Morgunblaðið - 02.03.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990
17
CHESS SUMMIT OPEN
BÚNAÐARBANKAMÓTIÐ
14. ALÞJÓÐLEGA 1930 REYKJAVlKURSKÁ ® 1980 KMÓTtÐ
CHESS SUMMIT MATCH
STÓRVELDASLAGUR
ViSA IBM
REYKJAVÍK
1990
Verk úr safni Ingu Riis
sýnd á Kjarvalsstöðum
SÝNING á verkum úr safhi Ingu Riis var opnuð á Kjarvalsstöðum
um síðustu helgi. Inga Riis hefur um árabil rekið eitt stærsta og
alþjóðlegasta gallerí á Norðurlöndum og er það staðsett í Osló.
Opnaði hún galleríið ásamt eiginmanni sinum, Andreas L. Riis, fyrir
tíu árum en þegar árið 1970 höfðu þau sett á laggirnar fyrsta gall-
eríið í Þrándheimi. Andreas L. Riis lést fyrir sex árum og hefur
Inga séð um öll mál síðan. Verkin 34 sem hér eru nú til sýnis má
flokka undir ljóðræna abstraksjón. Verk Iistamanna úr Cobra-
hópnum og Ecole de Paris hafa löngum myndað kjarnann í Riis-
safninu óg er á sýningunni á Kjarvalsstöðum m.a. að finna verk eft-
ir listamennina Asger Jorn, Corneille og Roger Bissiére.
Inga Riis kom hingað til lands í
tengslum við opnun sýningarinnar
og náði Morgunblaðið tali af henni
og spurði hvenær myndlistaráhugi
hennar hefði vaknað. Sagði hún
áhuga þeirra hjónanna á myndlist
ávallt hafa verið til staðar og þau
lagt mikla rækt við hana allt frá
því að þau giftu sig árið 1951. Þó
að þau hefðu keypt mikið af lista-
verkum allt frá upphafi hefðu samt
fyrstu tíu ár hjónabandsins aðallega
farið í aðra hluti eins og að byggja
upp heimilið. Maður hennar hefði
líka verið í umsvifamiklum atvinnu-
rekstri, glerframleiðslu og sölu, og
hefði mikið verið að gera í þeim
efnum á þeim árum, ekki síst í
tengslum við uppbygginguna eftir
stríðið.
Smám saman hefðu þau hins
vegar byijað að kaupa listaverk
meira meðvitað. Cobra-hópurinn
svo nefndi vakti athygli þeirra um
miðjan sjöunda áratuginn og stuðl-
aði að því að listin varð með tíman-
um að ástríðu í lífi þeirra. Inga
sagði það oft hafa gerst þegar þau
hjónin hrifust af sama listamannin-
um að þeim hefði fallið hvoru við
sitt listaverkið. Það hefði oftast
endað með því að þau hefðu keypt
þau bæði.
í byrjun áttunda áratugarins
hefðu þau svo opnað fyrsta gall-
eríið sitt í Þrándheimi. Þau ráku
verslun í bænum og var ónotað loft
í því húsnæði sem tilvalið var að
nota undir slíka starfsemi. Sá Inga
um að stilla upp sýningunum en
maðurinn hennar keypti inn. Árið
1980 tóku þau svojpá ákvörðun að
setja upp gallerí í Osló. Inga sagði
að þó að Þrándheimur væri ágætur
bær væri hann kannski ekki rétti
staðurinn til að reka gallerí með
nútímalist. í september 1980 opn-
uðu þau því gallerí í Ósló. Fyrst
um sinn ráku þau einnig galleríið
í Þrándheimi áfram en rekstri þess
var loks hætt fyrir einu og hálfu ári.
Eiginmaður Ingu Riis lést í flug-
slysi fyrir sex árum. Inga sagði að
þetta hafi verið gífurlegt áfall og
hafi hún verið tvö ár að jafna sig
á eftir. Eftir lát eiginmannsins hef-
ur hún séð um yfirstjórn fyrirtækis-
ins og gallerísins. Þegar hún var
spurð hvernig það færi saman að
stjórna fyrirtæki og reka gallerí
sagði Inga að það væri nánast eins
og flóð og fjara. Það bjargaði samt
miklu að hún hefði mjög duglega
manneskju til þess að stjórna gall-
eríinu í Osló.
Riis-safnið er mjög veglegt en
það er að staðaldri geymt á Hovik-
odden, Henie-Onstad-safninu,
skammt fyrir utan Ósló. Safn þetta,
sem kennt er við Sonju Henie-
Nielsen, svipar að miklu leyti til
Moderna Museet í Stokkhólmi og
MUNIÐ
MERKJASÖLUNA
RAUÐI KROSS ÍSLANDS..
Skák:
,, Stórveldaslagnr ‘ ‘ í Reykjavík
Morgunblaðið/Sverrir
Inga Riis, sem stendur lengst til hægri á myndinni, var viðstödd
opnun sýningarinnar á verkum úr safni hennar á Kjarvalsstöðum.
Við hlið hennar stendur Gunnar Kvaran, forstöðumaður Listasafns
Reykjavíkurborgar. Einnig eru á myndinni Per Hovdenakk, forstöðu-
maður Henie-Onstad-safiisins í Ósló, og eiginkona hans.
SÉRSTÆTT skákmót verður í
Reykjavík dagana 9.-15. mars. Á
mótinu takast á lið stórveldanna
tveggja, Bandaríkjanna og Sov-
étríkjanna, lið Bretlands og úr-
valslið Norðurlanda. 41 stór-
meistari og 5 alþjóðlegir meist-
arar taka þátt í mótinu sem ber
heitið „Stórveldaslagur“. Það
má segja að marsmánuður verði
helgaður skákinni því að eftir
að Stórveldaslagnum líkur hefst
Búnaðarbankamótið, 14.
Reykjavíkurskákmótið, og verð-
ur það með 87 keppendum fjöl-
mennasta mót sem haldið hefiir
verið hér á landi. Mun það
standa dagana 17.-30. mars.
Aðdragandi „Stórveldaslagsins
er sá að í framhaldi af VISA-
skákkeppninni milli Banda-
ríkjanna og Norðurlandanna, sem
fram fór í Reykjavík árið 1986,
kviknaði sú hugmynd að fylking-
arnar reyndu með sér á ný. Á
FIDE-þingi í Sevilla árið 1987
hreyfðu Islendingar svo þeirri
hugmynd að efnt yrði til fjögurra
liða keppni með báðum stórveld-
unum, Norðurlöndunum og Bret-
landi. Var vel tekið í hugmyndina
og aðilar sammála um að mótið
ætti að fara fram í Reykjavík. Á
þingi í Saloniki ári síðar var síðan
gert óformlegt samkomulag um
keppnina. Hefur málið síðan verið
rætt á fundum milli aðila til að
ganga frá hlutum og var sá síðasti
fyrir mánuði.
Það eru VISA-ísland, VISA-
Louisiana-safnsins í Kaupmanna-
höfn. „Við töldum rétt að geyma
að minnsta kosti kjarnann úr safn-
inu á sama stað en hann saman-
stendur aðallega af verkum Cobra-
hópsins og franskri list á svipuðu
reiki,“ sagði Inga. 1986-87 hélthún
stóra sýningu á Hovikodden þar
sem allt safnið var sýnt og hluti
þess hefur einnig verið sýndur í
New York, Finnlandi, Svíþjóð og
Þýskalandi.
Hún sagði Gunnar Kvaran, list-
ráðunaut Reykjavíkurborgar, hafa
sýnt mikinn áhuga á safninu og
hefði orðið úr að ákveðið var að
setja upp sýningu á íslandi. Þau
verk sem nú væru til sýnis á Kjar-
valsstöðum væru stór hluti af kjarn-
anum.
Inga rekur eins og áður sagði
samhliða atvinnurekstrinum gall-
eríið í Ósló. Hún sagði mikið um
að ungir listamenn sýndu þar,
norskir jafnt sem frá öðrum Norð-
urlöndum, aðallega frá Svíþjóð,
Finnlandi og íslandi. Hefðu til dæm-
is bræðumir Sigurður Guðmunds-
son og Kristján Guðmundsson sýnt
þar nýlega.
Inga Riis kom nú til Islands í
fyrsta skipti í tengslum við opnun
sýningarinnar á Kjarvalsstöðum og
sagðist hún hafa hrifist mjög af
landinu. Hefðu til dæmis heimsókn-
ir í Bláa lónið og að Geysi verið
áhrifamiklar og gjörólíkar því sem
maður upplifði í Noregi. Væri hún'
staðráðin í að koma hingað aftur
en þá að sumri til.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Forystumenn Skáksambandsins, skákmenn og fulltrúar þeirra fyrirtækja sem fjármagna munu „Stór-
veldaslaginn", f.v.: Jóhann Hjartarsson, Margeir Pétursson, Guðmundur Arnlaugsson, Einar S. Einars-
son, Gunnar Hansson, Jón L. Árnason, Friðrik Ólafsson, Þorsteinn Þorsteinsson og Þráinn Guðmundsson.
International og IBM á íslandi
sem fjármagna keppnina ásamt
Norræna menningarmálasjóðnum
sem veitir styrk til keppninnar.
Þá hafa aðstandendur hennar
gert samkomulag við Stöð 2 um
beinar útsendingar frá keppninni
og skákskýringaþætti.
í liði Norðurlanda verða íslend-
ingamir Helgi Ólafsson, Margeir
Pétursspn, Jóhann Hjartarsson og
Jón L. Árnason. Liðsstjóri verður
Friðrik Ólafsson og er hann einn-
ig fyrsti varamaður liðsins.
Hér má sjá merki þau sem út-
búin hafa verið fyrir stórmótin
er haldin verða í Reykjavík nú
í marsmánuði.
■ HEILSUDAGAR undir kjörorð-
inu „Bætt heilsa — betra líf ‘ standa
nú yfir í Kringlunni. Ýmsir sem
starfa að heilsuvernd og heilbrigðis-
málum miðla til viðskiptavina upplýs-
ingum um heilbrigðara líferni og
bætt heilsufar. íþrótta- og danssýn-
ingar eru í göngugötunum. Um 30
félög og opinberir aðilar kynna starf-
semi sína og veita ráðgjöf fyrir al-
menning. Gefin verða út þijú frétta-
bréf með ráðleggingum og fróðleik
um bætt mataræði, heilsufar og
breyttan lífsstíl og verður bréfunum
dreift í Kringlunni. Kringlan hefur
tvisvar áður efnt til kynningar af
þessu tagi og segir í fréttatilkynn-
ingu að þær hafi vakið athygli og
áhuga viðskiptavina.