Morgunblaðið - 02.12.1989, Qupperneq 37
MQftGJJNBMÐJÐ LAUGARDAGUR 2. PPSJEMJBEP 1?89
OPIÐ HÚS UM HELGINA
eldhúsinimrettingar.
BAÐINIMRÉTTIIMGAR
Við rýmum fyrir nýjum innréttingum
-þær bíða við þröskuldinn
Eldhús- og baðsýningarinnréttingarnar okkar seljast núna með goðum afslaetti.
Leitið tilboða - gerið tilboð sjálf. Afgreiðsla innrettinga i desember
En bað er fleira í boði. Það er hægt að panta nýju innréttmgarnar, 1990 model, n
^ á verðlagi ársins sem er að líða og með 10% afslætti að auki.
Pantaður núna og sparaðu
Opið laugardag frá kl. 11-16
Opið sunnudag frá kl. 13-16
Nýbýiavegi 12 200 Kópavogur
SM44011. Pósthólf 167.
KVIKMYNDIR
„Aftur til framtíðar 11“
slær öll met
IBandaríkjunum og Bretlandi eru
hafnar sýningar á myndinni „Aft-
ur til framtíðar 11“ (Back to the
Future II) og þykir sýnt að hún
muni slá öll aðsóknarmet. Hér er á
ferðinni framhald samnefndrar ævin-
týramyndar, sem sýnd hefur verið
víða um heim og alls staðar notið
mikilla vinsælda.
Myndin er sýnd í rúmlega 1.800
kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum
og þegar þetta er ritað hafa rúmlega
43 milljónir dala (rúmlega 2,7 millj-
arðar króna) komið í kassann. Hefur
engin kvikmynd í sögunni gefið af
sér þvílíkar tekjur.
Sömu sögu er að segja frá Lundún-
um. Þar námu tekjurnar af miðasölu
í nóvember rúmum tveimur milljón-
um sterlingspunda (um 200 milljón-
um króna) og hefur engin mynd hlot-
ið viðlíka aðsókn í nóvembermánuði
þar í landi. Telja framleiðendur
myndarinnar fullvíst að engin jóla-
mynd hafi áður hlotið slíkar við-
tökur. Laugarásbíó frumsýnir hana
hér á landi 15. desember næstkom-
andi.
TÓMSTUNDIR
Golfkúlur úr gulli
Þeir sem áhuga hafa á golfi
og eiga að auki rúmlega
800.000 krónur sem þeir hafa
nákvæmlega ekkert að gera við
ættu ef til vill að íhuga að festa
kaup á golfkúlum úr gulli. Fyrir-
tæki eitt í Japan kynnti þessa
nýjung eigi alls fyrir löngu og
telja forráðamenn þess að gullkúl-
urnar verði í framtíðinni jafn
nauðsynlegar og kylfurnar, kadd-
íinn, húfan og svörtu og hvítu
skórnir. Hver kúla vegur 810
grömm og er úr nánast hreinu
gulli en verðið mun haldast í hend-
ur við gullverð á fjármálamörkuð-
um.
MYNDBÖND
Nýr áhorfendahópur
uppgötvaður: kettir!
Efþig vantar sérstök húsgögn f boröstofuna þá líttu viö.
Opiö í dag til kl. 16.00
Valhösíjögn
Bandarísk kona nokkur, Jane
Talkington, hefur grætt
þvílíkar fúlgur síðustu vikur, að
allar tekjur hennar í lífinu fram að
þessu virðast smápeningar í saman-
burði. Jane á að hafa sagt við vini
sína oftar en einu sinni að hún þráði
að fá frumlega hugdettu sem hægt
væri að framkvæma nokkuð auð-
veldlega og myndi færa henni fé
af áður óþekktum krafti og hraða.
Dag nokkurn sat hún í sófanum
heima hjá sér og var að horfa á
fræðsluþátt um spörfugla á Bret-
landseyjum. Þá tók hún eftir því
að kisan hennar, Kitty, sat bísperrt
með augun límd við skjáinn og þátt-
inn á enda. Ýmist sat dýrið stjarft
í sófanum, eða stökk að tækinu og
krafsaði eftir smáfuglunum. Þar
með var hugmyndin komin og Jane
gaf út myndband fyrir ketti!
Það var ekki flanað að neinu.
Nokkrir kettir voru settir í herbergi
með sjónvarpi þar sem nokkrar
prufur með ýmsum tegundum fugla
voru sýndar og kom þá á daginn
að það var ekki sama hver þáttur-
inn var. Kettirnir reyndust ekki
vera vera alætur á efnið, anda-
myndir vöktu enga hrifningu og
töldu sérfróðir að kettirnir hrædd-
ust vatnið. Þá flýðu allir kettirnir
undir sófa er myndir með örnum
og fálkum voru sýndar. Páfagauka-
myndirnar höfðu stressandi áhrif á
kettina. Fuglarnir voru svo háværir
að kettirnir óttuðust þá beinlínis.
En allt öðru máli gegndi um mynd-
ir með þröstum, störrum, titlingum
og slíkum saklausum smælingjum.
Kettirnir reyndust æstir í „leikara"
úr þeim fuglahópum. Fyrstu vik-
urnar seldust á annað þúsund
myndbönd, en dreifing var þá afar
takmörkuð og upplagið enn lítið.
Salan jókst síðan smátt og smátt
og nú rennur bandið út eins og
heitar lummur. Aðstandendur
nokkurra katta hafa látið vel af
því, einkum hafi það skemmtigildi
fyrir„inniketti“. Svo rækilega lifi
kettirnir sig inn í þætti sína að
þeir laumist að sjónvarpinu og ráð-
ast á það. Högni nokkur leitaði all-
an liðlangan daginn fyrir aftan sjón-
varpið að starranum sem hann heill-
aðist af á skjánum. Og það besta
við þessi myndbönd er, að kettirnir
þreytast aldrei á sjónvarpsglápinu.
Nú kemur ekkert á óvart'lengur,
það nýjasta er ftiglamyndbönd
fyrir ketti!