Morgunblaðið - 25.11.1989, Side 23

Morgunblaðið - 25.11.1989, Side 23
MÖRÖUNBliAÍ)ÍÖ'/LAUG'ÁtlÐÁG!UR,,25.'NÖVEMBER"l1989 fT 23^ Morgunblaðið/Emilía Gunnlaugur Claessen ríkislögmaður gengur að púlti Hæstaréttar til að flytja ræðu sína í málinu. Magnús Thoroddsen og Jón Steinar Gunn- laugsson lögmaður hans eru lengst til vinstri. Fyrir miðri mynd situr hinn sérstaklega skipaði Hæstiréttur: Ragnar H. Hall, Jón Finnsson, Gunnlaugur Briem, Gunnar M. Guðmundsson, Sigurður Reynir Pétursson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Sveinn Snorrason. Lengst til hægri situr varadómarinn, Helgi V. Jónsson. Að baki honum situr Sigurður Tómas Magnússon aðstoðarmaður hæstaréttardómara. sýknu milli irinnar syni að hverfult almenningsálit í þessu máli ætti áður en yfir lyki eftir snúast á sveif með Magnúsi Thoroddsen. Ríkislögmaður sagði almenningsálit og siðferðisviðhorf ekki þurfa að fara saman en þau fari saman í þessu máli. Áróðurs- herferð lögmanns Magnúsar í fjöl- miðlum geti ef til vill breytt almenn- ingsáliti en ekki siðferðisvitund þjóðar. Ríkislögmaður sagði að við skil- greiningu siðareglna hefði and- stæðingur sinn annars vegar flokk- að þær sem reglur er fælu í sér brot gegn öðrum mönnum og hins vegar það að gera eitthvað umfram skyldu sína. Þessi flokkun byggist á misskilningi eða samslætti ólíkra hugmynda. Siðareglur væru þrenns konar: taumhaldsskyldur, sem banni að gera öðrum mein; verknað- arskyldur, sem bjóði mönnum að þjóna hagsmunum annarra, til dæmis með því að koma nauðstödd- um til hjálpar, og í þriðja lagi væru góðverk, það að gera umfram skyldu. Lögmaðurinn hefði slegið síðasttöldu flokkunum saman í eitt og virtist leggja það að jöfnu sið- ferðislega það að hringja á slökkvi- lið þegar hús náungans brennur og það að gefa fé til líknarsamtaka. Þá vék hann að því að lögmaðurinn hefði sagt að til að maður teldist hafa brotið gegn siðferðisreglu yrði hann að. hafa brotið af sér viljandi. Brot sé ekki ámælisvert sé það óviljandi. Þetta fái ekki staðist frek- ari skoðun. Menn geti og eigi að kynna sér hluti sem þeir fjalli um, eins og lögfræðingar viti manna best. Það eigi við þegar íjallað sé um ásetning og gáleysi. Ásetningur og gáleysi í lögfræði séu hliðstæður vilja í siðfræði. Þetta hefði ekki átt að vefjast fyrir forseta Hæstarétt- ar. Honum hefði borið að kynna sér hvað hann mætti og mætti ekki, áður en hann nýtti ætlaðar heimild- ir sínar. Ekkert hefði komið fram sem benti til að slíkt hefði verið gert. Afsökún geti ekki falist í því að spyrja hvorki kóng né prest, þvert á móti enda hefði Magnús sýnt augljósan ásetning til að auðg- ast og hefði sýnt gáleysi með því að kynna sér ekki efni reglna um áfengiskaup á kostnaðarverði. ’ Þá vék ríkislögmaður að því hvort heimilt hefði verið að kaupa áfengi á kostnaðarverði til einkanota. Hann kvaðst telja að eingöngu tveimur einstaklingum væri slíkt heimilt: forseta íslands og forstjóra ÁTVR, í þeim tilfellum sé í reglun- um hvort tveggja talið upp, embæt- tið og stofnunin. Eftir 1971 hafi kaup til einkanota verið óheimil öðrum, hvað svo sem áður kunni að hafa verið. Um einkaheimild til forseta íslands sagði Gunnlaugur Claessen að í sérstökum lögum væru kjör forseta ákveðin með tæmandi hætti, þar sé ekki um lág- markskjör að ræða. Forseti sé und- anþeginn skattskyldu og laun hand- hafa forsetavalds séu það einnig. Það sé grundvallaratriði að skatt- frelsi taki aðeins til launa handhafa og gildi aðeins þann tíma sem farið sé með handhafavald. Handhafar geti þannig ekki keypt bíl meðan forseti er erlendis og fengið niður- felld gjöld. Þeir geti ekki fengið undanþágu frá fasteignagjöldum fyrir þann tíma sem þeir eru hand- hafar. Kostnaðarverðsheimild til handhafa sé aðeins til að létta þeim a leggja út vegna kostnaðar við veislur, sem þeir kunni að þurfa að halda vegna forsetaembættisins, kostnað sem þeir eigi að síðar að fá endurgreiddan samkvæmt reikn- ingi. Þessi risnutilgangur sé undir- strikaður með því að í reglum segi að heimild handhafa gildi aðeins þann tíma sem farið sé með forseta- vald. Þessum skilningi til áréttingar vísaði ríkislögmaður til umræðna á alþingi 1947 og ummæla Bjarna heitins Benediktssonar, þáverandi dómsmála- og utanríkisráðherra, við það tækifæri. Þar kæmu fram fram svipuð viðhorf til þéssara mála og þau viðhorf sem fram hefðu komið hjá ríkisendurskoðanda fyrir dómi í þessu máli. í því efni nefndi hann sérstaklega það að ekkert beint eftirlit væri verið með fram- kvæmd heimildanna þar sem æðstu embættismönnum þjóðarinnar hefði verið treyst til að misnota þær ekki. Því trausti hefði Magnús Thorodds- en brugðist. Heimildum settar þröngar skorður Gunnlaugur Claessen sagði að hefðu aðrir en forseti Islands og forstjori ÁTVR haft heimildir til að kaupa áfengi á kostnaðarverði til einkanota fyrir 1971 þá hefðu þær heimildir fallið úr gildi með sam- þykkt ríkisstjórnar það ár og ætti það jafnt við um alla forseta al- þingis og alla ráðherra. Þarna hefðu einkaheimildar tveggja handhafa af þremur verið afnumdar berum orðum. Því lægi beint við að álykta að þær heimildir sem hinn þriðji kynni að hafa haft persónulega hefðu einnig fallið niður. Hafni Hæstiréttur þessum skilningi og telji einhveijar heimildir til einka- nota fyrir handhafa vera enn til staðar, þá hljóti þeirri heimild að vera settar mjög þröngar skorður enda sé berum orðumí reglunum að finna takmörkun á því magni sem um geti verið að ræða. Sú tak- mörkun felist í orðunum: „þann tíma sem forsetavald er í þeirra höndum.“ Samk'mmt því geti heim- ildin handhafa ekki náð tii annars en þess áfengis sem veitt sé og til eðlilegra eigin nota á þeim tíma sem forseti sé fjarvei'andi. Saskilningur samræmist því að - hlunnindi séu almennt bundin við starfstíma. Þetta sé efnisregla en ekki form- regla með leiðbeiningum um hve- nær og hvernig skuli starda að pöntunum. Magnús Thorpddsen hafi farið út fvrir öll hugsanleg mörk. Dómgreind æostu ráða- menna, ekki síst forseta Hæstarétt- ar, verði að vera unnt að treysta að sé svo glögg að þeir skilji hvar eðlileg mörk liggi. Því trausti hafi Magnús brugðist. Hann hafi safnað áfengi til margra ára eða áratuga. Þar hafi veriðum að ræða sjálftöku hiunninda, skefjalausa uppsöfnun áfengisbirgða, sem geti ekki stað- ist. Sjálftaka hlunninda án tak- markana sé hvergi leyfð í stjórn- kerfinu. Það geri þessa sjálftöku engu betri að Magnús kunni að hafa búið sér sjálfur til viðmiðunar- reglu um hámark og sagst byggja hana á því sem einn maður hefði einhvern tímann sagt sér. Steininn tæki úr þegar í Ijós kæmi að Magn- ús hefði ekki virt þessa viðmiðunar- reglu sína sjálfur. Fyrra árið hefði hann farið 20% fram úr henni en síðara árið 41% farmúr, alls væri frávikið 456 flöskur. Þó hefði hon- um átt að vera ljost fyrirfram hver laun hans sem handhafa yrðu enda laun forseta ákveðin af kjaradómi. Þá lægji brottfarar- og komudaga forseta úr ferðum erlendis yfirleitt fyrir löngu áður en ferð hæfist. Yfirlýsingar um risnuskyldu for- seta Hæstaréttar sagði ríkislög- maður haldlausar. Risna ríkisstofn- ana væri ákveðin í fjárlögumj Þá virtist forseti Hæstaréttar _ hafa ætlast til að afgreiðslumenn ÁTVR hefðu eftirlit með kaupum sínum, segðu forseta Hæstaréttar hvenær nóg væri komið. Það gengiekki upp og forstjóra ÁTVR hefði ekki verið kunnugt um kaupin fyrr en um seinan. Næst vék Gunnlaugur Claessen að því að hann teldi að að 3. mgr. 35. gr. einkamálalaga hlyti að eiga við um hæstaréttardómara, þannig að ráðherra sé heimilt að víkja dóm- ara frá um stundarsakir hafi hann rýrt álit sitt svo siðferðislega að hann megi ekki lengur gegna dóm- araembætti. Annað hefði í för með sér að minni siðferðiskröfur væru gerðar til hæstaréttardómara en héraðsdómara og í því faélist ótrúleg þversögn. Um áminningarskyldu sem undanfara frávikningar sagði að hún ætti ekki við meðal annars vegna þess að um væri að ræða missi embættisskilyrða sem áminn- ing gæti engu breytt um. Þá vék ríkislögmaður að því hvað í ákvæði 4. töluliðar 32. gr. einka- málalaga, um að dómari skyldi hafa óflekkað mannorð, fælist. Hann vitnaði meðal annars til fræðiskrifa Einars Arnórssonar, sem hann sagði höfund einkamálalaganna, því til stuðnings að ekki þurfi að vera um refsiverðan verknað að ræða til að mannorð flekkist heldur væru strangari kröfur gerðar til dómara. I þessu sambandi rakti hann einnig túlkun ýmissa eldri ákvæða sem gilt hefðu á Norðúrl- öndum um embættisskilyrði dóm- ara. Til stuðnings því að vilji lög- gjafans standi til þess að sömu skil- yrði eigi við um héraðs- og hæsta- réttardómara gat ríkislögmaður þess að í nýsamþykktum lögum um aðskilnað dóms- og umboðsvalds væri þetta sama ákvæði að finna og ætti þar við dómara. Þar sem eftir gildistöku laganna yrðu aðeins til umboðsstarfalausir dómarar í landinu hlyti þetta að eiga við um þá alla, einnig hæstaréttardómara. Ríkari kröfur til hæstaréttardómara Fallist Hæstiréttur ekki á að einkamálalög taki til Hæstaréttar- dómara telur ríkislögmaður að skil- yrði fyrir lögjöfnun séu til staðar. Hann nefndi enn að sömu eða ríkari kröfur ætti að gera til hæstaréttar- dómara en annarra dómara og rakti í ítarlegu máli mótunarsögu réttar- farsreglna um þetta efni og álit fræðimanna því til stuðnings. Gunnlaugur Claessen sagðist telja^engan vafa á að háttsemi Magnúsar hefði verið ólögmæt og brot á skráðum og óskráðum regl- um og jafnvel einnig refsivert brot á hegningarlögum. Það skipti þó ekki máli heldur hitt að framferði hanns hefði verið siðlaust og með því hefði hann fyrirgert trausti. Þannig ætti mælikvarði refsiréttar ekki við í máli sem snúist um traust á dómara samkvæmt siðferðilegum viðhorfum. Málið snerti undirstöðu dómsvalds í landinu. Hjá dómstólum væri bundinn endir á þrætur og menn sættu sig við ósigur fyrir dómi vegna vissu um að mál þeirra hefði fengið umfjöllun bestu manna hvað varðar lærdóm, dómgreind, réttsýni og siðferðilegan styrk. Mál Magnúsar Thoroddsen skeki þessa undirstöðu. Ríkislögmaður sagði að vörn Magnúsar Thoroddsen hefði að miklu leyti falist í að benda á ætluð brot annarra. Slíkt ráði engum úr- slitum. Röng hegðun annarra rétt- læti aldrei eigið brot. Hann sagði að samanburður á máli Magnúsar og áfengiskaupum fyrrum fjár- málaráðherra vegna kunningja síns leiddu í ljós að þar væri margt ólíkt. Annars vegar hefði heimildir skort með öllu, hins vegar hefði verið farið út fyrir heimildir. Ekkert sam- ansemmerki mætti setja milli þess að fara út fyrir heimildir og þess að ástunda utan við allar heimildir skefjalausa söfnun í auðgunartil- gangi. Hins vegar sýni hörð við- brögð almennings við máli fjár- mál^ráðherra að almenningsálit í slíkum málum sé óbreytt frá því sem verið hefði fyrir ári síðan. Loks vék ríkislögmaður að því hvernig andstæðingur hans hefði háttað vörn sinni og sagði meðal annars að hann hafi viljað afla ýmissa gagna frá ríkisstofnunum og ráðuneytum og spyija spurninga sem enga þýðingu hefðu í málinu. Lögð hefði verið mikil vinna í að sinna óskum hans. Þá vék ríkislögmaður að gagnsök og taldi ljóst að sú aðgerð dóms- málaráðherra að víkja Magnúsi frá um stundarsakir hefði verið heinr' samkvæmt stjórnarskránni. Meðal annars sagði hann niðurstöðu hér- aðsdóms óskiljanlega í þessu efni. Vernd stjómarskrárinnar beindist að dómstólum, vernd sú sem dómar- ar nytu væri afleidd. Hann rakti meðal annars skrif fræðimannanna Bjarna Benediktssonar, Ólafs Jó- hannessonar, Lárusar H. Bjama- sonar og Einars Arnórssonar því til stuðnings að frávikning um stundarsakir væri ráðherra heimil. Að lokinni ræðu ríkislögmanng. - tók Jón Steinar Gunnlaugsson aftur til máls og svaraði málflutningi andstæðings síns og þeim athuga- semdum sem hann hafði gert við málflutning Jóns. Meðal fjölmargra annarra atriða sem hann nefndi var það að samanburður á útsöluverði, kostnaðarverði og launum hefði enga þýðingu; hann ítrekaði að al- menningsálit hefði verið tilbúið og hefði tekið miklum breytingum frá upphafi málsins. Kröfur um rann- sókn hefðu beinst að því að fá vitn- eskju um efni reglna en ekki að því að sverta aðra, sagði líklegt að upplýsingar hefðu ekki fengist vegna ótta forráðamanna þjóðfé- lagsins við almenningsálitið, spurði^. hvort allt óhóf ylli embættismissi, til dæmis óhófleg matarlyst?, sagði flokkun siðferðisreglna hafa verið til einföldunar, taumhalds- og verknaðárskyldur hefðu þar verið flokkaðar saman en ekki verknaðar- skyldur og góðverk. Hann ítrekaði að siðareglur hefðu ekki verið brotnar; traust á dómstólum yrði best byggt upp með dómi sem grundvallaðist á hlutlægum for- sendum, sagði að væri háttsemi fordlmlega lögmæt gæti hún ekki brotið í bága við siðferði, að engin tengsl væru milli útlistana ríkislög- manns á efni reglnanna og raun- verulegrar framkvæmdar þeirra, mótmælti túlkun fræðiskrifa á þann veg að refsilaus háttsemi geti leitt til brottvikningar og sagði það kjarna stjórnarskrárverndar dóm- stóla að dómstólar ákveði sjálfir brottvikningu dómara. í seinni ræðu sinni vék Gunn- laugúr Claessen meðal annars að því að mörg dæmi væru um að ein- föld ákvörðun ríkisstjórnar byndi ráðherra sem á eftir komi, mót- mælti getsökum um innihald álits ráðgjafa dómsmálaráðherra en áður hefði fram komið að þar hefðu að- eins lagareglur verið reifaðar en ekki ráðlagt um málsmeðferð; sagði að hafi vantað á svör við spurning- um Magnúsar um efni heimilda til áfengiskaupa, hefði hann átt að styðjast við eigin dómgreind um þau atriði og hann mótmælti því að mál gegn Magnúsi hefði ekki verið höfð- að hefðu fréttir aldrei verið fluttar af áfengiskaupum hans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.