Morgunblaðið - 12.11.1989, Qupperneq 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ.
FASTEIGNIR
SUNNUDAGUR 12. NOVEMBER 1989
+
VITA5T1G B
26020-26065
Opið í dag 1-3
Maríubakki. Einstaklib. 30 fm
sérinng. Verð 2,9 millj.
Fljótasel. 2ja herb. íb. 40 fm í
tvíbhúsi. Sérinng.
Laugavegur. 2ja herb. íb. á 2.
hæð 40 fm. Verð 2,8 millj. Laus.
Engihjaíli — Kóp. 3ja herb. íb.
80 fm.
Hringbraut. 2ja herb. íb. 50 fm.
Mikið endurn. Nýtt gler. Laus. Verð 3,8
millj.
Fannafold — parh. 3ja herb.
íb. ca 80 fm auk 22ja fm bílsk. Mögul.
á garðstofu. Nýtt húsníán áhv.
Frakkastígur. 2ja herb. íb. 55
fm. Sérinng. Verð 2,8 millj.
Laugavegur. 4ra herb. íb. ca 100
fm í bakh. í tvíb. Mikið endurn. Nýjar
innr. Verð 5,6 millj.
Kpngsbakki. 4ra herb. íb.
90 fm á 3. hæð. Stórar svalir.
Góð sameign. Verð 5,7 millj.
Hrafnhólar. 4ra herb. íb.
110 fm í lyftubl. Frábært útsýni.
Verð 6,2 millj.
Melgerdi — Kóp. 4ra herb. góð
sérhæð 109fm. Suðurgarður. Bílskréttur.
Leifsgata. 4ra herb. íb. á 1. hæð
90 fm.
Hraunbær. 4ra herb. góð íb. á
2. hæð. 110 fm. Verð 6,5 millj.
Hraunbær. 4ra herb. íb. 110 fm
á 3. hæð. Tvennar svalir. Herb. á jarðh.
Verð 6,5 millj.
IMjálsgata. 4ra herb. íb. 100 fm á
jarðhæð. Sérinng. V. 5,5 m.
Boðagrandi. 4ra herb. íb.
ca 100 fm á 8. hæð i lyftuh.
Bílskýli. Fráb. útsýni. Verð 7,9
millj.
Hraunbær. 5 herb. íb. á
3. hæð 125 fm. Suðursvalir. Verð
7,1 millj. Makask. mögu. á góðu
einbh.
Engjasel. 4ra herb. íb. 100 fm á
tveimur hæðum. Góðar innr. Bílskýli.
Verð 6,5 millj.
Grettisgata. 5 herb. íb. ca 160
fm á 3. hæð. Glæsil. innr. Verð 8,9 millj.
Breiðás — Gbæ. Efri sérhæð
ca 130 fm auk bílsk. Suöursvalir. Maka-
skipti á minni eign.
Reykjafold. Neðri sérh. í tvíb. ca
170 fm. Skilast tilb. u. trév. Teikn. á
skrifst.
Kleifarsel. Endaraðh. 180
fm. Innb. bílsk. Fallegar innr.
Suöurgarður. Verð 11,5 millj.
Hálsasel. Raðh. á tveimur
hæðum 220 fm. góður bílskúr.
Suður garður. Verð 11 millj.
Sæviðarsund. Endaraðh.
á tveimur hæöum 235 fm m.
innb. bflsk. Suðurgarður.
binghólsbraut. Einbhús á
tveimur hæðum ca 155 fm. Stór suður-
garður. Bílskréttur.
Salthamrar. Glæsil. einbhús á
einni hæð 185 fm m/innb. bílsk. Húsið
skilast fullb. að utan, fokh. að innan.
Teikn. á skrifst.
Baughús. Einbhús á tveimur hæð-
um 205 fm m/innb. bílsk. Húsið skilast
fullb. að utan, fokh. aö innan.
Skólavörðustígur. Tll
sölu ca 50 fm verslhúsn. Verð
3,5 millj;
Kársnesbraut. Iðnaðar- og
verslhúsn. til sölu ca 370 fm. Góð lán
áhv. Laust nú þegar.
Lyngás — Gbæ. Tii sölu iðnað-
ar- og verslhúsn. sem er 100 fm að
stærð í nýbyggingu. 2 stórar innkeyrslu-
dyr. Teikn á skrifst.
Vesturhús. Bygglóð 725 fm að
stærð.
Sérverslun. Til sölu þekkt sér-
versl. í miðb. Góðar vörur. Góð umboð.
Uppl. á skrifst.
Söluturn til sölu á góöum stað.
Góð velta. Uppl. á skrifst.
Vantar — vantar gott raðhús
eða sérh. m/góðum lánum fyrir traustan
kaupanda í Grafarvogi eða nágr.
éF
Bergur Oliversson hdl.,11
Gunnar Gunnarsson, s. 77410.
Fyrlrbyggjandi biiina-
vainlr skipta mestu mali
segir Bergsleinn Gizurarson brunamálastjóri
— íbúðarhús hér á landi eru yfirleitt mjög vel úr garði gerð með
tilliti til brunavarna. Tjón af völdum eldsvoða í þeim er líka með
því lægsta, sem gerist í heiminum. Aftur á móti höfnm við ekki
fylgzt með, hvað varðar brunavarnir í stóru atvinnuhúsnæði. Það
er eins og brunavarnir hafi þar orðið út undan. Hér á landi hafa átt
sér stað eldsvoðar í atvinnuhúsnæði á undanfórnum árum, sém hafa
leitttil þess, að brunatjón hefur orðið miklu meira en ella. Saman-
burðartölur við önnur lönd eru okkur því ekki hagstæðar á því sviði.
Þannig komst Bergsteinn Gizur-
arson, brunamálstjóri ríkisins
að orði í upphafi viðtals við Morgun-
blaðið. — Það dró mjög úr bruna-
tjónum hér á landi, þegar gömlu
timburhúsunum
fækkaði og öld
steinsteypuhús-
anna gekk í garð,
segir Bergsteinn
ennfremur. —
Þetta má eflaust
þakka góðum eig-
inleikum stein-
steypunnar til að
eftir Magnús
Sígurðsson
veijast eldi. Hér var í fyrstu um
að ræða fremur smá hús, steypt í
hólf og gólf og skipt í lítil rými.
Einnig átti eflaust sinn þátt í þess-
ari þróun meira eftirlit með frá-
gangi raflagna, bygging hitaveitna
og aukin rafhitun, svo að olíukynnt-
um húsum fækkaði.
Þessu er hins vegar á annan veg
farið, að því er varðar atvinnuhús-
næði. Nokkrir stórbrunar hjá at-
vinnufyrirtækjum hafa árlega orðið
til þess, að brunatjón hér á landi
hefur vaxið frá því að vera með því
lægsta í heimi á íbúa upp í það að
vera sambærilegt við brunatjón í
hinum stóru iðnríkjum Vesturlanda.
Þetta gerist þrátt fyrir það, að aðal-
atvinnuvegir okkar byggjast ekki á
iðnaði, sem mikil eldhætta fylgir.
Ennfremur þurfum við ekki að hafa
einsTniklar áhyggjur af skemmdar-
verkum og íkveikjum, sem hafa
aukizt víða erlendis.
Á Norðurlöndum hefur tjón af
völdum bruna verið hlutfallslega
mest í Noregi og stundum tvisvar
sinnum meira en hjá okkur. Þar er
mikið um timburhús, sem eru þann-
ig byggð, að eldsvoðar í þeim virð-
ast vera mun tíðari en hér. Rétt er
að taka fram, að erfitt er að meta
brunatjón í samanburði við önnur
lönd. Hér getur gengisskráning
haft áhrif og byggingakostnaður
og erfitt er að fá raunhæfar tölur
frá tryggingafélögunum.
Bergsteinn Gizurarson er fæddur
í Reykjavík 1936 og alinn upp í
Vesturbænum. Hann gekk í
Menntaskólann í Reykjavík og að
afloknu stúdentsprófi hóf hann nám
í byggingarverkfræði við Háskóla
íslands, en hélt síðan til náms við
háskólann í Kaupmannahöfn, þar
sem hann lauk prófi 1962. Hann
var síðan við framhaldsnám i eitt
ár við háskólann í Berkley í Kali-
forníu. Eftir að Bergsteinn kom
heim, starfaði hann fyrst í sjö ár
sem verkfræðingur hjá várnarliðinu
á Keflavíkurflugvelli. Síðan vann
hann í þrjú ár hjá Rafmagnsveitum
ríkisins og 12 ár hjá Hafnarmála-
stofnun, en árið 1986 var hann
skipaður brunamálastjóri ríkisins.
Kona hans er Marta Bergman og
er hún félagsmálastjóri í Hafnar-
firði.
Aðeins stöður fyrir átta
starfsmenn
Gix'km daginrt!
— Hér hjá Brunamálstofnun
starfa aðeins 10 manns í átta stöð-
um, sem er alltof lítið, segir Berg-
steinn ennfremur. — Það mætti svo
sannarlega fjölga starfsmönnum
um helming, án þess að okkur vant-
aði verkefni. Skyldur stofnunarinn-
ar eru það fjölbreytilegar, að hún
ræður í rauninni ekki við það hiut-
verk, sem henni er ætlað. Starfs-
fólkið skiptist þannig, að hér starfa
tveir til þrír verkfræðingar auk
mín. Þá eru hér tveir fyrrverandi
slökkviliðsmenn, sem sinna kennslu
og eldvarnaeftirliti og tveir menn,
sem sjá um hönnunareftirlit með
byggingum og ráðgjöf. Einnig er
hér skrifstofustjóri, sem annast
skrifstofuhald stofnunarinnar.
Samkvæmt . reglugerð ber að
senda teikningar af vissum nýbygg-
ingum til Brunamálastofnunar til
samþykkis og sér svonefnd hönn-
unareftirlitsdeild um að yfirfara
þær. — Undanfarin ár höfum við
fengið til meðferðár um 200 bygg-
ingar á ári til samþykktar varðandi
brunahönnun, segir Bergsteinn. —
Það er um það bil ein bygging á
hvern virkan dag. Einnig er tölu-
vert um það, að arkitektar komi
hingað og leiti ráða, á meðan þeir
eru að vinna að einhverri byggingu.
Þetta er verkfræðileg vinna á háu
stigi og er hún að mestu unnin af
einum verkfræðingi, sem auk þess
þarf að sinna ýmsum öðrum skyldu-
störfum. Ekki er um neinn annan
að ræða og því geta mikil vandræði
orðið, ef hann forfallast t.d. vegna
veikinda.
Svonefnd viðurkenningadeild sér
um viðurkenningar Brunamála-
stofnunar á efnum til bygginga,
slökkvitækjum, slökkvikerfum og
viðvörunarkerfum og hún heldur
skrá yfir efni og tæki, sem hlotið
hafa viðurkenningu Brunamála-
stofnunar. — Þetta er tæknivinna,
sem þarfnast mikillar þekkingar á
brunaeiginleikum byggingarefna,
segir Bergsteinn. — Við hana starf-
ar einn verkfræðingur.
Enn eitt verkefni Brunamála-
stöfnunar er fræðsla og þjálfun
slökkviliðsmanna, en þar starfar
einungis einn deildarstjóri. — Það
segir sig sjálft, að það er einnig
alltof lítið, heldur Bergsteinn áfram.
— Verkefni fræðslu- og þjálfunar-
deildar eru m. a. þau að hafa æfing-
ar með slökkviliðum um allt land
og sjá um gögn til kennslu og þjálf-
unar fyrir slökkivliðsmenn.
Þessi deild þyrfti því að koma
sér upp aðstöðu til kennslu. Komið
hefur til greina, að við fengjum
landssvæði í þeim tilgangi. Við
þyrftum jafnvel að eiga húsnæði,
þar sem við gætum geymt nauðsyn-
leg tæki fyrir þessa kennslu og til
aðstoðar slökkviliðum úti á landi.
Ef þar verða bilanir, þá eru mörg
þeirra þannig útbúin, að þau hafa
engin tæki til vara. Brunamálstofn-
un þyrfti að hafa viss tæki í sinni
eigu, sem hún gæti lánað tímabund-
ið t.d. slökkvibíl.
Nefna má hér, að á sl. ári keyptu
sveitarfélögin í landinu hálft
fimmta hundrað hlífðarfatnaði fyrir
slökkviliðsmenn, sem þýðir, að
keyptur hafi verið nýr hlífðarfatn-
aður á fjórða hvern slökkviliðsmann
á landinu. í sögu brunavarna á ís-
landi hefur aldrei verið gert annað
eins átak á því sviði.
Erlendis eru stórir slökkiviðliðs-
mannaskólar með fjölda kennara
og aðstöðu, sem er ákaflega dýr.
Finnar eru t. d. að byggja sérstakan
skóla fyrir slökkvilið fyrir sem nem-
ur 2,5 milljörðum ísl. kr., en skólar
af þessu tagi þurfa að vera mjög
stór mannvirki, svo að unnt sé að
kenna hinar ýmsu greinar. Eg tel
ekki raunhæft að gera ráð fyrir
slíkum skóla hér á landi, en margt
má samt gera á þessu sviði.
Reglur um geymslu á olíu
og gasi
Einn þáttur í starfsemi Bruna-
málastofnunar er mjög fræðilegs
eðlis og felst í því að semja reglur
á sviði brunavarna. Líkt og um
hönnunareftirlits- og viðurkenn-
ingadeildirnar, þá eru þetta tækni-
leg störf, sem kreijast mikillar
þekkingar. — Að undanförnu höfum
við unnið að því að semja drög að
reglugerð um geymslu á eldsneyti
eins og olíu og gáki og má gera ráð
fyrir því, að stofnunin sendi þær
frá sér á næstunni til félagsmála-
ráðuneytisins, segir Bergsteinn. —
Einnig er unnið að reglum um hand-
slökkvitæki. Vinna af þessu tagi
er mjög tímafrek og því þyrftu að
vinna við hana að staðaldri einn til
tveir verkfræðingar. Nú er hér hins
vegar engin staða við embættið
fyrir verkfræðing, sem vinna á að
þessum málefnum, en nokkur vinna
verið keypt á þessu ári af sjálf-
stætt starfandi verkfræðingum.
Loks má nefna svonefnda eftir-
■lits- og tækjadeild, en hún á að
halda uppi reglubundnu eftirliti með
..'WSÍfe.
eldvarnir
i iðnaðar- OG
atvinnuhúsn/vði
BKUNAMÁ'.A.! 'V
sTorNUN
m
Brunamálastofiiun gengzt fyrir
útgáfu bæklinga um brunavarn-
ir. Elri bæklingurinn fjallar um,
hvernig fólk skuli bregðast við
eldsvoða. Hann var gefinn út í
fyrra í 60.000 eintökum og bor-
inn út á heimili. Neðri bæklingur-
inn er nýkominn út. Hann fjallar
um eldvarnir í iðnaðar- og at-
vinnuhúsnæði og verður borinn
út í fyrirtæki. Hann er gefinn út
af fyrirtækinu Frjáls markaður
hf. í samvinnu við Brunamála-
stofnun og kemur út í 20.000 ein-
tökum.
ástandi brunavarna í eidri bygging-
um og eldvarnaeftirliti sveitarfé-
laga. Þessi deild á einnig að fylgj-
ast með tækjakosti slökkviliða og
halda skrá yfir hann og jafnframt
að setja fram kröfur um viðhald
hans og endurbætur.
Hvað eldri byggingar snertir, þá
stefnir Brunamálastofnun að því,
að framkvæma úttekt á flestum
þeirra. Þetta gildir um allt stærra
atvinnuhúsnæði og húsnæði þar
sem fólk dvelst annars staðar en
heima hjá sér, það er sjúkrahús,
Bergsteinn Gizurarson,
brunamálastjóri.
samkomuhús, gistihús o. s. frv. í
heild er hér um 5000 hús og bygg-
ingar að ræða í landinu. Á sl. ári og
í ár hefur stofnunin kerfisbundið
unnið að því að taka út þessar bygg-
ingar út um land. Það verk er langt
komið, en eftir eru því einungis
stærstu þéttbýlisstaðirnir úti í landi
og JReykjavík.
Á undanförnum þremur árum
hefur átt sér stað markviss tölvu-
væðing hjá Brunamálastofnun og
eru allar brunavarnaskýrslur nú
geymdar í tölvubanka og þar notað
flokkunar- og númerakerfi Fast-
eignamats ríksisins. Vegna tölvu-
væðingarinnar tókst að vinna
skýrslur um 700 brunaúttektir á
síðasta ári, sem er margfaldur sá
íjöldi, er unninn hafði verið með
fyrri aðferðum.
Nú er þegar komin á samvinna
milli Vátryggingarfélags íslands og
Brunamálastofnunar, þar sem fé-
lagið mun nýta sér úttektarskýrslur
stofnunarinnar og þá einkunnagjöf,
sem þar kemur fram. í framtíðinni
verður væntanlega komið á tölvu-
sambandi um símalínur milli Bruna-
málastofnunar og tryggingafélag-
anna, svo að þau geti alltaf haft
aðgang að skýrslubanka stofnunar-
innar.
— Fyrir rúmu ári hófum við einn-
ig að gera skýrslur um eldsvoða,
segir Bergsteinn. — Athygli okkar
beinist að því, hvernig viðkomandi
bygging hafi reynzt í eldsvoðanum,
það er hvort eldurinn nær að breið-
ast út í byggingunni og hvað það
er, sem fæðir hann. Fyrirbyggjandi
brunavarnir beinast ekki hvað sízt
að þessu atriði, en einnig höfum
við áhuga á að kanna slökkvistarfið.
Eldsupptök lrá rafmagni
Sú spurning vaknar, hvort eldhætta
sé meiri í eldri húsum en þeim
yngri? Sumir halda því fram, að
rafmagnsleiðslur séu oft úr sér
gengnar í gömlum húsum ekki bara
vegna aldurs heldur líka vegna þess
að þau efni, sem þá voru notuð t.
d. til einangrunar, séu alls ekki
sambærileg við þau efni, sem notuð
eru nu.
— Gömul íbúðarhús úr timbri eru
nú orðin tiltölulega lítill hluti af
íbúðarhúsnæði og þar sem það hef-
ur verið í tízku að endurnýja þau
og breyta á síðustu árum, má ætla,
að raflagnir í þeim hafi verið end-
urnýjaðar um leið í flestum tilfell-
um, segir Bergsteinn. — Nefna má
samt hér, að á síðasta ári skoðaði
Brunamálstofnun gamla fangelsið
á Skólavörðustíg. í ljós kom, að
innréttingar í húsinu eru mjög eld-
fimar, þó að húsið sé sjálft byggt
úr steini og þarna virtust allar raf-
lagnir vera frá þeim tíma, er raf-
magn var leitt í bæinn upp úr alda-
mótunum og frágangur eftir því.
T