Morgunblaðið - 23.08.1989, Side 28

Morgunblaðið - 23.08.1989, Side 28
28 MORGjUNBliAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR, 23. ÁGÚST 1.98,9 í ... fréttum í SJÁLFHELDU í VIÐEY Eg varð aldrei hrædd Katherine með móður sinni fyrir utan Árbæjarsafiiið Katherine Heite er ellefu ára gömul bandarísk stúlka sem síðasta fimmtudag lenti í sjálfheldu á stórstraumsflóði í Viðey, Hún brást við af skynsemi og hélt kyrru fyrir þar sem hún var og mátti bíða í sex tíma eftir að vera bjargað. í samtali við Morgunblaðið segist hún þó aldr- ei hafa orðið hrædd þar sem hún vissi að einhvem tímann myndi íjara og að þá yrði hún laus úr prísundinni. Foreldar Katherine eru fomleifa- fræðingar og sérfræðingar í forn- minjum frá 18. og 19. öld. Þau vinna á Árbæjarsafni en hafa aðstoðað við fornleifarannsóknir í Viðey og því er Katherine vel kunnug eynni. Á fimmtudaginn var fór Katherine ein með strætó niður í bæ og tók bátinn út í Viðey. Þar ætlaði hún að hjálpa konu ráðsmannsins, Guð- rúnu Lilju Arnórsdóttur, að hreinsa æðardún og áttu foreldrar hennar ekki von á henni tii baka fyrr en undir kvöldmat. Þegar Katherine hafði hjálpað Guðrúnu fór hún að fylgjast með fornleifafræðingunum við vinnu sína en þegar þeir tóku sér hádegisverðarhlé fór hún ein að leika sér. Hún ákvað að ganga niður í fjöru og leita að hellum. Katherine er frá Delaware-fylki sem er við austurströnd Banda- ríkjanna. Hún bjó þar í sjávarþorpi sem er á stærð við Selfoss. Börnun- um er kennt að þekkja flóð og fjöru en þar geta liðið fjórir tímar frá því það byrjar að fiæða uns flóðið nær hámarki. Katherine varaði sig því ekki á flóðinu sem er óvenjumikið á þessum árstíma og komst í sjálf- heldu. „Ég var stödd á stórum steini þegar ég sá að ég komst ekki til baka. Ailt í kring voru steinar þaktir þangi og þeir voru svo sleipir að ég lagði ekki í þá. Ég varð þó að færa mig þegar flóðið varð sífellt meira og þá sá ég nokkurs konar gijótgarð og á bak við hann uxu hundasúrur. Ég vissi að þær yxu ekki í söltu vatni svo ég hélt að þar myndi mér vera óhætt þangað til íjaraði á ný. Ég var aldrei hrædd því ég vissi að ég myndi fyrr en síðar verða laus.“ Það var um klukkan þijú sem Katherine lenti í sjálfheldunni en klukkan var að verða sjö þegar móð- ir hennar, sem var farin að óttast um hana, hringdi í Margréti Hallgr- ímsdóttur fomleifafræðing og spurði hvort Katherine hefði misst af bátn- um. Þá kom í ijós að enginn hafði séð Katherine frá því um tvöleytið. Móðir hennar hringdi í lögregluna en fólkið í Viðey fór strax að leita. Fljótlega fannst jakkinn hennar og peningaveskið svo vitað var að Kat- herine hafði ekki farið frá eynni. Klukkan var um átta þegar Kather- ine loksins fannst. „Mér var orðið svolítið kalt. Ég hafði hvílt mig á bak við gijótgarð- inn og borðað hundasúrur en færði mig svo yfir á annan stein en þaðan gat ég fylgst með skipum sem sigldu framhjá. Ég var búin að kalla svo oft að mér var orðið illt í hálsinum. Margrét og Guðrún Lilja sáu mig þegar þær stóðu á klettabrúninni og sögðu mér að vera kyrri á steininum því það sást ekki til mín ef ég var þar sem hundasúrurnar voru. Guðrún henti til mín dúnúlpunni sinni og svo fékk ég teppi. Þær létu líka mat og heitt kakó síga niður til mín en ég var bara búin að taka einn sopa af því þegar lögreglan kom á gúmbátn- um. Þegar ég kom í land leið mér eins og poppstjömu því það voru teknar af mér svo margar myndir. Ég fór með sjúkrabíi upp á spítala í rannsókn en svo fékk ég að fara heim.“ Þótt Katherine sé góð sundkona vissi hún að öldurnar gátu orðið henni yfirsterkari og því hélt hún kyrru fyrir á þeim stað sem hún var í vari. Hún beið róleg eftir að sér yrði bjargað eða að það ijaraði á ný. Hún slapp því vel frá þessu ævintýri. Það var þreytt en glöð stúlka sem kom heim til sín á Árbæjarsafnið klukkan tíu um kvöldið. Katherine hafði á engan hátt orðið meint af volkinu og hún getur ekki beðið eft- ir að lenda í nýjum ævintýrum. Von- andi enda þau öll jafn vel og þetta. BARNALÁN Mike Oldfield að verða pabbi á nýjan leik Tónlistarmaðurinn góðkunni, Mike Oldfield og sambýliskona hans Anita Hegerland eiga von á bami. Anita sem er 28 ára fæddist í Noregi og var orðin þekkt söngkona þar í landi þegar hún kynntist Oldfield. Þau búa nú saman í Englandi með dótturinni Gretu Marie sem er eins árs og eiga von á öðru bami í febrúar, Fyrir átti Mike Oidfield þijú önnur börn. COSPER Ég er orðin þreytt á kanínusteik á hveijum degi Afinæliskveðja: Magnús Guðmunds son fyrrum bryti í mars 1982 lét af störfum hjá Hrafnistu í Reykjavík Magnús Guð- mundsson bryti. Jafnframt um- fangsmikiili verkstjórn í eldhúsi hafði hann með stjórn á bakaríi, aðalborðsal og starfsmannasal að gera þegar hann hætti og átti hann þá að baki aldarfjórðungsstarf á Hrafnistuheimilinu. Hann lét af störfum að eigin ósk. Taldi að tími væri kominn til að minnka við sig og rýma ábyrgð- armikið starf sem hann hafði með höndum, meðan líf og heilsa entist. Hann var þó ekki fyrr genginn út úr Hrafnistu en hann var farinn að vinna við kjötvinnslu hjá einum af sínum fyrri starfsmönnum. í dag er Magnús Guðmundsson áttræður. Engum er skyldara en mér að flytja honum vinar- og þakkarorð í dag, svo lengi hefur hann unnið með mér að hagsmuna- málum Sjómannadagssamtakanna og Hrafnistuheimilanna beggja af alúð og einlægni. Því leyfi ég mér hér að fara nokkrum orðum um ævi hans og starf til sjós og lands. Magnús fæddist 23. ágúst 1909 að Gerðhömrum, Mýrarhreppi í Dýrafirði, sonur hjónanna Karolínu Friðriksdóttur og Guðmundar Bjarnasonar bónda, sem síðar flutt- ust að Ketilseyri, Þingeyrarhreppi einnig í Dýrafirði. Eignuðust þau fjögur börn auk Magnúsar. Magnús hóf sjómennsku sína strax fermingarárið 1923 og mun hafa stundað sjóinn um 30 ára skeið á bátum og togurum. Það segir sína sögu um manninn sjálf- an, að Magnús var ævinlega 1 góðu skiprúmi. Hann var lengi með þeim mikla síldarmanni Eggerti Kristj- ánssyni á Sæhrímni og á togurum var hann lengst með Vilhjálmi Ámasyni á Venusi og Röðli en fór alfarinn í land 1955. Hann var um tíma hjá Byggingafélaginu Brú og rak þar mötuneyti við byggingu Borgarsjúkrahússins, en 1. desem- ber 1957 hóf hann störf á Hrafn- istu, sem hafði tekið til starfa þá um sumarið. Magnús hefur með sínu um- fangsmikla og erilsama starfi unn- ið mikið að félagsmálum stéttar sinnar, matsveinanna. Hann var einn af stofnendum Matsveinafé- lagsins og um árabil formaður stjómarinnar ogjafnan í samninga- nefndum af hálfu félagsins og ver- ið fulltrúi þess á Sjómannasam- bands- og Alþýðusambandsþingum og lengi átt sæti í Fulltrúaráði Sjó- mannadagsráðsins í Reykjavík og Hafnarfírði. Þegar Magnús hóf starf sitt á Hrafnistu haustið 1957 var enn við alla byijunarörðugleika að etja, þar sem ekki voru nema sex mánuðir síðan heimilið tók til starfa og fyrstu vistmennirnir fluttust inn. Magnús var því einn þeirra manna sem áttu þátt í að móta starfsemi heimilisins. Eins og að líkum lætur eru þeir menn ekki margir sem kunna meira að segja af Hrafnistuheimilinu en Magnús og þeim miklu breytingum sem orðið hafa á heimilinu frá því fyrstu vistmennirnir fluttust inn sumarið 1957. Sjálfur má Magnús muna tímana tvenna í sínu starfi. í heimilisblaðinu Hrafnistu er að finna fyrir nokkrum árum viðtal við Magnús þegar hann var sjötug- ur. Hann rekur í viðtalinu sjó- mannsferil sinn í 30 ár og bregður upp mynd af Hrafnistu á fyrsta ári starfseminnar. Hann segir: „Ég hef lifað súrt og sætt með stofnuninni, eða allt frá því að hún var í reyfum, og þar voru aðeins 30 vistmenn og við vorum þrú við eldamennskuna, sem fór fram í tveimur litlum eldhúsum sínu á hvorri hæðinni. Það voru sífelld hlaup á milli hæða við eldamennsk- una, en það taldi maður ekki eftir sér. Þessi eldhús voru í C-álmunni og eitt vistherbergi niðri og hluti af ganginum var tekið undir borð- sal. Nú er eldhúsið stór salur og þar vinnur margt manna, vistmenn eru jafnan rúmlega 445 og með starfs- fólki eru um 610 manns á heimil- inu, sem eldað er fyrir. Mitt starf hefur því breyst á þann veg, að það var vinna og stjórnun fyrstu árin, en hin síðari verið meira eftir- lit og stjórnun á mörgu fólki og miklum matarkaupum, en alltaf mjög áhugavert starf. Fyrstu árin voru vistmenn yfir- leitt sjómenn, hraustir til heilsunn- ar og gengu rösklega að mat sínum, en eftir því sem vistmönnum fjölg- aði urðu þarfimar breytilegri og erfiðara að gera öllum til hæfis. Það var hér á ámnum jafnhressara fólk á Hrafnistu en hið síðari ár. Meðalaldur vistmanna hefur hækk- að trúi ég, og hópurinn blandaðri og sérþarfir margar. Margt gæti ég sagt af starfi mínu á Hrafnistu, en það eitt vil ég segja nú, að ég á miklu fleiri góðar minningar og skemmtilegar úr starfí mínu en leiðar, og marga vini hef ég eignast en engan óvild- armann, það ég viti.“ Magnús Guðmundsson hefur vissulega verið mikilsverður maður á Hrafnistuheimilinu. Það er áríð- andi fyrir heimilisbraginn á þessu stóra heimili að vistmenn séu al- mennt ánægðir með matseldina og það er einnig áríðandi fyrir rekstur he'imilisins að farið sé vel með mat. Það hleypur fljótt á stómm upphæðum ef hagsýni er ekki gætt á svo fjölmennu heimili. Hvorttveggja þessara mikilvægu atriða í heimilisrekstrinum hefur Magnús Guðmundsson leyst af hendi með sóma og Sjómannadags- ráð færir honum þakkir fyrir hans mikla og langa starf við vinsældir vistmanna og traust ráðamanna. Þegar Magnús lét af störfum á Hrafnistu voru engin ellimörk að sjá á honum. Og enn er hann beinn í baki, kvikur á fæti og hress í anda, þótt óneitanlega hafi hann orðið fyrir miklu áfalli við skerta sjón síðustu misserin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.