánu-
dag var ágæt, að sögn Ásbjamar,
um 30% þurrefni í henni og hún
var um 15% feit. „Mér sýnist hún
vera svipuð og sú loðna sem við
fengum í upphafi vertíðar í fyrra.“
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 22. ágúst
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð(kr.)
Þorskur 53,00 39,00 45,92 14,645 672.540
Þorskur(smár) 18,00 18,00 18,00 0,046 828
Ýsa 92,00 73,00 86,13 1,927 165.932
Karfi 34,00 25,50 26,29 45,742 1.202.420
Ufsi 30,00 15,00 28,78 10,852 312.116
Ufsi(smár) 15,00 15,00 15,00 0,110 1.650
Steinbítur 53,00 53,00 53,00 0,645 34.185
Langa 20,00 16,00 19,41 1,702 33.042
Lúða 180,00 70,00 168,73 0,845 142.575
Tindaskata 5,00 5,00 5,00 0,204 1.020
Samtals 33,45 76,718 2.566.308
Selt var úr Víði HF og bátum. í dag verður selt óákveðið magn
af blönduðum afla úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 80,00 41,00 46,13 41,715 1.924.511
Ýsa 105,00 35,00 89,62 4,329 387.944
Ýsa(umál) 15,00 15,00 15,00 0,014 210
Ufsi(umál) 10,00 10,00 10,00 0,170 1.700
Steinbítur 66,00 42,00 49,41 0,264 13.044
Langa 32,00 32,00 32,00 0,461 14.752
Lúða(stór) 215,00 185,00 201,10 0,508 102.160
Lúða(smá) 230,00 220,00 221,43 0,049 10.850
Skarkoli 60,00 60,00 60,00 0,044 2.640
Skötuselur 75,00 75,00 75,00 0,012 900
Samtals 51,69 47,566 2.458.711
Selt var meðal annars úr Sigurey BA. í dag verða meðal ann-
ars seld 50 tonn af þorski, 5 tonn af ýsu og 10 tonn af ufsa úr
Jóni Baldvinssyni RE og fleirum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 51,00 34,00 44,93 10,392 466.960
Ýsa 82,00 47,00 73,02 2,517 183.785
Karfi 27,00 21,00 26,02 8,569 222.948
Ufsi 21,00 5,00 16,23 16,441 266.832
Steinbítur 36,00 20,00 25,37 0,329 8.348
Hlýri+steinb. 31,00 31,00 31,00 0,358 11.098
Langa 15,00 15,00 15,00 1,816 27.240
Blálanga 22,00 22,00 22,00 0,110 2.420
Lúða 210,00 70,00 180,50 0,540 97.470
Sólkoli 40,00 40,00 40,00 0,045 1.800
Skarkoli 35,00 21,00 21,35 0,607 12.957
Keila 12,00 5,00 6,52 0,433 2.823
Skötuselur 260,00 260,00 260,00 0,025 6.500
Öfugkjafta 15,00 15,00 15,00 0,114 1.710
Humar 999,00 999,00 999,00 0,009 8.991
Samtals 31,25 42,305 1.321.882
/ Selt var meðal annars úr Hópsnesi GK, Þorbirni II GK og frá
Miðnesi hf. I dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla
úr bátum.
Almannavarnir:
Ný neyðaráætlun kynnt
víðsvegar um Norðurland
Áætlunin samþykkt á Akureyri og í Skútustaðahreppi
Ný neyðaráætlun Almannavarna fyrir Akureyri hefur verið sam-
þykkt og á fúndi almannavarnanefúdar Skútustaðahrepps í gær var
ný neyðaráætlun fyrir svæðið einnig samþykkt. Þetta eru fyrstu sveitar-
félögin sem taka við nýrri neyðaráætlun eftir heildar uppstokkun slíkra
áætlana Almannavarna um land allt. Forráðamenn Almannavarna ríkis-
ins hafa verið á ferð um Norðurland þar sem þeir hafa kynnt þessai'
nýju áætlanir.
Guðjón Pedersen framkvæmda- að neyðaráætlanir þær sem nú er
stjóri Almannavarna ríkisins sagði verið að leysa af hólmi séu að stofni
Akureyrarbær:
Framkvæmdir á áætlun
MALBIKUNARVÉLAR Akureyrarbæjar hafa að venju gert víðreist í
sumar. í næstu viku er ferðinni heitið að Hauganesi og á Árskógssand
þar sem ætlunin er að malbika götur í þorpunum.
Framkvæmdir á vegum Akur-
eyrarbæjar ganga samkvæmt aætl-
un, að sögn Guðmundar Guðlaugs-
sonar yfirverkfræðings. Gerð bíla-
stæða austan Skipagötu er nú að
verða lokið og í þessari viku verður
hafist handa við að malbika í Vest-
ursiðu. Þá er verið að setja yfirlag
á malbik Hlíðarbrautar og einhvern
tíma á næstunni verða gerða undir-
stöður að göngubrú yfir Glerá, sem
verður skammt neðan við efstu brúna
og í framhaldi af henni verður mal-
bikaður göngustígur meðfram
Hlíðarbraut og að Fosshlíð.
Þegar er lokið við gangstéttagerð
þá sem var á dagskránni í sumar i
Glerárhverfi. „Þetta er allt á réttu
roli og gengur samkvæmt áætlun,“
sagði Guðmundur.
Auk malbikunarframkvæmda á
Akureyri hafa tækin verið á ferðinni
víða. Áætlað er að um þijá daga
taki að malbika á Hauganesi og á
Árskógsandi, en þangað er ferðinni
heitið í næstu viku. Áður hefur verið
malbikað í Ólafsfirði, við Kröfluvirkj-
un var bílastæði og aðkomuleiðir
malbikaðar. í Skútustaðahreppi var
einnig unnið að malbikun í sumar og
í leiðinni heim var komið við á Laug-
um í Reykjadal. „Þetta kemur sér
ágætlega, því það er stuttur nýting-
artími á þessum tækjum og aukinn
nýtingartími er af hinu góða,“ sagði
Guðmundur.
til frá árunum 1975 til 79, en í hin-
um nýju og endurbættu áætlunum
sé búið að lagfæra ýmislegt út frá
reynslu fyrri ára. „í eldri áætluninni
er eingöngu sett fram hvernig brugð-
ist skuli við áfalli sem þegar hefur
orðið, en nú er komin fram marg-
háttuð tækni þar sem hugsanlega
er hægt að sjá náttúruhamfarir eða
vá fyrir þannig að í nýju áætlununum
er gert ráð fyrir viðbúnaðarstigi,
hættustigi og neyðarstigi," sagði
Guðjón.
Almannavarnanefnd Akureyrar
samþykkti í vikunni nýja neyðar-
áætlun og var þá haldinn fundur
með öllum þeim aðilum sem bregðast
þurfa við ef henni þarf að fram-
fylgja. Á Akureyri er sérstök ítar-
áætlun vegna flugvallarins, en al-
mannavarnanefnd Akureyrar áleit
að þar kynni að bregðast hraðast við
og skipulegast kæmi eitthvað upp á.
Þá hafa verið lagðar fram áætlan-
ir fyrir Ólafsfjörð, Dalvík, Grenivík
og Húsavík og fullbúin ný neyðar-
áætlun fyrir Mývatnssveit var lögð
fyrir á fundi með almannavarna-
nefnd Skútustaðahrepps og fleiri
aðilum í gær þar sem hún var sam-
þykkt. Á Dalvík og Grenivík og á
Húsavík hefur ycrið óskað eftir ítar-
efni varðandi jarðskjálfta, en í Skútu-
staðahreppi er sérstaklega fjallað um
Kröfluelda. Ólafsfirðingar hafa enn
ekki sett fram óskir um sérstaka
ítaráætlun, en sveitarfélög hafa eins
mánaðar frest til að skila inn slíkum
óskum.