Morgunblaðið - 23.08.1989, Page 23
MORGUNBIiAÐIÐ MIÐVIKUÐAGUR 23í ÁGCSTS1989 /
23
Heildarlaun 96-110 milljarðar 1987:
Hið opinbera greiddi
28% launa í landinu
Yfirlýsing
firá Áslaugu
Brynj ólfsdóttur
Vegna ummæla Ragnars Júlíus-
sonar formanns fræðsluráðs
Reykjavíkur, varðandi fundarboðun
á fræðsluráðsfund 14. ágúst sl. og
í framhaldi af þeim, vegna þeirra
ummæla Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra, sem höfð eru eftir honum í
Morgunblaðinu 19. þ.m., vil égtaka
fram eftirfarandi:
Á fræðsluráðsfundi 3. júlí sl.
mætti Kristín Ólafsdóttir borgar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins, í for-
föllum aðalmanns, Þorbjöms
Broddasonar og varamanns hans,
Valgerðar Eiríksdóttur.
Kristín greindi frá því að hún
væri mætt í forföllum varamanns,
þar sem aðalmaður Þorbjörn
Broddason myndi dveljast erlendis
næstu mánuði, og því skyldi vara-
maður boðaður. Stuttar umræður
spunnust um utanför Þorbjörns
m.a. um það hvað hann myndi fást
við í þessari utandvöl sinni, rann-
sóknir, nám og fl.
Ég minnist þess sérstaklega að
ég sagði að Þorbjörn hefði greint
mér frá því að hann væri að fara
til Bandaríkjanna og að hann yrði
í burtu fram að áramótum. Ómögu-
legt er því að skilja ummæli í þá
veru, að fræðslustjóri hafi legið á
upplýsingum um fjarveru Þor-
björns.
Hafi skólaskrifstofa, sem sér um
fundarboðun til fræðsluráðsmanna,
enga hugmynd haft um fjarveru
Þorbjöms Broddasonar, verður það
að teljast undarlegt að boða vara-
mann Þorbjöms, en ekki Þorbjörn
sjálfan, á fund í Skólamálaráði
Reykjavíkur tveim vikum eftir um-
ræddan fræðslufund.
Þess má geta að í skólamálaráði
sitja sömu pólitískt kjörnir fulltrúar
og í fræðsluráði, en alþýðubanda-
lagsmenn hafa ekki viðurkennt
skólamálaráð og aldrei sótt fundi
þar, en Þorbirni mun þó ávallt sent
fundarboð.
Varafulltrúinn, Valgerður, hefur
skýrt á opinberum vettvangi frá því
að við þau fundarboð hafi hún
greint frá því, að hún sækti ekki
þann fund frekar en Þorbjörn, en
minnti á að boða hana á fræðslu-
ráðsfundi í fjarveru Þorbjöms.
Samkvæmt grunnskólalögum kveð-
ur formaður til fundar í fræðsluráði.
Fræðslustjóri vill taka fram að
hún var í sumarleyfi síðari hluta
júlímánaðar fram til 14. ágúst er
margumtalaður fræðsluráðsfundur
var haldinn og var því ekki við
dagskrárgerð hans.
Höfundur er fræðslustjóri í
Reykjavík.
Atvinnuvegaskýrslur Byggða-
stofnunar fyrir árið 1987 telja
greidd laun það ár, samkvæmt
launamiðum, hafa numið 96.830
milljónum króna og 110.358
m.kr. að meðtöldum reiknuðum
eiginlaunum eigenda. 27,7% af
greiddum launum þetta ár var á
vegum ríkis, sveitarfélaga, opin-
berra stofiiana og fyrirtækja.
Af tæplega 110 milljarða launa-
greiðslum ársins 1987 greiddi
einkareksturinn (hlutafélög, ein-
staklingar og sameignarfélög) 62%,
samvinnusamtök 5,1%, ríki, ríkis-
stofnanir, ríkisfyrirtæki, opinberir
aðilar og sveitarfélög 27,7% og fé-
lagasamtök 5,2%. Inn í þessum
tölum eru reiknuð eigin laun, 12,3%
af heildarupphæð.
Greidd laun samkvæmt launa-
miðum vóru 16.860 milljónir króna
árið 1982, 34.223 m.kr.- 1984,
67.035 m.kr. 1986 og 96.830 m.kr.
1987 - og höfðu þá hækkað um
44.5% frá árinu áður. Laun að
meðtöldum reiknuðum eiginlaunum
vóru 19.179 m.kr. 1982, 38.657
m.kr. 1983, 76.114 m.kr. 1986 og
110.358 m.kr. 1987 - hækkuðu um
45% frá árinu áður.
Kennarar
Kennara vantar að Alþýðuskólanum á Eiðum
næsta vetur. Æskilegt að viðkomandi geti
kennt stærðfræði.
Upplýsingar veittar í síma 91-612342 í kvöld
og næstu kvöld milli kl. 18.00 og 19.00.
Skólastjóri.
Kennarar
Ritari
Ritari óskast til starfa að Sálfræðideild skóla,
Réttarholtsskóla. Kunnátta í ensku, dönsku,
vélritun og notkun tölvu nauðsynleg.
Upplýsingar í síma 680698.
Fræðslustjórinrt í Reykjavík.
50% starf óskast
Er við nám í gluggaskreytingum. Vil breyta til.
Upplýsingar í síma 38076 eftir kl. 15.00.
Skreiðarvinnsla
Starfsfólk óskast í skreiðarvinnslu.
Upplýsingar í síma 50993.
Kennara vantar að Grunnskóla Vopnafjarðar
næsta skólaár. Um er að ræða kennslu yngri
barna. í boði eru húsnæðisfríðindi fyrir rétt-
indakennara.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
97-31218, og formaður skólanefndar í síma
97-31275.
Skólanefndin.
Skrifstofustarf
Óskum að ráða starfsfólk til vinnu við reikn-
ingsútskriftir á tölvu. Námkvæmni og góð
stærðfræðikunnátta nauðsynleg.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
nk. föstudagskvöld merktar: „Traust - 6381 “
„Au pair“
Óskum eftir „au pair“ 18 ára eða eldri. Starf-
ið felst í að gæta fjögurra ára telpu, seinnipart-
inn og á kvöldin. Við búum í New York. Nauð-
synlegt að viðkomandi hafi bílpróf og reyki ekki.
Upplýsingar í síma 35528 eftir kl. 18.00.
HÚSNÆÐIÍBOÐI KENNSLA smá ouqlýsinqor
Góð 4ra herb. íbúð
j Vesturbæ Reykjavíkur er til leigu í 1-2 ár.
íbúðinni fylgja gluggatjöld og ísskápur ásamt
dálitlu af húsgögnum.
Vinsamlegast leggið inn nafn og símanúmer á
auglýsingadeild Mbl. merkt: „Góð íbúð - 6380".
BÁTAR-SKIP
Kvóti - kvóti
Okkur vantar kvóta fyrir togarana Arnar og
Örvar. Staðgreiðum hæsta gangverð.
Upplýsingar í símum 95-22690, 95-22620
og 95-22761.
Skagstrendingur hf.,
Skagaströnd.
Kvóti
Okkur vantar kvóta fyrir togarann Hólma
drang. Greiðum besta verð.
Seljendur, sem hafa áhuga, vinsamlegast
hafið samband í símum 95-13209, 95-13203
og 95-13308.
Hólmadrangur hf.
Til sölu
Skrifstofu okkar hefur verið falið að annast
sölu á útgerðarfélaginu Sæfinni hf., þar með
talinn frystitogari fyrirtækisins, Arinbjörn RE
54. Nánari uppl. eru veittar á skrifstofunni.
Málflutningsskrifstofa
Sigurðar G. Guðjónssonar hrl.,
Suðurlandsbraut 4A, Reykjavík,
sími 689560.
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Menntamálaráðuneytið hefur falið okkur
framkvæmd stöðuprófa. Kennarar skólans
semja prófin og meta þau og sjá auk þess
um að senda prófverkefni til þeirra skóla sem
þess óska og taka við þeim aftur til mats.
Prófin fara fram í Menntaskólanum við
Hamrahlíð sem hér segir:
Franska og spænska: 28. ágúst kl. 18.00.
Þýska: 30. ágúst kl. 18.00.
Enska: 31. ágúst kl. 18.00.
Stærðfræði: 1. sept. kl. 18.00. .
Danska, sænska og norska:
4. sept. kl. 18.00.
Nemendur sem vilja þreyta stöðupróf eru
beðnir að láta skrá sig til prófs á skrifstofu
skólans í símum 685140 og 685155 fyrir 25.
ágúst.
Rektor.
fÉLAGSLÍF
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almennur biblíulestur í kvöld kl.
20.30. Ræðumaður Garðar
Ragnarsson.
UÍJ Útivist
Miðvikudagur 23. ágúst kl. 20
Kvöldganga á Kjalarnestanga.
Létt ganga frá Brautarholtsborg
um Nesvík, Gullkistuvík. Mess-
ing og Borgarvik. Stórskemmti-
leg ganga. Verð 700,- kr., frítt
f. börn m. fullorðnum. Fararstj.
Einar Egilsson. Brottför frá BSÍ,
bensinsölu. Sjáumst!
Útivist, feröafélag.
SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Aðalfundur
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Suðavikur verður haldinn fimmtudaginn
24. ágúst nk. kl. 20.30 i kaffisal Frosta hf.
Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
FERÐAFELA6
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Frá Ferðafélaginu:
25.-30. ágúst: Landmanna-
laugar - Þórsmörk (6 dagar).
Gengið á fjórum dögum frá
Landmannalaugum til Þórs-
merkur. Gist í sæluhusum F.i.
Fararstjóri: Jóhannes I. Jónsson.
1.-3. sept. Óvissuferð.
Spennand! ferð. Gist i svefn-
pokaplássi. Upplýsingar og far-
miðasala á skrifstofu F.i.
Ferðafélag Íslands.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
iBJj Útivist
Helgarferðir 25.-27. ágúst
Þórsmörk - Goðaland. Góð
gisting i Útivistarskálunum Bás-
um. Gönguferðir viö allra hæfi.
Fararstj. Egill Pétursson.
Básar - Fimmvörduháls -
Skógar. Gist í Básum. Gengið á
laugardeginum yfir hálsinn. Far-
ið i Seljavallalaug. Fararstj.
Hákon J. Hákonarson. Uppl. og
farm. á skrifst., Grófinni 1,
simar: 14606 og 23732.
Ársrit Útivistar nr. 15(1989) er
komið út. Félagsmenn, vinsam-
legast greiðið heimsenda giró-
seðla fyrir árgjaldinu.
Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SIMAR 11796 og 19533.
Helgarferðir Ferðafélags-
ins 25.-27. ágúst:
Þórsmörk.. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal.
Gönguferðir við allra hæfi um
Mörkina.
Landmannalaugar. Gist í sælu-
húsi F.i. f Laugum.
Ekið frá Laugum um Jökuldali í
Eldgjá - gengið að Ófærufossi
(dagsferð). Farnar gönguferðir
um nágrenni Lauga.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.Í., Öldugötu 3.
Ferðafélag Islands.