Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 33
vönduðu líferni og hafsjó fróðleiks
beindu þau hátterni margra sveit-
unga sinna í þann farveg er bezt
var á kosið. Vandamál voru leyst,
hollráð gefin.
Sem fyrr segir fluttu þau hjón
héðan er starfi á Garðskaga lauk.
Ekki voru þó böndin rofin, því á
hvetju sumri dvöldu þau í Hofi og
voru enn á meðal okkar.
Nú sakna Garðmenn vinar í stað.
Minningarnar ylja og efst er í
huga þakklæti fyrir það er Sigur-
bergur var okkur.
Kæra Ásdís, börn og aðrir ætt-
ingjar. Við Edda vottum ykkar
dýpstu samúð.
Guð blessi minningu Sigurbergs
H. Þorleifssonar.
Finnbogi Björnsson
í dag verður til moldar borinn
Sigurbergur Helgi Þorleifsson, fyrr-
um hreppstjóri og vitavörður á
Garðskagavita. Hann andaðist á
Landakotsspítala að kvöldi fimmtu-
dagsins 23. nóvember. Útför hans
verður gerð frá Útskálakirkju.
Sigurbergur H. Þorleifsson
fæddist 30. ágúst 1905 á Hofi í
Garði í Gullbringusýslu, sonur hjón-'
anna Þorleifs Ingibergssonar út-
vegsbónda þar og konu hans, Júlí-
önu Hreiðarsdóttur. Sigurbergur
ólst upp í foreldrahúsum við margs
konar störf, bæði sjósókn og land-
búnað, einnig smíðar og byggingar-
vinnu, m.a. vitabyggingar. Þessi
störf stundaði hann einnig eftir að
hann var orðinn útvegsbóndi á
Hofi um 1930. Árið 1943 varð Sig-
urbergur hreppstjóri Gerðahrepps
og átta árum síðar vitavörður Garð-
skagavita.
30. desember 1930 kvæntist Sig-
urbergur Ásdísi Káradóttur, en hún
var dóttir Kára Siguijónssonar,
hreppstjóra, alþingismanns og
bónda á Tjörnesi og konu hans Sigr-
únar Árnadóttur. Þau Sigurbergur
og Ásdís eignuðust tvö mannvænleg
börn, sem nú gegna ábyrgðarstöð-
um í þjóðfélaginu.
Á löngum og farsælum starfs-
degi hlóðust á Sigurberg næsta
mörg og margþætt trúnaðarstörf.
En raunar var það engin furða, ein-
faldlega vegna þess að í heima-
byggð hans var áreiðanlega enginn
maður, sem naut jafn óskoraðs
trausts sveitunga sinna sem Sigur-
bergur sökum mikilla mannkosta,
óbrigðullar trúmennsku og skyldu-
rækni og einstakrar samviskusemi
og vandvirkni í öllum greinum. En
þótt ég þekkti vel til þessara starfa
Sigurbergs og hversu vel þau voru
unnin, eru mér, sem fyrrverandi
sóknarpresti og samstarfsmanni
hans, þó efst í huga fómfús og frá-
bær störf hans í þágu og þjónustu
Útskálakirkju.
Meðhjálpari kirkjunnar varð Sig-
urbergur árið 1926, aðeins 21 árs
gamall, og í sóknarnefnd var hann
kjörinn tveim árum síðar og lengst
af formaður hennar, einnig safnað-
arfulltrúi Útskálasafnaðar um ára-
bil. Sigurbergur var því, ef svo
mætti segja, allt frá æskuárum
nátengdur kirkjunni og lét sér sér-
staklega annt um hana, enda kunn-
ugri málefnum hennar en nokkur
annar.
Ég hygg að það sé engin tilvilj-
un, hversu Sigurbergur var tengdur
kirkjunni, hversu mjög hann bar
hag hennar fyrir brjósti og hversu
vænt honum þótti um hana, því að
Sigurbergur var trúmaður, þótt
ekki bæri hann tilfinningar sínar á
torg. Hann átti einnig trúaða og
góða móður, sem áreiðanlega inn-
X/
Lofta- plötur og lím Nýkomin sending
^ Nykomin sending
Þ.ÞORGRlMSSON&CO
Ármúla 29, Reykjavik, sími 38640
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989
rætti þessum efnilega syni sínum
ást og lotningu fyrir Guði, svo og
öllu því sem rétt var, gott og göf-
ugt í mannlífinu.
En Sigurbergur varð ekki aðeins
þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast
góða móður. Honum hlotnaðist
einnig sú gæfa að eignast góða,
gáfaða og listræna eiginkonu og
traustan lífsförunaut, sem stóð við
hlið manns síns, hvatti hann til
dáða og styrkti hann í verki, ekki
síst í störfum hans í þágu kirkjunn-
ar. Einnig þar lagði hún, frú Ásdís,
heillaríka hönd á plóginn með því
að starfa um árabil sem ágætur
söngkraftur í kirkjukórnum og á
ýmsan annan veg lagði hún kirkj-
unni lið í fómfúsu starfi og stuðn-
ingi.
Á samstarfsárum okkar Sigur-
bergs við Útskálakirkju var alloft
minnst á það við mig, bæði af
heimafólki og ekki síður aðkomu-
fólki — því að glöggt er gestsaugað
— hve fallega og af hve miklum
hátíðleik og virðuleik Sigurbergur
framkvæmdi meðhjálparastörfin í
kirkjunni, og sú skoðun gjarnan
látin í ljós, að fáa ætti Sigurbergur
sína líka í þessu starfi, svo vel og
virðulega var það af höndum leyst.
Þetta fór naumast framhjá neinum,
sem í kirkjuna kom, enda metið að
verðleikum.
Ég hef í þessum fáu orðum sér-
stakle^a minnst frábærra starfa
Sigurbergs fyrir Útskálakirkju.
Öðrum fjölþættum ábyrgðarstörf-
um hans fyrir byggðarlag sitt ætla
ég að aðrir geri betri skil. En að
leiðarlokum flyt ég honum innilegar
þakkir fyrir ágætt samstarf í aldar-
fjórðung, samstarf, sem svo var
gott, að segja má með sanni, að í
öll þessi ár félli þar enginn skuggi
á. Eg tel það lán og gæfu að hafa
átt að nánasta samstarfsmanni við
kirkjuna þennan vandaða mann-
kostamann, sem í hvetju verki kost-
aði kapps um að gera sitt besta og
láta í öllum greinum gott af sér
leiða. Slíkra manna er gott að minn-
ast á kveðjustund.
Eiginkonu hins látna, börnum og
ástvinum öllum vottum við hjónin
innilegustu samúð.
Guðm. Guðmundsson
SKARTGRIPIR FYRIR HERRA
Jðn Sipunðsson
Skartpripaverzlun
LAUGAVEGI 5 • SÍMI 13383
Osvikið nautsleður
AÐEINS KR. 156.000
Nýjar veggsamstæður Opið laugardag kl. 10-16
á frábæru verði
Húsgagnasýning sunn