Morgunblaðið - 12.11.1989, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR
SUNNUDAGUR 12. NOVEMBER-11)89
B 13
Mynd af stórbruna, sera birtist í nýútkomnum bæklingi Brunamálastoftiunar um eldvarnir í iðnaðar-
og atvinnuhúsnæði.
Húsið er því með öllu óhæft sem
fangageymsla og spurning, hvort
Brunamálastofnun eigi ekki að
krefjast þess, að fangarnir þar verði
lokaðir úti en ekki inni.
— Ein helztu eldsupptökin í þeim
brunum, sem orðið hafa í fisk-
vinnsluhúsum hér á landi á undan-
förnum árum, eru rafmagn, segir
Bergsteinn. — Þegar fiskvinnslu-
húsin í Grímsey og Neskaupstað
brunnu, voru það rafmagnstöflur,
sem brunnu yfir í bæði skiptin.
Minna má á það hér, að rafmagns-
töflur eiga að vera á þeim stað og
í þannig umhverfi, að eldur geti
ekki breiðst út þaðan, þó að þær
brenni yfir.
Eldsvoði, sem varð ekki alls fyrir
löngu í frystihúsi í Garðinum, átti
einnig rót sín að rekja til raf-
magns. Það atvik átti sér þó stað
i tengslum við hleðslu á lyftara, en
slík hleðsla á að fara fram í alveg
sérstöku brunahólfi. Það er bruna-
hólfunin í þessum húsum, sem
skiptir lang mestu máli. Komi eldur
upp, á hann ekki að ná að breiðast
út á skemmri tíma en svo, að
slökkviliðið sé komið á staðinn og
geti ráðið niðurlögum hans.
Aður voru hús steypt í hólf og
gólf og skipt í sundur með steyptum
veggjum í tiltölulega lítil hólf. Slík
hönnun var auðvitað mjög heppileg
með tilliti til brunavarna. Upp á
síðkastið hefur þróunin verið í hina
áttina. Nú eru byggð lokuð stór
rými, sem eru hólfuð niður á eftir
með léttum milliveggjum eða skil-
rúmum, þannig að hús sem eiga
að heita steinhús eru kannski að
verulegu leyti byggð úr öðrum efn-
um. Þetta á ekki hvað sízt við um
stærra atvinnuhúsnæði.
Bergsteinn segir, að timburhús
geti verið miklu betur úr garði gerð
með tilliti til brunavarna en bygg-
ingar úr steinsteypu. — í stein-
húsum eru stundum allir innveggir
og klæðningar úr eldfimum efnum,
sem fuðra upp í eidsvoða. Timbur-
hús má vel byggja þannig, að þau
brenni illa.
Stál stendur sig aftur á móti illa
í bruna. Það þenst þá út og missir
fljótt burðargetuna, þegar hiti er
kominn upp í 450 stig á Celsius.
Ef límtré er efnismikið, getur það
staðið af sér langan bruna, vegna
þess að það tekur langan tíma að
brenna, en hitinn sem slíkur veldur
ekki því, að það missi burðarget-
una. Enn má nefna, að steinullin
sem einangrun er mjög heppileg
með tilliti til eldsvoða. Hún brennur
ekki og bráðnar fyrst við 1100-1200
stiga hita auk þess em hún einangr-
ar önnur byggingarefni frá eldi og
hita.
Aðalatriðið í sambandi við bygg-
ingar er að það sé tekið tillit til
brunavarna strax í hönnun og bygg-
ingu. Það hefur sýnt sig í eldsvoðum
undanfarinna ára, að það eru fyrst
og fremst brunavarnirnar í húsun-
um sjálfum, sem hafa brugðizt. Það
er af þessum sökum, sem Bruna-
málastofnunin hefur beint sínum
Iitla mannafla í meira mæli að fyrir-
byggjandi brunavömum.
Mikilvægasta viðfangsefnið í
starfi Brunamálastofnunar er samt
öryggi fólks og að vinna að því, að
allir komist heilu og höldnu úþ úr
húsum í eldsvoða. Þessu má ekki
gleyma. Brunavarnir eru alls ekki
eingöngu spurning um peninga
heldur fyrst og fremst um öryggi
fólks.
Bergsteinn var spurður að því,
hvaða ráð hann helzt vildi gefa tií
að afstýra eldsvoða og svaraði hann
þá: — Þar skiptir brunahólfunin
mestu máli. Þá vil ég ráðleggja öll-
um að nota steinullina sem mest.
Hún ætti að vera í öllum léttum
milliveggjum. Þá ætti í rauninni
aldrei að nota aðrar hurðir en fyllt-
ar hurðir með mótstöðu gegn bruna.
Fólk ætti ennfremur að nota eld-
varnarmálningu og eldvarnarlakk,
þar sem klætt hefur verið með eld-
fimum viðarklæðingnum.
Hins vegar ætti aldrei að nota
svonefndan filmukrossvið innan-
húss og að mínu mati ætti hann
að vera algerlega bannaður. Því
miður hefur slíkum krossviðar-
klæðningum verið dreift hér út um
allt inn í híbýli manna, þar sem þær
ættu alls ekki að sjást.
Þröngur fjárhagur
Brunamálastofnun hefur mátt
búa við mjög þröngan fjárhag und-
anfarin ár. Nú er hins vegar ný-
búið að endurskoða lög um svokall-
að brunavarnargjald, sem er aðal
tekjustofn hennar. Þetta gjald er
innheimt af tryggingarfélögunum
og leggst á tryggingarupphæð
brunatrygginga.
— Ætlunin með þessari endur-
skoðun var sú, að stofnunin gæti
staðið betur að vígi fjárhagslega,
en íjárhagsstaða hennar er alger-
lega óviðunandi, segir Bergsteinn.
— Ef við fáum að hagnýta okkur
þennan tekjustofn, þá má mikið
bæta bæði rekstur og starfsemi
stofnunarinnar, því að verkefnin
bíða. I fjárlagafrumvarpinu virðist
hins vegar aðeins gert ráð fyrir
því, að þessi stofnun fái að nota
hluta af þessum tekjustofni, en
hann renni að öðru leyti í ríkissjóð
til annarra þarfa.
Öryggi manna og eigna er eitt
helzta viðfangsefni ríkisins, segir
Bergsteinn Gizurarson þrunamála-
stjóri að lokum. — Því er það hart,
að ríkið skuli ekki leggja meiri
áherzlu á brunavarnir og veita til
þeirra ekki meira fé en t.d. litið
sveitarfélag. Við teljum okkur ekki
búa í neinu þriðja flokks þjóðfé-
lagi, þar sem slík mál eru látin sitja
á hakanum. Ég tel því, að ríkisvald-
ið sé nú langt frá því marki, sem
það hefur sett sér varðandi bruna-
varnir. Brunamálastofnun þarf að
fá meira vald og verða sjálfstæðari
og hún þarf að geta fylgt betur
eftir kröfum nútímans um bi-una-
if
3ja herb.
Skerjabraut - Seltjnesi:
Rúmg. 3ja herb. íb. á 2. hæð. Verð 5,2
millj.
Njálsgata: Góð 3ja herb. íb.
u.þ.b. 50 fm ásamt aukaherb. í kj. Verð
4,2 millj.
Hjarðarhagi: Góð og björt íb. á
3. hæð ásamt bílsk. Litlar suðursv.
Fallegt útsýni. Góð sameign. Selst með
eða án bílskúrs. Hagstæð lán áhvíl.
Verð 6,3 millj.
Hringbraut: Góð endaíb. á 1.
hæð uþb 60 fm ásamt herb. í kj. Snyrt-
il. eign. Verð 4,3 millj.
Skeiðarvogur: Rúmg. uþb 70
fm risíb. ásamt fallegu viðarklæddu ris- .
lofti. Verð 5,5 millj.
Álfaskeið: Falleg og rúmg. íb. á
jarðhæð, uþb 86 fm. Gott útsýni. Ný-
standsett. Verð 5 millj.
Engihjalli: Stór glæsil. 3ja herb.
íb. á 1. hæð í lítilli blokk. Verð 5,5 millj.
Norðurmýri: Um 80 fm góð
jarðh.(lítið niðurgr.) Sérinng og hiti.
Laus nú þegar. Verð 4,1 millj.
Seljavegur - ris: 2ja-3ja
herb. risíb. Laus nú þegar. Verð 3,5
millj.
Víðimelur: Góð íb. á 2. hæð með
suðursv. Danfoss. Laus fljótl. Verð 4,5 m.
Skaftahlíð: Góð uþb 65 fm kjíb.
lítið niðurgrafin á besta stað í Hlíðunum.
Laus strax. Verð 4,9 millj.
Gaukshólar: 3ja herb. björt íb.
á 3. hæð. Suðursv. Verð 4,5-4,6 millj.
Hjarðarhagi: Góð íb. á 2. hæð
u.þ.b. 90 fm ásamt aukaherb. i risi.
Verð 5,7 millj.
Laugateigur: Góð 3ja herb.
kjíb. u.þ.b. 75 fm ca 1,6 millj. áhv. við
veðdeild. Verð: 4,5 millj.
Klapparstígur
nýtt: Glæsil. 3ja-4ra herb. íb.
með biiskýli. Fráb. utsýni. Verð-
launateikn. Afh. tilb. u. trév. í
des. 1989.
Eskihlíð: 3ja herb. mjög stór íb.
(96 fm) á 4. hæð m/aukaherb. í risi.
Glæsil. útsýni. Verð 4,9-5,1 millj.
I Sundunum: 2ja-3ja herb. íb.
í tvíbhúsi við Hjallaveg. íb. hefur öll
verið endurn. m.a. nýtt parket, hurðir,
innr., hreinlætistæki, gluggar, raflagnir
o.fl. Laus strax. Mikið áhv. Útb. aðeins
ca 2,0 millj. Verð 4,6-4,8 millj.
2ja herb.
Boðagrandi: 47 fm rúmg.
og falleg einstaklíb. Áhv. frá
byggsj. ríkisins 1870 þús. Verð
3,7-3,8 millj.
Skálagerði: Falleg íb. á 2. hæð.
nýstands. baðherb. og sameign. Verð
4,4 millj.
Kríuhólar: Góð 2ja herb. íb. á
3. hæð u.þ.b. 41 fm. Góðar svalir í
austur. Verð 3,6 millj.
Baldursgata: 2ja herb. falleg
risíb. m/nýl. sólstofu (yfirbyggðar sval-
ir). Nýl. teppi. Laus strax. Verð 3,0 millj.
Fálkagata: Falleg og björt íb. á
jarðh. u.þ.b. 80 fm. Parket. Verð 5,2
millj.
Hverfisgata - Hf.: snyrtn.
2ja herb. íb. u.þ.b. 55 fm. Nýl. eld-
húsinnr. Verð 3,4-3,5 millj.
Valshólar: Stór og falleg 2ja-3ja
herb. íb. á jarðh. Sérþvottaherb. í íb.
Sérgarður. Bílskréttur. Hagst. lán. Verð
4,4-4,5 millj.
Krummahólar: Stór og falleg
íb. á 2. hæð. Gott útsýni. Hagst. lán
áhv. Verð 4,2-4,3 millj.
Víkurás: 2ja herb. björt og falleg
íb. á 3. hæð. Parket. Laus strax.
Hamraborg: 2ja herb. mjög góð
íb. á 1. hæð. Verð 4,4 millj.
Súluhólar: Samþ., snyrtil. og
rúmg. einstaklíb. á jarðh. Verð 2,8 millj.
Engihjalli: Falleg og björt 67 fm íb.
á 7. hæð. Fráb. útsýni. Verð 4,4-4,5 millj.
Súluhólar: Björt og falleg íb. um
51 fm á 1. hæð. Gott útsýni. Verð
3,9-4,0 millj.
Mánagata: vönduð 35 fm
einstklíb. í kj. íb. hefur verið endurn. á
smekkl. hátt, m.a. eru allar innr. nýjar.
Sérhiti. Verð 2,9 millj.
Heiðargerði: Falleg stór
2ja herb. mikið endurn. risíb.
Fallegt útsýni. Verð 3,7-3,8 millj.
Við Laugaveg: 82 fm íb. á 4.
hæð. innr. o.fl. hefur verið endurn. Sval-
ir. Verð 4,2 millj.
Hraunbær: Rúmg. og björt 70
fm íb. á jarðh. Suðursv. Laus strax.
Verð 4,4 millj.
Njálsgata: 2ja herb. mjög falleg
íb. sem hefur öll verið endurn. M.a.
allar lagnir, einangrun, gólfefni, innr.
og hreinlætistæki. Sérinng. Laus strax.
Verð 4,1-4,2 millj.
Krummahólar: góö u.þ.b. 45
fm íb. á 3. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði
í bílskýli. Verð 3,8 millj.
Ægisíða: Kjíb. með sérgarði. Nýj-
ar innr., sérinng. Verð 3,5 millj.
Seljabraut: Mjög snyrtil. u.þ.b.
46 fm einstaklíb. (ósamþ.) á jarðh. Fal-
legt útsýni. Verð 3 millj.
Vffilsgata: 2ja herb. björt íb. á
1. hæð. Laus strax. Verð 3,7 millj.
Skúlagata: góö íb. á 4. hæð.
Fallegt útsýni. Suðursv. Verð 3,2 millj.
Snorrabraut: 2ja herb. þokkal.
íb. á 2. hæð. Skipti á stærri eign koma
til greina. Verð 3,1 millj.
Marbakkabraut - Kóp.:
2ja herb. stór kjíb. í þríbhúsi. Væg útb.
Verð 3,2 millj.
Æsufell: Mjög falleg nýstandsett
2ja herb. íb. á 4. hæð. Sérgeymsla á
hæð. Laus strax. Verð 4,1 millj.
Skógarás: 2ja herb. ca 65 fm íb.
á jarðhæð. Tilb. u. trév. Til afh. nú þeg-
ar. Verð 3,8 millj.
Engihlíð: 2ja herb. björt kjíb. Ný
teppi, eldavél o.fl. Verð 3,6 millj.
Rauðarárstígur: 2ja herb. íb.
á jarðh. Laus strax. Nýtt gler. Nýl. rafl.
Nýtt þak. Verð 3,2-3,3 millj.
EIGINAMIÐUMIV
2 77 11
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3
Sverrir Kristinsson, sölustjóri - Þorleifur Guðmundsson, sölum.
Þórólfur Halldórsson, lögfr.—Unnsteinn Beck, hrl., sími 12320
Húseignin Dverghöfði 27 ertil sölu
|
Vorum að fá í einkasölu húsið á Dverghöfða 27. Hér
er um að ræða verslunar-, skrifstofu- og hverskyns
atvinnuhúsnæði, samtals um 2500 fm. Eignin er í góðu
ástandi. Á baklóð er stórt, afgirt malbikað port með
fjölda bílastæða. Á jarðhæð er góð lofthæð og þar eru
nokkrar innkeyrsludyr. Eignin selst í einu lagi eða hlut-
um. Góð greiðslukjör.
AR
EicnRmiÐLunm
Þingholtstræti 3, sími 27711
Sverrir Kristinsson sölustjóri — ÞoVleifur Guömundsson sölumaöur — Unnsteinn Beck hrl.
Þórólfur Halldórsson lögfræöingur.