Morgunblaðið - 25.11.1989, Síða 43
MORGUNBLA J)1Ð
IÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR
„Ætlum
ad selja
okkur dýrt“
- segir Bjarki Sigurðsson, landsliðsmaður úr
Víkingi, sem leikur gegn FH í Hafnarfirði
LAUGAKPAGUK 25. NÓVEMBER 1989
43
Bjarki Sigurðsson, landsliðsmað-
urinn snaggaralegi.
jJm helgina
Handknattleikur
Laugardagur
1. deild karla:
Ðigranes HK—Stjaman.....kl. 16.30
Hafnarfjörður FH—Víkingur kl. 16.30
Hlíðarendi Valur—ÍR.....kl. 16.30
Vestm. ÍBV—Grótta.............kl. 16.30
1. deild kvenna:
Hafnai-Qörður FH—Fram...kl. 15.00
Hlíðarendi Valur—Víkingur...kl. 18.00
2. deild karla:
Hafnarfjörður FH b—Ármannkl. 13.30
2. deild kvenna:
Vestm. ÍBV—Selfoss............kl. 15.00
Akureyri Þór—UMFA.......kl. 16.00
3. deild karla:
Seljaskóli ÍBÍ—Haukarb.kl. 14.00
Seljaskóli Fram b—ÍH....kl. 15.15
Suunudagur
1. deild karla:
Laugardalsh. KR—KA......kl. 20.30
1. deild kvenna:
Laugardalsh. KR—Haukar ....kl. 19.00
2. deild karla:
Hlíðarendi Valurb—Haukar ..kl. 14.00
3. deild karla:
Seljaskóli ÍRb—ÍBÍ......kl. 14.00
Seljaskóli Ögri—UBKb.....kl. 15:15
Körfuknattleikur
Laugardagur
1. deild karla:
Egilsstaðir UÍA—Léttir.....kl. 14.00
GrundarQ. Snæfell—UMFB...kl. 14.00
1. deild kvenna:
Njarðvík UMFN—Haukar.....kl. 15.30
Sunnudagur
Úrvalsdeild:
Hafnarfjörður Haukar—KR...kl. 16.00
Sangerði Reynir—ÍR.........kl. 16.00
Akureyri Þór—UMFT........kl. 20.00
Keflavík ÍBK-UMFG........kl. 20.00
1. deild kvenna:
Hafnarfjörður Haukar—ÍS..kl. 18.00
Keflavík ÍBK-UMFG........kl. 18.00
Blak
Laugardagur
1. deild karla:
Neskaupst. Þróttur-ÍS....kl. 14.00
Akureyri KA—Fram........kl. 14.30
1. deild kvcnna:
Neskaupst. Þróttur—ÍS....kl. 15.15
Akureyri KA—Fram.........kl. 15.45
Júdó
Opna skandinávíska meistaramótið
í júdó fer fram í Laugardalshöll um
helgina. í dag, laugardag, verður keppt
í -60 kg, -71 kg, -86 kg, -95 kg flokki
karla og -56 kg og -66 kg flokki
kvenna. Undankeppni hefst kl. 10.00
og undanúrslit og úrslit kl. 15.00.-Á
morgun, sunnudag, verður keppt í -65
kg, -78 kg og +95 kg flokki karla.
Unankeppnin heft kl. 10.00 og unanúr-
slit og úrslit kl. 15.00.
Sund
Bikarkeppni Sundsambands íslands
í 1. deild fer fram í Sundhöll Reykjavík-
ur um helgina. Keppnin hefst kl. 14.00
í dag og kl. 13.30 á morgun. Ríkissjón-.
varpið verður með beina útsendingu frá
mótinu á sunnudaginn.
Knattspyrna
Punktamót KSÍ í innanhússknatt-
spyrnu verður haldið á Akranesi um
helgina. Mótið hefst í dag, laugardag,-
kl. 10.00. I báðum Iþróttahúsunum á
Akranesi og er spilað í fjórum i-iðlum.
Urslitaleikurinn fer siðan fram kkl.
19.30. Liðin sem keppa eru: KR, ÍA,
IBK og Selfoss sem leika i A-riðli. 1
B-riðli leika Stjaman, KA, Þór og ÍR.
í C-riðli leika Fram, Valur, Leiftur og
Víðir og í D-riðli FH, Víkingur, Tinda-
stóll og Fylkir.'
„VIÐ vitum hvað bíður okkar í
Hafnarfirði. Því förum við
þangað til að selja okkur dýrt.
Eins og staðan er nú, erum við
í fallsæti. Við erum ákveðnir
að yfirgefa það,“ sagði Bjarki
Sigurðsson, landsliðsmaður-
inn snjalli úrVíkingi.
Víngingar sækja FH-inga heim,
en FH teflir fram sex landsliðs-
mönnum sem léku í Tékkóslóvakíu
á dögunum. „Það hafa orðið miklar
breytingar hjá okkur Víkingum að
undanförnu. Við erum miklu sterk-
ari andlega og líkamlega og flestir
leikmennirnir eru að ná sínu besta
formi. Það er annar andi en áður.
Nú vinna leikmenn sem ein liðs-
heilds. Vonleysið, sem réði ríkjum
áður en Guðmundur Guðmundsson
tók við þjálfarastarfinu, er horfíð,"
sagði Bjarki.
Karl fyrirliði
Guðmundur skilaði fyrirliðaband-
inu eftir að hann varð þjálfari og
hefur Karl Þráinsson tekið við því.
Hann er nú byijaður á fullum krafti
eftir meiðsli. „Það er mjög gott
fyrir okkur að Karl sé kominn í
slaginn. Hann er mjög'góður leik-
maður fyrir liðsheildina - bæði í
sókn og vörn.“
Bjarki sagði að staða FH og
Stjörnnnar væri óneitanlega góð í
deildinni. „Valsmenn eru ekki langt
á eftir. Þó að við séum neðarlega
í deildinni höfum við ekki sagt okk-
ar síðasta orð. Við ætlum okkur
ekkert annað en sigur í leikjunum
gegn efstu liðunum," sagði Bjarki.
V-ÞYSKALAND
Sigurður
skoraði tíu
Sigurður Sveinsson var heldur
betur í essinu sínu þegar Dort-
mund vann stórsigur á Berlín um
sl. helgi í v-þýsku 2. deildarkeppn-
inni í handknattleik - 31:22. Sig-
urður skoraði tíu mörk. Dortmund
er nú í fjórða sæti í deildinni.
Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson
Landslidsmennirnir sex sem leika með FH. Gunnar Beinteinsson, Þorg-
ils Óttar Mathiesen, Guðmundur Hrafnkelsson, Óskar Ármannsson, Héðinn'
Gilsson og Guðjón Ámason.
HANDKNATTLEIKUR / DOMARAR
Stefán og Rögnvald
dæma í Svíþjóð
Stefán Arnaldsson og Rögvaid
Erlingsson, handknattleiks-
dómarar, hafa verið settir á fyrri
leik Drott og pólska liðsins,
Wybrzeze, í 8-liða úrslitum Evr-
ópukeppni bikarhafa sem fram fer
í Halmstad í Svíþjóð um miðjan
mars á næsta ári.
Þetta verður fimmti Evrópu-
leikur þeirra félaga á þessu
keppnistímabili, tveir í kvenna-
flokki og þrír í karlafokki. Þetta
verður að teljast góð viðurkenning
fyrir íslenska handknattleiks-
dómara.
GOLF / EM
Keilir í
3. sætí
Úlfar í 2. sæti í
einstaklingskeppninni
GOLFKLÚBBUR Keilis, sem
keppir fyrir íslands hönd, er í
3. til 4. sæti á Evrópumóti fé-
lagsliða, sem fram fer á Mar-
bella á Spáni, eftirfyrri dag
mótsins. Úlfar Jónsson lék best
íslendinganna,fórvöllinná —v
pari og var það næst besta
skorið.
Svíar hafa forystu eftir fyrri
daginn með samtals 149 högg.
Norðmenn koma næstir með 151
högg og íslendingar og Danir í
þriðja sæti með 152 högg. Síðan
koma írar, Englendingar, Skotar,
Spánveijar, Finnar og ítalir með
153 högg. Frakkar eru með 156,
Belgar og Walesbúar með 158.
„Strákarnir léku mjög vel, en
keppnin er geysilega jöfn og spenn-
andi. Við hefðum líklegast verið í
efsta sæti ef Sveinn Sigurbergsson
hefði ekki verið svona óheppinn á
13. braut sem er par 3. Hann lék
þá holu á 8 höggum, en náði fugl?r
á þeirri næstu og paraði hinar fjór-
ar. Veðrið var mjög gott og golf-
völlurinn í óvenju góðu ástandi mið-
að við rigningarnar að undanförnu.
Við eru staðráðnir í að leggja allt
undir í lokaslagnum og leikum til
sigurs," sagði Sveinbjörn Björns-
son, liðsstjóri íslensku sveitarinnar,
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Úlfar Jónsson er í öðru sæti í
einstaklingskeppninni með 72 högg,
sem er par vallarins. Svíinn Max
Anglert lék frábærlega og hefiff^
forystu með 68 högg. Sveinn Sigur-
bergsson lék á 80 höggum og
Tryggvi Traustason á 83 höggum.
BORÐTENNIS
Gunnar kom,
sá og sigraði
Gunnar Finnbjörnsson úr Ernin-
um sigraði Örn Franzen úr
KR, 2:0, í úrslitaleik í meistara-
flokki karla á punktamóti sem Örn-
inn stóð fyrir í Laugardalshöll 22.
nóvember. Gunnar hefur ekki tekið
þátt í mótum hér á landi undanfai^*’
in ár þar sem hann var við nám í
Danmörku. Hann er nú alkominn
heim og lofar árangur hans í mót-
inu góðu.
Hjálmtýr Hafsteinsson úr KR
sigraði Kristján Jónsson úr Víkingi,
2:0, í keppninni um 3. sætið.
Frá
Bill
Melville
ISkotlandi
BADMINTON / OPNA SKOSKA MOTIÐ
Broddi
vann
Skota
Broddi Kristjánsson sigraði Cra-
ig Robertson frá Skotlandi
15:1 og 15:10 í fyrstu umferð á
opna skoska meistaramótinu í bad-
minton sem hófst í
Edinborg í gær.
Hann mætir Jens
Peter Nierhoff frá
Danmörku í 2. um-
ferð í dag, en hann er næst stiga-
hæsti keppandi mótsins á eftir
Morten Frost.
Broddi hafði töluverða yfirburði
gegn Skotanum og eftir fyrri leikinn
var Ijóst hvert stefndi. Það gæti þó
orðið erfiðari róðurinn hjá. honum
gegn Dananum Niferhoff í 2. um-
ferð.
Jón Zimsen, sem er aðeins 18
ára, vann Richard Harmsworth frá
Engalndi, 15:6 og 15:5 í undanrás-
Broddi Kristjánsson.
um á fimmtudag, en tapaði í fyrstu
umferð meistaramótsins í gær fyrir
Richard Harmsworth frá Englandi,
15:6 og 15:5.
Guðrún Júlíusdóttir og Birna
Petersen féllu báður úr í undanrás-
unum á fimmtudag. Guðrún lék
gegn fyrrum unglingameistara
Englands, Gallup, og tapaði 2;1
eftir að hafa unnið fyrsta leikinn
örugglega, 11:6. Hún tapaði síðan
annarri lotu 6:11 og þriðju 0:11.
Birna lék gegmlracy Allright frá
Englandi og tapaði, 2:0 (11:3 og
11:4).
«00: ■?0=
Laugarda* gur kl. 14:25
47. LEIKVIKA* 25. rt< i)V. 1989 1 X 2
Lelkur 1 NUrnbera - B. Miinchen
Leikur 2 Charlton Man. City
Leikur 3 Coventry - Norwich
Leikur 4 Man. Utd. • Chelsea
Leikur 5 Nott. For. - Everton
Leikur 6 Q.P.R. - Millwall
Leikur 7 Sheff. Wed. - C. Palace
Leikur 8 Southampton - Luton
Leikur 9 Tottenham - Derby
Leikur 10 Wimbledon - Aston Villa
LeikurH Blackburn - West Ham
Leikur 12 Newcastle - Sheff. Utd.
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULINAN s. 991002
Tvöfaldt jr pottur! ! 1