Morgunblaðið - 02.03.1990, Qupperneq 29
M0RGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990
29
félk í
fréttum
HATIÐISDAGAR
Skrautlegir
búningar
á öskudag
í Borgamesi
Ileikskóla Borgarness mættu margir
til leiks á öskudag.
Þar mátti sjá meðal annars Sorró,
Batman og fjölda indíána. Einnigvoru
þar mætt þau Rauðhetta, Lína lang-
sokkur, nokkrir trúðar og kisur. Þetta
fjölskr' uðuga lið ungra Borgnesinga
tók vel í það að staldra aðeins við og
stilla sér andartak upp fyrir ljós-
myndatöku.
OLIKINDI
Víst var það
Michael
Jackson!
Vegfarendur við breiðgötu í New York
stöldruðu margir hverjir við hjá
gang stéttarhljómsveit sem þandi sig.að
vanda í von um fjárframlög vegfarenda.
Einn í hljómsveitinni var ekki einungis
sláandi líkur
Michael
Jackson,
heldur söng
með þeim
hætti að
Jackson
hefði verið
fullsæmdur
af. Þetta var
svo sem ekk-
ert skrýtið,
því að þetta
var enginn
annar en
Michael
Jackson sem
hafði fengið
þá hugdettu
að taka svo
semtveggja
tíma töm
með götuhljómsveit. Áheyrendur voru svo
hrifnir, að smápeningunum rigndi í hatt-
inn og er upp var staðið hafði sveitin
þénað 11 dollara!
Margir höfðu orð á því er þeir höfðu
hlustað nægju sína, að betri Jackson-
eftirhermu hefðu þeir ekki séð. Hljóm-
sveitin og Jackson sjálfur fóru hins vegar
ekkert leynt með það að þarna fór goðið
sjálft en ekki einhver hermikráka. Því
trúði auðvitað enginn og gengu margir
sína leið skellihlæjandi að þeirri bjartsýni
að láta sér detta til hugar að segja fólki
að Michael Jackson væri að syngja og
dansa með ótýndri götuhljómsveit í New
York, skárra væri það nú!
Michael Jackson - kom
á óvart ...
Týndur
sonur snýr
aftur
Leikfélag Menntaskól-
ans við Sund, Thalia,
frum sýndi um síðustu
helgi leikritið „Sonur skó-
arans og dóttir bakarans“
eða „Söngurinn frá My
Lai“ eftir Jökul Jakobs-
son, en Þórarinn Eyfjörð
leikstýrir. Sýningar eru í
leikhúsi Frú Emilíu í
Skeifunni. Leikritið fjallar
um lífið í litlu sjávarþorpi
sem má muna sinn fífil
fegri. Miklar breytingar
verða í lífi þorpsbúa þegar
„týndi sonur“ plássins
kemur heim eftir margi’a
ára slark úti í heimi. Fortíð
hans sem er dökk, fylgir
honum eins og skugginn
og hefur víða áhrif. Mynd-
in sem þessu fylgir er af
einu atriða leikritsins.
Morgunblaðið/Gunnar Leifur Jónasson
0
DAGAR
EFTIR
dL X X
M? %
fey’ m
j M
w
BÓKAMARKAÐURINN KRINGLUNNI Félag ísl.bókaútgefenda