Morgunblaðið - 02.03.1990, Page 35
MORGUkBLAÐIÐ FÖSTUÓÁGUR' 2. MARZ 1990
35
VELXAKANDI
SVARiR í SÍMA
691282KL. 10-12
FRÁ NÁNUDEGI
TIL FCSTUDAGS
Nægir byltingin í Rúmeníu?
Kæri Velvakandi.
Það eru allir ánægðir með að
rúmenska þjóðin hefur losað sig
við einræðisherrann Ceausescu og
kommúnista-hyskið sem fylgdi
honum, og mætti ætla að fólk
geti andað rólega. Málið er því
miður á annan veg. Kommúnist-
arnir þar, eru ekki af baki dottn-
ir, frekar en annars staðar. Þeir
húka nú í skúmaskotum þjóðfé-
lagsins og bíða átekta eftir nýjum
tækifærum, í nýjum gervum, með
önnur heiti. Við getum verið viss
um að fólk sem getur níðst á þjóð
sinni í tugi ára breytist ekki fijótt
og auðveldlega. Fólk sem hefur
verið kúgað í fjölda ára af komm-
únistum á ekki auðvelt með að
byggja upp lýðræði, með frelsi og
öryggi einstaklingsins. Hver veit
því nema að nýlegar blóðsúthell-
ingar séu aðeins undanfari aðal-
byltingarinnar? Við óskum Rúm-
enum friðsamlega þróunar til lýð-
ræðis.
í Rúmeníu er því miður annað
undirstöðu vandamál auk
kommúnismans. Rúmenar búa
ekki við eðlileg landamæri eins og
er með svo margar aðrar þjóðir
Evrópu. Meðan svo er, verður ekki
varanlegur friður þar. Fólkið sem
blés svo á neista frelsisins, að
það varð að báli byltingar í Rúm-
eníu, var ungverskt og vildi mót-
mæla því að fá ekki að tala móður-
mál sitt ungversku, ekki einu sinni
í kirkju sinni. Þegar söfnuðurinn
og aðrir Ungveijar tóku höndum
saman og umkringdu heimili
prests þeirra, svo að morðingjar
Ceausescus kæmust ekki að hon-
um, gengu kommúnistarnir ber-
serksgang og murkuðu lífíð úr
þúsundum varnarlauss fólks.
Þetta gerðist í ungversku borginni
Timisora í Transylvaníu, fylki
Ungveijalands.
Transylvanía hafði verið hluti
Ungveijalands í rúm 1000 ár,
þegar herrarnir, sem neyddu Ver-
salasamningnum upp á Evrópu
eftir fyrri heimsstyijöldina, bættu
bálki við samninginn, er kallast
„Trianon samkomulagið“. Með
nokkrum pennastrikum, en með
heimsku og illgirni í góðum mæli
— gáfu þeir Rúmeníu Transil-
vaníufylki Ungveijalands, algjör-
lega án samráðs við íbúana. Síðan
hafa þessir Ungveijar Transyl-
vaníufylkis sem eru um tvær millj-
ónir, verið píndir og kúgaðir af
Rúmenum, hvort sem um komm-
únisma hefur verið að ræða, eða
ekki.
Með þessum sömu Versala-
samningum voru einnig tekin tvö
aðal fylki Þýskalands af Þjóðveij-
um, Austur-Prússland og Vestur-
Prússland, sem eru sjálf uppistaða
tilveru Þýskalands. Einnig má
segja sömu sögu um þá Þjóðveija
sem eru píndir til þess að búa
undir oki Pólveija, og eiga að vera
ánægðir með það. Það er athuga-
vert að fólkið sem blés á frelsi-
sneistann sem varð að byltingarb-
áli í Póllandi, var fólkið í þýsku
borginni Danzig.
í þessu sambandi má nefna
hluta Moldavíu sem Sovétmenn
tóku af Rúmeníu í síðari heims-
styijöldinni, en íbúar Moldavíu
eru af rúmensku bergi. Eða hvað
um Júgóslavíu, sem er í raun
gerviríki þjóða sem þrá að vera
sjálfstæðar, það mun koma sá
dagur að þær verði það. Svona
má lengi.telja.
Það er algjör blekking að ætl-
ast til að Evrópa geti verið heil-
brigð og þjóðir geti búið þar í bróð-
erni á meðan óréttlæti Versala-
samningsins, sem fremur öllu öðru
var bein og óbein ástæða síðari
heimsstyijaldarinnar, er við lýði.
Það fyrsta sem þjóðir Evrópu
verða að gera, er að leiðrétta
mistök Versalasamningsins og
byija með því að ógilda og
ómerkja hann.
Vandamálið í Rúmeníu eða
Evrópu í heild verður því ekki
leyst einungis með byltingu gegn
kommúnismanum, sem er þó
nauðsynleg, heldur er algjört
frumskilyrði að gervi-landamæri
Evrópu sem Versalasamningurinn
og seinni heimsstyijöldin sköpuðu,
verði leiðrétt. Þar ætti að byija á
því að sameina allt Þýskaland.
Helgi Geirsson
BÆN FYRIR ÍSLANDI
Til Velvakanda.
Fyrir síðustu jól kom út snælda
með söng pólsku Karmelsystranna
í Hafnarfirði, en þær komu hingað
til lands 1984. Nafnið á snældunni
er: „Söngvar Karmelsystra —
Bæn fyrir íslandi". Sú nafngift er
í fullu samræmi við það kyrrláta
og háleita trúarstarf, sem fer fram
innan veggja klaustursins, en alla
daga „stíga upp bænir Karmel-
systra til Guðs, íslensku þjóðinni
til handa, um að Kristur verði
öllum vegurinn, sannleikurinn og
lífið,“ eins og segir í kynningarorð-
um sem fylgja snældunni.
Svo ótrúlegt sem það er, hefur
lítið verið skrifað um þessa ágætu
söngsnældu. Langar mig því með
línum þessum að vekja athygli á
henni og þakka um leið Karmel-
systrunum það góða framlag, sem
þær hafa gefið íslensku tónlist-
arlífi með fögrum söng sínum. Þá
vil ég einníg þakka Gunnari Ey-
jólfssyni, leikara, fyrir það frum-
kvæði, sem hann átti að útgáfu
snældunnar.
Á snældunni eru 20 lög, íslensk
og erlend, m.a. eftir Eyþór Stef-
ánsson, Pál ísólfsson, Þórarinn
Guðmundsson, J.S. Bach og Moz-
art. Af pólskum lögum, sem sys-
turnar syngja, er t.d. eitt frá 13.
öld, fyrsti þjóðsöngur Pólveija.
Sunginn er íslenskur texti við níu
af lögunum, sem flest eru þekkt
sálmalög. Strengjasveit Pólveija,
sem eru í Sinfóníuhljómsveit Is-
lands, leikur undir söngnum í
mörgum laganna.
Ég held, að vandfundinn sé hér
á landi hópur 21 söngvara, sem
syngur eins samstillt og þær
Karmelsystur gera. Söngur þeirra
er bæði mildur og tær og endur-
speglar fagurlega þá trúargleði,
sem þær eru svo ríkar af og vilja
miðla öðrum. Sumar af systrunum
höfðu verið við söngnám og ein
að því komin að skapa sér sess
sem atvinnusöngkona við óperu-
hús í sínu heimalandi.
Það er bæði hugljúft og mann-
bætandi að njóta næðisstunda við
að hlusta á söngva Karmelsystra,
sem að mínum dómi eru merkari
en margt af því, sem mest er
lofað og hampað á sviði tónlistar
hér á_landi.
Árni Gunnlaugsson, hrl.
Höf ðakaff i - Árlún
Ásgeir Hannes Eiriksson,
þingmaður Borgaraflokksins og full-
trúi Reykvíkinga í fjárveitinganefnd-
Alþingis, verður í Höfðakaffi (Ár-
túni), Vagnhöfða 11, í dag, föstu-
daginn 2. mars, kl. 11.30-13.30.
KomSA og spjallið víð þingmann-
Reykvíkinga.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík %
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals íValhöil, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum í vetur frá kl. 10-12.
Ér þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 3. mars verða til viðtals Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður atvinnumála-
nefndar, í stjórn bygginganefndar aldraðra og SVR, og Hulda Valtýsdóttir, formaður
menningamálanefndar.
V V V V V V V V V V’ V V V
g' Jk 2 2' m' 2 S' m' m' # á #
Lögmannsstofa
Baldvins og Reynis
Við höfum flutt skrifstofu okkar á Háaleitisbraut 58-60
(Miðbær) 2. hæð.
Nýtt símanúmer er 680070.
Baldvin Jónsson hrl.
Reynir Karlsson hdl.
Innhverf íhugun
INNHVERF ÍHUGUN cr huglæg þroskaaóferö, sem
allir geta lært. Iðkun hennar vinnur gegn streitu og
stuðlar að heilbrigði og ánægju í daglegu lífi.
Kynningarfyrirlestur í Norræna húsinu á morgun,
laugardag, kl.15.00. Aðgangur er ókeypis.
Uppl. í síma 16662.
Islenska íhugunarfélagið.
Maharíshi Mahcsh Yogi
UHFFEBIM
II
Magnús
Kjartansson
bregður á leik
í kvöld og
skemmtir gestum
fram á nótt
Opið fyrir aðra en
matargesti eftir kl. 23.
Borðapantanir í síma 23950.
MANDARÍNINN
HITAMÆLINGA-
MIÐSTÖÐVAR
Fáanlegar fyrir sex, átta, tíu, tólf, sextán, átján eða
tuttugu og sex mælistaði. - Ein og sama miðstöðin
getur tekið við og sýnt bæði frost og hita, t.d. Ceicius-r
200+850 eða 0+1200 o.fl. Hitaþreifarar af mismunandi
lengdum og með mismunandi skrúfgangi fáanlegar. -
Fyrir algengustu rið- og jafnstraumsspennur. - Ljósstaf-
ir 20 mm háir. - Það er hægt að fyigjast með afgas-
hita, kælivatnshita, smurolíuhita, lofthita, kulda íkælum,
frystum, lestum, sjó og fleiru.
xl
SöytrOsMyigiyiir yto©©©tni
Vesturgötu 16 - Símar 14680 - 21480 - Telef. 26331