Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 44
1
Kappinn að vestan
Kl. 16:30
Leikrit mánaðarins
[Qútvarpið RAS 10
—
FLÓRÍDÁ
einmitt núna
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Ekki óskynsamlegt að stöðva veiðarnar, segir Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ
250 milljóna tekjuskattur á orkuveitur:
Skatturinn kemur
beint inn í verðlagið
- segir Eiríkur Þorbjörnsson fram-
kvæmdastjóri Sambands orkuveitna
ÁKVÖRÐUN ríkisstjómarinnar um að leggja 250 milljóna króna tekju-
skatt á orkuveitur leiðir til þess að orkuverð hækkar sem þeirri upp-
hæð nemur - kemur beint inn i verðlagið, að sögn Eiríks Þorbjörns-
sonar, framkvæmdastjóra Sambands orkuveitna. Hann segir skattlagn-
inguna koma verst við stærstu veitumar, einkum Landsvirkjun.
„Við vitum ekki hvenær skattur-
inn á að leggjast á, til dæmis hvort
hann á að vera reiknaður á tekjur
fyrir fjárfestingu," segir Eiríkur.
Hann segir að sú leið sé ekki eðli-
leg, þar sem verulegur hluti fram-
kvæmda orkuveitna sé greiddur úr
Reykjavík:
Fjörutíu skip
seld frá árs-
byrjun 1984
FRÁ REYKJAVÍK hafa 40 bátar
^jg skip með 13 þúsund tonna
aílakvóta í þorskígildum verið
seld frá ársbyrjun 1984. Einungis
27 bátar og skip með 3.700 tonna
aflakvóta í þorskigildum hafa
verið keypt til Reykjavíkur á
sama tímabili, þannig að rúmlega
9 þúsund tonna kvóti hefur flust
þaðan á tímabilinu, segir í firétta-
bréfí Granda hf.
Fiskiskipum Reykvíkinga hefur
því fækkað um 13 frá ársbyrjun
1984 og fiskiskipastóll þeirra hefur
minnkað um 4.010 brúttórúmlestir
á tímabilinu.
rekstri og ekki færður til eignar. „Ef
svo er, þá er þetta veruleg skattlagn-
ing,“ segir Eiríkur.
Landsvirkjun er langstærst orku-
fyrirtækjanna og segir Eirjkur að
skattlagning á Landsvirkjun valdi
meiri hækkun hjá öðrum rafveitum,
þar sem skatturinn muni hækka
heildsöluverð frá Landsvirkjun.
Velta orkuveitnanna nam á
síðasta ári 11 til 13 milljörðum
króna. Velta rafveitna var 8 til 9
milljarðar, þar af var velta Lands-
virkjunar 3,3 til 3,4 milljarðar. Velta
hitaveitna og blandaðra veitna var
3 til 4 milljarðar.
250 milljóna króna skattur sam-
svarar því um það bil 2% til 2,25%
af heildarveltu orkuveitna 1988.
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, kveðst ekki geta
tjáð sig um áhrif skattsins á meðan
ekkert sé ljóst um hvemig álagningu
hans verði háttað.
Sjá viðbrögð við skattaákvörðun-
um ríkisstjómarinnar bls. 18.
Fismarkaður
Suðurnesja:
Ný móttöku-
stöð fyrir fisk
í Sandgerði
eftir áramót
ÁKVEÐIÐ hefiir verið að setja á
stofn móttökustöð fyrir Fiskmark-
að Suðurnesja í Sandgerði og er
gert ráð fyrir að hún taki til starfa
fljótlega eftir næstu áramót. Þar
verður aðstaða til að koma með
flskinn í hús þar sem kaupendum
gefst kostur á að skoða hann.
Ekki verður hægt að bjóða í fisk-
inn í Sandgerði.
Fiskmarkaður Suðurnesja hefur
nú gólfpláss í Keflavík og Grindavík.
Þar er tölvubúnaður og boðið er upp
samtímis á þessum stöðum og í
Hafnarfirði.
Ólafur Þór Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Suður-
nesja sagði að með því að setja á
stofn þessa nýju móttökustöð fyrir
fisk í Sandgerði væri fyrst og fremst
verið að auka þjónustuna við fiskselj-
endur þar.
„Það hefur verið bagalegt að hafa
ekki svona aðstöðu í Sandgerði.
Þetta er mikill útgerðarstaður og
við höfum selt mikið af fiski það-
an,“ sagði hann. „Bátasjómenn í
Sandgerði hafa þurft að hringja inn
upplýsingar um fiskinn og kaupend-
ur að sækja fiskinn í bátana. Þeir
sem hafa viljað koma fisknum inn á
gólf hafa þurft að aka honum til
Keflavíkur.“
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra:
Veiðum verði frestað á meðan
rannsóknaskip leitar loðnunnar
Morgunblaðið/Sverrir
Jólamót í borðtennis
Einbeitnin skein úr svip þátttakenda á þriðja Jólamóti grunnskólanna
í Reykjavík í borðtennis. Um 400 börn og unglingar á aldrinum 10
til 15 ára tóku þátt í mótinu, sem íþrótta- og tómstundaráð stóð fyrir
í Laugardalshöll í gær. Nemendur Seljaskóla sigruðu í báðum eldri
flokkunum og nemendur Ölduselsskóla í þeim yngri.
DAGAR
TIL JÓLA
HALLDÓR Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra hefur lagt það til við
hagsmunaaðila í sjávarútvegi að loðnuveiðum verði frestað um sinn,
og hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson verði sent í leiðangur
ásamt tveimur veiðiskipum til loðnuleitar. Reiknað er með að lcitin
geti hafist á þriðjudaginn og taki um hálfan mánuð. Kristján Ragn-
arsson formaður LÍU segir líklegt að útvegsmenn fallist á tillögu
sjávarútvegsráðherra.
Halldór Ásgrímsson átti í gær
fund um ástand loðnuveiðanna með
sjómönnum, útvegsmöjmum og Fé-
lagi fiskimjölsframleiðenda ásamt
fiskimálastjóra, en áður hafði hann
átt fund með starfsmönnum Haf-
rannsóknastofnunar, sem einnig
sátu fundinn í gær.
Á staur í Ártúnsbrekku
Morgunblaðid/Jón Hafsteinn
Ökumaður og farþegi voru fluttir á slysadeild eftir að bifreið ók á staur í Ártúnsbrekku, við innkeyrsluna
að Nesti, í gærkvöldi. Annar árekstur varð á mótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar og var ökumaður
fluttur á slysadeild. Þá var ekið á gangandi vegfaranda á gangbraut við verslunarmiðstöðina Grímsbæ.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu er talið að vegfarandinn hafl axlarbrotnað og hlotið höfuðmeiðsl.
„Við báðum hagsmunaaðila að
bera þessa tillögu okkar undir sína
menn áður en við tækjum endan-
lega ákvörðun um þetta, og bíðum
nú eftir þeirra viðbrögðum. Það er
mikil smáloðna á veiðisvæðinu og
við teljum ekkert mæla með því að
verið sé að kasta meira á hana, en
það getur beinlínis verið skaðlegt
fyrir framtíðarhagsmuni veiðanna,"
sagði Halldór.
Kristján Ragnarsson formaður
LIU sagðist telja tillögu sjávarút-
vegsráðherra skynsamlega og
líklegt að útvegsmenn myndu fall-
ast á hana.
„Við erum að athuga þetta í okk-
ar hóp, en ég get hins vegar ekki
neitað því að miðað við hvernig
veiðarnar hafa gengið að undan-
förnu þá finnst mér ekki óskynsam-
legt að stöðva veiðarnar og sjá hver
framvindan verður. Við leggjum
áherslu á að rannsóknirnar fari
fram, og ég tel gagnlegt að tvö
veiðiskip fylgi rannsóknaskipinu tii
að kanna þær niðurstöður sem
kunna að fást ef rannsóknaskipið
mælir einhvers staðar loðnu. Við
munum að öllum líkindum fallast á
að gera þetta með þessum hætti,
því það er mjög dýrt að halda flotan-
um öllum til veiða þar sem veiðivon-
in er jafn lítil og raun ber vitni.
Við myndum þó ætlast til þess að
skipin yrðu ekki kölluð inn fyrr en
4-5 dögum eftir að ákvörðun um
þetta yrði tekin, þannig að menn
geti sjálfir tekið afstöðu til þess
hvort þeir vildu halda skipunum
þarna um einhvern tíma og sjá
hver framvindan verður,“ sagði
Kristján.
Um 1.100 mánns sem starfað
hafa við loðnuveiðar og -vinnslu
gætu orðið atvinnulausir ef loðnan
fer ekki að veiðast á næstunni. Um
20 fiskimjölsverksmiðjur byggja
afkomu sína á loðnuveiðum, og ,hjá
þeim starfa 400—500 manns. Sjó-
menn á loðnuskipum eru um 650
talsins og er það um 10% af sjó-
mönnum á fiskiskipaflotanum, en
46 skip hafa loðnukvóta. Útflutn-
ingsverðmæti loðnuafurða á síðustu
vertíð var um 5,5 milljarðar króna,
sem er um 10% af heildarútflutn-
ingsverðmæti sjávarafurða.
3,5% hækk-
un á bensíni
BENSÍNVERÐ hækkar í dag
úr 48.20 krónum í 49.90 krón-
ur lítrinn, eða um 3,5%. Að
sögn Georgs Ólafesonar verð-
lagsstjóra er hækkunin fyrst
og fremst tilkomin vegna
hækkunar á bensíngjaldi.
Verð á gasolíu hækkar úr
13.60 krónur lítrinn í 14.90
krónur, eða um 9,6%, og er það
vegna hækkunar á innkaups-
verði. Verð á svartolíu hækkar
úr 9.980 krónum tonnið í 10.800
krónur, eða um 8,2%, og er það
einnig vegna erlendra verð-
hækkana.