Morgunblaðið - 02.12.1989, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 2,'JESEMBER 1989
toóm
FOLK
■ NICK Gillingham, Bretlandi,
setti Evrópumet í 200 m bringu-
sundi á heimsbikarmóti í Montreal
í Kanada í gær. Hann synti á
2.09.19 mínútum, sem er næstbesti
tími í heimi í greininni. Svíinn
Anders Holmertz náði næst besta
tíma, sem náðst hefur í 400 m skrið-
sundi, synti á 3:42.92.
■ JACQUES Georges ætlar ekki
að sækjast eftir endurkjöri sem for-
seti Knattspyrnusambands Evr-
ópu. Georges, sem er 73 ára, tók
við stjórninni eftir andlát Artemio
Franchi 1983, var endurkjörinn til
fjögurra ára 1986 og á því eftir
rúmt ár í starfinu. Eftirmaðurinn
verður kjörinn á ráðstefnu UEFA
'aMöltu í apríl og er talið að valið
standi einkum á milli íjögurra
manna; Freddy Rumo, Sviss, Jo
Van Marle, Hollandi, Lennart
Johansson, Svíþjóð og Antonio
Matarrese, Ítalíu.
■ BOCA Juniors frá Argentínu
varð í vikunni Suður-Ameríku-
meistari í knattspyrnu. Liðið lagði
Independiente, sem einnig er frá
Argentínu, 5:3 eftir vítakeppni.
Liðin mættust í tveimur leikjum,
sem báðir voru markalausir. Eftir-
taldir skoruðu úr vítum: Jose Pon-
ce, Victor Marchesini, Diego Lat-
orre, Ivar Stafuzza og Blas
Giunta fyrir sigurliðið, en fyrir
Independiente þessir: Jose Maria
Bianco, Ricardo Altamirano og
Ruben Dario Insua.
■ CLIVE Allen, framheiji Man.
City, verður líklega með gegn Liv-
_j»rpool í ensku 1. deildinni í dag,
en hann hefur verið lítillega meidd-
ur. Vinstri bakvörðurinn Andy
Hinchcliffe verður hins vegar ekki
með. Stöðu hans tekur 19 ára íri,
Gerry Taggart.
Gabriele
100
Ritvélar
í úrvali
Verö frá kr. 17.900,-sigr.
EinarJ. Skúlasonhf.
Grensásvegi 10, sími 686933
ÚR OG SKARTGRIPIR
(lóf) ogíisksp
LAUGAVEGI 70 • S. 24930
GETRAUNIR
Potturinn fjórar
milljónir króna
Potturinn í getraunum er þrefaldur í dag, þar sem engin tólfa
hefur komið fram undanfarnar tvær helgar. „Salan hefur aukist
mikið eins og alltaf, þegar potturinn er þrefaldur, og mér sýnist á
sölunni að_ potturinn fari í fjórar milljónir," sagði Anna Guðmunds-
dóttir hjá íslenskum getraunum í gær aðspurð um sennilega vinnings-
upphæð.
Þorvald-
ur farinn
aðæfa
ánýmeð
Forest
ÞORVALDUR Örlygsson, leik-
maður íslandsmótsins í knatt-
spyrnu, æfði með Nottingham
Forest á ný í gærmorgun, og
gekk síðan endanlega frá
samningum við þá Brian
Clough og aðstoðarmann
hans, Ron Fenton.
ÆT
Eg gekk frá öllum meginatriðum
í dag — varðandi landsliðið og
fleira; það _eru aðeins eftir einhver
smáatriði. Ég kem svo heim í næstu
viku ásamt Ron Fenton til að skrifa
undir og ganga formlega frá félaga-
skiptunum," sagði Þorvaldur í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Þorvaldur leikur ekkert um helg-
ina — varaliðið spilaði í fyrrakvöld,
tapaði 0:3 gegn Derby, en hann fer
með aðalliðinu til Birmingham þar
sem það leikur gegn Aston Villa í
deildarkeppninni. „Villa hefur verið
á mikilli siglingu að undanförnu.
Þetta ætti því að geta orðið
skemmtilegur leikur," sagði Þor-
valdur. Hann bætti því við að eitt-
hvað væri um meiðsli í herbuðuin
Forest, markvörðurinn Steve Sutt-
on léki til að mynda líklega ekki
með.
Brian Clough, stjórinn kunni hjá
Forest, hefur farið mjög lofsamleg-
um orðum um Þorvald í breskum
blöðum, og sagði Þorvaldur leik-
menn hjá liðinu hafa verið á hissa
á því hve stjórinn hefði hælt honum
í staðarblöðunum. Einn spurði Þor-
vald hvað hann hefði eiginlega gert
fyrir karlinn!
Þorvaldur sagði, aðspurður, að
líklega myndi hann beijast um
vængstöðu í liðinu, „Steve Hodge
og Garry Parker hafa leikið mjög
vel inni á miðjunni og verða þar
örugglega áfram,“ sagði hann.
ítfúm
FOLK
B BILLYMcNeiII, framkvæmda-
stjóri Celtic, hætti í gær tveggja
vikna tilraun sinni til að fá Roy
Aitken, fyrirliða liðsins, til að vera
áfram hjá félaginu. McNeill ákvað
að verða við ósk Aitken og setja
hann á sölulista.
■ MARK Dennis og Andy Gray
verða með QPR gegn sínum gömlu
félögum.
U STEVE Hodge, landsliðsmaður
hjá Nottingham Forest, fer einnig
á fornar slóðir — leikur gegn Aston
Villa, en þar var hann fyrir þremur
árum.
■ DAVE Beasánt, markvörður
Chelsea mætir fyrrum félögum
sínum í Wimbledon og tveir aðrir
rifja upp liðinn tíma:
■ MITCHELL Thomas hjá Tott-
enham heimsækir Luton, liðið, sem
hann byrjaði hjá, og Neil Ruddock,
Southampton, fer til Milhvall, þar
sem hann hóf ferilinn.
■ ENSKA knattspyrnusambandið
tilkynnti í gær að það væri hætt
við að halda keppnina um Rous-
bikarinn í maí. Argentína hefur
ekki gefið jákvætt svar um þátttöku
og því var ákvörðunin tekin.
Þorvaldur Örlygsson er nú kominn til Forest til að vera.
Ásgeir
ekki með
gegn Köln í
sjónvarps-
leiknum
Asgeir Sigurvinsson verður ekki
með liði Stuttgart gegn Köln
í vestur-þýsku úrvalsdeildinni í dag.
Hann er meiddur.
Ásgeir varð fyrir meiðslum um
síðustu helgi, fékk spark ofan á
ristina í leiknum gegn Karlsruhe
og varð að fara af velli. Hann hefur
lítið æft þessa viku og í gær var
ákveðið að hann yrði ekki með í dag.
Leikur Stuttgart og Köln verður
í beinni útsendingu í Sjónvarpinu í
dag og hefst kl. 14.30.
Ásgeir Sigurvinsson
KNATTSPYRNA / ENGLAND
KNATTSPYRNA / V-ÞYSKALAND
HANDBOLTI
Pressuleikur
í Höllinni á
miðvikudag
Samtök íþróttafréttamanna og
Handknattleikssamband ís-
lands gangast fyrir Pressuleik í
handknattleik í Laugardalshöli á
miðvikudagskvöld í næstu viku kl
20.
Allir sterkustu leikmenn íslands
verða hér heima næstu daga við
æfingar, að þeim Júlíusi Jónassyni
og Sigurði Sveinssyni undanskild-
um. Bogdan getur því stillt upp því
sem næst sínu allra sterkasta liði.
Pressuliðið ætti einnig að geta orð-
ið sterkt, og veitt landsliðinu verð-
uga keppni.
Æfingar landsliðsins nú eru upp-
haf lokatarnarinnar fyrir HM í
Tékkóslóvakíu, sem hefst síðari
hluta febrúar. Næstu leikir liðsins
verða við Norðmenn hér heima milli
jóla og nýárs, í Laugardalshöll og
á Akureyri.
Fleira verður um að vera í Höll-
inni á miðvikudagskvöld en Pressu-
leikurinn sjálfur því þar mætast
einnig úrvalslið íþróttafréttamanna
og stjörnuliði HSÍ í stuttum hand-
boltaleik, en lið HSI skipa væntan-
lega formaðurinn Jón Hjaltalín
Magnússon og fleiri stórskyttur.
íþróttir
helgarinnar
Handknattleikur
Laugardagur:
1. DEILD KARLA
Garðabær, Stjaman-ÍBV.....kl. 16:30
Laugardalshöll, Víkingur-HK .kl. 16:30
Seljaskóli, ÍR-KA.........kl. 16:30
Seltj.nes, Grótta-KR......kl. 16:30
Valsheimili, Valur-FH.....kl. 16:30
2. DEILD KARLA
HafnarQ., Haukar-Þór.........kl. 14
3. DEILD KARLA
Húsavík, Völsungur-Ögri......kl. 14
Seltj.nes, Grótta b-Ármann b.kl. 15
Sunnudagur:
Digranes, UBK b-Fram b.......kl. 14
Laugardagur:
1. DEILD KVENNA
Garðabær, Stjarnan-Valur.....kl. 15
HafnarQ., Haukar-FH......kl. 15:15
Laugardalsh., KR-Grótta...kl. 13:30
Laugardalsh., Fram-Víkingur..kl. 15
5. FLOKKUR KARLA
Eldeyjarmót 5. flokks karla, a og b lið,
fer fram í Digranesi um helgina og
lýkur kl. 16 á morgun.
Körfuknattleikur
Sunnudagur:
ÚRVALSDEILD
Hlíðarendi, Valur-Reynir
Njarðvík, UMFN-Þór...
Sauðárkr., UMFT-KR....
Seljaskóli, ÍR-ÍBK...
1. DEILD KARLA
Laugardagur:
Akranes, ÍA-UMFL.....
Bolungarv., UMFB-ÍS....
Egilsstaðir, UÍA-Snæfell
Sunnudagur:
Hagaskóli, Léttir-UMSB
1. DEILD KVENNA
Hagaskóli, KR-Haukar..
Seljaskóli, ÍR-ÍBK...
Blak
KARLAR
Laugardagur:
Akureyri, KA-ÞrótturN........kl. 14
Sunnudagur:
Hagaskóli, ÍS-HSK........kl. 14:15
Hagaskóli, Þróttur R.-HK.kl. 15:30
KONUR
Laugardagur:
Akureyri, KA-ÞrótturN....kl. 15:15
Suimudagur:
Hagaskóli, ÍS-UBK............kl. 13
Hagaskóli, Þróttur R.-HK.kl. 16:45
Fimleikar
Bikai-mót Fimleikasambands íslands
fer fram í Laugardalshöll á morgun
og hefst keppni kl. 11. Keppt verður
í fijálsum æfingum og 3. og 4. þrepi
íslenska fimleikastigans.
Borðtennis
Punktamót Stjömunnar fer fram í
Ásgarði, Garóabæ, í dag og veróur
keppt í riðium í öllum flokkum, en
aðgangur er ókeypis. Keppni í 2. fl.
karla hefst kl. 14, í 1. fl. karla kl. 15,
í kvennafl. kl. 16 og í meistaraflokki
karla kl. 17.
Glíma
Flokkaglíma Reykjavíkur veróur í
íþróttasal Melaskóla og hefst kl. 15 í
dag.
,kl. 20
,kl. 16
,kl. 16
.kl. 16
......kl. 14:30
.........kl. 14
.........kl. 14
.........kl. 19
......kl. 20:30
.........kl. 14