Morgunblaðið - 23.08.1989, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 23.08.1989, Qupperneq 34
34 MORÖUNBILAÐIÐ ÍÞRÓTTiR 'úmmAGtrn 231 AGUST 1989 íhúm FOLK ■ ÓSKAR Helgason, hand- knattleiksmaður úr FH, fær ekki leyfi HSÍ til að leika á Spáni í vet- ur. Spænskt 1. deildarlið fór fram á það við HSÍ að Óskar fengi að leika á Spáni í vetur, en því var hafnað á þeirri forsendu að frestur til félagaskipta rann út 1. ágúst. ■ ÁSGEIR Sigurvinsson og fé- lagar hans hjá Stuttgart mæta annaðhvort liði Hertha Berlín eða -<*Guterloh í annarri umferð bikar- keppninnar í Vestur Þýskalandi, sem fram fer 23. september næst- komandi. Á miðvikudag mætir Stuttgart hins vegar efsta liði deildarinnar, Frankfurt. ■ LOKASTAÐA í D-riðli 4. deildar var röng í Morgunblaðinu í gær. Hið rétta er að Ægir er í öðru sæti með 18 stig, en Stokks- eyri á botninum með 4 stig. B TRYGGVI Sigtryggsson var meðal keppenda í hálfmaraþoni á sunnudag en nafn hans datt út úr úrslitaskránni. Tryggvi hafnaði í 153. sæti eftir harða keppni við Árna bróður sinn sem lenti í 154. sæti. í kvöld Tveir leikir verða í 1. deild kvenna í kvöld. Breiðablik og ÍA Ieika á Kópavogsvelli og KR og Þór á KR- velli. í 4. deild fer fram úrslitaleikur milli efstu liða B og C riðils. Það eru Haukar og Ármann sem leika á Hvaleyrarholtsvelli. Allir leikirnir hefjast kl. 19.00 ■ I>á verður leikur Austurríkis og íslands sýndur í beinni útsendingu ríkissjónvarpsins kl. 17.00. KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Að duga eða drepast - segirSævarJónsson sem tekur við iyrirliðastöðunni SÆVAR Jónsson mun taka viö fyrirliðastöðunni í dag af Atla Eðvaldssyni sem er meiddur. Sævar er leikjahæstur í liðinu með 50 leiki og samkvæmt hefðum hjá Held ber hann fyrir- liðabandið ídag. að er einfaldlega að duga eða drepast i dag ef við ætlum okkur að gera eitthvað í þessum riðli verðum við að ná góðum úrslit- um og helst að vinna,“ sagði Sævar Jónsson. „Vissulega er það bjartsýni að gera ráð fyrir okkur í lokakeppn- ina, það er undir okkur komið og svo lengi sem við trúum því að við getum það eigum við möguleika. „Það er mjög slæmt að missa Ásgeir og Atla en maður kemur í manns stað og við verðum að reyna að gera það besta úr því sem við höfum,“ sagði Sævar. Sævar Jónsson fær það hlutverk að stjórna liðinu innanvallar. Hann á hér eitthvað vantalað við fyrrum félaga sinn úr Val, Guðna Bergsson. KNATTSPYRNA / AGANEFND Þorsteinn í leikbann - leikurekki bikarúrslitaleikinn gegn KR Þorsteinn Þorsteinsson, Fram, tekur út leikbann í bikarúrslitaleiknum á sunnudaginn. Alls hafa verið tekin fyrir 1.265 mál hjá aganefnd KSÍI sum- ar. Allt árið í fyrra voru 1.176 mál tekin til meðferðar. Á fundi aga- nefndar í gær voru 20 dæmdir í leikbann. Þrír leikmenn úr 1. deild fengu eins leiks bann. Þeir eru: Þorsteinn Þorsteinsson, Fram, Alexander Högnason, ÍA og Luca Kostic, Þór, vega fjögurra gulra spjalda. Leik- bannið tekur gildi frá hádegi á föstudag og er því ljóst að Þor- steinn leikur ekki bikarúrslitaleik- inn gegn KR á sunnudaginn. Eftirtaldir leikmenn úr 2. og 3. deild fengu leikbann: Arnar Grét- arsson, UBK, tvo leiki og þeir Ing- valdur Gústafsson, UBK, Heimir Hallgrímsson, ÍBV, Gísli Davíðsson, Einheija, Grétar Einarsson, Víði og Guðjón Guðjónsson, Víði, fá allir eins leiks bann. Gísli Arnarsson, Gróttu og ívar Jósafatsson, þrótti R. tvo leiki og þeir Guðjón Daníels- son, Þrótti R., Gunnar Guðmunds- son, ÍK, Bogi Bogason, Austra og Olafur Torfason, Reyni Á. eins leiks bann. Tveir leikmenn 4. deildar fengu bann og þrír úr yngri aldursflokk- um. Erum byrjaðir að taka niður tíma fyrir veturinn. PANTAÐU STRAX VEGGSPORT hf. o Seljavegi 2 sími 19011 ENGLAND Arsenal sigraði Englandsmeistarar Arsenal nældu í sín fyrstu stig á keppnistímabilinu er þeir unnu Coventry, 2:0, á Highbury í gærkvöldi. Michael Thomas, sem skoraði sigurmark Arsenal í síðasta leiknum gegn Liverpool í vor, skoraði síðara mark leiks- ins, en fyrra markið gerði Brian Marwood. Nýliðamir í „Kristalhöllinni“ létu velgengni Manehester Un- ited á laugardaginn ekki setja sig út af laginu, og lauk viður- eigninni með jafntefli; 1:1. Mark United gerði landsliðsfyrirliðinn Bryan Robson, en jöfnunarmark Crystal Palace skoraði Ian Wright þegar einungis ein mínúta var til leiksloka. Tottenham tapaðl Guðni Bergsson var fjarri góðu gamni þegar Everton sigr- aði Tottenham 2:1 á Goodison Park I Liverpool. Það var hinn ungi nýliði, Mike Newell, sem kom Everton yfir þegar einung- is 97 sekúndur voru liðnar af leiknum. Millwall jöfnaði á síðustu stundu gegn Charlton í gær- kvöldi með marki Ian Dawes, bakvarðar. Charlton hafði hins vegar komist I 2:0 áður en fimm mínútur voru liðnar af leiknum, með mörkum Paul Mortimer og Paul Williams. Fyrra mark Mill- wall gerði Teddy Sheringham með skalla, áður en Tony Cas- carino lagði upp jöfnunarmark Dawes í leiknum. ítfúm FOLK B EYJÓLFUR Sverrisson, knattspymumaður frá Sauðár- króki hefur skorað 10 mörk fyrir Tindastól í sumar og er því marka- hæsti leikmaður 2. deildar. Vegna mistaka í Morgunblaðinu í gær var Eyjólfur sagður hafa skorað átta mörk og þá er félagi hans Guð- brandur Guðbrandssonbúinn að skora 7 mörk. B FYLKIR sigraði Val, 2:1, í bikarúrslitaleik 2. flokks á Val- bjarnarvelli um síðustu helgi. Páll Þórhalsson náði forystunni fyrir Val í upphafi síðari hálfleiks. Ind- riði Einarsson jafnaði fyrir Fylki skömmu síðar, en Kristinn Tómas- son gerði sigurmark Fylkis er 20 mínútur voru til leiksloka og tryggði Árbæingum bikarinn. ÚRSLIT 4. deild: Æskan — Efling.........2:1 Baldvin Hallgrímsson, Gunnar Berg - Þórarinn Jónsson ENGLAND 1. deild: Arsenal — Goventry..............2:0 Ghelsea — QPR......................1:1 Crystal Palace — Manchester Unitcd.1:1 Everton — Tottenham.............2:1 Luton — Sheffield Wednesday........2:0 Millwall — Charlton................2:2 2. deild: Bournemouth — W.B.A................1:1 Oldham — Watford...................1:1 Sunderland — Ipswich...............2:4 Skoski deildarbikarinn Celtic — Queen of the South.....2:0 V-Þýskaland St Pauli — Homburg..............1:1 (Kocian) - (Gerstner). Werder Bremen — Gladbach........0:0 Borussia Dortmund — Ntirnberg......2:1 (Wegmann, Schulz) - (Wirsching).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.