Morgunblaðið - 12.11.1989, Qupperneq 1
HEIMILI
£33
SUNNUDAGUR 12. NOVEMBER 1989
BLAÐ
B
Byggmgasjóóiir:
Lánaði 7,8
miUjaróa
i fyrra
JW
Utlán Byggingasjóðs ríkis-
ins í fyrra voru samtals
rúmir 7,8 milljarðar króna og
höfðu aukist úr 4,7 milljörðum
frá árinu 1985 á núgildandi
verðlagi. Raunaukning er því
65% á þessu tímabili. Þessi
aukning endurspeglar þau um-
skipti sem urðu í almenna hús-
næðislánakerfinu með með
gildistöku nýrra laga í þessu
efni árið 1986. Eins og fram
kom í síðasta fasteignablaði
urðu hins vegar talsverðar
breytingar á vægi einstakra
útlánaflokka. Á meðfyigjandi
mynd sést hver þróunin varð í
útlánum Byggingasjóðs ríkis-
ins íeinstökum útlánaflokkum.
Fjárhæðir framreiknaðar til
núgildandi verðlags sýnast
hafa haldist svipaðar í öðrum
lánum og lánum til nýbygginga
(F-lánum). Útlán til kaupa á '
eldri íbúðum tóku á hinn bóg-
inn risastökk milli áranna 1986
og 1987 og jukust um 165%.
Þau jukust síðan enn lítiliega í
fyrra.
Rétt er að taka fram að und-
ir önnur lán flokkast svonefnd
greiðsluerfiðleika lán, lán til
íbúða vegna aldraðra, lán til
viðbóta og endurbóta, lán til
útrýmingar heilsuspillandi
hús næðis og ián til Æ
einstaklinga
með sérþarfir.
UTLAN BYGGINGARSJOÐS RIKISINS1985-88
(í milljónum króna
á verðlagi í nóv. 1989)
Nýbyggingarlán
F - LÁN
2564
Lán til kaupa á
eldra húsnæði
G-LÁN
3810
3862
Heimild: Húsnaeðisslofnun ríkisins
2664
2711
Onnur lán
1671
1437
1055
1121
1253
983
Góð eða
léleg t irt-
gerðarefnl
Undanfarin ár hafa í vax-
andi mæli komið hér á
markaðinn tilbúin viðgerð-
arefni, þar sem ekkert vant-
ar annað en vatnið. í slíkar
blöndur hefur gjarnan verið
blandað ýmsum íblöndunar-
efnum til að kalla fram sér
eiginleika svo sem hraða
hörðnun, mikla þjálni, góða
viðloðun, litla rýrnun eða
jafnvel þenslu við hörðnun.
í þættinum Markaðurinn
ídag fjallar Hákon Ólafsson,
forstjóri Rannsóknastofn-
unar byggingariðnaðarins
um þessi efni. Hann segir,
að þvífleiri efni, sem eru á
markaðnum, því meiri nauð-
syn er á því að geta metið
gæði efnanna á einhlítan
hátt, það er að segja að
geta skilið á milli lélegra og
góðra efna.
'85 ‘86 ‘87 ‘88
'85 '86 '87 '88
'85 '86 '87 '88
Bruna-
vamir
Tjón af völdum eldsvoða í
ibúðarhúsum hér á landi er
með því minnsta, sem þekkist
í heiminum. Öðru máli gegnir
um atvinnuhúsnæði, en miklir
eldsvoðar hafa orðið hér í hús-
næði af þvítagi á undanförnum
árum. Þetta kemur m. a. fram
í viðtali hér í blaðinu í dag við
Bergstein Gizurarson, bruna-
málastjóra ríkisins.
Bergsteinn segir, að Bruna-
málastofnunin sé alltof fáliðuð
til þess að geta gegnt því hlut-
verki, sem henni er ætlað. Hann
telur, að timburhús geti verið
betur úr garði gerð með tilliti
til eldvarna en byggingar úr
steinsteypu. Ástæðan er sú, að
í steinhúsum eru stundum allir
innveggir og klæðningar úr eld-
fimum efnum, sem fuðra upp í
eldvoða. Hann hveturtil þess,
að steinullin sé notuð
sem mest. Hún
brennurekki og
einangrar líka
önnur bygg-
ingarefni
frá eldi og
hita.
Steinull
ætti t. d.
að vera
íöllum
léttum
milli-
veggjum.