Morgunblaðið - 14.01.1990, Side 12

Morgunblaðið - 14.01.1990, Side 12
12 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1990 í HEIMSÓKN Á MÖLTU ww w Texti og myndir: Anno Bjarnodóttir LEIÐTOGARNIR F UNDUR leiðtoga stórveld- anna, George Bush og Mik- hails Gorbatsjofs undan Möltuströndum í síðasta mán- uði beindi athygli umheims- ins að þessari litlu eyju í Mið- jarðarhafi. Blaðamaður Morgunblaðsins sem fylgdist með leiðtogafimdinum kynnti sér jafinframt daglegt líf á eyjunni, sljórnmálaástandið og ræddi við Islendinga sem þar búa. : 'f it£&. » * i *|‘*| ...'’j flPlWgiimf'tfflHrirwr aa ....... *\ M , ÍP■ W""'’ ' W:Zm ' s-í&wámiJMm.xz'S V,M -|f * ‘ «■ VU' •^BSœSSSsiSiáÍBS* *• 111 | * * *. »i jií( |Í''- Í"SS|: ílíiÍI , —aw l.r® •,fr*4íi; •: * í «»■» jiíjtSí «L , » „ ■ ipp„ íf" 3* ■ —»k« ; » | , Mtmm- v. &ri&w!3P* Jt I•m„l'*' JjP ' 'M 'l’’ ’’> . ' •*»»:» f| fj * * * "* u-?ý jgs' íj í f* ' f | ■*■ *is > í *■ * 8 :. ’ «■ . .. .HK ■ ■ »>• «1; . av. 4M • SrSS B -L,«aPS!' ISLENDINGARNIR Fótboltasigurinn situr í fólki MÖLTUBÚAR vita yfirleytt heldur fátt um ísland. Helgi Björn Hjaltested, sem var þar við enskunám fram að jólum og brennur í skinninu að komast þang- að aftur, sagðist hafa verið spurður ótrúlegustu spurninga um landið. „Eru jól á íslandi, spurði einn,“ sagði hann. Hann sagði að allir fótboltaáhugamenn hefðu þó heyrt á landið minnst af því að Malta sigr- aði íslenska landsliðið í leik sem var haldinn á Sikiley 1982. „Það skipti einn Möltubúa, sem ég hitti, svo miklu máli að hann mundi úrslitin. „2:1 fyrir okkur,“ sagði hann. „Hinn landsleikurinn sem við höfum unnið fór 2:0 gegn Grikkjum 1975.““ Guðmundur Baldursson úr Val spilar með knattspymuliðinu Hib- ernians á eyjunni en mér tókst því miður ekki að ná í hann. Ég hitti hins vegar Dóru Blöndal, 21 árs stulku sem ætlar að giftast Möltubúa í sumar. Hún heimsótti eyjuna fyrst fyrir sex árum en hef- ur búið þar undanfarin fjögur ár. „Fyrst bar ég allt saman við ísland og fannst margt ómögulegt á Möltu,“ sagði hún. „Ég gerði lítið úr skólakerfinu og lét það fara í taugarnar á mér þegar síminn bil- aði eða rafmagnið fór af. En ég sá að þetta gengi ekki ef ég ætlaði að setjast iið hérna svo að ég hef aðlagað mig hlutunum. Og ég kann mjög vel vrð mig.“ Hún sagði að þjóðin væri kaþólsk og sumt ekki viðeigandi að tala um.„Ég er til dæmis ekki með nein- ar yfirlýsingar um fóstureyðingar eða brandara um kirkjuna. Fólk myndi taka það nærri sér. Það er upp til hópa mjög almennilegt. Það sprakk til dæmis á bílnum mínum um daginn og það kom ekki til greina annað en sá sem lánaði mér verkfæri skipti líka um dekk. Kon- um er sýnd kurteisi. Þær hafa full- an rétt til að gera það sem þær vilja. Ég fengi til dæmis örugglega vinnu í byggingarvinnu ef ég endi- lega vildi en það yrði allra mál í fjölskyldunni og hún yrði afskap- lega æst.“ Fjölskylda tilvonandi eiginmanns Dóru er vel efnuð. Hún stundar innflutning og virtist hafa umboð fyrir flesta hluti. Kærastinn hefur einu sinni heimsótt ísland. „Honum ieist ekki nema mátulega vel á sig,“ sagði Dóra. „Hann er dökkur og það kom fyrir að fólk var með skæt- ing. Einu sinni snerust allir haus- Helgi Björn Hjaltested sagðist hafa kynnt ísland „eins og óður væri“ þá mánuði sem hann dvaldist á Möltu. Hann kunni svo vel við sig að hann vill fara þangað sem fyrst aftur. Dóra Blöndal fór að kunna vel við sig á Möltu þegar hún hætti að bera allt saman við Island. arnir í strætó þegar keyrt var fram hjá okkur.“ Dóra sagðist sakna íslensku sveitarinnar af því að það er engin almennileg sveit á Möltu. „Við ætlum að keyra hringinn í sumar með foreldrum mínum,“ sagði hún. „Eftir það líst honum örugglega betur á Island.“ Dóra vinnur hluta úr degi í versl- un en nýtur annars lífsins. „Ég þarf ekki einu sinni að þrífa heima hjá mér,“ sagði hún nokkrum sinn- um. En hún eldar og segist nú orð- ið passa að bera ekki ost fram með fiski. „Það má alls ekki,“ sagði hún hlæjandi. Hún var fengin til að hlaupa í skarðið fyrir leikkonuna Patsy Kensit í sumar þegar atriði í myndinni The Atlantic var tekið . upp við Möltu. „Ég þyki lík henni og var beðin um að detta út í sjó í staðinn fyrir hana af því að hún vildi ekki gera það. Mér var hrint út í og ég átti að láta sem ég væri að drukkna. Band sem var um mitt- ið á mér þrengdist þegar báturinn hreyfðist og ég varð alveg óð, bað- aði út öllum öngum og öskraði að þeir yrðu að stoppa. Þetta var tekið upp og atriðið þótti takast ofsa vel.“ Hún tekur ’ stundum þátt í tískusýningum en sagði að Möltubúar hlypu ekkT eins eftir tísk- unni og íslendingar. Þeir eru nægjusamari en landar hennar í Norður-Atlantshafi. „Ég held að íslenskir stjórnmálamenn þjáist af minnimáttarkennd,11 sagði hún. „Þeir haga sér alltaf eins og það séu milljón manns á íslandi. Hér gera menn sér grein fyrir fámenni þjóðarinnar og haga sér í samræmi við það. Þjóðin kallar sig oft „litla ríka fólkið á Möltu“. Það á vel við. Hér er hægt að lifa góðu lífi.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.