Morgunblaðið - 25.11.1989, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1989
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Minning:
Júlíus Bjarnason
bóndi, Akurey
Fæddur 5. maí 1903
Dáinn 10. nóvember 1989
Þegar ég heyrði lát vinar míns
og tengdaföður dóttur minnar, Júl-
íusar bónda í Akurey, fann ég fyrst
og fremst til léttis. Heilsa hans, sem
hafði verið svo framúrskarandi góð,
var nú síðustu tvö árin svo gjörsam-
lega farin.
Júlíus Bjarnason var sonur hjón-
anna Vilborgar Bjarnadóttur og
Bjarna Markússonar, Hól í Meðal-
landi. Þau áttu 13 börn, það yngsta
ófætt, þegar heimilisfaðirinn féll
frá. Mega allir sjá hvaða erfiðleikar
blöstu við íjölskyldunni. En Vilborg
gafst ekki upp. Hún hélt hópnum
sínum saman og kom öllum börnun-
um til manns. Öll báru þau þess
vitni að vera alin upp í guðsótta
og góðum siðum. Börnin fóru ung
að heiman til snúninga og vinnu,
en heimilið var til staðar og mamma
á sínum stað. Bjarni Markússon var
ekkjumaður þegar Vilborg kom til
hans og átti einn son, Runólf, síðar
bónda á Bakkakoti í Meðallandi.
Fyrst þegar ég man eftir Júlíusi,
Júlla í Hól, var hann ungur maður
hjá móður sinni. Þar hóf hann bú-
skap þegar hann giftist æskuvin-
konu sinni, Sigurlínu Árnadóttur
frá Efri-Ey, mikill' dugnaðarkonu.
Búskapur ungu hjónanna var ekki
stór í sniðum til að byija með, eitt
herbergi út af fyrir sig, þegar ég
man eftir og jarðnæði af skornum
skammti. Þarna fæddust börn
þeirra þijú, Haraldur, Bjargmundur
og Lilja. Sjálfsagt hefur jarðnæðið
valdið því að þau fluttu búferlum
og keyptu Akurey í V-Landeyjum.
Með mikilli vinnu þeirra og barna
þeii’ra" blómgaðist hagur þeirra,
enda fóru breyttir tímar í hönd og
litlar jarðir urðu kostajarðir með
auknumjarðræktarframkvæmdum.
Húsfreyjan, Sigurlína Árnadótt-
ir, lét ekki sitt eftir liggja við bú-
skapinn. Hún andaðist um aldur
fram eftir skurðaðgerð í Englandi.
Lilja var farin að heiman, gift
Sveinbirni Runólfssyni verktaka, og
eiga þau tvö börn. Feðgarnir héldu
áfram búskap, stundum með aðstoð
ráðskonu. Svo fór að dóttir mín fór
ráðskona til þeirra með son sinn,
Aðalstein Heiðar Magnússon, þá á
öðru ári. Þau giftust fljótlega, hún
og Bjargmundur, og þarna hófust
kynni okkar Júlla á nýjan leik, eða
öllu frekar kynntumst við fyrst þá.
Búið í Akurey er félagsbú. Fyrst
bjuggu þau öll í gamla húsinu.
Seinna byggðu Ingigerður og
Bjargmundur hús steinsnar frá og
síðar reisti Haraldur snoturt hús
fyrir sig. Öll héldu þau oftast sam-
an heimili þó stundum hefðu feðg-
arnir hjálparstúlku. Börnunum
fjölgaði, Sigurlín, Hildur og Júlíus
bættust við. Öllum börnunum, Aðal-
steinn ekki undanskilinn, reyndist
Júlli frábær afi. Alltaf hafði hann
tíma fyrir þau. Þau voru ekki há í
loftinu þegar þau trítluðu í afahús
með skólatöskuna til að læra að
lesa. Alltaf mætti þeim sama ástúð-
in og þolinmæðin. Þessa og alls sem
hann var þeim munu þau minnast
síðar á ævinni. Ingigerði reyndist
hann frá fyrstu tíð eins og besti
faðir. Við áttum oft notalegar
spjallstundir í Akurey og alltaf end-
uðum við á sama stað, austur á
Meðallandi.
Nú er hann gepginn til hinstu
hvílu þessi ljúfi, rólyndi maður.
Aðeins þijá daga dvaldi hann á
Sjúkrahúsi Selfoss, annars alltaf í
húsinu hjá Haraldi sem sýndi hon-
um frábæra umhyggju.
Ég gæti lýst Júlla með nokkrum
orðum: Greindur, hógvær maður
með gott skopskyn, en sú lýsing
er ekki tæmandi. Öll breytni hans
við fjölskylduna og samferðamenn-
ina ber vitni um svo innilega trú á
gildi góðleikans að minning hans
verður geymd með þeim minningum
sem Ijúfast er að muna.
Við Guðsteinn þökkum góðar
samverustundir og sendum öllum
vandamönnum einlægar samúðar-
kveðjur.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
frá Steinsmýri.
Lionsfélagar og fjölskyldur þeirra vinna að undirbúningi jóladagatal-
anna.
■ LIONSKL ÚBBURINN Freyr
í Reykjavík og Lionsklúbbar á
flestum stöðum á landinu hafa selt
jóladagatöl með sælgæti í meira en
fimmtán ár. Sala dagatalanna er
þegar hafin. Colgate tannkr-
emstúba fylgir hverju dagatali svo
og hvatning frá jólasveininum til
banranna um að muna eftir að
bursta tennurnar. Allur hagnaður
af sölu jóladagatalanna rennur til
líknarmála.
■ MÁNUDAGINN 27. nóvember
næskomandi heldur Marilyn Allen,
frá The White Eagle Lodge í
Englandi, fyrirlestur um huglækn-
ingar og áhrif þeirra á okkur og
plánetuna í upphafi nýju aldarinn-
ar. Fyrirlesturinn verður haldinn í
húsnæði Rósakrossreglunnar,
Bolholti 4, 4. hæð og hefst kl.
20.30. Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
(Fréttatilkynning)