Morgunblaðið - 02.03.1990, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990
15
Norræn kvikmyndavika
haldin í Kaupmannahöfh
Foxtrot frá íslandi
í lok janúar var haldin norr-
æn kvikmyndavika í Kaup-
mannahöhi, sýnd ein eða tvær
myndir frá hverju landi og auk
þess mynd frá Færeyjum, sem
var sérlegt nýmæmi. Kvik-
myndavikan var haldin í sam-
vinnu borgarinnar, dönsku
kvikmyndastofiiunarinnar og
Norrænu menningarskrifstof-
unnar. Hugmyndin var að koma
á framfæri myndum, sem ann-
ars væru líklega ekki sýndar
hér í kvikmyndahúsum. Mynd-
irnar voru fyrst sýndar í kvik-
myndahúsi rétt við Vest-
erbrogade, Vester Vov Vov, í
Absalongötu 5, en síðan víðar
um landið.
Myndirnar sem voru sýndar
voru Foxtrot frá íslandi, Fallgro-
pen og Kronvittnet frá Svíþjóð,
Pohjanmaa eða Fejden i Nordland-
et frá Finnlandi, Karachi og Issl-
ottet frá Noregi og Atlantic
Rhapsody frá Færeyjum. Það er
áberandi að flestar myndanna,
allar nema tvær, eru einhvers
konar spennumyndir, þrillerar, en
það segir þó ekki alla söguna,
því það er ekki síst innri spenna
persónanna, sem veldur. Aðeins
Isslottet og færeyska myndin falla
utan þeirrar greinar.
Fallgropen er gerð af Vilgot
Sjöman, sem varð þekktur fyrir
Forvitnu myndirnar, Ég er forvitin
blá og gul. Þessi nýjasta mynd
hans frá síðasta ári fjallar um
prófessor í trúarsálfræði, sem
flækist inn í óvænta atburði, eftir
að hann reynir að aðstoða drukkna
stúlku, sem kemur í ljós að er
nemandi hans. Kronvittnet er gerð
af leikstjóranum Jon Lindström,
sem meðal annars hefur unnið
með danska leikstjóranum Bille
August, þeim sem fékk Óskars-
verðlaunin fyrir Pelle erobreren.
Mynd Lindströms ijallar um
vísindamann, sem er orðinn
þreyttur á konu sinni. Hann laðast
að stúlku og það virðist gagn-
kvæmt, en þegar hann fær tæki-
færi til að bjóða henni heim, hafn-
ar hún boðinu og hleypur í burtu.
Hún hverfur síðan og lögreglan
flækist í málið.
Finnska myndin, Pohjanmaa,
er um fjölskyldu í Norður- Finn-
landi, sem kemur Saman til að
skipta arfi eftir auðugan afa. Allir
vilja sitt, mennirnir hika ekki við
að beita ofbeldi og engum er
þyrmt. Leikstjórinn er Pekka
Parikka, sem hefur skrifað, leik-
stýrt og unnið við sjónvarp. Karac-
hi er sálfræðiþriller um unga
stúlku, sem er þvinguð til að
flytja heróín frá Karachi til Nor-
egs. Hún kemst í tæri við norskan
lögreglumann, sem er kominn
langt í að rannsaka hópinn á bak
við smyglið. Leikstjórinn Oddvar
Einarson hefur áður gert verð-
launamyndina X. Isslottet er um
vináttu tveggja ellefu ára telpna,
gerð af Per Blom, sem þegar
hefur gert fjórar aðrar myndir.
Sólarhringur í Þórshöfh
Atlantic Rhapsody er gerð af
ungum, færeyskum kvikmynda-
leikstjóra, Katrinu Ottarsdottur.
Katrin er fyrsti færeyski kvik-
myndaleikstjórinn og fyrsta mynd-
in hennar er fyrsta færeyska
myndin, framleidd og leikstýrð af
Færeyingum. Katrin bæði leik-
stýrði myndinni og skrifaði handri-
tið að henni. Undirtitill myndar-
innar er 52 senur frá Þórshöfn og
í henni er farið með áhorfandann
í nokkurs konar ferð um bæinn,
sólarhringsferð. Með þessum
stuttu myndum úr bæjarlífinu er
brugðið upp ótrúlega lifandi og
skemmtilegum myndum þaðan, en
Ótrúar eiginkonur eiga ekki sjö dagana sæla í Færeyjum frekar en
annars staðar___
það drukknar ekki allt í áráttu
eftir að vera fyndinn, því um leið
er líka lýst vel hvernig lífið í litlu
þorpi er. Og þó Reykjavík sé
snöggtum stærri en Þórshöfn,
kom margt kunnuglega fyrir sjón-
ir.
Það er enginn eiginlegur sögu-
þráður í myndinni, heldur byijar
myndin með persónum, sem síðan
hitta aðrar, sem myndavélin fylgir
eftir og þannig vindur myndin sig
áfram. En bærinn er lítill, svo
sömu persónurnar taka að stinga
upp kollinum, þegar líður á mynd-
ina. Það er margt, sem drepið er
á. Innilokunarkenndin, hvernig
allir fylgjast með öllum, trúarlífið
sem ku vera ótrúlega fjölskrúðugt
á eyjunum, útlendingarnir sem
ganga um og kíkja á glugga fólks
eins og þeir væru á byggðasafni.
Samtölin eru öll giska stuttaraleg
og hvunndagsleg. Aðeins tvær
konur í myndinni eru ekki vand-
ræðum með að koma orðum að
hlutunum, tala fjálglega um
menninguna og náttúruna. Það er
ekki að spyija að þessum Dönum,
þeir kunna sannarlega að tala og
orðagjálfur þeirra vekur litla
hrifningu innfæddra.
Katrin hefur komið til íslands
og kom ekki alveg á óvart að
eitthvað væri líkt með lífinu í Þórs-
höfn og í Reykjavík. Annars sagð-
ist hún ekki hafa tilfinningu af
að þekkja sig á íslandi, hún hefði
næstum ekki séð annað en
Reykjavík, en þar var hún meðal
annars að heimsækja starfsfélaga
sinn, Guðnýju Halldórsdóttur
kvikmyndaleikstjóra.
Ef einhver hugsar um norrænar
kvikmyndir sem eitthvað þung-
lamalegt og þrælhugsað, þá er
ekki annað en að líta á upptaln-
ingu þessara mynda. Þar finnast
einnig vel gerðar spennumyndir,
sem eiga að sýna eitthvað annað
og meira en spennuna eintóma.
Og svo hugljúfar, skemmtilegar
og pínulitið yddaðar myndir eins
og færeyska myndin hennar Katr-
inar Ottarsdottur. Er ekki annars
langt síðan hefur verið haldin
norræn kvikmyndavika á íslandi?
Texti: Sigrún Davíðsdóttir
HVER PERLA INNI-
HELDUR 66mg. AF
NÁTTÚRULEGUM
HVÍTLAUK
Hvidlegs-
perler
Uden lugt og smag
Ekstra stærke
Bókin um
hamingjuna
eftir Pétur Guðjónsson
Bókin um hamingjuna á að hjálpa
fólki að lifa fyllra og
hamingjusamara lífi. Hún er samin á
aðgengilegu máli og lýsir því hvernig
vinna má bug á streitu, skorti á
sjálfsþekkingu og sjálfsstjórn, og
öðru því sem kemur í veg fyrir
vellíðan og tilgangsríka tilveru.
Bókin hefur verið uppseld um árabil
en er nú komin í nýrri útgáfu.
IÐUNN