Morgunblaðið - 12.11.1989, Blaðsíða 2
2 6
MORGUNBIjAPIÐ FASTEIGIMiRi SlgjSimTfiGI ;r 12. NÓVEMBER, 1989
Húsbréfakerfid:
Víótækur kymiiiigar-
hindur á þríójudag
Á von á byrjunarördugleikum viö frainkvæiiid
husbrcfakerfisins, segir Þórólfur llalldórssun.
formaóur Félags fasfeignasala
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ, Húsnæðisstofnun ríkisins og Félag
fasteignasala gangast í sameiningu fyrir kynningarfúndi á húsbréfa-
kerfinu þriðjudaginn 14. nóvember nk. í Borgartúni 6 (Rúgbrauðs-
gerðinni) og hefst hann kl. 9 árdegis og stendur til hádegis. Þann
tíma verða allar fasteignasölur á landinu lokaðar, þar sem allt starfs-
fólk fasteignasala mun sækja þessa kynningu.
Framsögu á fundinum hafa Sig-
urður Geirsson, nýráðinn for-
stöðumaður Húsbréfadeildar Hús-
næðisstofnunar ríkisins, Grétar J.
Guðmundsson, aðstoðarmaður fé-
lagsmálaráðherra, Hilmar Þórisson,
skrifstofustjóri Húsnæðisstofnunar,
Þórólfur Halldórsson, formaður Fé-
lags fasteignasala og Eiríkur Guðna-
son, forstöðumaður Verðbréfaþings
íslands.
Á þessum fundi er ætlunin að
kynna fasteignasölum og starfsfólki
þeirra þær starfsreglur, sem vinna
þarf eftir við fasteignakaup í hús-
bréfakerfinu. Farið verður yfir þau
eyðublöð, sem notuð verða fram-
vegis, hvemig staðið skuli að mati
á greiðslugetu íbúðarkaupanda og
hvernig nota megi fasteignaveðbréf
og húsbréf í viðskiptum.
Með tilkomu húsbréfakerfísins
verða innleidd sérstök eyðublöð, sem
notuð verða í fasteignakaupum, þar
sem kaupverðið er að hluta greitt
með húsbréfum. Þessi eyðublöð eru
kauptilboð, kaupsamningur og ný
eyðublöð undir skuldabréf, svokölluð
fasteignaveðbréf. Þá verða sérstök
eyðublöð undir vottorð um greiðslu-
getu, greiðslubyrði áhvflandi lána á
fasteignum o. fl.
Svonefndar vaxtabætur eiga eftir
að hafa talsverð áhrif a greiðslugetu
kupanda, en reglugerð um þær ligg-
ur ekki fyrir enn.
— Fasteignasalar eiga framvegis
að meta greiðslugetu kaupanda,
sagði Þórólfur Halldórsaon í viðtali
við Morgunblaðið. — í þeim tilgangi
þarf væntanlegur kaupandi að
leggja fram upplýsingar um eignir,
heildarlaun og heildarskuldir. Þegar
mat á greiðslugetu hans liggur fyr-
ir, getur hann farið að skoða eignir
með tilliti til greiðslugetu sinnar.
Byggingasjóður ríkisins greiðir
verðbætur á höfuðstól, vexti og
vaxtavexti húsbréfa í samræmi við
breytingar á lánskjaravítistölu frá
útgáfudegi bréfanna, 15. nóvember
1989, til gjalddaga, en höfuðstóll,
verðbætur, vextir og vaxtavextir
Þetta vottorð ræður því, hvað
kaupandi getur leyft sér að skoða
dýra eign. Jafnframt verða fast-
eignasalar að hafa upplýsingar um
veðhæfni þeirra eigna, sem þeir eru
með á söluskrá og ennfremur upp-
lýsingar um greiðslubyrði af þeim
áhvílandi lánum, sem kaupandi á að
yfirtaka.
Ég á von á því, að það verði tölu-
verðir byijunarörðugleikar í fram-
kvæmd húsbréfakerfisins, þar sem
fyrsta kynning á því á sér ekki stað
fyrir en daginn áður en það á að
taka gildi, sagði Þórólfur Halldórs-
son að lokum.
greiðast eftir á í einu lagi. Nafn-
vextir eru óbreytanlegir allan tímann
og reiknast frá 15. nóvember.
Jafnframt mun Byggingasjóður
innleysa og endurgreiða húsbréf að
fullu samkvæmt útdrætti á föstum
gjalddögum, sem verða 15. febrúar,
Fyi’sli llokkur
húsbréfa aUt aö
2 mlUjaróar kr.
SAMANLÖGÐ fjárhæð húsbréfa í 1. flokki skal vera að hámarki 2
milljarðar kr. Þessum flokk verður jafnframt skipt í þijá undirflokka,
það er 500.000 kr., 50.000 kr. og 5.000 kr. bréf. Lánstíminn er 25 ár
og ársvextir 5,75%. Húsbréfin eru jafnframt verðtryggð miðað við
lánskjaravísitölu og er grunnvísitala 1. flokks vísitala nóvembermánað-
ar í ár. Húsbréfín skuli skráð á nafii og er framsal til handhafa óheim-
ilt. Kemur þetta fram í reglugerð um útgáfú húsbréfa, sem enn hefiir
ekki verið birt.
15. maí, 15. ágúst og 15. nóvember
ár hvert. Skal draga út húsbréf fyr-
ir þá fjárhæð hveiju sinni, sem Hús-
næðisstofnun fær sjálf greitt af fast-
eignaverðbréfum. Verða númer hús-
bréfa birt í Lögbirtingablaðinu og
að minnsta kosti einu dagblaði. Verði
húsbréf ekki dregið út, endurgreiðist
það í samræmi við lánstímann, en
hámarkslánstími er 25 ár samkvæmt
framansögðu.
Rekstrarkostnaður húsbréfadeild-
ar og áætlað tap vegna útlána skal
greitt af tekjum deildarinnar og
ákveður félagsmálaráðherra lán-
tökugjald, allt að 1% og fast vaxfaá-
lag, allt að 0,1%, fyrir húsbréfadeild,
til að standa straum af rekstrar-
kostnaði deildarinnar. Nægi þessar
tekjur ekki til að standa undir út-
gjöldum, skal sérstakt framlag greitt
úr Byggingasjóði. Verði tekjur hins
vegar hærri en gjöld, skal mynda
sérstakan varasjóð til að bera þann
kostnað, sem verður af sveiflum í
tekjum deildarinnar og mögulegu
tapi vegna útlána.
Húsbréfadeildin ráðstafar hús-
bréfum til seljanda fasteignar og
verða þau gefin út á nafn hans í
skiptum fyrir þinglýst fasteignaveð-
bréf. Jafnframt á húsbréfadeildin að
stuðla að því, að húsbréf séu ávallt
seljanleg á markaði og í því skyni
leita eftir skráningu húsbréfa á
Verðbréfaþingi Islands og jafnframt
tryggja, að kauptilboð liggi ávallt
frammi á þinginu. Þá eiga löggiltir
fasteignasalar jafnan að hafa að-
gengilega skrá yfir verðgildi hús-
bréfa og upplýsa íbúðakaupendur
og íbúðaseljendur um öll atriði, sem
þau varða.
- Markaðurinn
Steýpanðgerðarebií
TILEFNIÞESS, að ég sendi Fasteignablaðinu þetta greinarkorn er
það, að hjá Rannsóknastofiiun byggingariðnaðarins er nýlokið tveim-
ur rannsóknarverkefhum, sem áhugaverð eru fyrir þá, sem sinna
þurfa viðhaldi og viðgerðum steyptra mannvirkja. Niðurstöður
beggja hafa verið gefiiar út í rannsóknaskýrslum, sem unnt er að
kaupa hjá Rb og Byggingaþjónustunni. Fyrri rannsóknin nefhist:
Sementsbundin viðgerðarefiii — prófanir og gæðamat.
Óloftblendin sterk steypa er ónýt eftir 80 frost>þíðu um
ferðir en ekki sér á loftblendinni steypu að lokinni prófui
eftir 300 umferðir (ASTM C 666).
um.
Undanfarin ár hafa komið á
markaðinn í vaxandi mæli til-
búin viðgerðarefni þar sem ekkert
vantar annað en vatnið. í slíkar
blöndur hefur gjaman verið blandað
ýmsum íblöndun-
arefnum til þess
að kalla fram sér
eiginleika svo sem
hraða hörðnun,
mikla þjálni, góða
viðloðun, litla
rýrnun eðajafnvel
þenslu við hörðn-
un. Slík efni hafa
verið seld í handhægum neytenda-
umbúðum og henta einkum til við-
gerða með fremur lítinn massa.
Slík tilbúin viðgerðarefni eru oftast
mun dýrari en múr blandaður á
staðnum eða í steypustöð, en þau
eru í mörgum tilfellum handhægari
og gæðin ættu að vera jafnari.
Því fleiri efni sem eru á markaðn-
um, því meiri nauðsyn er á því að
geta metið gæði efnanna á einhlítan
hátt, þ.e.a.s. geta skilið á milli lé-
legra og góðra efna. Þetta er þó
ekki auðvelt og mun flóknara en
ætla mætti í fyrstu. Hugtakið gæði
er nefnilega afstætt og verður að
miðast við það álag, sem efnið verð-
ur fyrir í raun og þá efniseigin-
leika, sem fyrir eru í þeirri steypu,
sem gera á við. Þannig verður við-
gerðarefnið að standast ytra álag
en samtímis að vera svipað grunn-
steypunni varðandi almenna eigin-
leika. T.d. er ekki æskilegt að gera
við veika, rakadræga steypu með
mjög sterku og þéttu viðgerðarefni.
Það verður því ætíð að velja við-
gerðarefni út frá mati á aðstæðum
og orsökum skemmda.
Til þess að auðvelda mönnum val
viðgerðarefna er í skýrslunni sett
fram tillaga að gæðamatslykli og
gefnar upp lágmarkskröfur til
ýmissa eiginleika, sem mikilyægt
er að viðgerðarefni búi yfir. í úr-
drætti á forsíðu segir:
Gerðar voru mælingar á helstu
eiginleikum 19 sementsbundinna
steypuviðgerðarefna, sem seld eru
fullblönduð. Til samanburðar voru
prófaðar tvær múrblöndur, bland-
aðar á staðnum. 1 skýrslunni er
gerð tillaga að gæðamatslykli fyrir
slík efni þar sem sett eru fram
mæligildi fyrir hina ýmsu eiginleika
og þeir flokkaðir eftir þeim í lélegt
— sæmilegt — gott. Eiginleikar
blandnanna eru síðan flokkaðir í
heild skv. því.
Áhersla er lögð á, að sumir eigin-
leikar geta skipt meira máli en aðr-
ir í ákveðnum verkum, og er þá
eðlilegt að gefa þeim aukið vægi
við gæðamat.
Síðari rannsóknin nefnist: Sam-
band rakadrægni og veðrunarþois
steinsteypu.
Niðurstöður í skýrslunni stað-
festa það að steypa, sem uppfyllir
þær kröfur, sem nú eru gerðar í
byggingareglugerð, er ágætlega
veðrunarþolin. í henni kemur jafn-
framt greinilega fram, að loftblendi
er veigamesti þátturinn til að
tryggja veðrunarþol. Þannig molnar
sterk óloftblendin steypa niður í
veðrunarþolsprófun og er ónýt eftir
80 frost-þíðu umferðir á meðan
ekki sér á sams konar steypu, sem
er vel loftblendin að lokinni prófun
eftir 300 umferðir (prófunaraðferð
ASTM C 666). Þetta sést vel á
mynd 1.
Fullyrða má að ófullnægjandi
íblöndun lofts sé langveigamesta
orsök tíðra grotnunarskemmda t.d.
I svalahandriðum húsa þar sem
veðrunaráraun er mikil.
Helstu orsakir þessa eru m.a.:
— engar kröfur eru gerðar um lott-
blendi í steypustaðlinum ÍST-10,
en tæknimenn vísa gjarnan í þann
staðal.
— loftblendi rýrir styrk. Framleið-
endur hafa því notað lágmarks loft-
íblöndun til að ná ákveðnum styrk-
leikaflokkum af hagkvæmnisástæð-
— við langan hrærslutíma minnkar
loft í steypu. Þjálniefni og steypu-
dælur hafa einnig áhrif þar á.
— loftþörf hefur aukist seinni ár
vegna þess að steypa er nú mun
fíngerðari (minni steinar) en áður.
Það þýðir að sementsefjan er stærri
hluti steypunnar.
Árið 1983 var við Rb gefið út
tækniblað um hönnun steinsteypu
þar sem fram kemur, hvaða kröfur
á að gera til steypu tii að tryggja
veðrunarþol hennar við mismunandi
aðstæður. Vorið 1987 þótti þó nauð-
synlegt að setja slíkar kröfur í
byggingareglugerð, og þar með lög-
festa þær. Verulega aukið eftirlit
er jafnframt með steypugerð í
Reykjavík frá þeim tíma.
Framannefndar rannsóknir voru
kostaðar af Steinsteypunefnd.
Höfundur er forsljóri Rannsókna-
slofnunar byggingariðnaðarins.
effn Hókon
Ólafsson