Morgunblaðið - 14.01.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1990
C 29
Þórunn Baldursdóttir og Elín Sæmundsdóttir.
Morgunblaðið/Þorkell
vinnu á talsambandinu að viðkom-
andi tali ensku, eitthvert norður-
landamálanna og helst þriðja
tungumál, þýsku, frönsku, spænsku
eða ítölsku. Og það er enginn skort-
ur á tungumálagörpum á þessari
deild. „Ég man ekki eftir að samtal
hafi strandað vegna tungumálaerf-
iðleika,“ segir Elín.“
Þær Þórunn og Elín segjast hafa
átt ákaflega ánægjuleg viðskipti
við staljsystur sínar erlendis. Þór-
unn: „Ég man til dæmis eftir að
ein þeirra, sem starfaði í Montreal
í Kanada, kom hingað í heimsókn
og bjó hjá tveimur talsambandskon-
um meðan hún stóð við.“
Það ber margt skondið við á
langri leið. Elín minnist atviks sem
átti sér stað fyrir mörgum árum
og sýnir hvað tilviljanir geta komið
manni þægilega á óvart. „Það
hringdi hingað kona sem þurfti að
ná sambandi við dóttur sína í
Kanada. Dóttirin var nýskilin við
eiginmanninn og hafði í vandræðum
sínum fengið inni með tvö lítil börn
sín hjá hjónum þar vestra. Það eina
sem konan vissi, og þó ekki fyrir
víst, var að hjónin byggju í ákveðn-
um bæ og hefðu eftirnafnið Smith,
sem er svona álíka algengt og Jóns-
son hjá okkur. Þetta var á kvöld-
vakt og stúlkan sem var með mér
sagði við mig: „Láttu þig ekki
dreyma um að reyna þetta einu
sinni; þetta er alveg út í bláinn."
Ég hringdi samt í talsambandið í
Montreal og fékk þau svör að það
væru að minnsta kosti 50-60 manns
með eftirnafnið Smith í þessum bæ.
Þá ætlaði ég að gefast upp, en bið
um eins og tíu númer. Þessi númer
var ég að velkjast með á blaði hjá
mér fram eftir vaktinni. Þegar lína
losnaði renndi ég augum yfir blaðið
og valdi eitt númer. Og viti menn:
Dóttir konunnar svaraði í símann.“
Þórunn ætlar ekki að horfa í
gaupnir sér þótt hún sé hætt að
vinna á talsambandinu. „Ég er nú
ekki farin-að leggja það niður fyrir
mér í smáatriðum hvað ég geri,“
segir hún og brosir, „en ég vil helst
hafa eitthvað fyrir stafni til að
koðna ekki niður. Það er ofarlega
á lista lijá mér að læra bridge og
sækja námskeið í einhveiju sem er
mér hugstætt. Og svo nýtur maður
þess auðvitað að passa barnabörn-
in.“
„Ég kvíði engu um framtíðina
hér,“ segir Elín. „Eflaust á sjálf-
virknin eftir að aukast enn, en ein-
hver upplýsingaþjónusta hlýtur allt-
af að verða nauðsynleg vegna tal-
sambandsins við útlönd hvað sem
öðru líður. Og hér er gott að vinna.“
Hvers vegna engin lyfta?
Til Velvakanda.
Aundanförnum árum hefur mikið
verið rætt og ritað um kjör
hreyfihamlaðra og ekki síst hve
slæmt aðgengi þeir hafa að opin-
berum byggingum. Sem betur fer
hefur þessi umræða haft jákvæð
áhrif þannig að aðgengi fatlaðra
hefur farið stórbatnandi, og man ég
ekki betur en að sett hafi verið í lög
að tekið skuli tillit til fatlaðra við
allar nýjar opinberar byggingar.
Þess vegna brá mér illilega í brún
í haust er ég var að hlusta á þátt
Jónasar Jónassonar, Kvöldskuggar.
Hann var þar að tala við fatlaða
konu. Sagðist hann hafa samvisku-
bit af því að hafa fengið konuna til
viðtals upp í útvarpshús og látið
hana príla upp alla þessa stiga.
Hvað, er engin lyfta í nýja útvarps-
húsinu? hugsaði ég. Getur þetta ver-
ið? Ég trúði varla mínum eigin eyrum
og hringdi niður í útvarpsstöð og
spyr einn starfsmanna hvort engin
lyfta sé í húsinu. Jú, það passaði.
Hún var engin en til stæði að hún’
kæmi einhvern tíma seinna. Þarna
hafði sem sé orðið afturför frá því
sem var í .gamla húsinu við Skúla-
götu. Til dæmis væri ég boðaður
þangað til þátttöku í dagskrárlið (en
ég er í hjólastól), nú það væci ekk-
ert mál fyrir mig því þarna var glæsi-
leg lyfta. Nú mun því kannski verða
svarað að ekki hafi verið til peningar
fyrir lyftu en hefði þá ekki mátt
spara eithvað sem síður er nauðsyn-
legt? T.d. stóra fiskabúrið, já eða þá
auka svolítið sparnaðinn í manna-
haldi? Hvað á allur þessi lestur að
þýða, 4—5 manns að lesa fréttirnar
og hópur manna við ýmsa aðra þætti
þar sem einn dygði. Eg sé ekki betur
en þarna sé Ríkisútvarpið að halda
uppi eins konar atvinnubótavinnu.
Nei, hér er að mínu mati engin
afsökun. Ég skora á forstöðumenn
Ríkisútvarpsins að kippa þessu sem
allra fyrst í lag. Ekki mín vegna.
Ég geri ekki ráð fyrir að verða kallað-
ur upp í útvarp til eins eða neins en
það gætu verið aðrir fatlaðir sem
ættu þangað erindi og gætu orðið
Ríkisútvarpinu að góðu liði.
Gestur Sturluson
HÁVAÐI
Til Velvakanda.
*
Eg er alltaf undrandi á því hversu
mikin hávaða fólk lætur bjóða
sér á skemmtistöðum. Þar heyrist
ekki mannsins mál og það er jafnvel
erfitt að hlusta á tónlistina einmitt
vegna þess hve hún er hávær. Þetta
gerir fólk alveg ruglað. Á þessum
stöðum ætti að leggja áherslu á að
þjóna fólki og skapa skilyrði til góð-
ar stemmingar.
Talað hefur verið um að þessi
hávaði geti valdið skemmdum á
heyrn fólks, jafnvel varanlegum.
Hvað um tónlistarmennina? Eru þeir
ekki allir orðnir heyrnardaufir? Er
það ef til vill þess vegna sem sem
þeir stilla svona hátt - til að heyra
sjálfir það sem þeir eru að spila. Er
ekki komin tími til að koma þessum
málum í betra horf?
Gestur
TRUAR-
LEIÐTOGAR
ÞJÓÐANNA
Til Velvakanda.
Leggðu það á þig að vera opinn
fyrir fréttum og heimsfréttum
í, eigum við að segja 6—10 mánuði,
kannski skemur. Þá á ég við fréttir
í öllum fjölmiðlum. Þetta hef ég reynt
á sjálfum mér. Hver verður svo út-
koman? Jú, þú ert litlu nær. Þér
finnst flest standa í stað.
Vissulega eru það mikil gleðitíð-
indi hvernig mál leysast fyrir austan
járntjald. Þó er ekki allt sem sýnist.
Nei, lesandi góður, það eru trúar-
brögðin, hin ólíku trúfélög þjóðanna
sem öllum glundroðanum valda um
heim allan. Trúarleiðtogar þjóðanna,
eru, ef grannt er skoðað, hinir raun-
verulegu ráðamenn. Ef þeir koma
sér ekki saman, iogar allt sem getur
brunnið. Hinir pólitísku ráðamenn
eru máttlitlir. Þeim tekst aldrei að
koma á friði í heiminum.
Mér er sama hvað hver segir. Hin
ólíku trúarbrögð hafa lítið sem ekk-
ert breyst í gegnum aldirnar. Lítið
nálgast hvert annað þó öll stefni að
sama marki. Það er einna helst að
Lúter virði páfann eða öfugt. Búið
heilagur.
Þá eru öll hin eftir. Guð má vita
hvað þau eru mörg en þau stærstu
getur maður talið á fingrum sér.
í raun er þetta mjög einfalt dæmi.
Ef þeir sem öllu ráða í heiminum í
dag og þá er ég komin að kjarna
málsins. Það er að beita vopnum í
þágu friðar, ef þessir háu herrar
krefðust þess í valdi vopna sinna,
að trúarleiðtogar þjóðanna talist við
og semji ævarandi frið, geta jarð-
arbúar andað léttar um aldamót.
„Maðurinn“í dag getur búið yfir
þvílíkri menntun, kunnáttu, að sól-
kerfi okkar er í hættu.
Ef ekki er unnt að komast stystu
leið að meininu-nú þegar er voðinn
vís. Annars er það furðulegt að ekki
hafi verið vakin athygli á þessu fyrr,
eins og það í sjálfu sér er einfalt.
Nú er bara að hamra járnið meðan
það er heitt.
Ég segi eins og þeir á Stöð ’89.
Boltinn er hjá þér, lesandi góður.
M.Ó.
Jasstónleikar sunnudag kl. 21.30
Tregasveitin
Pétur Tyrfingsson,söngur og gítar
Guðmundur Pétursson, gítar
ásamt hrynsveit.
Ósvikinn biúsleikur.
Heili potturinn
Fischersundi
ENSKA - SUMARFRÍ - TÓMSTUNDIR
Lærið ensku á einum vinsælasta sumardvalarstað á
suðurströnd Englands, Eastbourne. Allt viðurkenndir
skólar. Hægt er að velja um:
- Ensku og skoðunarferðir
- Ensku og badminton
- Ensku og tennis
- Ensku og siglingu á ánni Thames
- Ensku fyrir kennara
- Ensku fyrir fólk á efri árum
- Ensku og heimilishjálp
og fleira.
Upplýsingar gefur Edda Hannesdóttir, fulltrúi I.S.A.S.
á íslandi, í síma 672701 milli kl. 13-15.
Fulltrúi frá I.S.A.S. er á staðnum til aðstoðar
hvenær sem er.
Æ
Við kynnum garndeildina okkar og veitum
10%afslátt
af öllum vörum í deildinni. t
10% afsláttur af:
Bandi, lopa, vefjagarni, prjónum og fylgihlutum í vefstóla.
Sértilboð að auki á eldri litum:
20% afsláttur af hespulopa, plötulopa og flosi í mörgum
eldri litum sem hætt er að framleiða.
Kynningin stendurtil 1. febrúar.
Sendum í póstkröfu.
íslenskur heimilisiðnaður,
garndeild, 2. hæð,
sími 11785.
Símboðínn
Nú er hægt að koma til þín skilaboðum, nánast havar sem þú
ert staddur og þú hringir svo í viðkomandi þegar þér hentar!
Ómissandi fyrir þá sem eru mikið á ferðinni,
Kynningarverð aðeins 19.900,- eða 18.900,“ stgr.
Hafðu samband og við leiðum þig í allan sannleíkann um Símboðann