Morgunblaðið - 23.08.1989, Side 36
Jðb ú £• ®
tuwiun
HVÍTLAUKS
PERLUR
Með haustkomunni
sjMöHalmennar
FÉLAG FOLKSINS
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Svifflugu
hlekktist á
í flugtaki
SVIFFLUGU hlekktist á þegar
verið var að draga hana á loft á
Sandskeiði um kvöldmatarleytið
í gær, með þeim afleiðingum að
vélin ofreis og hrapaði til jarðar.
Flugmaður svifflugunnar var
fluttur á slysadeild Borgarspítalans,
en hann var ekki talinn mikið slas-
aður.
Franska fís-vélin:
Nauðlenti
í nánd við
Kulusuk
Anginagssalik. Frá Pétri P. Johnson,
fréttaritara Morgunblaðsins.
FRANSKI flugmaðurinn André-
Georges Lafitte neyddist til að
nauðlenda fis-vél sinni á lítilli
eyju skammt frá Kulusuk klukk-
an 11 í gærkveldi að íslenskum
tíma. Lynx þyrla frá dönsku
varðskipi bjargaði honum og
flaug með hann til Angmagssalik.
Frakkinn slapp ómeiddur og fis-
vél hans er lítið skemmd eftir
því sem best er vitað.
Ferð Frakkans frá Reykjavík
varð löng ströng, en þaðan lagði
hann upp klukkan níu í gærmorg-
un. Hann fór lengi villur vega sök-
um slæms skyggnis áður en hann
neyddist til að nauðlenda, en við
eðlilegar aðstæður ætti flugið til
Kulusuk að taka sex klukkustundir.
Flugvél frá Sverri Þóroddssyni
fylgdi honum frá íslandi og danska
landhelgisgæslan var einnig í við-
bragðsstöðu.
Ekki hefur ferð Lafittes gengið
þrautalaust fyrir sig. Hann hefur
einu sinni áður þurft að snúa við
eftir að hafa verið hálfnaður til
Grænlands^ Frá Kulusuk ætlaði
hann til Syðri-Straumfjarðar og
þaðan var ferðinni heitið til New
York, en viðkomustaðir eru margir
á leiðinni.
Loðnuvertíðin undirbúin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðbólga í ágúst 13,4% -
vextir skuldabréfa 29-30%
BANKAR og sparisjóðir breyttu ekki vöxtum á síðasta vaxtabreytingar-
degi, sem var á mánudaginn, þrátt fyrir að verðbólguhraðinn siðasta
mánuð á mælikvarða lánskjaravísitölu hafi verið 13,4%. Vextir á óverð-
tryggðum skuldabréfum eru nú almennt um 30%. Heimilt er að breyta
vöxtum þrisvar í mánuði, þann 1., 11., og 21. hvers mánaðar.
„Það er hægt að breyta vöxtum á
tíu daga fresti og ég var að fá upplýs-
ingar um lánskjaravísitöluna í hend-
ur í morgun (gærmorgun), svo þetta
kemur til álita næst 1. september,“
sagði Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbankans, aðspurður um
hvers vegna bankinn hefði ekki til-
kynnt um vaxtalækkun í ljósi minnk-
andi verðbólgu.
Hann sagði að það hefðu ekki
verið tök á að breyta vöxtum fyrir
^O. ágúst þar sem upplýsingar hefðu
ekki legið fyrir, enda væri nýbúið
að breyta vöxtum. Þá þyrfti bankinn
einnig að hafa hliðsjón af því hversu
Fjölgun kirkjulegra athafiia;
Mest þrjár hjónavígslur sama
daginn í kirkjunni á Þingvöllum
Kirkjulegum athöfhum hefúr fjölgað á síðustu árum. Þátttaka í
altarisgöngu hefiir stóraukist, guðsþjónustuformum hefúr fjölgað,
hjónavígslum hefúr Qölgað eitthvað og nú eru nær öll börn skírð
og fermd. Hjónavígslum hefúr fjölgað í Þingvallakirkju síðustu ár
og í sumar hafa verið hjónavígslur flesta laugardaga í kirkjunni,
allt að þrjár sama daginn. Einnig er algengt að fólk beri börn sín
til skírnar í Þingvallakirkju, jafnvel um langan veg.
Sr. Bernharður Guðmundsson, arlegravígslnahafihaldistóbreytt.
fréttafulltrúi þjóðkirkjunnar, sagði
í samtali við Morgunblaðið að nú
væru nær öll böm skírð og fermd.
Nokkuð algengt væri að óskírð
börn létu skíra sig fyrir fermingu
og væri það áberandi með börn
svokallaðrar „’68 kynslóðar" sem
nú á böm á fermingaraldri. Bern-
harður segir hjónavígslum hafa
fjölgað eilítið síðustu ár en þeim
fór fækkandi allt til ársins 1987.
Hlutfallið milli kirkjulegra og borg-
Bemharður sagði áberandi hve
fólk tæki nú meiri þátt í altaris-
göngu en áður. Einnig hefur virk
þátttaka kirkjugesta í guðsþjón-
ustu aukist en þjóðkirkjan hefur
reynt að stuðla að því, m.a. með
útgáfu messuskráa. Guðsþjónustu-
formum hefði einnig fjölgað og
má til dæmis nefna fjölskylduguðs-
þjónustur og fyrirbænamessur.
Bernharður minntist á að nú væri
algengt að helgistundir væru
algengt að helgistundir væru
haldnar í tengslum við ættarmót
en þau væru orðin mjög vinsæl.
Sr. Heimir Steinsson, prestur og
þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, tók
í sama streng og sagði algengt að
guðsþjónustur væru haldnar í Þing-
vallakirkju að beiðni félagasamf
taka eða klúbba.
Kirkjugestir í Þingvallakirkju
hafa verið milli þrjú og fjögur þús-
und á ári síðustu ár en þar eru um
70 guðsþjónustur á ári fyrir utan
giftingar og skírnir. Þar er messað
alla helga daga yfir sumarmánuð-
ina, júní til ágúst, og tvisvar í
mánuði yfir vetrarmánuðina.
í Hagtíðindum Hagstofu íslands
kemur fram að hjónavígslur hafi
orðið flestar árið 1974, eða 1.900
og að 1986—1987 hafi þær verið
rúmlega þriðjungi færri. Giftingar-
tíðni er miklu hærri hjá áður giftu
fólki en ógiftu. Einkum er gifting-
artíðni fráskilins fólks há. Brúð-
gumar eru flestir á aldrinum
25—29 ára en brúðir flestar á aldr-
inum 20—24 ára. Á árunum
1951—1987 voru 17% vígslnaborg-
aralegar. Lögskilnuðum hefur
fjölgað mikið undanfarna áratugi.
Sé miðað við árin 1961—1965 hafði
tala lögskilnaða hátt í þrefaldast
1987 en tvöfaldast miðað við íbúa-
tölu. Það hefur færst í vöxt undan-
farin ár að leyfi til lögskilnaðar sé
veitt án þess að skilnaður að borði
og sæng fari á undan. Þannig var
því varið með tæplega þriðjung lög-
skilnaða 1981—1987.
varanlegt þetta fall verðbólgunnar
væri.
„Við höfum fullan hug á að fylgja
eftir verðbólguþróuninni, en ég verð
og hlýt að vekja sérstaka athygli á
því að stjórnvöld og þeirra nótar
voru afskaplega treg til að fylgja
vísitölunni upp á við. Það var legið
á ákvörðunum um nýja vexti upp á
við, þannig að til dæmis Lands-
bankinn varð af þeim sökum fyrir
stórtapi fyrri hluta ársins. Og við
þurfum að vinna það upp. Þess vegna
skoðum við okkur vel um bekki. En
hér er alveg föst ákvörðun um það
að við ætlum ekki lengi að láta
standa á okkur að fylgja vísitölu, en
heimtum að það verði þá bæði upp
og niður,“ sagði Sverrir ennfremur.
Iðnaðarbankinn, sem er með 32%
kjörvexti af skuldabréfum og 33,5%
almenna vexti, var einn banka um
að tilkynna um lækkun vaxta um
2% frá 1. september. Aðspurð um
af hveiju bankinn hefði ekki tilkynnt
frekari lækkanir vegna þróunar verð-
bólgunnar, sagði Kristín Guðmunds-
dóttir, forstöðumaður fjármálasviðs
bankans, að staðreyndin væri ein-
faldlega sú að hingað til hefði það
tekið talsverðan tíma að aðlaga vexti
óverðtryggðra liða lækkandi verð-
bólgu. Þannig hefði það verið í fyrra-
haust þegar verðbólgan fór niður á
við. Hins vegar yrðu vextirnir endur-
skoðaðir fyrir næsta vaxtabreyting-
ardag 1. september.
Verðbólgan á mælikvarða láns-
kjaravísitölu undanfarnaþrjá mánuði
er 18,8%, ef mið er tekið af síðustu
sex mánuðum 21,3% og af síðustu
12 mánuðum 14,6%. Vextir af verð-
tryggðum lánum eru 7,4%, en óheim-
ilt er að lána verðtryggt til styttri
tíma en tveggja ára.