Morgunblaðið - 02.12.1989, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 02.12.1989, Qupperneq 25
V MORGUNBIÍAÐIÐ LAUGARDÁtiUR 2. ÐÉSÉMBER 1989 ’ 2U‘ _ Oskar Péturs- son - Kveðjuorð Fæddur 2. desember 1906 Dáinn 8. nóvember 1989 „Hefur þú komið austur að Úlfljótsvatni, er sólin roðar tind? Áin niðar, lækur hjalar blítt við fagra skógarlind. Hefur þú komið upp að vðrðunni og litið yfir láð? Léttur blærinn strýkur vanga allt er ljósgeislum stráð.“ (H.T. úr Skátabók) í dag, annan desember, er fæð- ingardagur Óskars Péturssonar. Það eru 83 ár síðan sá öðlingur sá fyrst dagsins ljós. Þessi góði og sanni skátaforingi, sem allt til ævi- loka bar hjartaþel barnsins í brjósti sér, er nú fallinn frá. Margs er að minnast og margt ber að þakka. Skátahreyfingin á Islandi átti því láni að fagna að Óskar gekk til liðs við hana ungur að árum. Alla tíð vildi hann veg hennar sem mestan. Óskar tók að sér þau störf sem þörf var fyrir hveiju sinni og sinnti þeim af stakri samviskusemi og vandvirkni. Skátafélögin í Reykjavík eiga marga góða gripi, sem bera hand- bragði Óskars glöggt vitni, enda var hann hagur á járn og tré. Kostir Óskars Péturssonar komu best í ljós í foringjastarfínu að mínu mati. Hann átti mjög gott með að starfa með fólki á öllum aldri, en mér er ekki grunlaust um að starf hans með unglingum hafi staðið hjarta hans næst. Eins og flestir vita er skátahreyf- ingin fyrst og fremst æskulýðs- og ■ SKJALDBORG hf. hefur gefið út bókina Syngjum dátt og döns- um sem um jól eftir Maya Angelu í þýðingu Gissurs Ó. Erlingsson- ar. í bókinni segir hún sögu sína, en að lokum grunnskólanáms var hún frammistöðustúlka, söngvari, leikkona, dansmær, baráttukona fyrir málstað svertingja, ritstjóri og móðir. Hún hefur eins og hún sjálf segir, „lifað rússíbanalífi ..." ■ SKJALDBORG HF. gefur út Hvers vegna elska karlmenn konur. Hvers vegna yfirgefa Rarlmenn konur. Höfundar eru Dr. Connel Cowan og Dr. Melvyn Kinder. Þýðandi er Gissur Ó. Erl- ingsson. I fyrri hluta bókarinnar ljalla höfundarnir um þau viðhorf og athafnir kvenna sem gera karl- menn þeim fráhverfa og tefla sam- búð karla og kvenna í tvísýnu. í síðari hluta bókarinnar, veita höfr undarnir innsýn í atferli sem vekur ástríka og jákvæða svörun hjá karl- mönnum. ■ SKJALDBORG HF. gefur út Neyðaróp um nótt eftir Mary Higgins Clark. Einn daginn var hún aðeins Jenny Partland, starfs- maður við listasafn í New York, þann næsta prinsessa er listamaður biðlaði til sem varð frægur næstum því á einni nóttu þar til martraðirn- ar hófust. ■ GESTAPO eftir Sven Hassel. Skjaldborg hf. gefur út. Sven Hassel hefur skrifað fjórtán bækur um seinni heimstyijöldina. í þessari bók fjallar hann um þýsku herlög- regluna sem var skelfileg ógnun allsstaðar sem hún starfaði. Þessi bók er ósvikin Sven Hassel bók, segir í kyningu Skjaldborgar. ■ SKJALDBORG HF. gefur út bókina Eitt sinn skal hver deyja. Agatha Christie, frægasti saka- málasagnahöfundur fyrr og síðar, raðar hér saman af einskærri snilld umgjörð um atburði er gerðust fyr- ir 4000 árum. ■ UNAÐUR KYNLÍFS OG ÁSTA handbók eftir br. Andrew Stanway í þýðingu Gissurs Ó. Erlingssonar sem Skjaldborg gefur út. Texti dr. Stanways er nánar skýrður með litmyndum. Formála að bókinni ritar Jóna Ingi- björg Jónsdóttir, kynfræðingur. friðarhreyfing og tekur hún á móti öllum ungmennum, sem vilja vera með. Að sjálfsögðu ber stundum við að það sé misjafn sauður í mörgu fé. Engum er þó vísað frá — heldur er mannræktarstarfið hafið. Óskar var einn þeirra mann- bætandi foringja, sem skildi, að oft verður góður hestur úr göldum fola. Þeir eru áreiðanlega margir skát- arnir, sem ,,líta yfir farinn veg“ með þakklæti í huga fyrir öll þau góðu sáðkom, sem náðu að festa rætur í hjarta þeirra. Já, þeir voru heppnir skátarnir sem áttu Óskar að vini og félaga. „Gerðu skyldu þína skáti, vertu ávailt viðbúinn,“ eru þau einkunnarorð, sem vom leiðarljós Óskars í mannbætandi starfi hans. Um árabil var Óskar fánaberi í fánaborg skátanna við hin ýmsu tækifæri. Á sumardaginn fyrsta var gengið fylktu liði um götur Reykjavíkur á leið til kirkju og svo er enn. Þar er hlustað á Guðs orð og sumarkomu fagnað. Gamlir skátar fjölmenna í kirkju þennan dag og finna vonandi gamla slóð „þar sem löngu liðnar stundir fær- ast nær“. Ein svipmynd löngu liðin er mér. ofarlega í huga á 'þessari stundu. Fjölmenn fánaborg skáta, þar sem Óskar ásamt fyrrum konu sinni, Sigríði Ólafsdóttur, stóð með íslenska fánann í fararbroddi. Það var ógleymanleg sjón. Sigríður starfaði með Kvenskátafélagi Reykjavíkur um nokkurra ára skeið með miklum ágætum. Ég get ekki látið hjá líða að minn- ast einnig systur Óskars, Hjördísar Pétursdóttur, en hún féll frá á síðastliðnu ári. Hjördís var flokks- foringi minn, þegar ég gerðist skáti og á ég margar ljúfar minningar frá þeim tíma. Það er mikið gleðiefni að reyk- vískir skátar skuli hafa strengt þess heit að halda minningu Óskare á lofti og ákveðið að reisa honum minnisvarða að Úlfljótsvatni. Þar dvaldi hann oft við leik og störf með skátum og átti margar glaðar stundir með vinum sínum. Stjórn St. Georgsgildanna á ís- landi þakkar Óskari samstarfið í hópi eldri skáta. Einnig þökkum við öll þau störf sem hann lét íslenskri æsku í té. Nú, þegar Óskar er far- inn heim, sendum við fjölskyldu hans einlægar samúðarkveðjur. Áslaug Friðriksdóttir Jólatilboð Húsasmiöjiumar Peugeot borvél kr. 5.653,- Makita slípirokkur kr. 12.950,- Expressó kaffivél kr. 5.963, í verslun Húsasmiðjunnar fást nytsamar jólagjafir við allra hæfi og á jólamarkaði á 2. hæð er mikið úrval skrauts og gjafavara. í Húsasmiðjunni fæst einnig allur húsbúnaður og heimilistæki, öll áhöld og efni sem þarf til að fegra og prýða heimilið fyrir jólin. Kryddhilla. kr. 2.804,- Útvarp/kassettutæki kr. 5.800,- Piparkökuhús kr. 717,- SKÚTUVOG116 SÍMI 687700

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.