Morgunblaðið - 25.11.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NOVEMBER 1989
21
Stefán Valgeirsson segist vera sakað-
ur um misferli:
Oskar eftir opin-
berri rannsókn
STEFÁN Valgeirsson alþingismaður hefur óskað eftir því að ríkissak-
sóknari láti fara fram opinbera rannsókn á störfum sínum í stjórnum
banka og sjóða. Vitnar hann til ásakana um spillingu og vill láta kanna
hvort hann hafi átt hlut að eða brotið lög eða reglur. Hallvarður Ein-
varðsson, ríkissaksóknari, sagði í gær að ekki hefði verið tekin ákvörð-
un um meðferð málsins en reynt yrði að flýta lienni.
Stjórnirnar sem Stefán tiltekur í
bréfi sjnu eru bankaráð Búnaðar-
banka íslands, stjórn Stofnlánadeild-
ar landbúnaðarins, stjórn Byggða-
stofnunar og stjórn Tryggingasjóðs
fiskeldislána. Með bréfi sínu sendi
hann ijölda blaðaúrklippa. Stefán
sagði í samtali við Morgunblaðið að
rógsherferð gegn sér hafi staðið
linnulaust frá því 16. september,
þegar Alþýðublaðið hafi riðið á vað-
ið, sex dögum eftir að Borgaraflokk-
urinn gekk til liðs við ríkisstjórnina.
Síðan hefði hún gengið hring eftir
hring á ijölmiðlunum: DV, Morgun-
blaðinu, Pressunni, Heimsmynd og
Stöð 2. Stefán staðfesti að hann
hefði sagt í ræðu í bómaskálanum
Vín í Eyjafirði í vikunni að hann
væri sakaður um misferli í sambandi
við þær stjórnir sem hann sæti í.
Aðspurður um hvar slík ásökun hefði
komið fram sagði Stefán að það hefði
verið í þeim fjölmiðlum sem hann
áður nefndi, þeir hafi tínt þetta hver
eftir öðrum, og sagðist ekki gera
greinarmun á ásökunum um pólitíska
spillingu og misferli. „Hvað er það
annað en ásökun um misferli þegar
ég er sakaður um að nota aðstöðu
mína í þessum stjórnum í þágu míns
fyrirtækis, sem ég reyndar á ekki
nema lítinn hlut í?“ sagði Stefán.
Nánar aðspurður um ósk sína um
opinbera rannsókn sagði Stefán að
með sér hlytu að vera brotlegir aðrir
stjórnarmenn í þessum stofnunum
og forstöðumenn þeirra líka, nema
þeir væru svo vesælir að hann hefði
þá alla í vasanum. Það væri ekki
síst þess vegna sem hann óskaði eft-
ir rannsókninni.
Stefán er nú á fundaferðalagi um
kjördæmi sitt með Guðmundi
Ágústssyni, formanni þingflokks
Borgaraflokksins og Guðbirni Jóns-
syni sem er einn af forystumönnum
Þjóðai-flokksins. Stefán sagðist ræða
stöðu samtaka sinna, sérstaklega
umrædda rógsherferð sem hann
sagði að margir teldu þá mestu síðan
á dögum Jónasar Jónssonar frá
Hriflu.
Sagnir úr safiii Mar-
geirs Jónssonar
SÖGUFÉLAG Skagfirðinga
hefur gefið út bókina „Heimar
horfins tíma - Rannsóknir og
sagnir úr safni Margeirs Jóns-
sonar á Ögmundarstöðum11.
Siguijón Björnsson skrifar um
Margeir, en hann fæddist á Ög-
mundarstöðum í Staðarhreppi í
Skagafirði þann 15. október 1889.
Þessi bók er gefin út af tilefni
þess, að 100 ár eru liðin frá fæð-
ingu Margeirs, en hann lézt 1943.
Margeir var einn af stofnendum
Sögufélags Skagfirðinga. Eftir
hann komu út 3 bækur, þ.á,m.
Frá miðöldum í Skagafirði, vísna-
söfn og rit um bæjanöfn á Norður-
landi. Auk þess samdi hann ýmsar
ritgerðir, safnaði örnefnum og
þjóðsögum og lét hann eftir sig
mikið efni í handritum á ýmsum
stigum.
Friðrik Margeirsson og Hjalti
Pálsson sáu um útgáfuna. í bók-
inni er ritaskrá, mannanafnáskrá
og skrá um staðanöfn og örnefni.
Bókin er 290 blaðsíður, unnin hjá
Margeir Jónsson
Prentverki Odds Björnssonar hf.
á Akureyri.
Brimborgarlestin leggur af stað í ferðina um landið.
Brimborgarlest-
in á ferð um landið
í GÆR, fostudag, hóf Brimborg
hf. sölu- og sýningarferð um
landið sem mun standa allt til
14. desember nk. Farið er á ijór-
um stórum vörubifreiðum og ein-
um jeppa og gengur ferðin undir
nafninu Brimborgarlestin.
Vörubifreiðirnar eru frá Volvo
og sýna þær allt það nýjasta sem
völ er á á því sviði. Má t.d. nefna
Volvo F16 sem er aflmesta vörubif-
reiðin frá Volvo, og jafnframt á
íslandi, með tengivagn sem tekið
getur 40 manns í sæti og er út-
búinn með eldhúsi, sjónvarpi, sal-
erni o.fl. o.fl. Einnig er í lestinni
400 hestafla Volvo F12 með 15
rúmmetra gijótpall og á fjórum
öxlum, en það er nýjung hér á
landi. Þá er í ferðinni Volvo FL10
(brimbijóturinn) en sá bíll er mjög
vel útbúinn með snjóplóg, palli og
krana.
Áætlun Brimborgarlestarinnar er
mjög ströng en farið verður á alla
staði á landinu. í dag verður farið
um Vestfirði. Á sunnudag verða
sýningar í Bolungarvík og á Isafirði.
Þaðan verður haldið norður um land
Kvenskór
Brúnir og svartir rúskinnsskór
Verð: 4.690,-
Stærðir: 3741
Einnig mikið úrval af hælaskóm.
UÚÚIHEG 95 > SIW 124590
og komið til Akureyrar 30. nóvem-
ber.. Þá fer lestin un Norðaustur-
land, Austurland og Suðurland.
Suðurnes og Vesturland verða síðan
tekin í lokaáfanganum.
Það er von Brimborgar að lands-
menn nýti sér þetta tækifæri til að
líta augum það sem fyrir ber og fá
upplýsingar en í ferðinni eru sölu-
menn vörubifreiða, fólksbifreiða,
bátavéla og þungavinnuvéla. Að
lokum má nefna að verðmæti Brim-
borgarlestarinnar er rúmlega 50
milljónir króna.
HÍTASTILLT
MORATERM blöndunar-
tæki með sjálfvirkri hita-
stillingu og öryggis-
hnapp, sem takmarkar
hitastig við 38 C.
Mora sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæður.
Fást i byggingavöruverslunum.
^ meiri ánægja^
(Fréttatilkynning)
HASKOLANAMIKERFISFRÆÐI
Innritun í kerfisfræðinám Tölvuháskóla Verzlunarskóla
íslands á vorönn 1990 fer fram á skrifstofu skólans til
1. desember.
Markmið kerfisfræðinámsins er að gera nemendur hæfa
til að skipuleggja og annast tölvuvæðingu hjá fyrirtækjum
og stunda kennslu ogþjálfun starfsfólks sem notar tölvur.
Hægt er að hefja nám í september og janúar. Stúdentar
af hagfræðibraut ljúka námi á þremur önnum, en aðrir
geta þurft að sækja tíma í fornámi í öldungadeild Verzl-
unarskólans, sem er ein önn til viðbótar. Kennt er eftir
hádegi, en nemendur, sem vilja halda áfram að vinna
hluta úr degi jafnframt námi, þurfa að ræða við kennslu-
stjóra um möguleika á því.
Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar:
Fornám:
Bókfærsla
Rekstrarhagfræði
Tölvufræði
Stærðfræði
Vélritun
Önnur önn:
Gluggakerfi
Gagnaskipan
AS/400
Gagnasafnsfræði
Forritun í Cobol
Verkefni á 2. önn
Fyrsta önn:
Vélamál
Forritun í Pascal
Kerfisgreioing og hönnun
Stýrikerfí
Forritahönnun
Verkefni
Þriðja önn:
Hugbúnaðargerð
Fyrirlestrar um valin efni
Forritunarmál
Lokaverkefni
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Verzlunarskólans, Ofan-
leiti 1. Kennslustjórinn verður til viðtals á skrifstofu skólans
fyrir hádegi á meðan innritun stendur yfir og í síma 688400.
TVI TÖLVUHÁSKÓLI V.í.
Komdu í Kringluno ó óvenjulegu
símnsýningu Pósts og símu
Þér er hér með boðið á símasýningu Pósts og síma dagana 22. til
25. nóvember á 2. hæð í Kringlunni.
Við verðum með nýja og fullkomna síma og símsvara til sýnis
og sölu og þú færð að vita allt um Sérþjónustu í stafræna símakerfmu
og Almenna gagnaflutningsnetið. Komdu á símadaga í Kringlunni 22. til 25.
nóvember. Þú hefur
örugglega gaman PÓSTUR OG SÍMI
Við spörum þér sporin.
afþví.