Morgunblaðið - 23.08.1989, Page 24

Morgunblaðið - 23.08.1989, Page 24
24 MORGUNBLÁÐIÐ MfDVIKUMGUR '23. IÁGÚST '1989* / St)öriiu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Krabbinn í dag er það umfjöllun um hið dæmigerða fyrir Krabba- merkið (21. júní - 22. júlí). Tilfinningamaður Krabbinn er tilfinningamerki. Mat hans á' lífinu byggir á tilfinningu, því hvort ákveðin mál falla honum tilfinninga- lega í geð eða ekki. Hann á hins vegar erfitt með að ræða það af hverju honum falli <»þetta eða hitt. Tilfinningar eru illútskýranlegar og því er Krabbinn frekar þögult merki. Hann tjáir sig með augunum, með aðgerðum eða í fáum og vel völdum orðum. Ncemur Krabbinn er frægur fyrir næmleika sinn á fólk og and- rúmsloft í umhverfi sínu s.s. í húsum. Þessi næmleiki er hins vegar staðbundnari en t.d. næmleiki Fisksins, enda er Krabbinn laginn við að loka á það sem tengist honum ekkert sérstaklega.. BakviÖ skelina Krabbinn er iðulega hlýlegur í viðmóti, eða öllu heldur má finna að bakvið hlédræga framkomu og stundum hrjúft yfirborð slær hlýtt hjarta sem vill vel. Þegar talað er um hlédræga framkomu, verðum við að hafa í huga, að slíkt er ekki alltaf áberandi. Stundum birtist það fyrst og fremst í hlédrægni um sín eigin persónulegu mál. íhaldssamur ♦ íháldssemi er áberandi eigin- leiki fyrir Krabba, bæði hvað varðar ást og vináttu sem og það að halda í hluti og eigur sem honum hefur á annað borð fallið j geð. Inn í þetta spilar varkárni Krabbans og þörf hans fyrir öryggi. Frumkvœði Þrátt fyrir feimni er Krabb- inn oft duglegur að koma sér áfram. Hann situr oft í stjórn félaga og ér áberandi í for- ystusætum, bæði í stjórn- málum og viðskiptalífi. Þetta er í sjálfu sér ekki undarlegt því Krabbinn er hagsýnn, séður, útsjónarsamur og j seigur. Þó hann virðist hlé- drægur býr hann í raun yfir innri hörku og frumkvæði. Ábyrgur Ástæðan fyrir því að Krabb- inn nær oft langt er einnig sú að hann hefur sterka ábyrgðarkennd og er traust- vekjandi. Aðrir treysta hon- um og fela ábyrgðarstörf. Þungur Krabbinn er oft sjálfum sér verstur, a.m.k. að því leyti að hann á til að velta sér uppúr tilfinningasemi og gömlum sárum. Hann á til að vera þunglyndur og sjálfs- > vorkunnsamur. Það sem einnig háir honum er það hversu mislyndur hann á til að vera. Einn daginn er hann ákveðinn og glaðbeittur, hinn næsta þungur, önuglyndur og falinn bakvið skelina. Öryggi Krabbinn er frægur fyrir að sækjast eftir öryggi og elska dýr, böm, gróður, fjölskyld- una og húsið sitt. Enda eru sterk tengsl við náttúruna og heimilið honum mikiivæg. Krabbi sem er í lausu lofti hvað varðar þessa þætti er óhamingjusamur og ófull- nægður. Því er mikilvægt að hann skapi sér öryggi, sé í tengslum við tilfinningar . sínar, gróður jarðar og ólg- andi hafíð. íþróttaiðkun sem hentar honum vel er sund og einnig eiga gönguferðir vel við hann, og þá sérstaklega flörulabb. GARPUR Oeoo/MN &SSTUR Ke/VIUR T/L HHnb/tHALÖAMNA V/£> /nUNAÐAS- L£VSlNOTAHÆL/Br- HETJURNAR TV/ER SA/TIAN, ENeL/ESI-i L EGT■■ ■ i p/fB efí KLHR/SSH-■ ■ 1//Ð ubnou/vi i' SJÓv-, VARP/NU, SARPUR.1 -■UN& FÓTLUB HBTJA ... , L /FSPEYNO HETJA SE/H FAZÆKT- /N HEFUK H/)£>- - ÞAÐ e& SAGA i LAG/■■- t-t '/30 GRETTIR ó, FyRirz<5EFE>o, ée húlt ae> þú /ETTIR VlE> þA SÓML) OuGGU , FFEhlKU SEAl VAF EEKIK) ÚR. SJÓ. HEZ-HUM FyciR ÓMAUP5VWLEGA HÖRKU/ BRENDA STARR E/NA OHÐ/P) LJÓSKA pAO LÍOUIZ EKKI A LÖNGU PANOAE? VL 0ÖRNIK OKKM? TARA i’hASKOLA; FERDINAND SMÁFÓLK REAL'LV? the kip luho PLAY5 6ERONIMO 15 60ING TO BE VERY PISAPPOINTEP.. Ég bauðst til að skrifa jólaleikritið okkar í ár. í fyrsta atriðinu talar Geronimo við Maríu ... Það var ekki Geronimo, það var Gabríel... Segirðu satt? Strákurinn sem á að leika Geronimo verður mjög von- svikinn. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Blekkisagnir eru skemmtileg- ar þegar þær heppnast. Raun- sæir spilarar eru hins vegar lítið fyrir að beita þeim, því reynslan hefur margsannað að útgjöldin sem þeim fylgja fara langt fram úr tekjunum. Hetja dagsins verður að minnsta kosti alllengi að greiða skuldina sem hann stofnaði til í þessu spili: Austur gefur; NS á hættu. Norður ♦ 9842 ♦ 832 ♦ G76 + ÁD2 Vestur Austur ♦ 6 ♦ ÁKG75 ♦ KG1095 ♦ 7 ♦ 953 ♦ ÁKD10842 ♦ G873 ♦ - Suður ♦ D103 ♦ ÁD64 ♦ - ♦ K109654 Vestur Norður Austur Suður — 1 lauf 2 tíglar 2 hjörtu 3 tíglar Dobl PasS Pass Pass Redobl Útspil: spaðasexa. Þegar austur opnaði á sterku laufi taldi suður að nú væri rétti tíminn til að láta andstæðinga svitna. Og hafði svo sem heppn- ina með sér, að norður skyldi ekki eiga meira í tígli og stökkva í fjóra eða fimm, því það má sleppa 2 niður í 4 laufum. En suður vildi ekki horfa al- veg framhjá spaðasamningi og redoblaði til úttektar. Norður var ekki með á nótunum (þöngul- haus!) og passaði önugur. Sæluvíma austurs var svo mikil að hann gleymdi að gefa makker sínum stungu í spaða, svo suður „slapp“ 7 niður. Fyrir það greiddi hann (og makker hans) 4.000 í stað 4.600 fyrir 8 niður. „Það gat verið verra,“ sagði norður og tók til við næsta spil — löðursveittur. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á heimsbikarmótinu í Skell- efteá í Svíþjóð, sem nú stendur sem hæst, kom þessi staða upp í skák Sovétmannsins Valery Salov (2.645), sem hafði hvítt og átti leik, og Gyula Sax, Ungverja- landi (2.580). Svartur lék síðast 22. - Be7-f8. 23. Rh6+!I - gxh6 24. Rf6+ - Kh8 25. Hxd7 - Dxd7 (Svartur verður að láta drottninguna af hendi, því ef hann víkur henni undan kemur 26. Df5 með óverj- andi máti) 26. Rxd7 og hvítur vann um síðir á liðsmuninum eftir 32 leiki til Viðbótar, hann hefur ekki farið stystu leiðina. Staðan á mótinu eftir sjö umferðir var þannig: 1-3. Kasparov, Ehlvest og Salov 414 v., 3-6. Karpov, Short og Portisch 4 v. 7-9. Andersson, Hiibner og Nikolic 34 v. 10. Seirawan 3 v. og biðskák, 11-14. Sax, Nunn, Ribli og Tal 3 v. 15. Vaganjan 2'k v. 16. Korchnoi 1'h v. og biðskák. Kasparov, heims- meistari, teflir mjög vel á mótinu, en hefur hvað eftir annað gert sig sekan um klaufaskap. í sjöundu umferðinni lék hann gjörunninni stöðu gegn Tal niður í jafntefli, með því að leika af sér biskup á mjög einfaldan hátt. Staðan var reyndar svo unnin að Kasparov hélt áfram að tefla til vinnings, þrátt fyrir biskupsmissinn, en það dugði ekki. -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.