Morgunblaðið - 25.11.1989, Side 11
r^ve^oKKa
yyx
KAUPSTADUR
AIIKLIG4RDUR
ÍMJÓDD OG EDDUFELLI MARKAÐUR VIÐ SUND ■ VESTURÍBÆ
ENGIHJALLA ■ MIÐVANGI
r r
MQRGUNJjlaADlD LAUGAltDAGUR 25. NQVEMBER 1989
Dúfa S. Einarsdóttir mezzosópransöngkona og Guðbjörg Siguijóns-
dóttir píanóleikari.
eldhúsinnréttingar.
baðinnrettingar
Við rýmum fyrir nýjum innréttingum
-þær bíða við þröskuldinn
Eldhús- og baðsýningarinnréttingarnar okkar seljast núna með 9óðum aíslætf.
! Phið tilboða - qerið tilboð sjálf. Afgreiðsla innrettmga. desember
En bað erfleía boðL Þaðer hægt að panta nýju innréttingarnar, 1990 model, nuna,
En það erfleiraj booi^ ^ |íða Qg með t00/o afslættl að auki.
Pantaður núna og sparaðu
Opið laugardag frá kl. 11-16
Opið sunnudag frá kl. 13-16
■ DÚFA S. Einarsdóttirmezzo-
sópransöngkona og Guðbjörg Sig-
urjónsdóttír píanóleikari halda
ljóðatónleika í Selfosskirkju
sunnudaginn 26. nóvember kl. 16.
Á efnisskránni verða íslensk ein-
söngslög eftir Skúla Halldórsson,
Emil Thoroddsen, Sigvalda
Kaldalóns og Atla Heimi Sveins-
son og erlendir ljóðasöngvar eftir
Franz Schubert, Johannes
Brahms, Jean Sibelius og Richard
Strauss.
■ í SJÓMINJASAFNl fslands,
Vesturgötu 8, Hafiiarfirði verður
lesið upp úr nýjum bókum sem
tengjast sjósókn við ísland fyrr og
nú, á morgun, sunnudag, kl. 15.
Birgir Sigurðsson les upp úr
skáldsögu sinni „Svartur sjór af
síld“. Erlingur Gíslason ieikari les
úr ljóðabók Birgis Svans Símonar-
sonar „Á fallaskiptum“. Elín
Pálmadóttir les úr bók sinni um
franska sjómenn við íslands-
strendur „Fransí Biskví". Lesið
verður upp úr samtalsbók Ómars
Valdimarssonar við Guðmund J.
Guðmundsson, „Jakinn“. Lúðvík
Jósepsson, fyrrverandi ráðherra,
les upp úr bók sinni „Landhelgis-
málið í 40 ár“. Pétur Már Ólafs-
son les upp úr bók sinni „Gullfoss,
lífið um borð“ og Thor Vilhjálms-
son les upp úr nýrri skáldsögu sinni
„Náttvíg“. Aðgangur er ókeypis.
■ LJÓSMYNDIN 150 ára. Saga
ljósmyndunar á íslandi í máli og
myndum er heiti á sýningu sem
nú stendur yfir í Bogasal Þjóð-
minjasafiisins. Inga Lára Bald-
vinsdóttir cand.mag., sem mest
hefur kannað sögu íslenskrar ljós-
myndunar, setti sýninguna saman
og leggur hún áherslu á að sýna
þróun ljósmyndalistarinnar hér á
landi frá elstu tíð og fram undir
okkar daga, þannig að persónuleg
einkenni og tækni hvers ljósmynd-
ara komi sem best til skila. Sýning-
unni lýkur fimmtudaginn 30. nóv-
ember.
■ TÓNLEIKAR verða í Djass-
klúbbi Reykjavíkur, Heita pottin-
um í Duus-húsi, sunnudaginn 26.
nóvember í tilefni af útkomu plöt-
unnar Nýr tónn. Kvintett Tómas-
ar R. Einarssonar verður breyttur
frá hljómsveitinni sem lék inn á
hljómplötuna Nýr tónn, Pétur
Östlund og Jens Winther sinna
nú störfum sínum í Stokkhólmi og
New York en í þeirra stað spila í
Heita pottinum trommuleikarinn
Matthías Hemstock og gítarleikar-
inn Hilmar Jensson. Saxafón- og
píanóleikur er áfram í höndum
þeirra Sigurðar Flosasonar og
Eyþórs Gunnarssonar. Sérstakur
gestur tónleikanna verður söng-
konan Ellen Kristjánsdóttir og
syngur hún nýtt lag eftir Tómas
sem hann gerði við ljóð Guðbergs
Bergssonar, Vorregn í Njarðvík-
um. Tónleikarnirhefjastkl. 21.30.
■ ÆFINGAR standa yfir á tveim-
ur nýjum, íslenskum leikritum hjá
Leikfélagi Reykjavíkur: Töfra-
sprotanuin, eftir Benóný Ægisson
með tónlist eftir Arnþór Jónsson
og dönsum eftir Hlíf Svavarsdótt-
ur. Þórunn Sigurðardóttir leik-
stýrir. Töfrasprotinn er barna- og
fjölskylduleikrit og verður frumsýnt
á jólum. Þá eru nýhafnar lefingar
á nýju verki eftir Ólaf Hauk
Símonarson. Leikritið Jnefnist
„Kjöt“ og gerist bakatil í kjötbúð
í Reykjavík á sjöundaáratugnum.
Sigrún Valbergsdóttir leikstýrir.
Um þessa helgi verður boðið upp á
ljóða- og tónlistardagskrá í forsal
Borgarleikhússins. Nokkrir leik-
arar lesa ljóð, smásögur og úr
bréfúm Jónasar Hallgrímssonar.
Dagskrá þessi hefst kl. 15.30 og
verður endurtekin á sama tíma á
morgun.
miðvikudag.
■ Isafjöróur. Myndlistarsýning
Bjargar Þorsteinsdóttur hefst í
Slunkaríki í dag, laugardag,
klukkan 16. Sýningin stendur til
'9. desember, og er hún opin frá
fimmtudegi til sunnudags klukkan
16-18.
■ Stykkishólmi.
Um þessar mundir er ár liðið frá
því að heilsubótastöð okkar Hólm-
ara tók til starfa. Hun var sett á
fót af fjórum íþróttakennurum hér
og kom fljótt í ljós að þörf var fyr-
ir þessa líkams- og heilsuræktar-
stöð. Aðsókn hefir verið ágæt og
fólk notað sér þetta óspart, enda
fá allir þarna þjálfun hver við sitt
hæfi til að efla líkamsþrekið. Þessi
stöð gengur undir nafninu Hjartað
og er til húsa í Egilsenshúsi. Og
nú er senn hafið annað árið í þess-
ari góðu starfsemi.
- Árni
■ JÓN Baldvinsson opnaði í
síðustu viku sýningu á rúmlega
tuttugu olíumálverkum í hliðarsöl-
um Islensku óperunnar. Opnun
sýningarinnar fór saman við frum-
sýningu á óperunni Tosca. Sýning-
in stendur um óákveðinn tíma og
er opin daglega frá kl. 16-19.