Morgunblaðið - 12.11.1989, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SÍJNNUBkjGÚR; Í2i NÓVEMBER 1989
10 B
f ........
Fullbúnar íbúðir í Setbergslandi í Hafnarfirði
2ja, 3ja, 5 og 6 herb. íbúðir
- Húsið er uppsteypt nú þegar og íbúðir til afh. í vor.
- Húsið einangrað og klætt Stenex plötum utan og viðhaldskostnaður því í algjöru lágmarki.
- íþúðirnar skilast fullbúnar utan sem innan.
- Byggingaraðili lánar allt að 40% á venjulegum bankavöxtum í allt að 4 ár.
- Húsið er á mjög góðum stað í Setbergsdalnum með góðu útsýni. Stutt í skóla og
alla þjónustu.
- Alls eru átta íbúðir í húsinu.
íbúðirnar skilast fullmálaðar, teppi, dúkar og parkett sett á gólf, með uppsettri eld-
húsinnréttingu ásamt eldavél. Fataskápar í svefnherbergjum, innihurðir og fullbúið bað-
hergi ásamt hreinlætis- og blöndunartækjum. Raflagnir fullfrágengnar. Sameign er sömu-
leiðis fullfrágengin með dyrasímum, póstkössum o.þ.h. Lóðin er tilbúin og bílastæði
malbikuð.
Verð:
2ja herb. á 1. og 2. hæð 82fmbrúttó........................kr. 5.950.000,00 (4 íb.)
3ja herb. á 2. hæð 121 fm brúttó.......................kr. 7.600.000,00 (1 íb.)
5 herb. „penthouse" 138 fm brúttó ....................kr. 8.350.000,00 (2 íb.)
6 herb. „penthouse" 176 fm brúttó......................kr. 9.850.000,00 (1 íb.)
Ef þú ert í íþúðarhugleiðingum og ert e.t.v. með lánsloforð frá Húsnæðismálastofnun,
skaltu athuga þessar íbúðir vel og bera verð saman við eignir sem eru skemmra á veg
komnar. Hér færðu nýja fullbúna íbúð og veist heildarverðið strax.
Byggingaraðilar: Dverghamrar sf. verða til viðtals á skrifstofu okkar í dag frá kl. 1 -3 e.h.
í
Allar nánari upplýsingar veitir:
Hraunhamar hf. fasteigna- og skipasala,
Reykjavíkurvegi 72,220 Hafnarfirði, sími 54511.
4 x 200 fm - til sölu eða leigu
í þessu húsi við Réttarháls eru til sölu og leigu
fjórar samliggjandi einingar. Til afh. fljótlega.
Fjöldi bílastæða. HAGSTÆTT VERÐ
VAGN JÓNSSON (F
FASTEIGISIASALA SUÐURLANDSBRAUT18 SIMI 84433
LÖGFRÆÐINGUR ATU VAGNSSON____________
Byggung Kópavogi
Byggung, Kópavogi, auglýsir lausar til umsóknar tvær
4ra herb. og eina 5 herb. íbúð í 11. byggingarflokki við
Trönuhjalla 1-3 í Kópavogi. Áætlað er að íb. verði af-
hentar fullfrág. í árslok 1990.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins í Hamraborg
1, 3. hæð, sími 44906.
Híbyli/Garður
Af rósabööum o§ fleiru
Sjálfsagl, er það fyrsta upplifun okkar allra, eftir að hafa farið
úr vatni í móðurkviði, að við vorum böðuð. Manninum virðist vera
það eðlilegl að líða vel í vatni, og er það rakið til verunnar í móður-
kviði.
þannig að hvort tveggja myndi auð,-
veldlega rúmast. Oft er þetta þó
leyst með sturtuhaus yfir baðker-
sendanum, sem engan veginn kem-
ur til jafns við sturtuklefa og einn-
ig eru komin á markaðinn_ baðker
með sturtubotni í annan endann,
þannig að auðveldara er að fóta
sig. Eg held það séu nokkrar ástæð-
ur fyrir því að sturtan verði iðulega
frekar fyrir valinu. Fólk telur það
þrifalegra en að „liggja í eigin
óhreinindum", það gefur kost á
meiri innréttingum og þar af leið-
andi oft fallegra baðherbergi. Ein
ástæðan er enn ótalin, íslendingar
eru flestir alltaf á hlaupum og hafa
ekki tíma til þess að bíða eftir að
renni í baðkerið, hvað þá að leggj-
ast í það og veitir ekki af steypi-
baði til þess að hressa sig við eftir
alltof langan vinnudag.
Mér finnst baðherbergin yfirleitt
vera höfð og Iítil og vera örlítið
útundan í heildarhönnun húsa.
Æskilegt þætti mér að salerni og
baðherbergi væru aðskilin, sem að
vísu hefði aukakostnað í för með
sér, þannig að baðherbergið nyti
sín sem herbergi athafna í stað
þess að vera einungis herbergi
Góð lausn þar sem allt þarf að
rúmast í litlu baðherbergi. Takið
eftir sturtuklefanum.
1 1 ÍrfJ
JH__ \ o|—M
Hér á landi fjölgar sífellt þeim
baðherbergjum þar sem ein-
ungis er sturta en baðker ekkert.
Húsbyggjendur standa gjarnan
frammi fyrir því að þurfa að velja
aanaBHga á milli baðher-
bergis með bað-
keri og nánast
engum innrétting-
um eða með sturtu
og meira nýtan-
legu plássi. Nán-
ast undanteking-
arlaust er það
síðari kosturinn
eflir Elísabetu V,
Ingvarsdóttur
sem er valinn og tel ég það miður.
Ég álít það nánast nauðsynlegt að
hafa möguleika á báðum þessum
kostum og mér finnst að staðall
yfir baðherbergisstærð ætti að vera
frumþarfa. Ég er sammála þeim
merkiskonum Kleópötru og Rósu
að gera það að virkileri athöfn að
baðast, þar sem líkami og sál eru
dekruð, hvort sem baðkerið er fyllt
af mólk eða rósum.
Böð á ymsan máta
Heimildir um notkun baða til
lækninga má fjnna í texta á sanskrít
frá því um 400 fyrir okkar tímatal.
Fornleifar, nokkurskonar pípulögn
og frárennsliskerfi hafa fundist í
höll Nestors konungs sem er ekki
langt frá borginni Pylos í Grikk-
landi og benda þær til baðnoktun-
ar. Það eru þó aðallega Rómveijar
sem voru frægir fyrir böð sín og
þeir kynntu þau öðrum þjóðum.
Hippókrates, sem nefndur hefur
verið faðir læknisfræðinnar og var
uppi um 400 árum f.Kr., lýsir því
að til lækninga á stífum vöðvum
og stirðum liðum sé besta ráðið að
liggja í heitu baði og nudda skrokk-
inn.
Það er ekki aðeins í íslensku
nútímaþjóðfélagi sem vinnuþjarkar
fyrirfinnast sem hvergi geta slapp-
að af, berandi farsímann hvar sem
er, jafnvel í líkamsræktinni. Stærð-
fræðingurinn Arkimedes á að hafa
verið álíka upptekinn af starfi sínu.
Sagt er að loks þegar þjónar hans
hafi fengið hann til þess að baðast
og hófu að smyija líkama hans hin-
um ýmsu smyrslum og olíum hafi
hann notað tækifærið á meðan og
dregið upp stærðfræðireglur með
fingrunum í kvoðuna á nöktum
líkamanum, enda varð ein af hans
merkari uppgötvunum, lögmálið um
rúmtak hluta, til í baði.
Það er þó ekki nokkur þjóð sem
hefur tileinkað sér og gert „baðat-
höfnina“ að eins mikilli hefð og
Japanir og sagt er að það fyrirfinn-
ist vart sú pínulitla íbúð í Japan sem
ekki hefur einhvers konar baðker.
Allavega herbergi athafna.
Steintekinn þrifhaður
Ekki er svo ýkjalangt síðan að
baðker urðu sjálfsagður hlutur í
öllum íslenskum vistai'verum, það
var ekki fyrr en um miðja öl.dina
og er það kannski ástæðan fyrir
minni vinsældum baðkersins, því
engin rótgróin hefð hefur skapast
fyrir notkun þess. Reyndar kynnt-
ust íslendingar þrifnaði seint og var
óþrifnaður þeirra á 17. og 18. öld
með slíkum eindæmum að allar
ferðabækur frá þessum tíma greina
frá honum. Þó er talið að fornmenn
hafi verið þrifnir og farið til lauga,
en með eymdinni og afturförinni
eftir siðaskiptin hrakaði þessu sem
öðru.
Nú á tímum þekkja allir baðkerið
og íslendingar orðnir þrifnaðarþjóð
sem gerir miklar kröfur til al-
mennra lífsgæða, en setur oft til
hliðar þau atriði sem varða heilsu
og andleg verðmæti. Það er ekki
nóg að allt sé flott, það verður líka
að yera gott.
Ég hef oft furðað mig á því hvers
vegna engum hefur dottið í hug að
framleiða bækur úr plasti fyrir full-
orðna, samskonarþeim sem ætlaðar
eru kornabörnum.
(í næstu grein mun ég fjalla nánar um
baðherbergið og skipulag þess.)